Morgunblaðið - 09.01.1997, Side 56
J
56 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
A' \r ■ N N t I AUGL ÝSINGAR
Heimilisþjónustan
Starfsfólk vantar í heimilisþjónustu hjá
Seltjarnarnesbæ sem fyrst.
Nánari upplýsingar veitir Þóra Einarsdóttir
í síma 561 2100.
Patreksfjörður
Sjúkrahúsið á Patreksfirði
Læknir
Staða læknis við Sjúkrahús og Heilsugæslu-
stöð Patreksfjarðar er laus til umsóknar.
Um er að ræða 100% stöðu. Staðan veitist
frá 1. febrúar nk. eða eftir samkomulagi.
Sérfræðimenntun í heimilislækningum er
æskileg.
Sjúkrahús og Heilsugæslustöð Patreksfjarðar
þjónar íbúum Vesturbyggðar og Tálknafjarð-
arhrepps. íbúar eru um 1700.
Laun eru skv. kjarasamningi lausráðinna
sjúkrahúslækna. Fyrir almenna læknishjáp
veitta á heilsugæslustöð greiðist skv. samn-
ingi Læknafélags íslands og Tryggingastofn-
unar ríkisins.
Umsóknarfestur er til 23. janúar 1997.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og
fyrri störf, sendist stjórn Sjúkrahúss og Heilsu-
gæslustöðvar Patreksfjarðar, Stekkum 1,
450 Patreksfirði.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir
Sæmundur Haraldsson, yfirlæknir,
í síma 456 1110.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðið
hefur verið í stöðuna.
Sjúkrahús og Heilsugæslustöð Patreksfirði.
Reyklaus vinnustaður.
KENNARA-
HÁSKOU
ÍSLANDS
Laus störf
Við Kennaraháskóla íslands eru eftirtalin
störf laus til umsóknar:
1. Tímabundin staða lektors í uppeldis- og
kennslufræði.
Helstu viðfangsefni lektorsins eru á sviði
skólaþróunar, skólaráðgjafar, mats á skóla-
starfi og skólanámskrárgerðar. Auk fullgilds
háskólaprófs skal umsækjandi hafa viður-
kennd kennsluréttindi eða hafa að öðru leyti
nægilegan kennslufræðilegan undirbúning.
Reynsla af kennslu og skólastarfi er nauð-
synleg.
Umsókn fylgi ítarleg skýrsla um vísindastörf,
ritsmíðar og rannsóknir, svo og upplýsingar
um námsferil og önnur störf. Þau verk, sem
umsækjendur óska að dómnefnd fjalli um,
skulu einnig fylgja.
Gert er ráð fyrir að staðan verði veitt til
tveggja ára frá 1. ágúst 1997.
2. Staða fjármálastjóra.
Fjármálastjóri hefur í umboði rektors og
skólaráðs umsjón með fjárreiðum og starfs-
mannahaldi skólans. Starfið er auglýst sam-
kvæmt ákvæðum í lögum nr. 29/1988 um
Kennaraháskóla íslands.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir berist Kennaraháskóla íslands
v/Stakkahlíð, 105 Reykjavík, fyrir 30. janúar nk.
Rektor.
T ónlistarmyndband
ársins 1996
Besta tónlistarmyndband ársins verður valið
í þættinum „Myndbandaannáll 1996“, sem
sýndur verður 30. janúar.
Skilafrestur myndbanda er til 10. janúar.
Irmlend dagskrárdeild Sjónvarpsins,
Laugavegi 176,
105 Reykjavík.
Landsskrifstofa Leonardó
lýsir efdr umsóknum um styrki til
starfsþjálfunaráætlunar ESB
Leonardó da Vinci.
Umsóknarfrestur er tii 1. apríl 1997.
Kynningarfundur um Leonardó,
forgangsatriði 1997 og hvernig ber að
standa að umsókn verður haldinn
fimmtudaginn 16. janúar kl. 15:30 -17:00
í Tæknigarði, Dunhaga 5, Reykjavík.
Nánari upplýsingar eru veittar á
Landsskrifstofu Leonardó í síma 525 4900
LANDSSKRIFSTOFA
LEONARDÓ
piog'am 91
IÆONA 0A Wá |!lp
Námsstyrkir
Verslunarráð íslands auglýsir eftir umsókn-
um um tvo styrki til framhaldsnáms erlendis,
sem veittir verða út Námssjóði Verslunar-
ráðs.
1. Styrkirnir eru veittir til framhaldsnáms við
erlendan háskóla eða aðra sambærilega
skóla í greinum, sem tengjast atvinnulíf-
inu og stuðla að framþróun þess.
2. Skilyrði styrkveitingar er, að umsækjend-
ur hafi lokið námi, sem veitir rétt til inn-
göngu í Háskóla íslands eða aðra sam-
bærilega skóla.
3. Hvor styrkur er að upphæð 200.000 kr.
og verða þeir afhentir á Viðskiptaþingi
Verslunarráðs íslands í febrúarmánuði
1997.
Umsóknir þurfa að hafa borist til skrifstofu
Verslunarráðs íslands í Húsi verslunarinnar,
Kringlunni 7, 103 Reykjavík, fyrir kl. 16.00
föstudaginn 24. janúar 1997.
Umsóknum þarf að fylgja afrit af prófskír-
teini, vottorð um skólavist erlendis, lýsing á
náminu við hinn erlenda skóla og Ijósmynd
af umsækjanda.
Verslunarráð íslands.
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast á ný 13. janúar.
Boðið er upp á byrjendahóp, fimm fram-
haldshópa og talhóp.
Einnig er ráðgert að bjóða í umboði Goethe-
stofnunar upp á undirbúningsnámskeið fyr-
ir hið viðurkennda þýskupróf „Zertifikat
Deutsch als Fremdsprache".
Innritað verður á kynningarfundi í Lögbergi,
Háskóla íslands, stofu 102, fimmtudaginn
9. janúar, kl. 20.30.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma 551 0705
kl. 12.00-13.00 eða kl. 17.00-19.00.
Nýir þátttakendur eru velkomnir í alla hópa.
Geymið auglýsinguna.
GOETHE-/pO
INSTITUT REYKJAVÍK Stjórn Germaniu.
Prófanám á vorönn 1997
Öldungadeild
Grunnskólastig
(íslenska, stærðfræði, danska og enska)
Grunnnám: Samsvarar 8. og 9. bekk grunn-
skóla. Ætlað þeim, sem ekki hafa lokið grunn-
skólaprófi eða vilja upprifjun frá grunni.
Fornám: Samsvarar 10. bekk grunnskóla.
Ætlað þeim, sem ekki hafa náð tilskyldum
árangri í 10. bekk eða vilja rifja upp.
Undirbúningur fyrir nám á framhaldsskóla-
stigi.
Framhaldsskólastig
Menntakjarni: Fyrstu þrír áfangar kjarna-
greina: íslenska, danska, enska og stærð-
fræði. Auk þess eðlisfræði, efnafræði, félags-
fræði, námstækni, saga, stærðfræði 112 og
122 og tjáning.
Sjúkraliðabraut: Heilbrigðisfræði, líffræði,
líffæra- og lífeðlisfræði, líkamsbeiting, nær-
ingarfræði, sálfræði, siðfræði og skyndihjálp.
Aðstoðarkennsla í stærðfræði fyrir nem-
endur í grunn- og framhaldsskólum.
Nemendur mæta með eigið námsefni og fá
aðstoð eftir þörfum.
Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla.
Skólagjöld miðast við kennslustundafjölda
og er haldið í lágmarki.
Innritun fer fram í Miðbæjarskóla,
Fríkirkjuvegi 1, dagana 9. og
10. janúar f rá kl. 17.00 til 19.30.
Innritun í frístundanám fer fram
12. og 13. september, kl. 16.30-19.30.
Þessi bátur er til sölu, með eða án kvóta.
Stálbátur 64 tonn með Caterpillar-vél, 340
hö, árgerð 1985. Mikið endurnýjaður. Kvóti
ca 66 þorskígildi, þar af ca 5 . v'->nn þorskur.
Skipasalan F og búnaður,
Barónsstíg 6
sími 562 2554, fax 552 6726.
Internet: www.kvoti.is