Morgunblaðið - 09.01.1997, Side 57

Morgunblaðið - 09.01.1997, Side 57
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 57 MARÍA MAGNÚSDÓTTIR + María Magnúsdóttir fædd- ist í Reykjavík hinn 30. apríl 1936. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur hinn 20. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 30. desember. Það þyrmdi yfir mig er ég fregn- aði lát Massýjar vinkonu minnar. Vitaskuld hafði ég lengi vitað að hveiju stefndi og undraðist maður raunar hve hetjulega Massý barðist við sjúkleik sinn og hve hún bar sig ávallt vel. Hún var síkát og gekk hnarreist hvar sem hún fór og var jafnan stutt í hláturinn. Já, gáska- full var hún og lipur í allri um- gengni enda hvers manns hugljúfi og átti gott með að ná til fólks, ekki hvað síst ungmenna. Þannig muna þeir sem áttu leið um skiptistöð stæt- isvagna Kópavogs um nokkurt skeið eftir að sú stöð var tekin í gagnið hve vel Massý tókst að ná til ung- mennanna sem þar héldu við, og stjórnaði þeim af stakri lipurð án þess þó að missa tökin eða vera áber- andi ströng. Enda hélt hún virðingu þeirra fyrir vikið þar sem hún stóð vaktina í söluturninum. Leiðir okkar Massýjar bar þó ekki formlega saman fyrr en að ég held 1977 þegar ég aðstoðaði hana við opin hús fyrir unglinga í húsi sjálf- stæðismanna í Kópavogi, eftir að „Grease“- og „Saturday Night Fev- er“-æðið var gengið í garð. Þar tók- um við þátt í skemmtan unga fólks- ins þar sem það var að reyna að fullnema sig í dönsunum sem því til- heyrði. Oftar en ekki gerðumst við danskennarar þeirra sem þar komu þótt ekkert hefðum við prófið, en Massý hafði nú lítið fyrir þessu enda dansinn henni í blóð borinn svo að segja, þannig að vér hinir minni hátt- ar dansarar reyndum að láta sem minnst á oss bera. En það var gam- an að dansa við Massý, enda gáfust nú annað slagið tilefni til þess eftir þessa kennslu okkar þar sem við vorum bæði flokksbundnir sjálfstæð- ismenn. María var félagi í öllum fé- lögum sjálfstæðismanna og kvenna í Kópavogi og raunar stofnfélagi alla- vega í Baldri, málfunda- og laun- þegafélagi sjálfstæðismanna í Kópa- vogi, og hafði verið bæði í stjórn þess og annarra félaga í gegn um tíðina. Var formaður Baldurs um nokkurt skeið og loks varaformaður þar fram á síðasta dag. María var búin að vera um áratuga skeið einn af stjórnarmönnum verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Henni hafði þar að auki verið trúað lengi fyrir setu í kjördæmisráði flokksins í Reykja- nesi. Allt fórst henni þetta vel úr hendi sem von var. Hugsjónir Sjálf- stæðisflokksins voru henni hugleikn- ar og fóru sem betur fer saman við hugsjónir hennar. Á þeim tímum sem það þótti „fínt“ meðal margra launþega að vera sós- íalisti, lenti Massý oftar en ekki í rimmu á vinnustöðum sínum vegna skoðana sinna. Gekk þetta svo langt að sumir vinnufélaga hennar töldu hana nokkurs konar svikara við stétt launþega að starfa innan vébanda Sjálfstæðisflokksins. En Massý var óþreytandi talsmaður hugsjóna sinna og á endanum stillti hún öldurnar og vafalaust er að hún hefur náð að „kristna" þá nokkra vinnufélagana á endanum með eldmóði sínum. En þá var hún nú ekki alltaf sátt við stefnu og áherslur sitjandi þing- og ráða- manna Sjálfstæðisflokksins síns og fengu þá viðkomandi pésar orð í eyra, því ófeimin var hún að segja fyrirmenni skoðun sína, og gerði það jafnan tæpitungulaust, á einfaldri og skýrri íslensku. Þá hafði Massý óþreytandi áhuga á börnum sínum og síðar einnig barnabörnum. Vakti hún yfir hverju fótmáli þeirra og fylgdist grannt með því sem þau tóku sér fyrir hendur. Þannig fengum við sem áttum skipti við hana að heyra hana segja með stolti frá þessum föngulega hópi sín- um og hveiju því framaspori sem þau stigu og var augljóst að hún lagði þeim til krafta sína, þyrfti þess með, svo að allt gengi þeim nú að óskum. Ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur misst einn af ötulustu baráttu- mönnum sínum. Stórt skarð hefur verið höggvið í raðir okkar sem vandasamt er að skipa í á nýjan leik. Þá hefur íjölskylda hennar misst yndislega eiginkonu, móður, ömmu, og frænku, skarð sem aldrei verður fyllt. En það er þó huggun harmi gegn að nú er Massý komin á nýjar brautir þar sem hún skipar vafalaust veglegan sess, þrautalaus af þeim sjúkdómi sem svo illa lék hana héma megin. Eg þykist fara nærri um að ég tala fyrir hönd sjálfstæðismanna í heild, er ég þakka áratugalöng óeig- ingjörn störf hennar í þágu flokks- ins, trygglyndi hennar og vináttu, ekki hvað síst í minn garð sem og samflokksmanna sinna. Fjölskyldu hennar biðjum við Guðs blessunar í hinum mikla missi. Við óskum Massýju velfarnaðar á þeirri braut sem hún hefur nú hafið vegferð sína á og minnumst hennar í einlægri og djúpri þökk fyrir allt og biðjum þess að algóður Guð blessi minningu hennar. Þorsteinn Halldórsson, formaður Baldurs. RAÐAUGi YSINGAR Fundarboð Landbúnaðar- og fiskveiðiáætlun Evrópusambandsins (FAIR). Boðað er til fundar í Borgartúni 6 föstudag- inn 10. janúar kl. 10.00. Dagskrá: 1. Árangur íslenskra rannsóknarmanna í FAIR. 2. Áherslur 5. Rammaáætlunar á sviði landbúnaðar og fiskveiða. 3. Áherslur í næsta kalli í FAIR 15. mars. 4. Átaktil að auka þátttöku fyrirtækja íFAIR. KYNNINGARMIÐSTÖÐ EVRÓPURANNSÓKNA Vélstjórafélag íslands Málþing um starfsumhverfi vélstjóra íBorgartúni 6 iaugardaginn 11. janúar 1997. Kl. 12.30 Skráning þátttakenda. Kl. 13.00 Setning. Helgi Laxdal, formaður Vélstjóraféiags íslands. Kl. 13.05 Ávarp. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra. Kl. 13.30 Áhættuþættir í starfsumhverfi vélstjóra. Vilhjálmur Rafnsson, yfirlæknir. Kl. 14.00 Húðsjúkdómar. Steingrímur Davíðsson, hjúðsjúkdómalæknir. Kl. 14.20 Hávaði og heyrnarskemmdir. Einar Sindrason, yfirlæknir. Kl. 14.40 Krabbameinshætta. Vilhjálmur Rafnsson, yfirlæknir. Kl. 15.00 Fyrirspurnir og umræður. Kl. 15.30 Kaffi. Kl. 16.00 Reglur og viðhorf Vinnueftirlits ríkisins. Guðmundur Eiríksson, vélfræðingur. Kl. 16.15 Reglur og viðhorf Siglingamála- stofnunar. Kristinn Ingólfsson, tæknifræðingur. Kl. 16.30 Vistvæn skip. Guðbjartur Einars- son, vélfræðingur. Kl. 17.00 Fyrirspurnir og umræður. Kl. 17.30 Slit. Helgi Laxdal, formaður Vélstjórafélags íslands. Kl. 18.00 Léttar veitingar í boði heilbrigðis- ráðherra. Aðalfundur knattspyrnudeildar KR Aðalfundur knattspyrnudeildar KR verður haldinn í félagsheimili KR föstudaginn 17. janúar 1997 og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Verslunarhúsnæði við Laugaveg óskast 30-40 fm verslunarhúsnæði á góðum stað við Laugaveg óskast fyrir sérverslun með þekkt vörumerki. Upplýsingar í síma 552 3050 eða 896 1990. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Sjálfstæðismenn í Reykjavík Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna og hið árlega þorrablót verða haldin laugardaginn 25. janúar næstkomandi. Dagskrá nánar auglýst síðar. Vörður - Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Kópavogur Árshátíð - þorrablót Hin árlega hátíð sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi verður haldin laugar- daginn 25. janúar 1997 og hefst kl. 19.00. Hátíöargestur: Formaður Sjálfstæðisflokksins, Davíð Oddsson, forsætisráðherra. Miðasala verður laugardaginn 11. janúar 1997 í Hamraborg 1, 3. hæð, milli kl. 10.00 og 14.00. Nefndin. SltlCI ouglýsingor I.O.O.F. 5 = 1781098 = Ár I.O.O.F. 11 = 17819872 = Landsst. 5997010919 VIII Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld, fimmtudags- kvöldið 9. janúar. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Bænastund í kvöld kl. 20.00. Allir hjartanlega velkomnir. Hvað ber nýtt ár og framtíðin í skauti sér? Ábendingar og ráðleggingar til þín. Spái í spil og bolla. Kem í heimahús og/eða vinnustaði fyrir 3 eða fleiri. Góð reynsla af saumaklúbbum, vinnufélögum, fjölskyldum o.fl. Sanngjarnt verð. Geymið auglýsinguna. Júlíus, Sími551 8859. \G—z/ KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Aðaldeild KFUM við upphaf nýs árs. Umsjón: Aðalsteinn Thorarensen. Allir karlmenn velkomnir. Myndakvöld 9. janúar Sýndar verða myndir úr tveimur ferðum um þemasvæði Útivist- ar. Anna Soffía Óskarsdóttir og Gunnar Hólm sýna myndir úr kynningarferð Útivistar í Laka- gíga. Árni Jóhannsson sýnir myndir frá ferðinni Sveinstindur - Skælingar - Eldgjá. Sýningin hefst kl. 20.30 í Fóst- bræðraheimilinu við Langholts- veg. Verð 600 kr. Innifalið í að- gangseyri er hið vinsæla hlað- borð kaffinefndar. Dagsferð 12. janúar kl. 10.30: Raðganga Útivistar 1997, 1. áfangi: Garðskagaviti - Sandgerði. Netslóð: http://www.centrum.is/utivist Leiklistarstúdíó Eddu Björgvins og Gísla Rúnars Nýtt námskeið í leiklist og tjáningu er að hefjast. Sími 581 2535. Nú geta allir lært að syngja, laglausir sem lagvísir. Hóptímar/einkatimar Byrjenda- og framhaldsnámskeið: Námskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem lagvísa. Söng- kennsla í hóp. Þátttakendur fá grunnþjálfun í raddbeitingu, réttri öndun og ýmsu fleiru sem hjálpar þeim að ná tökum á söngröddinni. Söngsmiðja fyrir hressa krakka: Söngur, tónlist, leikræn tjáning. Aldursskipt námskeið frá 5 ára . aldri. Einsöngur: Klassík og dægurtónlist. Kvennakórinn Kyrjurnar: : Stjórnendur: Sigurbjörg Hv. Magnúsdóttir og Sigrún Grendal. ‘ Rokk/jass/blues ( vetur kennir kanadíska söng- I konanTena Palmerviðskólann. Frábær söngkona, sem unnið I hefur til fjölda verðlauna fyrir :söng sinn. ISönghópur Móður Jarðar: iStjórnandi: Esther Helga Guð- i mundsdóttir. Kórhópur, sem Iflytur „GospeL'-tónlist og ýmsa I létta tónlist, heldur sjálfstæða ttónleika og syngur við ýmis tæki- ffæri. Óskum eftir fólki með rreynslu í söng og nótnalestri. (Kennsla hefst 20. janúar. I Innritun er hafin í síma 561 2455 wirka daga frá kl. 13-18. Söngsmiðjan ehf., Hverfisgötu 76, Reykjavík. Blab allra landsmanna! fHfftnpsnMalnifo -kjarnimálsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.