Morgunblaðið - 09.01.1997, Síða 60
50 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Wl//ÞJ//S AtÍNi/e ZEGTA AE> ' W áG HAFf FITNA& ' J / és A?rr/ i//srA£^J 7 l/£LTA Alée HOL IA& S (/ FÆ&O / f Hé£>AN / F& ÆTLA £6 ] tlAÞ&MS A£> FF/PA y F/TOSNAUÐAe FLVáUfi
■[
CT) f-Qí
i' \Pi
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavik 9 Sími 569 1100 9 Símbréf 569 1329
9 Netfang: lauga@mbl.is
Getum gert betur
Frá Þorvaldi Kr. Gunnarssyni:
SÚ VAR tíðin að íslendingar og
Norðmenn voru taldir svipaðir að
getu á knattspyrnusviðinu en nú er
öldin önnur. Markviss uppbygging
hefur skilað Norðmönnum mjög
góðu landsliði sem nær árangri.
Nánast vikulega berast fréttir af
kaupum á norskum knattspyrnu-
mönnum í úrvalsdeild á Englandi.
Spurningin er hvort ísiendingar eiga
möguleika á að ná svipuðum ár-
angri eður ei. Mín persónulega skoð-
un er að þrennt skorti hér á landi
til _að við getum bætt okkur mikið.
í fyrsta lagi verður A-landsliðið
að fá að spila við betri lið. Eitt skref
í þá átt gæti verið að koma á legg
Norðurlandamóti í knattspyrnu.
Norðurlöndin eru í dag framarlega
á sviði knattspyrnu en þó sérstak-
lega Svíþjóð, Noregur og Danmörk.
íslendingar hafa oft komið á óvart
með góðri frammistöðu og ekkert lið
getur bókað sigur gegn okkur fyrir
fram. Færeyringar og Finnar eru
kannski lakastir en sýna oft ótrúleg-
an baráttuvilja og leikgleði sem
gaman er að horfa á. Þegar hugsað
er til allra þeirra, samskipta sem
Norðurlandaþjóðirnar hafa sín á
milli er undarlegt að ekki sé haldið
Norðurlandamót í knattspyrnu.
Þannig mót væri kjörið tækifæri
fyrir íslenska knattspyrnumenn því
við spilum alltof sjaldan við sterk
landslið.
í öðru lagi má gera betur í sam-
bandi við íslandsmótið í knatt-
spyrnu. Hvernig stendur á því að
aðeins eru leiknir 18 leikir á hveiju
tímabili? Það er alltof lítið fyrir full-
hrausta knattspyrnumenn sem vilja
komast langt í íþrótt sinni. Það er
löngu tímabært að hafa þrefalda
umferð. Það er hægt að spila knatt-
spyrnu lengur en bara um hásumar-
ið og það ætti að vera hægt að lengja
tímabilið um allt að mánuð með
góðu móti. Yfirbyggðir knattspyrnu-
vellir eru bráðnauðsynlegir ef við
viljum fá að sitja við sama borð og
aðrar knattspyrnuþjóðir og hefur
mikið verið rætt um þátt þeirra í
velgengni Norðmanna. Fjölgun liða
í fyrstu deild er aðeins réttlætanleg
ef það veikir ekki deildina með fleiri
lélegum leikjum og eins og staðan
er í dag þá væri fækkun liða í deild-
inni og fleiri umferðir kannski betri
hugmynd.
I þriðja lagi verðum við að fá eins
mikið úr yngri flokkunum eins og
hægt er en svo virðist sem það hafi
tekist. Árangur ungmennalandsliðs-
ins hefur verið mjög góður og von-
andi á það eftir að skila sér í betra
A-landsliði seinna meir. Atli Eð-
valdsson og félagar eiga lof skiiið
fyrir að rífa liðið svona upp og hlýt-
ur hann að vera inni í myndinni sem
næsti landsliðsþjálfari íslands.
Islendingar eru fáir og við höfum
ekki úr eins miklu að moða fjárhags-
lega og Norðmenn en á knattspyrnu-
sviðinu getum við bætt okkur mikið.
Hið sterka handboltalandslið okkar
hefur margoft sýnt að lítil þjóð get-
ur sigrað stærri þjóðir ef vel er hald-
ið á málunum.
Ef hugarfarið er rétt og sigurvilj-
inn er til staðar getum við náð mjög
langt. En augljóslega þurfum við að
hafa fyrir hlutunum og vera vakandi
fyrir nýjungum. Við getum ekki
barið höfðinu við stein og viðhaldið
úreltu mótafyrirkomulagi lengur ef
við viljum ná árangri.
ÞORVALDUR KR. GUNNARSSON,
Grettisgötu 58b, Reykjavík.
Lausnin fundin
Frá Ástu Svavarsdóttur:
ÁGÆTA þjóð! Lausnin á vanda vel-
ferðarkerfísins er fundin. Það er til
ákaflega einföld leið til þess að verða
sér úti um peninga. Lausnin felst í
umferðarlögum landsins og er 88.
grein þeirra hrein gullnáma. Sam-
kvæmt henni þarftu aðeins að ganga
fram hjá bfl. Einfaldara og auðveld-
ara gæti það varla verið. Og fyrir
þennan litla labbitúr færðu á annan
tug þúsunda kr. Að vísu þarf aðeins
meira að koma til. (Þess þarf alltaf,
það er m.a.s. smátt letur hjá Sjón-
varpsmarkaðnum.) Þú þarft að fara
upp á spítala (sakar ekki að vera
flott á því og taka leigubíl, þú færð
það endurgreitt) og segjast vera illt
einhvers staðar. Það dugar að segja
„æ“ á réttum stöðum og þá er feng-
in sjúkdómsgreining á tognun, lækni
er ekki siðferðilega fært að segja
upp í opið geðið á þér að þú sért
að ljúga. Þá þarf að fara á lögreglu-
stöðina og (þetta gæti verið erfitt
fyrir bytjendur) segja að bíllinn sem
þú gekkst fram hjá hafi stjakað við
þér. Ef þú ert vel að þér í lögum
getur þú sagt að þótt bíllinn hafi
ekki komið við þig hafir þú komið
við bílinn og þú færð peninga í vas-
ann!!! Ótrúlegt en satt! Ef þú vilt
verða þér úti um meira en smáaura
þarftu að hafa meira fyrir hlutunum.
Marblettir hjálpa alltaf mikið. Það
er mjög sterkt að ganga fyrir bíl en
veldu einn á hægri ferð, ekki viltu
slasa þig að ráði. Það er reyndar
alveg sama hvernig þú ferð að þessu,
það eitt að þú sért gangandi og bíll
í gangi komið saman, þú færð alltaf
peninga. Því samkvæmt 88. gr.
umf.l. þá ber gangandi vegfarandi
nákvæmlega enga ábyrgð á gjörðum
sínum. Nákvæmlega enga. Þú ert
með vottorð frá Alþingi þess efnis
að þú berir enga ábyrgð á lífi þínu
og limum og það sé alveg sama
hvað þú gerir og hvernig þú hagar
þér. Svo að þú þarft ekki einu sinni
að fela það að þú sért vísvitandi að
fleygja þér fyrir bílinn. Og það sem
meira er, tryggingafélögin munu
koma til með að taka leikatriði þínu
fagnandi. Þú verður hetja og færð
alla þá peninga sem þig vantar. Af
hveiju? Jú, þú kemur til með að
hækka iðgjöldin hjá skráðum bif-
reiðaeiganda. Og það er alveg sama
hversu mikið þú kemur til með að
græða, tryggingafélögin græða allt-
af meira.
ÁSTA SVAVARSDÓTTIR,
Álfheimum 48, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.