Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 55
HALLDÓRA
G UÐJÓNSDÓTTIR
+ Halldóra Guðjónsdóttir
fæddist í Réttarholti í Garði
hinn 6. nóvember árið 1909.
Hún lést hinn 17. desember síð-
astliðinn á Hrafnistu í Hafnar-
firði. Fór útför hennar fram frá
| Fríkirkjunni í Hafnarfirði 23.
desember.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að vera fyrsta barnabarn Halldóru
og búa á heimili hennar ásamt for-
eldrum mínum þeirra fyrstu hjú-
skaparár og á því margar góðar
endurminningar henni tengdar.
I Sérstaklega eru jólin ofarlega í
huga mínum og hversu gaman var
að vera hjá ömmu og afa á jólun-
| um. Það er mín heitasta ósk að
börnin mín fái að upplifa jólin eins
og ég fékk að njóta þeirra og þegar
til fullorðinsára kemur þá eigi þau
góðar minningar í sínu hjarta sem
yljar þeim.
Ég minnist líka þeirra ferðalaga
sem farin voru í „boddíi" á palli
vörubíls afa. Þar var amma hrókur
alls fagnaðar, söng og sagði sög-
ur, og fyrir lítinn snáða eins og
ég var þá, var hver ferð ævintýri
þó að ekki væri farið langt.
Halldóra amma var mikið fyrir
að vera í margmenni og var sjaldan
kátari en er eitthvað stóð til,
stórafmæli eða eitthvað slíkt, þá
naut hún sín til fulls.
Það má því gera ráð fyrir að
eftir að Jóhann afi dó hafi dagarn-
ir verið lengi að líða er hún dvald-
ist ein í íbúð sinni þó að hún hafi
notið tíðra heimsókna barna sinna.
Þetta er víst hlutskipti þeirra sem
eru búnir að skila sínu dagsverki.
Fyrir suma er þetta kærkomin
hvíld, en aðrir vilja halda áfram,
en geta ekki vegna heilsubrests er
fylgir háum aldri. Amma var þann-
ig. Andinn var ekki bugaður þrátt
MINNINGAR
fyrir að líkaminn væri farinn að
gefa sig.
Halldóra amma var svo lánsöm
að fá að dvelja á Hrafnistu, dvalar-
heimili aldraðra í Hafnarfirði, síð-
ustu misseri ævi sinnar og naut
þar góðrar aðhlynningar starfs-
fólks og félagsskapar vistmanna.
Amma virtist alltaf vera kát og
hress þrátt fyrir veikindi sín sem
þjakað hafa hana síðustu æviárin
og ekki gott að átta sig á því hvern-
ig henni leið.
Halldórá amma var mikil lista-
kona og skilur eftir sig marga
góða hluti sem hún gerði í höndun-
um og eru nú í hugum okkar ómet-
anlegir dýrgripir sem halda minn-
ingu hennar á loft, en fyrir mig
og marga fleiri er minningin um
góðar stundir það dýrmætasta sem
hún skilur eftir.
Megi fullvissan um hana og afa
í faðmi algóðs Guðs hugga okkur
og vera okkur styrkur þar til við
verðum sameinuð aftur. Biblían
kennir okkur að við skulum líta á
jarðlífið sem dvöl að heiman. Nú
er amma komin heim.
Jóhann Hauksson,
Laxárvirkjun.
t
Ástkær eiginkona mín,
JÓHANNA
ÞORSTEINSDÓTTIR,
Fáskrúðsfirði,
sem lést á dvalarheimilinu Uppsöl-
um 2. janúar, verður jarðsungin frá
Fáskrúðsfjarðarkirkju föstudaginn
10. janúar kl. 14.00.
Bjarni Sigurðsson.
t
Útför systur minnar,
GUÐBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áðurtil heimilis
f Boðahlein 22,
sem lést mánudaginn 30. desember,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn
10. janúar kl. 13.30.
Stefanfa Stefánsdóttir.
)
)
I
>
)
;
I
I
I
I
i
i
á
1
I
+ Helgi Þor-
geirsson fædd-
ist á Mýrum í Vill-
ingaholtshreppi
29. júlí 1912. Hann
lést 28. desember
síðastliðinn að
Hátúni 10 í
Reykjavík. Hann
var elstur sex
barna hjónanna
Guðrúnar Eiríks-
dóttur, f. 16. des-
ember 1884 á Mýr-
um, d. 2. nóvember
1967 í Reykjavík
og Þorgeirs Jóns-
sonar bónda þar, f. 5. apríl
1889 í Reykjavík, d. 18. mars
1960 í Reykjavík. Önnur börn
þeirra voru Jón, f. 2.8. 1913,
d. 9.6. 1985, Eiríkur, f. 5.4.
1917, Þórður, f. 14.6. 1920, d.
7.5. 1954, Lilja, f. 24.4. 1923,
og Svanlaug, f. 4.5. 1926.
Helgi vann á búi foreldra
sinna, allt til þess er þau brugðu
Við systkinin viljum í fáum orðum
kveðja móðurbróður okkar, Helga
Þorgeirsson. Helgi bjó, eftir að hann
flutti frá Mýrum í Villingaholts-
hreppi, í Blönduhlíð 11, fyrst hjá
foreldrum sínum og síðan einn að
þeim látnum. Fyrstu árin eftir að
Helgi kom til Reykjavíkur átti hann
tvo hesta, þá Rauð og Grána, sem
voru honum mjög kærir og eyddi
hann mestu af sínum frístundum í
þetta áhugamál, og eru Geira minn-
isstæðir útreiðatúrarnir sem hann
fór með Helga á þessum árum. Það
sýnir best hversu vænt Helga þótti
um þessa tvo hesta, að þegar þeim
var lógað, hætti Helgi allri hesta-
mennsku.
I minningu okkar frá æskuárun-
um kom Helgi oft við í Skipholti 12,
þar sem við ólumst upp, og sat í
eldhúsinu, spjallaði og drakk kaffí.
Helgi var frekar fáskiptinn maður
og hélt sig út af fyrir sig, þannig
að um mjög náin kynni var ekki að
ræða, en okkur er ljóst að Helga
var umhugað um velferð okkar og
fjölskyldna okkar, því hann bæði
hringdi og spurðist fyrir um hag
okkar og barna okkar og á hann
okkar þakkir skilið fyrir það.
Blessuð sé minning þín.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Ingibjörg, Þorgeir, Þórdís,
Lilja Guðrún og Gylfi.
búi á vordögum 1954
og fluttu til Reykja-
víkur, með þeim frá-
vikum að hann fór
um margra ára skeið
til sjóróðra á vetrar-
vertíð í Vestmanna-
eyjum. Helgi átti
áfram heimili hjá
foreldrum sínum er
til Reykjavíkur kom,
en eftir að þau voru
bæði látin bjó hann
einn til síðustu
stundar.
Sumarið 1954
réðst Helgi til starfa
hjá Skrúðgörðum Reykjavíkur-
borgar, og þar starfaði hann
óslitið allt til þess er hann lét
af störfum kominn nokkuð á
áttræðisaldur og hafði hann þá
starfað bjá borginni vel á fjórða
áratug.
Útför Helga fer fram frá
Háteigskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
í dag kveðjum við ástkæran
frænda okkar Helga Þorgeirsson.
Allt frá því að við vorum litlar stelp-
ur hefur Helgi frændi verið hlyþi af
lífí okkar. Við þekktum hann mest
í tengslum við æskuheimili okkar
þar sem að hann var tíður gestur.
Helgi kvæntist aldrei og varð ekki
bama auðið, og því urðu samskipti
hans við systkini sín og þeirra af-
komendur nánari. Fyrir okkur var
Helgi frændi eins konar sameining-
artákn fjölskyldu sinnar.
Nú á þessum tímamótum hrann-
ast minningabrotin upp. Helgi
frændi með okkur í sumarbústað,
hjá okkur í mat, með okkur á jólun-
um og laumandi aurum í litlar hend-
ur frændsystkina sinna.
Elsku frændi, við kveðjum þig
með söknuði. Blessuð sé minning
þín.
„„Einstakur" er orð sem notað
er þegar lýsa á því sem engu öðru
er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða
manni sem veitir ástúð með brosi
eða vinsemd. „Einstakur" lýsir fólki
sem stjómast af rödd síns hjarta og
hefur í huga hjörtu annarra. „Ein-
stakur“ á við þá sem em dáðir og
dýrmætir og hverra skarð verður
aldrei fyllt. „Einstakur" er orðið sem
best lýsir þér.“ (Teri Femandez).
Svana og Sunna.
Helgi Þorgeirsson garðyrkjumað-
ur hefur kvatt eftir góðan starfsdag
og vissulega verður hans lengi
minnst af mörgum sem áttu með
honum samleið þótt hann hafí ekki
látið mikið fara fyrir sér í daglegum
önnum í hérvist sinni. Okkar leið lá
lengi saman og ávallt með hljóðlát-
um hætti. Við vomm alla tíð sam-
stíga, því við áttum sameiginlegt
hugðarefni við að rækta og fegra
borgina okkar, Reykjavík. Hann
kom hingað til borgarinnar í byrjun
fímmta áratugarins ásamt foreldr-
um sínum, sem lögðu niður búskap
austur í Flóa og atvikin höguðu því
svo til að leið okkar lá saman eftir
það og fór alla tíð vel á með okkur.
Ég lagði á ráðin um hvar rækta
skyldi tré og blóm en hann var öðr-
um mönnum drýgri við að planta
þeim niður og sjá um að vel væri
um gróðurreitina gengið. Hann bjó
alla tíð á sama stað í Hlíðunum hér
í Reykjavík og eftir langan vinnudag
og jafnan allar góðviðrishelgar var
hann boðinn og búinn að rétta ná-
grönnum sínum hjálparhönd við að
fegra og prýða lóðir þeirra. Og þar
sem hann hafði lagt hönd að verki
og séð góðan árangur hafði hann
eftir það alla tíð auga með að vel
væri um gróður hugsað en var þó
ekki í eðli sínu afskiptasamur mað-
ur, en öllum velviljaður. Hljóðlátur
og hógvær í öllu dagfari og manna
prúðastur í allri umgengni en oft sár
ef hann sá illa um gengið, þótt hann
hefði sjaldnast mörg orð um. Bauðst
hann þá oft til að bæta úr misbrest-
um til betri vegar.
Helgi var fríður maður en lét lítið
fara fyrir sér og fór jafnan ferða
sinna fótgangandi, og eini maðurinn
sem ég vissi til að var alla tíð sáttur
við að greiða skattana sína og fannst
oftast að þeim væri vel varið til að
bæta umhverfíð og mannlífíð. Hann
var um margt ólíkur öðrum mönnum
og vissulega öðrum til eftirbreytni.
Helga er gott að minnast.
Hafliði Jónsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts elskulegrar dóttur okkar
og systur,
SÖNDRU SIFJAR JÓHANNSDÓTTUR,
Hverafold 130.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhann Helgason, Halldóra Pétursdóttir,
Davið Örn Jóhannsson, Elvar Þór Jóhannsson.
HELGI
ÞORGEIRSSON
t
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐMUNDÍNA H. S. SVEINSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
á Njálsgötu 50,
sem lést á Sólvangi í Hafnarfirði þriðju-
daginn 31. desember, verður jarðsung-
in frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
10. janúar kl. 13.30.
Sigurlaug Sigurjónsdóttir,
Sigurbjörn Sigurjónsson, Vilborg Elísdóttir,
Eria Sigurjónsdóttir, Helgi Jónasson,
Haukur Sigurjónsson, Anne Mari Asmunsen,
Sóley Sigurjónsdóttir, Óskar G. Sigurðsson,
Victor Sigurjónsson, Margrét Lukasiewcz,
Gunnar Sigurjónsson,
Ingibjörg Sigurjónsdóttir, Bergmundur H. Sigurðsson,
Guðjón Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir til allra, er sýnt hafa samúð og vinarhug við andlát
og útför
GUNNARS JÓHANNSSONAR
frá Bíldudal,
Stóragerði 22,
Reykjavík.
Halldóra S. Gunnarsdóttir,
Jóhann S. Gunnarsson, Matthildur Sif Jónsdóttir,
Guðrún E. Gunnarsdóttir,
Salóme Kristjánsdóttir, Kári Sæbjörnsson,
barnabörn og aðrir aðstandendur.
t
Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts
og útfarar systur okkar og mágkonu,
GUÐNÝJAR BJARNADÓTTUR,
Droplaugarstöðum,
Reykjavík.
Kristján Bjarnason, Eva Þórðardóttir,
Ólafur Bjarnason. Geirþrúður Kristjánsdóttir.
t
Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem
auðsýndu okkur samúð og vinarhug við
fráfall ástkærrar móður okkar, tengda-
móöur, ömmu og langömmu,
NÖNNU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Patreksfirði.
Anna Gi'sladóttir, Flosi G. Valdemarsson,
Bjarni Gíslason, Þórey Jónsdóttir,
Guðrún Gfsladóttir Bergmann, Andreas Bergmann,
Nanna Sjöfn Pétursdóttir, Jón Rúnar Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.