Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 48

Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 48
48 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Sigfús Daðason fæddist í Drápuhiíð í Helga- fellssveit 20. maí 1928. Hann lést á Landspítalanum 12. desember síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Dómkirkjunni 23. desember. Góðvinur minn! Þú sagðir ekki margt en allt af viti. Hávaðabúll- an og glamúrklúbbur- inn sem daglega geng- ur undir nafninu íslenska samfélag- ið, mikil ósköp liti þetta allt öðruvísi út ef fleiri Fúsar hefðu verið þar. Þú verður mér ógleymanlegur. Ekki aðeins fyrir að vera í forvígi við að koma eykrílinu á skáldskap- arheimskortið. Ekki aðeins fyrir að skrifa ódauðlega ritgerð: Til varnar skáldskapnum, sem ætti að dreifa ókeypis með símaskránni og gera að skyldulestri í skólum árlega. Ekki aðeins fyrir skáldskap. Ekki aðeins fyrir þýðingar af tærri snilld. Ekki aðeins fyrir að koma á framfæri einu sérstæðasta skáldi þjóðarinnar, Mál- fríði Einarsdóttur. Heldur fyrir allt þetta og sérílagi fyrir djúpa og ein- læga vináttu, eyru sem hlustuðu, augu sem sáu og hjarta sem sló. Og þetta eldklára höfuð, sem fór sér hægt, lét ekkert óyfirvegað frá sér. Það var ekki ónýtt fyrir aldar- fjórðungi að vera nýgotinn úr leik- listarskóla með stóran heim fram- undan og hitta þig á götu, kaffihúsi eða í litla forlaginu þínu, Ljóðhúsi í kjallaranum hjá Þorsteini Ö. á Lauf- ásveginum. Þar var skjól að finna undan garginu, alltaf hitti ég fyrir þessa gangandi andstæðu yfirborðs- mennskunnar sem þú varst. Og síð- ar: Stundirnar á Skóiavörðustígnum, þú og Guðný, einhvern veginn sköp- uð af hvort öðru fyrir hvort annað, það heitir samhljómur, grátlega sjaldgæft fyrirbæri í seinni tíð. Fátt sagt, en það sem var sagt var hugs- að, í viðbót var hlýja og ákaflega sérkennileg gamansemi með bros bakvið, það rétt sást í það fyrst, svo breikkaði það, þetta var heimsvisk- an. Enda skar heimili ykkar sig frá öðrum þannig að það vottaði aldrei fyrir yfírborðsmennsku né oflæti þótt leitað hefði verið með röntgen- myndavél. Þessi fátæklegu kveðjuorð verða ekki fleiri. Ég ætti að taka þig mér til fyrirmyndar og hafa á orðum illan bifur. Að lokum ólýsanlegt þakklæti fyr- ir það stóra lán að hafa fengið að kynnast þér. Elsku Guðný og aðrir aðstandend- ur: Hugheil samúð. Gæfan varðveiti ykkur öll og leiði. Hjalti Rögnvaldsson, staddur í Noregi. Sigfús gerði kaffi. Sigfús bjó til sterkt kaffi. Sigfús hitaði franskt espresso-kaffí úr íslenskum Kaaber. Mér fannst það alltaf eins og hann væri að hita sér upp liðinn tíma. Tímann frá því hann bjó í Aix og París. Það var alltaf viss „Provence í endursýn" við gömlu Rafha-elda- vélina á Skólavörðustígnum, það glitti í „Útlínur bakvið minnið" þeg- ar hann glottandi færði manni lút- sterkan sopann til stofu. Það var eitthvað tragískt í þessu kaffí. Það voru í því heilir menn og líf: Þessir sem fóru útí heim og komu heim; með heilu heimsveldin af menningu í fásinnu sem var svo al- ger að ekki einu sinni var þar að fá skáldsæmandi kaffi. Espresso kreistur úr Kaaber: Hlutskipti kynslóðar. Mér fannst þetta ekki gott kaffí. Þetta kaffí var hans kaffi, hans bolli, hans tími. Ég drakk hann ekki í mig heldur drakk ég það fyrir kurt- eisis sakir og af virðingu; virðingu fyrir skáldi, eldri manni, nánast heldri manni; virðingu fyrir öðrum tíma, sterkum tíma, svörtum tíma; þegar prófarkir voru lesnar í gegnum þykkan reyk frá Chesterfield og Camel á bakvið járntjöld í luktum skrifstofum á Laugavegi 18 og voru svo afhentar á Lauga- vegi 11; þegar ljóð voru ort í svörtu á hvítt og höfð í rauðu bandi; ann- ars voru þau á bandi annars: Horfinn tími sem hann nú hitaði sér upp í einhverskonar ein- semd. „Ég sé tvísýnu á tímanum. Læt eins og ekkert sé.“ Sigfús lét eins og ekkert væri. Og einhvernveginn var honum ekk- ert. Á vissan hátt var Sigfús eitt hið besta dæmi um mann sem var fijáls. Hver kynslóð mælir út mistök forvera sinna og gerir önnur í stað- inn. Sigfús var af þeirri kynslóð sagnfræðilegs misskilnings sem tyllti tám undir járnhæl kommún- ismans, gerði sérhvern athafnamann að braskara, vantrúði rími og stuðl- um, reytti Svartar fjaðrir og trúði því að Tíminn og vatnið væri gott ljóð. En einhvernveginn var hann samt frjáls. Einhvernveginn fannst mér Sigfús alltaf eins og útlending- ur, gestur, heimsmaður í heims- skauti; ættaður frá einhverri allt annarri Skógarströnd en þeirri fyrir vestan, húðlitur á la provencale og alpahúfan svo langt ofar öllum ís- lenskum Dölum, vængjuð yfírsýn í gleraugum og tifíð í inniskónum inn- an úr vinnuherbergi eins og mjög langt að komið. Sigfús Daðason: Útlendingur á inniskóm. Og. Ljóðlín- ur dregnar úr löngu hafi, langt útúr landsýn. „Murrandi hálfkvikindi eitt- hvurt / er á hafbeit innan í honum.“ Að komast burt: „Svo mörgum bræðra vorra varð þetta að dýpstu hvöt lífs þeirra: að komast burt.“ Þegar ég kynntist Sigfúsi var hann í raun kominn burt. Frá öllu þessu gamla, þessum gamla tíma. Gamla vinstrið korraði kannski enn- þá í honum en var orðinn fremur eins og ræsking, gömul slæmska í hálsi nú nýtt til að rýma fyrir nýjum orðum. Og kominn burt „úr foraðinu og loftleysinu, og sjálfsánægjunni, hroka smádjöfianna, siðferðisdýrð þijótanna..." var Sigfús í sínu essi og hvað fijálsastur. Á kaffístétt í París eða ódýrum flatbökustað í Arles, hvar sem var... (hann var kominn á það glæsilega skeið lífsins þegar menn eru hættir að velja staði og líður vel hvar sem er, svo fremi megi fá þar nýtt glas af víni) var hann iíkt og kominn heim, heim til sín sjálfs: Ötlendingur í útlandi og fór á flug, ræddi um uppáhaldsbæk- ur sínar, Prúst og Miller, sögur lausar við þráð og fijálsar í formi, án upphafs og endi, og veifaði síðan að sér þjóni ögn eins og aðalsmaður og pantaði af honum meira vín á sinni klassísku frönsku; það var yfír honum einhver aristókratískur blær sem - það brást ekki - kallaði á sjálfkrafa virðingu frá veitingastjór- um, hóteleigendum og leigubílstjór- um: Hvar sem við fórum, hversu mikil sem örtröðin var, hversu ólund- arlegir sem franskir leigubilstjórar - þessir heimsmeistarar í pirringi - gátu verið; alltaf bremsuðu þeir fyr- ir Sigfúsi. Með einfaldri, giæsilegri og heidrimannslegri handarhreyf- ingu veifaði hann að sér hinu ómögu- lega, líkt og ljóðskáld sem stendur utan við heiminn og togar úr honum óviðjafnanlega línu að því er virðist fyrirhafnarlaust. Sigfús var Monsieur. En þrátt fyrir alla aristókratíska fjarlægð, þrátt fyrir að vera fijáls „af sérhverri hliðstæðu / ekki nein- um alhæfingum" háður, var alltaf í honum þessi nánast strákslega for- vitni og áhugi á lífinu. „Segðu okkur nú einhveijar frétt- ir“ spurði sá sem stóð utan tímans þræl hans og eilífan skortanda. Mildilega var honum skemmt yfir hamagangi þeirra sem „ætla sér ekki að fara utan að hlutunum / í voldugum og fögrum sveigum / svo sem fornaldargyðjur / en stefna að þeim styztu leið“ en hafði þó samt einatt óbrennandi áhuga á öllu þessu brölti; einkum hugnaðist honum að heyra af viðskiptamönnum og öðrum fasteigendum; hveijir væru að selja, hveijir að fara á hausinn og hveijir bæru hann hátt, þrátt fyrir meinta þyngd. Sú var ein af þverstæðunum sem gerðu hann stóran, manninn sem leit í raun niður á hvurslags brask. Önnur þversögn var honum kær: „Listamaðurinn er í senn mikil félagsvera og einvera." Rétt eins og hann var sjálfur. Glaður í hveiju hófi, en mjög í hófi tímalega séð. „Jæja Guðný mín...“ sagði hann og reis á fætur á þann hátt, og með þeim raddblæ, sem segir að þetta hafí verið ágætt en hann eigi þó annað og betra í vændum. Sigfús Daðason dó snemma morguns. Hann hvarf frá ljóðum sínum að sönnu nokkuð líkt og hann hvarf að þeim: „Ég skil ekki upphaf- ið / ég skil ekki ástina / ég skil ekki dauðann.“ Óverðskuldað erþað allt okkur sem sitjum eftir hérna megin kjalar. En í okkur sitja eftir myndir, sýnir og línur skálds sem var stórt. Sigfús kvaddi snemma morguns. Ég sé hann fyrir mér ijúka hægt upp í iöngu ljóði, líf sem Iokar að sér og fellur að stöfum, stöfum í orðum ljóðs líku því sem ég hef nokk- uð vitnað til hér að framan og ber nafnið „Myndsálir", frá 1990, og að líkindum eitt hið síðasta sem hann birti á prenti (Ljóðormur 11): Eitt hið mesta ljóð sem hér hefur verið ort á seinni árum. Við þann sem orti bjartsýnisljóð um dauðann segi ég (í sæili merk- ingu): Vertu sæil. Og. „Jæja Guðný mín...“ Þér og fjöl- skyldunni kveðju söknuðar. Hallgrímur Helgason. Árin fyrir 1960 er ég hafði óvænt dottið inn í hóp ungra skálda hér á götunum, heyrði ég kunningja mína tala af sérstakri virðingu um mann nokkurn úti í París og væntanlegur væri hingað heim. Þessi maður var Sigfús Daðason sem þá hafði gefið út eina ljóðabók, en dvaldist um skeið við nám í Frakklandi. Svo mikil var virðingin að sumir lækkuðu róminn þegar Sigfús barst í tal. Sig- fús kom og árið 1959 birtist veiga- mesta frumsamda bók hans, Hendur og orð, og þótti mikill fengur. Sigfús varð ritstjóri Tímarits Máls og menn- ingar eftir heimkomuna og reyndar var sagt að Kristinn E. Andrésson hefði útnefnt hann eftirmann sinn + Hákon Þorkelsson fæddist á Valdastöðum í Kjós 29. maí 1910. Hann lést á Hjúkrun- arheimilinu Eir 29. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 16. desember. Fallinn er í valinn föðurbróðir minn og vinur til margra áratuga, Hákon Þorkelsson, eða Konni frændi eins og hann var kallaður af ættingjum sínum. Sem ungur drengur tengdist ég þessum frænda mínum sterkum böndum. Ef til vill var það vegna þess að ég var elsta systkinabarn hans og hann og kona hans Guðný tíðir gestir hjá foreldrum mínum á með- an þau bjuggu á Valdastöðum í Kjós og einnig það að við gistum oftast á heimili þeirra á Grettisgöt- unni þegar við fórum til Reykjavík- ur. Mér er það í barnsminni hvað mér þótti þetta skemmtilegar heimsóknir enda hjónin glaðvær og gestrisin með afbrigðum en hjá útgáfunni einnig. Ungir menn birtu gjarnan ritverk sín í Tímaritinu og höfðu því oft viðkomu á skrifstof- um þess. Er ég var spurður hvort ég hefði hitt Sigfús og kvað nei við, var ég eindregið hvattur til að láta af því verða. Það var því með nokk- uð hálfum huga að ég knúði loks dyra hjá Sigfúsi, því ég vissi ekki hversu slíkum manni líkaði að vera truflaður við störfín af mér. Sá ugg- ur hvarf um leið og dyrnar opn- uðust, enda skemmst frá því að segja að varla hefur mér í annan tíma verið tekið af svo kurteisri hlýju af ókunnugum manni. Ljóð Sigfúsar og önnur ritverk hans bera vandað svipmót franskrar hugsunar og evrópskrar heimspeki í ríkara mæli en hér þekkist og segja má að hann hafi jafnvel borið þau sömu einkenni utaná sér og í fari sínu. Hann var líka óvenju heill maður og sjálfum sér samkvæmur á alla lund. Ekki fór svo að Sigfús yrði arftaki Kristins hjá Máli og menningu. Hann hraktist þaðan eft- ir ágæt störf við Tímaritið og tel ég það ómældan skaða. Hann vann síð- an við þýðingar og kennslu og rak um skeið eigin bókaútgáfu. Þýðingar Sigfúsar bera sömu einkenni og annað sem hann sinnti. Að öðru ólöstuðu þykir mér mest um vert vandaða þýðingu hans á Útlegðar- bálkum Saint-John Perse sem út kom árið 1992. Sigfús var aldrei heilsuhraustur og stríddi við erfíð veikindi síðustu árin. Við og við gafst þó tækifæri til að mæta honum á götu og skiptast á nokkrum mergj- uðum setningum. Síðast hitti ég hann í Bankastræti fyrir fáeinum vikum. Sá fundur var að því leyti sérstakur að báðir þögðu. Var líkt og undarlegur grunur flögraði um stéttina. Svo yfti Sigfús hendi með þeim orðum að hann þyldi ekki að standa úti í kuldanum. Ekki skal ég reyna að meta það hér og nú hversu ræst hafí þær væntingar er menn gerðu sér við heimkomu Sigfúsar forðum. Mér sýnist þó að áhrif hans hafí orðið minni en efni stóðu til. Vafalaust eiga veikindi þar hlut að máli en fyrst og fremst sú menningarlega útiegð sem hann dæmdist til á síð- ari árum og hann bar með reisn eins og veikindin. Ég hygg þó að áhrif Sigfúsar eigi eftir að vara lengur en margt það sem meira hefur borið á í samtímanum. Hvað sem öllu líð- ur hefur enn fækkað viðmælendum hér á götunum og enn myndast autt rúm sem ekki verður fyllt. Jón frá Pálmholti. Þegar mér er hugsað til Sigfúsar Daðasonar kemur æðruleysi hans fyrst upp í hugann. Allt fas Sigfús- ar bar með sér að hann væri svo þaulkunnugur lögmálum mannlegs lífs, að ekkert gæti komið honum ávallt var mjög gestkvæmt á heim- ili þeirra. Á þessum árum fékk ég stund- um að dvelja á heimili þeirra í nokkrar vikur í senn á vorin eftir að skóla lauk og kynntist ég því Hákoni nokkuð vel og alla tíð síðan fylgdist hann mjög náið með mér í námi og starfi. Hákon sýndi mér einstaka hlýju og fram á síðustu ár var hann að stinga að mér bók- um um þjóðlegan fróðleik eða gömlum íslenskum gripum, sem honum hafði áskotnast. Hann vissi að ég hafði ánægju af slíku og þessa hlýju og hugulsemi hans þakka ég af heilum hug. Á yngri árum sínum stundaði Hákon sjómennsku en réðst til Reykjavíkurborgar árið 1942 og starfaði þar óslitið yfir 40 ár, lengst af sem verkstjóri. Hann rækti störf sín af stakri trú- mennsku og þótti traustur og heið- arlegur í öllum þeim störfum er honum var trúað fyrir, forkur dug- legur og ósérhlífinn. úr jafnvægi. Ég veit ekki hvaðan honum kom æðruleysið sem virtist umvefja hann. Mér fannst ætíð sem það hæfi hann langt yfir allt hið hvunndagslega en skapaði honum um leið vissa fjarlægð. Því er það svo, að þótt ég telji vináttu okkar Sigfúsar hafa verið djúpa og ein- læga, þá gerði ég mér ætíð grein fyrir því að ég myndi aldrei þekkja manninn Sigfús Daðason til fulln- ustu. En við það varð ég snemma sátt. Ég var hálfþrítug þegar ég kynntist honum og þijátíu ára ald- ursmunur gerði að verkum að sam- skipti okkar minntu stundum á sér- lega gott feðginasamband. Þar ríkti hlýja og blíða en einnig gleði og kátína. í alvöruleysinu fórum við ekki varlega með orð, sem urðu bæði mörg og gáskafull. Öðrum stundum tókum við orð ekki upp í kippum. Sterkasta minning mín af sam- skiptum okkar snertir dauða góðs kunningja míns sem hafði þráð að ljfa en látist langt um aldur fram. Ég var umlukin skelfílegri sorg sem ég hélt í barnaskap mínum að tíminn gæti ekki læknað. Sigfús tók undir handlegg minn og sagði: „Þér líður ekki vel.“ Það var ekki spurn í orðum hans og ég vissi að hann ætlaðist ekki til svars. Hann tók mig að sér þennan dag, eins og svo marga aðra daga, og ég man hversu mér þótti gott að vera í návist hans og hversu fegin ég var að fá að ganga með honum í þögn. Og um tíma gat ég hafið mig yfir sorg mína og sú hugsun kom til mín að ég ætti alltaf eftir að muna þessa stund og vera Sigfúsi þakklát fyrir að hafa gefið mér hana. En ég þakkaði honum aldrei. Stundum er of erfítt að þakka mönnum vináttu þeirra. En ég á honum ótal margt að þakka: þolinmæðina sem hann hafði með ákaflyndi mínu, hvatninguna sem hann veitti mér margoft og umhyggjuna sem hann ætíð sýndi mér. Fyrir þó nokkrum árum spurði ég Sigfús hvort hann tryði á líf eftir dauðann. Hann leit á mig eins og hann væri að gefa mér færi á að draga spurninguna til baka. Ég setti upp þijóskufullan svip sem átti að gefa til kynna að ég ætlað- ist til svars. Hann sá við mér og svaraði með vangaveltuin um hug- myndafræði páfans. Ég tautaði nokkur orð í fullvissu um vist í betri heimi og skáldið svaraði með umburðarlyndri þögn. Ég vil trúa því að í þetta eina sinn í samskipt- um okkar hafi ég vitað betur. Ég hef ekki kvatt Sigfús Daða- son, heldur bíð þess einungis að fá að heilsa honum á ný. Kolbrún Bergþórsdóttir. Um félagsmálastörf frænda mins veit ég frekar lítið. Veit þó að hann starfaði af lífi og sál í Átthagafélagi Kjósveija á meðan það starfaði og var þar betri en enginn. Þá starfaði hann um tíma í Sjálfstæðisflokknum og var þar varaborgarfulltrúi í nokkur ár. Ég held að hann hafi ekki rekist vel í stjórnmálaflokki, enda hætti hann að mestu starfi fyrir flokkinn. Alla tíð var föðurbróðir minn tengdur æskustöðvum sínum sterkum böndum og dvaldi í Kjósinni í flest- um leyfum frá sínu fasta starfi. Um 1974 byggði hann ásamt Guð- jóni syni sínum sumarhús við Fossá í Kjós og dvaldi hann þar ásamt fjölskyldu sinni löngum stundum á meðan heilsa leyfði. Að upplagi var hann fyrst og fremst bóndi og sveitarstörfin áttu best við hann en atvikin höguðu því þannig að starfsvettvangur hans varð annar eins og fram hefur komið. Góður drengur er horfinn, heiðarlegur og traustur sem alltaf reyndist mér vel. Ég mun geyma með mér minninguna um hann. Guðný, synir, tengdabörn og aðrir ættingjar, mínar innilegar samúðarkveðjur. Farðu sæll frændi. Þorkell G. Guðmundsson. SIGFÚS DAÐASON HÁKON ÞORKELSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.