Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 09.01.1997, Qupperneq 46
46 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ BRAGI ERLENDSSON + Bragi Valgarð- ur Erlendsson fæddist á Siglu- firði 20. júlí 1930. Hann lést að morgni 24. desem- ber síðastliðinn og fór útför hans fram frá _ Garða- kirkju á Álftanesi 2. janúar. Bragi Erlendsson hóf störf fyrir ÍSAL í ársbyijun 1968 sem rekstrarstjóri. Álverið var þá í byggingu og fyrstu starfsmenn verksmiðjunnar í þjálfun hjá systurfyrirtæki ÍSALs í Sviss. Bragi dvaldi erlendis í hópi íslendinganna fram til haustsins 1968 að hann kom til starfa í Straumsvík, ásamt tveim- ur verkstjórum, til þess að setja upp viðhaldsþjónustu fyrir verk- smiðjuna. Rekstur álvers var ný- lunda hér á landi, sem þurfti að ganga nótt og dag alla daga árs- ins og var að því leyti frábrugðin öðrum rekstri, því var að mörgu að hyggja. Starfsreynsla Braga var á sviði byggingarfram- kvæmda, áætlana- og samninga- gerðar þar til hann réðst til ÍSALs. Sú reynsla nýttist honum vel en það sem þurfti til viðbótar vegna reksturs álvers tileinkaði hann sér á skömmum tíma enda var Bragi vandvirkur starfsmaður sem vildi leysa verkefni sín óaðfinnanlega af hendi. Fyrsti kjarasamningur milli ISALs og verkalýðsfélaganna var undirritaður í júní 1969 og var hann merkilegur fyrir það að þama var gerður í fyrsta skipti heildarsamningur fyrir alla starfs- menn eins fyrirtækis þótt þeir væru í mörgum verkalýðsfélögum. Mikil vinna lá að baki þessa heild- arkjarasamnings. Fyrirkomulag vakta í verksmiðjunni var með margvíslegum hætti og verið var að semja um ýmis störf, sem áður voru óþekkt. í starfi Braga sem rekstrar- stjóra hvfldu þessir fyrstu samningar að verulegu leyti á hans herðum og hélst það fram til 1984 að Vinnuveitendasam- band íslands tók við samningsumboði fyrir ÍSAL. Bragi var ekki bara góður stærð- fræðingur, sem leysti viðfangsefni á hefð- bundinn hátt, heldur líka einstaklega talna- glöggur og reiknaði flókin dæmi í huganum þegar aðr- ir þurftu að grípa til reiknistokks- ins eða tölvunnar. Hann átti mjög auðvelt með að skýra flókna út- reikninga, þannig að aðrir skildu þá auðveldlega. Bragi var góður tungumála- maður. Á fyrstu árum starfsem- innar í Straumsvík voru systur- fyrirtæki ÍSALs staðsett í öllum heimshlutum. Viðleitni í þá átt að nota ensku í samskiptum gekk ekki alltaf, þar sem þeir sem sam- skipti þurfti að hafa við, höfðu hana ekki á valdi sínu. Mikið af búnaði til verksmiðjunnar kom frá þýskumælandi þjóðum og einnig margir tæknimenn, sem hér störf- uðu í upphafi. Bragi hafði auk Norðurlandamála, bæði ensku og þýsku á valdi sínu og kom það sér vel í samningum um tæknileg málefni. Eftir að hafa sinnt þjónustu- deildum fyrirtækisins um 17 ára skeið, tók hann við rekstri steypu- skála. Framleiðsla verksmiðjunn- ar hafði aukist á þessu tímabili úr rúmum 30 þúsund tonnum á ári í yfir 80 þúsund tonn. Að sama skapi jókst þýðing ÍSALs fyrir systurfyrirtækin sem unnu úr málminum sem héðan kom. Þegar óskir komu frá viðskipta- vinum ÍSALs um styttri og reglu- legan afgreiðslutíma kom það í hlut Braga að finna lausn á því LÁRA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR + Lára Sigríður Bjarnadóttir var fædd á Isafirði 25. nóvember 1912. Hún lést á Elli- heimilinu Grund 31. desember síð- astliðinn. Foreldr- ar hennar voru Bjarni Einar Ein- arsson, f. 4. febr- úar 1874, d. 1959, og Halldóra Sæ- mundsdóttir, f. 26. mars 1886, d. 1975. Lára ólst upg í Ognrnesi við Isa- fjarðardjúp ásamt níu systkin- um, sem voru: Kristjana Guð- rún, f. 11. nóvember 1911 (dáin); Bjarni Einar, f. 20. ág- úst 1914 (dáinn); Sæmundur Marteinn, f. 8. apríl 1916; Gunnar Hjörtur, f. 29. október 1917 (dáinn); Jón Snorri, f. 20. febrúar 1920 (lést 20. desem- ber síðastliðinn); Ingibjörg Þórunn, f. 7. maí 1921; Baldur, f. 28. maí 1923; Jakob Rósink- ars, f. 2. júlí 1924 (dáinn), og Sigríður Jóhanna, f. 19. mars 1926. Lára giftist Daníel Kristjánssyni. Bjuggu þau á ísafirði og ólu þar upp fósturdóttur sína Kolbrúnu Björnsdóttur, f. 5. júní 1939, og dótt- urina Þórunni, f. 12. febrúar 1943. Hún er gift Ár- manni Jóhannssyni og eiga þau tvö börn. Þau eru: 1) Gunnvant Baldur. Sambýliskona Gunn- vants er Sonja Elídóttir og eiga þau soninn Brand. 2) Edda Bryndís sem stundar nám er- lendis. Lára og Daníel slitu sam- vistir og flutti Lára til Reykja- víkur og bjó þar til æviloka. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju, fimmtudaginn 9. janúar og hefst athöfnin klukk- an 15. Nokkur fátækleg orð í minningu ástkærrar tengdamóður minnar, Láru Sigríðar Bjarnadóttur. Veikindi, sársauki og þrautir marka djúp spor í skaphöfn og at- ferli einstaklingsins og þar var Lára ekki undantekning. Hún varð fyrir þeirri bitru reynslu að missa heilsuna á besta aldri vegna löm- unarveiki og barátta hennar við að reyna að endurheimta heilsu á Rík- isspítalanum í Kaupmannahöfn hlýtur að hafa skilið eftir ör á sál- inni. Þrátt fyrir veikindi og mótlæti lifði hún lífi sínu á þann eina hátt MINNINGAR máli. í samstarfi við Eimskipafé- lag íslands var komið á flutninga- kerfi, sem byggðist á reglulegum siglingum á tveggja vikna fresti til og frá Straumsvík með aðföng frá meginlandinu og Englandi og framleiðsluvörur ÍSALs á sömu staði. Sú breyting að siglingar urðu tíðari og reglulegar breytti viðhorfi viðskiptavina ÍSAL til fyrirtækisins og það að reikna mátti með reglulegri afhendingu málms frá ÍSAL hafði áhrif á ákvarðanir sem móðurfyrirtækið tók síðar. í lok ársins 1988 tók Bragi við stjórn aðfanga- og flutningadeild- ar fyrirtækisins ásamt tölvudeild. Notkun tölva hjá fyrirtækinu hafði aukist ár frá ári. Bragi, sem sjálfur var mikill áhugamaður um tölvu- og upplýsingatækni, mót- aði ásamt samstarfsmönnum sín- um þróun þessara mála hjá fyrir- tækinu. Bragi lét af störfum hjá ISAL á miðju ári 1994. Þegar stækkun álversins var ákveðin í nóvember 1995 var leitað til hans um aðstoð og féllst hann strax á að koma til starfa við stjórnun þess verk- efnis. Þar nýttist vel löng reynsla og miklir hæfileikar Braga við gerð alþjóðlegra samninga um innkaup á efni, búnaði og verk- takaþjónustu. Bragi tók virkan þátt í starfs- mannafélagi ÍSALs, STÍS, eink- um innan bridsdeildarinnar, sem hefur frá upphafi staðið fyrir mótum hjá ÍSAL, svo og árlegri keppni við önnur fyrirtæki. Síð- asta verk Braga með samstarfs- mönnum sínum hjá ÍSAL, var að taka þátt í spilakeppni við sveitir frá Sementsverksmiðjunni og Járnblendifélaginu, laugardaginn 30. nóvember síðastliðinn, ásamt eiginkonu sinni, Árnínu, en þá var ljóst að hann var orðinn alvarlega veikur. Fráfall Braga var ótímabært og við samstarfsmenn hans mun- um sakna þess að fá ekki lengur að njóta starfskrafta hans og fé- lagsskapar. Við sendum Árnínu, börnunum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur. Einar Guðmundsson. sem hún kunni - að sjá um sig sjálf eftir föngum og af spameytni í daglegu lífí, en samt geta miðlað öðrum. Hún lagði rækt við lestur góðra bóka og fróðleiks sem var henni mikil nautn. Nokkrar minningar eru mér eink- ar kærar um tengdamóður mína, m.a. hve vel hún tók mér, útlend- ingi, sem tengdasyni, án skilyrða, spurninga eða nokkurs fyrirvara. Eg er henni ævinlega þakklátur fyrir að gera mér fyrstu árin á ís- landi eins ánægjuleg og þægileg og hægt var að hugsa sér eða vona. Lára átti líka sínar hamingju- stundir. Ég man vel gleði hennar við fæðingu sonar okkar og hennar fyrsta barnabarns og þremur árum seinna gladdist hún eins þegar dótt- ir okkar fæddist. Fæðingarstaður Láru, ísafjörð- ur, og æskustöðvar, Ögurnes, voru henni alltaf ofarlega í huga og ekkert gat skyggt á ást hennar og ljúfar minningar frá litla samfélag- inu í Ógurnesinu, þar sem fólk deildi kjörum sem ein fjölskylda. Áratugum seinna, þegar byggðin var komin í eyði, mundi hún lífið og fólkið þar, eins og daginn í gær. Dætrum sínum miðlaði hún ást sinni og virðingu fyrir átthög- um, náttúru og forfeðrum. Elsku Lára, nú þegar þú hefur fengið langþráða hvíld, óskum við þér friðar og góðrar heimkomu í samfélag genginna ástvina. Guð blessi þig. Þökk fyrir allt. Ein komum við, ein förum við. Lífið er sem stundarkorn, að hittast og kveðjast. (Úr indverskri speki) Ármann Jóhannsson. + Elín Konráðs- dóttir fæddist á Isafirði 4. apríl 1915. Hún lést á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur 31. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Þor- björg Svein- bjarnardóttir og Konráð Jónsson veitingamaður á ísafirði. Systkini Elínar eru: Þórir, f. 10.7. 1916, d. 1995, Jens, f. 29.9. 1917, d. 1944, Ólöf, f. 23.7. 1919, Magn- ús, f. 23.3. 1921, d. 1983, Rann- veig, f. 29.1. 1923, d. 1994, Unnur, f. 21.2. 1930, Edda, f. 9.8. 1933. Elín giftist Garibalda Einarssyni sjómanni, f. 13.1. 1919, d. 9.12. 1969, og eignuð- ust þau sjö börn. Þau eru Konný, f. 1941, gift Eiríki Frið- bjarnarsyni og eiga þau tvo syni, Áslaug, f. 17.7. 1943, gift Það eru blendnar tilfinningar sem hafa brotist um síðan mamma veikt- ist, hugurinn reikar heim á Austur- veg þar sem allt er svo bjart og gott úr bernsku minninganna. Ekki gat ég ímyndað mér þegar hún kom og hélt Einari Garibalda undir skírn, að síðast kæmi hún til okkar við fermingu hans. Að lokum kæra mamma mín, langar mig að kveðja þig með bæninni sem þú kenndir okkur og við báðum svo oft saman. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín Áslaug. Að lokinni hátíð ljóss og friðar kveður elskuleg föðursystir mín. Elín Konráðsdóttir, þennan heim eftir langt veikindastríð, södd lífdaga og langar mig að minnast hennar í örfá- um orðum. Ella frænka, elst systkina föður míns, var í reynd sameiningarkraftur þeirrar fjölskyldu. Hún bar hag henn- ar fyrir btjósti og fylgdist með öllum í leik og starfi. Hún skráði allar fæð- ingar nýrra íjölskyldumeðlima í stóru bókina sína. Hún vissi afmælisdaga allra og sendi öllum afmæliskveðjur. Hún fylgdist með viðburðum í lífi okkar systkinabarna sinna og tók þátt í gleði okkar og sorgum. Ég minnist sérstaklega þess tíma er ég dvaldist erlendis, hve gott var að fá bréf frá henni með helstu fréttum af því sem var að gerast í fjölskyldu- málunum. Ekki taldi hún heldur eftir sér að koma og heimsækja mig þó langt væri að fara. Ella frænka var meðalmanneskja á hæð, dökk á brún og brá, grönn og kvik í hreyfingum. Henni féll aldrei verk úr hendi. Hún var dag- farsprúð og rólynd, en ef hún var beðin að segja frá einhveijum at- burðum sagði hún svo skemmtilega frá að maður veltist um af hlátri. Ekki spillti sérkennilegt og fjöl- skrúðugt málfar hennar, sem var litað vestfirskum orðatiltækjum og einkennum _ sem þeir þekkja, sem ólust upp á ísafirði í byrjun aldarinn- ar. Ella kunni einnig þá list, sem fáum íslendingum er gefin, nefni- lega að gera grín af sjálfri sér. Til hennar var gott að leita ef maður vildi fá fréttir af löngu liðnum at- burðum, því hún var minnug, og hafði unun af því að segja frá. Ung giftist Ella Garibalda Einars- syni, miklum ágætismanni og eign- uðust þau stóran barnahóp. Vinnu- dagur þeirra hjóna var oft langur og strangur en þau voru samhent og komu börnum sínum vel til manns. Þau voru afar gestrisin og minnist ég margra heimsókna á Stefáni Benedikts- syni og eiga þau þrjú börn, Gunn- laug, f. 17.7. 1943, gift Sveini Jónssyni og eiga þau fjögur börn, Jenný, f. 17.9. 1944, gift Niis Skogen og eiga þau tvö börn, Einar, f. 14.8. 1946, sambýl- iskona hans er Kar- in Johanson og á hann tvö börn, Þor- björn, f. 16.7. 1948, og Sigríður Kar- velsdóttir (ætt- leidd), f. 6.12. 1949, gift Jóni Hilmari Jónssyni og eiga þau tvö börn. Barnabarnabörn Elín- ar eru fimm. _ Elín bjó á ísafirði til ársins 1963, en fluttist þá til Reykja- víkur og bjó þar ætíð síðan. Hún starfaði í 22 ár í mötu- neyti Útvegsbanka íslands. Útför Elínar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. heimili þeirra bæði vestur á ísafirði og einnig í Reykjavík eftir að þau fluttu suður. Eftir að Garri lést hélt Ella áfram sama rausnarskap og fyrr, en nú hófst nýr kafli í lífi henn- ar, hún lagðist í ferðalög. Hún hafði unun af því að ferðast, sjá ný lönd og nýja siði. Enn spunnust efni í nýjar sögur sem við ættingjarnir fengum að njóta. Það var unun að fylgja henni í huganum um nýjar lendur og upplifa með henni ævintýr- in. Ég minnist frænku minnar sem gleðimanneskju, það fylgdi henni kraftur og þor. Hún var áræðin og uppgjöf var ekki til í hennar orða- forða. Ég vil þakka fyrir allar ánægjustundirnar sem hún veitti mér. Börnum hennar, tengdabörnum og barnabörnum sendi ég mínar dýpstu samúðarkveðjur. Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir. Sem kona hún lifði í trú og tryggð, það tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfir myrkrið kalda. (Einar Ben.) Um leið og gamla árið kvaddi, gerði slíkt hið sama hún Ella Konn vinkona mín í gegn um árfjölda. Löngu dagsverki er lokið, og mín kæra vinkona efalaust verið hvíld- inni fegin. Hún sem var líka þessi kjarnorkukona og var alla sína lífs- tíð á fullu frá morgni til kvölds, þvílíkum dugnaðarforki hef ég aldrei kynnst. Þegar ég sit hér og læt hugann reika aftur í tímann, koma þær fram allar minningarnar, sem ég á um þessa góðu konu, hver af annarri. Ég fór að venja komur mín- ar á heimili Ellu á unga aldri, því við Einar sonur hennar vorum æsku- vinir, ég man enn hversu gott var að koma í litla eldhúsið hennar við Austurveginn heima á ísafirði, þar var heldur ekki nein lognmolla í kringum hlutina, enda heimilið stórt og börnin enn flestöll heima. í þessu litla eldhúsi fékk ég margan diskinn af ljúffengu brauði og kökum ásamt ískaldri mjólk og ekki skyldi gleyma hlýju viðmóti húsfreyjunnar sem þarna á þessum árum tók mér opn- um örmum svo til ókunnugum stráknum og sleppti aldrei síðan af mér takinu, og trygglyndi hennar var einstakt í minn garð alla tíð. Umræðurnar í eldhúsinu hennar Ellu gátu oft verið fjörugar, enda börnin mörg og fyrirferðarmikil og það gustaði af Ellu, þegar hún vildi svo við hafa, hún var sko ekki að skreyta hlutina, heldur kallaði þá sínum réttu nöfnum, ég man enn hversu undr- andi ég var í fyrstu á orðbragðinu ELÍN KONRÁÐS- DÓTTIR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.