Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 09.01.1997, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 59 FRÉTTIR HLUTI útskriftarnemenda frá Iðnskólanum í Reykjavík. 107 brautskráðir frá Iðnskólanum í Reykjavík Betri námsárangur HAUSTÚTSKRIFT Iðnskólans í Reykjavík fór fram í Hallgrímskirkju föstudaginn 20. desember. 107 nem- endur luku burtfararprófi frá braut- um skólans. í ræðu Ingvars Ásmundssonar skólameistara kom fram að 1.898 nemendur voru skráðir í skólann á haustönn, þar af 1.585 í dagskóla og 313 í kvöldskóla. Hafði fækkað um 85 nemendur frá haustönninni 1995 sem skýrist að mestu ieyti af flutningi bílgreina og framhaldsdeild málmiðngreina í Borgarholtsskóla og flutningi bakaradeildar í Mennta- skólann í Kópavogi. Skólameistari ræddi umtalsverð- an árangur sem náðst hefur af breyt- ingum á námsmati við skólann. Haustið 1995 féllu 447 á skólasókn eða 27% skráðra nemenda. Þessar tölur höfðu lækkað niður í 337 og 22% á þessari önn. Haustið 1995 luku 78% skráðra nemenda við a.m.k. einn áfanga á önninni en 86% á þessari önn. Skólameistari taldi að breytt próffyrirkomulag tengt við símat skýrði þessa bættu viðveru sem síðan hafi skilað sér í betri vinnu og námsárangri nemenda. * Forseti Islands fékk afhent 250.000. Nýjatestamentið Vormissen Biblíuskól- ans við Holtaveg að hefjast VORMISSERI Bibiíuskólans við Holtaveg hefst á næstu dögum. í boði verða alls átta námskeið en fyrsta námskeiðið hefst nk. mánu- dag. Ber það heitið Frá Lúther til upplýsingar, en á þvi verður stiklað á stóru í kirkjusögu seinni alda. Fjallað verður m.a. um sögu Lúthers og siðbótar hans, réttrún- aðartímabilið og upphaf píetismans eða heittrúarstefnunnar. Kennt verður fjögur mánudagskvöld en innritun lýkur föstudaginn 10. jan- úar. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Þórarinn Björnsson, guð- fræðingur. Viku seinna hefst Alfa- námskeið sem nú er kennt í þriðja sinn. Fjallar það um grundvallarat- riði kristinnar trúar. Önnur námskeið á vormisseri eru námskeiðin Fjallræðan, Samskipti hjóna og sambandið við Guð, Boðun trúar með hjálp sjónhverfinga, Boð- un trúar og töflumálun, Samkyn- hneigð og kristin trú og loks Leið- togi í mótun. Námskeiðin eru öllum opin en nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans. Fréttabréf Biblíuskólans er sent öllum sem þess óska endurgjaldslaust. -----♦ ♦ «------ Vitna að árekstri leitað TVEIR bílar skullu saman á gatna- mótum Reykjanesbrautar og Smiðjuvegar aðfaranótt laugar- dagsins 4. janúar sl. kl. 3.45 og óskar rannsóknardeild lögreglunnar í Reykjavík eftir að hafa tal af vitn- um að árekstrinum. Renault-bíl RK-943 var ekið í beygju austur Smiðjuveg og inn á Reykjanesbraut og Volkswagen Polo BL-894 var ekið suður Reykja- nesbraut. Bílarnir skullu saman og greinir ökumenn á um stöðu um- ferðarljósanna á gatnamótunum. LIÐSMENN Gídeonfélagsins á Islandi úthlutuðu sl. haust 250.000. Nýja testamentinu. Af því tilefni var forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, heimsóttur og honum afhent ein- tak af Nýja testamentinu. Á myndinni, sem tekin var við af- Verkalýðs- söngvakeppni Sósíalista- félag-sins SKILAFRESTUR í verkalýðs- söngvakeppni sem Sósíalistafélagið efndi til í tilefni af tveggja ára af- mæli sínu hinn 16. október síðastlið- inn rennur út 1. febrúar næstkom- andi. Söngvar til keppninnar skulu berast Sósíalistafélaginu, Hjalta- bakka 2, 109 Reykjavík, fyrir 1. febrúar 1997 undir dulnefni en rétt nafn og heimilisfang þátttakenda skal fylgja með í lokuðu umslagi. Verðlaunin verða samtals áttatíu þúsund krónur. Skiptast þa_u til helminga fyrir lag og texta. Úrslit verða kynnt fyrsta maí næstkom- andi. Dómnefnd er skipuð fulltrúum frá Félagi tónskálda og textahöf- unda, Japis, Sósíalistafélaginu og Tónskáldafélagi íslands. hendinguna, eru f.v.: Bjarni Árna- son, varaforseti Gídeonfélagsins, Guðmundur Örn Guðjónsson, for- seti félagsins, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Islands, og Sig- urbjörn Þorkelsson, fram- kvæmdastjóri Gídeonfélagsins á Islandi. Rabbfundur um Húnavöku { TILEFNI af 85 ára afmælis Ung- mennasambands A-Hún. hefur stjórn sambandsins ákveðið að boða til rabbfundar laugardaginn 11. janúar kl. 10.30 um kosti þess og galla að færa til tímasetningu Húnavöku þannig að hún yrði t.d. haldin fyrstu helgina í júlí eða um verslunarmannahelgina eða jafnvel færa hana aftur að páskum. Fund- urinn verður haldinn í fundarsal Samstöðu á Þverbraut 1, Blönduósi. ----------♦ ♦ ♦ LEIÐRÉTT Ekki jólagjöf ÞAU mistök urðu við vinnslu blaðs- ins í gær að í myndartexta var sagt að Björgvin Kristbergsson hefði fengið myndbandsupptökuvél, sem hann hélt á á meðfylgjandi mynd, í jólagjöf. Hið rétta er að hann keypti hana sjálfur í ágúst síðastliðnum. Beðist er velvirðingar á þessu. Matur og matgerð Gómsætir réttir úr hangikjöti Kristín Gestsdóttir endurtekur nýársóskir ____til lesenda sinna, en nýársþátturinn_ birtist á aðfangadag. NÚ ER hin mikla átveisla okk- ar íslendinga liðin hjá. Þeg- ar ég kom á fætur seint að morgni annars jóladags hljómaði í útvarp- inu auglýsing _frá stórmarkaði: „Glæný ýsa.“ Ég stökk nú ekki af stað heldur fór í frystikistuna og náði mér í frosna ýsu, sem ég steikti á pönnu. Kartöflujafningur jóladags var puntaður upp - kart- öflurnar skornar í sneiðar og jafn- ingurinn hrærður upp með eggi og múskati, allt sett í eldfast fat og osti stráð yfir, þetta var borið fram með steiktu ýsunni. í ís- skápnum var talsvert af hangi- kjöti sem beið betri tíma. Seinna tók ég til við að nýta það. Bjó til eggjaköku í bakaraofninum, vafði upp og setti hangikjöt og ijóma- ost í hana, fyllti snittubrauð með ijómaosti, hangikjöti og grænni papríku og bjó loks til gómsæta hangikjötsböku. Hangikjötsbök- una frysti ég, fyllta snittubrauðið bíður í kæliskápnum en eggja- kakan var borðuð á staðnum. Fyllt snittubrauð Best er að kaupa ijómaost í 400 g umbúðum - blá box. Brauðið er skorið í um 15 sm bita, þeir holaðir út, skilinn er eftir góður kantur við skorpuna. Þá er hreinn rjómaostur hrærður með papríkudufti, smátt skorinni grænni papríku og smátt skornu hangikjöti. Snittubrauðsbitarnir eru fylltir með þessu frá báðum endum, endum brauðsins er slegið létt niður í borðið til þess að maukið þéttist í því. Brauðbitarn- ir vafðir í álpappír, geymdir í kæliskáp og skornir í sneiðar við notkun. Eggjakaka með hangikjöti ___________6 stór egg__________ __________% tsk. pipor_________ _________14 tsk. múskat________ !4 tsk. salt fersk steinselja (má sleppa) 200 g hreinn rjómaostur 2 - 3 dl smátt skorið hangikjöt 1. Hitið bakaraofninn í 200°C, 2. Setjið eggjarauður, pipar, múskat og salt í skál og þeytið vel saman. Klippið steinseljuna og setjið saman við. Þeytið síðan hvíturnar og bætið út í. 3. Leggið bökunarpappír á skúffuna úr bakaraofninum og smyijið eggjahrærunni jafnt á hann, bakið í 12 mínútur. Þetta blæs upp en hjaðnar síðan. 4. Hitið ijómaostinn örlítið t.d. í örbylgjuofni, smyrjið honum jafnt ofan á eggjakökuna, skerið hangikjötið smátt og stráið yfir. Vefjið eggjakökuna þétt upp. Við notkun er þetta skorið í 2-3 sm sneiðar og borðað með ristuðu brauði og smjöri. Athugið: Geymið í kæliskáp, frystið ekki. Hangikjötsbaka 2 dl hveiti __________1 tsk. þurrger_______ 'A tsk. salt 1 msk. matarolía 1 dl fingurvolgt vatn úr krananum 1. Setjið allt í skál og hrærið saman. Þrýstið á botninn og upp með börmunum á smurðu böku- móti 23 - 25 sm í þvermál. Þetta verður þunnt iag. Nota má ál- form. Fyllingin 250 g sprotakál (brokkoli), _________má vera frosió________ 1 /2 dl saltvatn til að sjóða kálið i 3 dl smátt skorið hangikjöt '/2 lítil dós kotasæla án bragðefna _____________2 egg_____________ Va tsk. pipar 1 dl rifinn mjólkurostur, sú tegund sem þið eigið 1. Hitið bakaraofn í 190°C, blástursofn í 170°C. 1. Sjóðið kálið í saltvatninu í um 7 mínútur. Kælið örlítið en setjið síðan ofan á bökubotninn. Setjið hangikjötið með. 2. Þeytið eggin með pipar, setj- ið kotasælu saman við. Hellið yfir. Stráið mjólkurostinum yfir og bakið í 30 mínútur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.