Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 44

Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 44
FIMMTUDAGUR 9. JANUAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ BQKHALDSHUGBUNAÐUR fywWlNDOWS Sjáðu nýjan frábæran hugbúnað: www.treknet.isfthroun g| KERFISÞROUN HF. Fákafení 11 - Sími 568 8055 AÐSENDAR GREINAR Er menningin auð- lind eða óþarfi? Fylgstu meb í Kaupmannahöfn Morgunblabib fæst á Kastrupflugvelli og Rábhústorginu — Björn G. Björnsson fHorjjtmMiifrÍb -kjarni málsins! I WTCT Hallarmúla 2 • Sími 540 2000 Austurstræti 18 • Sími 5510130 Kringlunni • Sími 568 9211 Strandgötu 31 Hafnarfirði • Sími 555 0045 BOKHALDSHUGBUNAÐUR fyrir WINDOWS Á annað þúsund notendur W\ KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 I ÞVI mikla flóði erlendrar afþreyingar sem nú hvolfist yfir land og lýð verður mörgum hugsað til ís- lenskrar menningar; hvemig mun henni reiða af á komandi ára- tugum? Mun hún seytla fram eins og tær fjallalækur frá upp- sprettum sínum í djúpi þjóðarsálarinnar, eins og hún hefur gert í þúsund ár, eða rennur hún saman við hið breiða fljót engilsax- neskrar poppmenning- ar einhvers staðar á leiðinni og hverfur í flauminn? Er það kannski allt í lagi, „það sem fólkið vill“, hin sjálfsagúa þróun? Og hver vill standa í vegi fyrir þró- uninni? Er ef til vill óþarfi að hafa af þessu áhyggjur? Margs er spurt og rétt að leita einhverra svara. Hvað er menning? Fyrst er að reyna að átta sig á því hvað er menning. Hér er gengið út frá þeirri víðtæku skilgreiningu að menning sé ekki aðeins fagurbók- menntir og klassísk heldur allar þær mannlegu athafnir sem ljá okkur sameiginlegan gmnn og gera okkur kleift að horfa kinnroðalaust framan í annað fólk, ef við stöndum okkur vel; arkitektúr, ljóðagerð, bókaút- gáfa, hönnun, leikhússtarf, hljóm- leikahald, söfn, dagskrárgerð, sýn- ingahald, hljómplötuútgáfa, sjón- varpsleikrit, óperuflutningur, fom- leifarannsóknir, matargerð, tónsmíð- ar, kvikmyndagerð, sagnfræði, dans- mennt, húsvemd, málaralist, íjölm- iðlun, sinfóníuhljómsveit, Ijósmynd- un, skemmtanahald og fjöldamargt annað, að ógleymdum þáttum eins og verkmenningu og siðmenningu. Og hvemig stöndum við okkur? Spyiji nú hver sig. Menning og markaður Þrátt fyrir hástemmdar ræður á tyllidögum verður stundum vart við það sjónarmið að menn- ing sé baggi á samfé- laginu, afæta, sem beri að halda niðri. i það minnsta skuli ekki eyða í hana opinbera fé nema í lágmarki. Þá heyrist það einnig að markað- urinn eigi að ráða lífi og dauða listamanna, miðaverð eigi að endur- spegla kostnað við menningarstarfsemi og að neytendur menning- ar eigi að greiða fyrir hana, ekki landsmenn allir með opinberam álögum. Sú menning muni dafna sem „fólkið vill“. Framboð og eftirspurn eigi að ráða sköpun menningarverðmæta. Þessi sjónarmið endurspegla í fyrsta lagi þá takmörkuðu trú sem margir virðast hafa á íslenskri menningu og, í öðru lagi, oftrú á okkar dvergsmáa markaði. Vantar upplýsingar Þótt ríkið eigi vissulega ekki að vasast sjálft í allri menningarstarf- íslensk menning, gömul og ný, segir Björn G. Björnsson í þessari fyrstu grein af þremur, er stórkostleg auðlind sem sinna þarf betur. semi, heldur fyrst og fremst að skapa menningunni vænlegt um- hverfi til að dafna í, eru þessi sjón- armið auðvitað byggð á misskiln- ingi. Hann kann hins vegar að stafa af því að hagtölur um veltu og umfang menningarstarfsemi eru ekki handbærar. Fjárhagslegar stærðir í þessum hluta athafnalífs- ins liggja ekki í augum uppi. Þá ber þess einnig að gæta að í menningar- starfi koma annars konar verðmæti 1 yJ ^ ^ MBtM*""'' .Jáó úlpur: /' i aSo Snj° >00 JIÍK1 mMu •4 " Ve rðdært"'- Ífe‘-í|í»7.. r ^örtuboK* tnp^ 490 fe.990 lSKór. ^90íjiÁ-90 sv göng usKór: 3^9° H\auPa sKór: ^ Ö.-130 MlMiBWIi LAUfiAVffiJ 23 - 5lMJ 551 5535 til álita en bókhaldsleg, nefnilega hin duldu verðmæti sem felast í mannlegri reisn, fegurra mannlífi og andlegu sjálfstæði þjóðarinnar. Blómlegt menningarstarf Menningarstarfsemi hér á landi er mun víðtækari en margir ætla, menningin skapar meiri verðmæti og fleiri störf en blasir við í fyrstu. Aðsókn að leikhúsum, tónleikum, myndlistarsýningum og menningar- viðburðum af öllu tagi er hér gríðar- leg. Upplýsingar um þetta þurfa að liggja fyrir. Æskilegt er að ráðu- neyti menntamála láti taka saman tölulegar staðreyndir um umfang menningarstarfsemi í landinu. Þá kæmi í ljós, að mun fleiri starfa við, njóta eða tengjast menningar- starfsemi en áður var haldið. Þetta gæti síðan leitt til þess að ráða- mönnum og fyrirtækjum þætti stuðningur við menningu fýsilegur kostur, menningin yrði sjálfstæðari og blómlegri og menn þyrftu ekki að hafa slæma samvisku af því að styrkja hana. Eflum menninguna Villukenningin um styrkjalausa menningu getur ekki gilt um alla menningarstarfsemi á okkar örsmáa markaði. Hún gildir ekki einu sinni í risasamfélögum stórþjóðanna. Meginstoðir menningarinnar eins og þjóðminjasöfn, þjóðlistasöfn, þjóð- leikhús og aðrir aðilar, sem beinlín- is vernda og rækta menningararf- inn, njóta alls staðar styrkja og stuðnings stjórnvalda og, í vax- andi mæli, stuðnings fyrirtækja og einkaaðila. Það er reynsla annarra þjóða að fjárhagslegur stuðningur við menningarstarf- semi skilar sér margfalt til baka, ef ekki í peningum þá í snjöllum hugmyndum og fjölskrúðugra mannlífi. Stjórnvöld í Skotlandi, sem leggja Listahátíðinni í Edin- borg til 2 milljónir punda árlega, telja að um 180 milljónir skili sér til baka inn í hagkerfið! Ekki slæm ávöxtun það! Við verðum að fara að trúa á íslenska menn- ingu, efla hana og styrkja svo hún geti orðið sú auðlind sem við þurfum á að halda. Forgangsröðun verkefna En hér, eins og annars staðar, verða opinberir aðilar að gera upp við sig hvaða þætti menningarinnar á að styrkja og hverja ekki, og miklu skiptir að styrkveitingar séu „gegnsæjar“; að öllum sé ljóst sé hverjir fá styrki, til hvaða verkefna og hvernig þeim er varið. Hér þarf að móta stefnu og setja verkefni í forgangsröð, því ekki er hægt að gera allt í einu. Til að sporna gegn óæskilegum erlendum áhrifum þarf að byrja á að tífalda Kvikmynda- sjóð, stofna öflugan dagskrárgerð- arsjóð fyrir hljóðvarp og sjónvarp og nýjan hugbúnaðarsjóð, sem tryggir sess íslenskrar tungu í hin- um nýju miðlum. Þetta má gera með því að kippa einum milljarði út úr landbúnaðarhítinni. Vilji er allt sem þarf! Svo má t.d. leggja áherslu á tónlistar- og ráðstefnuhús næstu þrjú árin, þá á endurreisn Þjóðminjasafns og minjavörslu, svo að bæta aðstöðu Árnastofnunar til sýningahalds á bókmenntaarfinum og svona mætti telja. Hér þarf að móta stefnu. Verst er ef forstöðumenn menn- ingarstofnana troða skóinn hver af öðram í biðröðinni og bítast um tak- markað fé. Þá er betra að einbeita sér að einu í einu og hugsa um hagsmuni heildarinnar. Ekki þarf að taka fram að sífellt þarf að end- urskoða rekstur og rekstrarform opinberra menningarstofnana með tilliti til árangurs og hagkvæmni og breyta þarf lögum um skattafrá- drátt þannig að einkaaðilar sjái hag

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.