Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 41 Svanavatnið og fordómar Opið bréf til ritstjóra Morgunblaðsins ÁGÆTU Matthías og Styrmir, Morgunblaðið hefur verið duglegt að sinna menningunni og öðru hvoru skjóta upp koll- inum greinar þar sem við erum frædd um spennandi listviðburði úti í hinum stóra heimi. Laugardaginn 14. desember birtist I blaðinu ein slík grein. Höfundur er Súsanna Svavarsdóttir, rithöf- undur og blaðamaður. Súsanna fjallar í grein sinni um ballettinn Svanavatnið sem dansflokkurinn „Adventures in Motion Pictures" sýnir við miklar vinsældir í Picadilly leikhúsinu í Lundúnum. Ég sá þessa sýningu nú í byijun desember og er sam- mála Súsönnu Svavarsdóttur að sýningunni megi lýsa með orðinu „snilld“. Dansarnir eru frumlegir, tónlistin eins og allir vita gullfalleg og í sýningunni býr bæði húmor og hlýja. Súsanna lýsir sýningunni vel og það er greinilegt að sýning- in hreif hana eins og alla sem sjá þetta snilldarverk. En það var ekki það sem ég hnaut um í umfjöllun Súsönnu. Það sem fór fyrir bijóst- ið á mér var hin mikla þörf sem hún virtist hafa að fullvissa lesand- ann um að þessi sýning á Svana- vatninu, með karldansara sem Svaninn og erótískum dansfantas- íum karla um karla, hefði lítið sem ekkert að gera með samkynhneigð. Þessu er ég gjörsamlega ósammála og er í raun svo undrandi á þessu listræna mati að ég verð að mót- mæla. Ég tel líka að þeim óþolandi tepruskap, sem hefur viðgengist á síðum Morgunblaðsins um list- sköpun samkynhneigðra og mál- efni samkynhneigðra almennt, verði að ljúka. Auðvitað er Svana- vatn AMP dansflokksins sýning um málefni homma. Hún fjallar um ungan mann sem á í miklum erfið- leikum með sjálfan sig og þarf að burðast með þá staðreynd að hann getur ekki verið sá sem hann er. I atriði í byijun verksins er okkui hreinlega sagt að prinsinn sé hommi þar sem hann horfir hug- fanginn á styttu af nöktum karl- manni. Hann reynir sitt ýtrasta til að eiga í sambandi við konu en það er dauðadæmt frá upphafi. Köld móðir hans (táknmynd fyrir samfé- lagið) skilur hann ekki og að lokum sér hann sæng sína uppreidda og hyggst fyrirfara sér, en rannsóknii sýna að flestir samkynhneigðir ein- staklingar hafa hugsað um eði reynt að fremja sjálfsmorð á ungl- ingsárum. Prinsinn er, eins og aðr- ir samkynhneigðir einstaklingar, að eiga við hina hrikalegu fordóma samfélagsins sem við þurfum að burðast með frá blautu barnsbeini, fordóma eins og þá sem birtast í BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyrir WINDOWS Á annað þúsund notendur g] KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 orðum Súsönnu Svav- arsdóttur er hún segir að við skulum ekki hafa neinar áhyggjur af því að Svanvatnið sé „væmið, pempíu- legt eða hommalegt"! Sjáið þið ekki, ágætu ritstjórar, hvað þetta er særandi athuga- semd? Prinsinn er að glíma við fordóma eins og þá sem birtast í lesendabréfum á síð- um Morgunblaðsins þar sem talað er um homma og lesbíur sem „kynvillinga". Myndi blaðið taka lesenda- bréf þar sem íjallað er um gyðinga sem ,júða“, hörundsdökkt fólk sem „negra“ eða múhameðstrúarmenn sem „trúvillinga"? Prinsinn þarf að þola fordóma sem eru ekki nýir, við mætum þeim á hveijum degi í lífi okkar og starfi. Ef minnst er á homma og lesbíur verður þögn, Það má skilja á grein Súsönnu Svavars- dóttur að Svanavatn AMP sé ekki um homma, segirFelix Bergsson,vegnaþess að allir svanirnir séu svo „karlmannlegir“. vandræðaleg þögn, en síðan rýfur einhver þögnina með kaldhæðinni athugasemd um kvenlega karla og karlalegar konur eða fer að velta fyrir sér hver er „karlinn“ í sam- bandinu og hver „kerlingin". Þann- ig má t.d. skilja á grein Súsönnu Svavarsdóttur að Svanavatn AMP sé ekki um homma því allir svanirn- ir séu svo „karlmannlegir“. Sá sem er „karlmannlegur" getur sem sagt Útsalan er hafin Opið kl. 10-18 mánud.-föstud., laugardag kl. 10-16. JOSS Laugavegi 20, sími 562 6062 Felix Bergsson ekki verið hommi! Þetta eru for- dómar, fordómar og aftur fordóm- ar. Þetta eru rangar fullyrðingar, settar fram af fólki sem á að vita betur en gerir það augljóslega ekki og nennir ekki að kanna málið. Hommar eru ekki karlmenn sem vilja vera konur og þannig er það heldur ekki með hommann/prins- inn í Svanavatni AMP (höfundur- inn, Matthew Bourne er raunar sjálfur hommi). Örvænting prinsins er sönn örvænting manns sem fær ekki að lifa lífi sínu eins og hann er vegna grimmdar samfélagsins. Staðreyndin er sú að hugsandi fólk er að breyta þessu grimma samfé- lagi. Réttindi samkynhneigðra eru að aukast. Ég minni á nýsamþykkt lög frá Alþingi þar sem lögfest er að manneskjur eða hópa megi ekki svívirða á grundvelli kynhneigðar. Hvernig ætlar Morgunblaðið að taka á því? Verða áfram birtar greinar þar sem samkynhneigðir eru særðir með ásökunum um kyn- villu og hórdóm? Við erum farin að þora að verða sýnilegri og við erum að fá mannréttindi á við aðra. Þess vegna eru sýningar eins og Svanavatnið mikilvægar og verða svona vinsælar. Fólk er farið að gera sér grein fyrir að samkyn- hneigð snýst um að elska þann sem þú vilt óháð kreddum samfélagsins og að samkynhneigðir eru venju- legar manneskjur, með sömu þrár og tilfinningar og aðrir. Er ekki kominn tími til að Súsanna Svav- arsdóttir og Morgunblaðið horfist líka í augu við þá staðreynd? Höfundur er leikari og áhugamaður um mannréttindamál. Aths. ritstj. Enn er ástæða til að benda á að skoðanir einstakra greinahöfuna eru ekki afstaða Morgunblaðsins. Æfingar fyrir alla aldurshópa Fyrir hann og hana Leikfimi mánudaga, miðvikudaga og föstudaga kl. 17.30. • Fitubrennsla, einföld spor. • Góðar styrktaræfingar. • Þrekhringir með þol- og styrktaræfingum. • Hringþjálfun í tækjasal. Vertu með frá byrjun og komdu þér í gott form með góðri og öruggri þjálfun undir stjórn Guðbjargar Finnsdóttur, íþróttakennara. Fyrir 60 ára og eldri Leikfimi fyrir 60 ára og eldri tvisvar í viku. • Liðkandi og styrkjandi æfingar. Frábær aðstaða. Leiðbeinandi Aðalsteinn Jónsson, íþróttakennari. Góð aðstaða, speglasalur, tækjasalur, gufubað og heitur pottur. íþróttaskóli fyrir 3-7 ára Æfingar tvisvar í viku, á miðvikudögum og laugardögum, undir stjórn Antons Bjarnasonar, lektors, og Guðrúnar Ásgeirsdóttur, íþróttakennara. Skráning og allar nánari upplýsingar eru veittar í íþróttahúsi Breiðabliks, Smáranum eða í síma 564 1990. Breiðablik. Volcom Fleece Síðerma bolir Buxur Volcom Dickies Peysur Dömupeysur Dömubuxur -Wflö 3.900 990 6^00 2.900 &3tflí 1.990 fc9tl0 3.900 At%tJÖ 2.900 ^§50 2.900 ATH. NÝJAR VÖRUR FRÁ FOUR STAR — SPECIAL BLEND — WORLD INDUSTRIES - és - SHEEP — EMERICA — 32 BOOTS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.