Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 45

Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR sinn í því að styrkja menningarstarf- semi. Þeir sem trúa blint á markað- inn geta svo velt því fyrir sér á meðan hvort Snorri hefði ráðist í að rita Eddu með markaðskönnun um söluhorfur við höndina? Hver er sérstaða okkar? Við þurfum að gera okkur grein fyrir því hver sérstaða okkar er í samfélagi þjóðanna, hvaða tón leggjum við til í hina miklu hljóm- kviðu heimsmenningarinnar? Erum við Strauss-valsaþjóð? Eða gúm- báta- og vélsleðaþjóð? Eða erum við fyrst og fremst þekkt sem menning- arþjóð, bókmennta- og söguþjóð? Það skyldi þó aldrei vera, að þær bókmenntir, sem hér voru skráðar á skinn á miðöldum, séu merkasta framlag íslendinga tii heimsmenn- ingarinnar til þessa, með fullri virð- ingu fyrir öðrum menningarafrek- um þjóðarinnar síðar. Margt ógert Það er þá kannski hér sem áhersl- an ætti að vera? Að vernda, rækta og kynna menningararfínn - jafn- vel nýta okkur hann til lífsviðurvær- is? En þá er líka margt ógert: Hér er ekkert aðgengilegt safn eða sýn- ing á nútímamælikvarða sem fjallar um íslendingasögur og frægan bók- menntaarf eða sögu lands og þjóðar og sambýli manns og náttúru. Held- ur ekki um siglingu, fískveiðar og sjávarfang, sem hefur þó verið lífs- viðurværi okkar í þúsund ár. Enn síður um stórbrotna náttúru og sköpun landsins sem enn er ekki lokið. Og á Þingvöllum er ekki einu sinni skilti sem upplýsir gesti um sögu og helgi staðarins. Vannýtt auðlind Við hljótum brátt að koma auga á þá staðreynd að íslensk menning, bæði gömul og ný, er stórkostleg auðlind sem atvinnulífið hefur ekk- ert sinnt til þessa og unnt er að nýta í mun meira mæli en gert hef- ur verið til að efla hróður lands og þjóðar, laða hingað menntaða og menningarlega sinnaða ferðamenn og skapa atvinnu fyrir þúsundir landsmanna. Hér eru falin ótal tæki- færi til að skapa verðmæti og tekjur fyrir þjóðarbúið, ekki síst í tengslum við í ferðaþjónustu og afþreyingu fyrir innlenda og erlenda ferða- menn, með stórauknu sýningahaldi, útgáfu, listflutningi, minjagripa- gerð, gistingu, flutningum, leiðsögn og þjónustu á flestum sviðum. Auk þess er hér um að ræða auðlind, sem ekki gengur til þurrðar, þótt af sé tekið. í hafsjó menningarinnar eru margir stofnar og sífelld nýliðun, svo notað sé orðfæri fiskifræðinga, og þangað er óhætt að róa. Kvótinn er ekki takmarkaður og við eigum hann öll. Síðasti þorskurinn á þeim miðum verður seint veiddur. Von- andi komum við auga á þau tæki- færi, sem hér bíða, og förum að líta á íslenska menningu sem auðlind en ekki ómaga. Höfundur er leikmyndahönnuður. Oskiljanleg ákvörðun borgarstj ornar Opið bréf til Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra FÉLAG íslenskra myndlistarmanna harmar þá óskiljanlegu ákvörðun borgar- stjórnar að ætla að úthýsa Myndlistaskóla Reykjavíkur og grafík- verkstæðinu úr hús- næðinu að Tryggva- götu 15 fyrir árið 2000. Myndlistaskóli Reykjavíkur hefur um langan tíma gegnt veigamiklu hlutverki í myndlistarlegu uppeldi Reykvíkinga - ef ekki þjóðarinnar allrar. Bæði nemendur og Guðbjörg Lind Jónsdóttir kennarar skólans hafa á undanförn- um árum sætt sig við nánast óvið- unandi vinnuaðstæður vegna breyt- inga á fyrrnefndu húsi í þeirri trú, að skólinn yrði þar áfram. Með grafíkverkstæðinu rættist gamall draumur myndlistarmanna um að fá aðgang að verkstæði þar sem fullkominn tækjabúnaður væri fyrir hendi til ástundunar hinna ýmsu greina svartlista en fram að þessum tíma hafa listamenn þurft að sækja þessa aðstöðu til verk- stæða í útlöndum. Félagsmenn íslenska grafíkfé- lagsins hafa unnið mikið og fóm- fúst starf til þess að koma þessu sérhæfða verkstæði á laggirnar. Mikil áhersla hefur verið lögð á, að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru til loftræstingar og annars að- búnaðar sem talist getur vistvænn á stað þar sem unnið er með hættu- leg efni. Mikið af þeim búnaði sem fyrir hendi er á verkstæðinu er sér- smíðaður í þetta húsnæði og því flókið mál ef ekki ógerlegt að flytja hann brott. Það er sorglegt til þess að vita, að nú - eftir tíu ára sleitulausa vinnu, þeg- ar verkstæðið er loks fullbúið, að fyrrgreind- ar fréttir skuli berast. Það er talsverð kald- hæðni í því fólgin, að það skuli einmitt vera árið 2000, sem bæði Myndlistaskólinn í Reykjavík og grafík- verkstæðið eiga að vera komin út úr húsnæðinu við Tryggvagötu 15 en það ár hyggst Reykja- víkurborg gera menn- ingunni hærra undir höfði en alla jafna, þar sem Reykjavíkurborg mun verða ein af menningarborgum Evrópu það árið! Þetta er mikið áfall fyrir mynd- listarmenn og aðra þá sem láta sig Þetta er mikið áfall fyrir myndlistarmenn, segir Guðbjörg Lind Jónsdóttir, og aðra þá sem láta sig mynd- listarlegt uppeldi einhverju skipta. myndlistarlegt uppeldi einhveiju skipta. Félag íslenskra myndlistarmanna skorar á borgarstjóra að endur- skoða þessa ákvörðun sína og koma í veg fyrir menningarslys. Höfundur er formaður Félags íslenskra myndlistarmanna. gmm Rutland þéttir, bætir og kætir þegar að þakið fer að leka ÞAKVIÐGER6AREFNI Á ÞÖK - VEGGI - 6ÓLF Rutland er einn helsti framleiðandi þakviðgerðarefna í Bandaríkjunum Veldu rétta efnið - veldu Rutland! ÞP &CO Þ.ÞORGRÍMSSON &CO ARMÚLA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVlK SÍMI553 8640 /568 6100 í vesturkjallaranum allt árið. Vorum að bæta við jólaefnum, bútasaumsefnum og fataefnum. Verð pr. metra kr. 150,300,500 eða 50% afsláttur. 5 VIRKA . v ;*'** ► -j Mörkin 3 (við Suðurlandsbraut), sími 568 7477. FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 45 Seljum í dag og næstu daga útlitsgallaða kæliskápa, uppþvottavélar, þvottavélar og ofna, sem hafa verið notaðir í kynningum með allt að S0% AFSLÆTTI Margar gerðir en takmarkað magn. GREIÐSLUKJÖR. MSM5 Einar mmM Farestveit&Co.hf. Borgartúni 28 S6 562 2901 Sófasett - Homsófar - Svefnsófar - Stakir sófar LpðuroqAlcantara Hvíldarstólar oq reyrhúsqöqn á sérstöku tiíboðswrði! #/al húsqöqn Ármúla 8-108 Reykjavík Hjá okkur eru Visa- og Euroraðsamningar ávísun á staðgreiðslu ^Sími 581-2275 568-5375 IITSALA SPARTA tdáiítsölu ULPA SEWARD. Litir: Dökkblátt og rautt nr. 8, 10, 12, 14. Verð 4.490,- (áður 5.990) Nr. XS til XXL verð 5.990 (áður 7.990). BARNAKULDAGALLAR úr hinu níðsterka Beawer-nylonefni. Nr. 3, 4, 5, 6, 7, 8 og 10, Verð 5.490 og 5.990. Opið laugardaga tilkl.16. • KuldðfiUiiaðiir. skiQafdlnáður. sköi oij aðrar iliroiidvörur í miklu tírvali a al)a fjölskikluiia a frábifru veiói SPORTVðRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49 • 101 Reykjavík • sími 551 2024 Póstsendum. Athugið simgreiðslui Visa og Euro.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.