Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 62

Morgunblaðið - 09.01.1997, Page 62
 62 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Sendum vinum og velunnurum bestu nýársóskir og þakkir fyrir kveðjur, skeyti og góðar gjafir í tilefni gullbrúðkaups okkar síðastliðið gamlárs- kvöld. Heill fylgi framtíð okkar allra. Sigríður og Jón, Artúnum. Ókeypis lögfræ&iaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator féhg laganema. EINSÖNGSDEILD Hefðbundið einsöngsnám samkvæmt viðurkenndri námsskrá. Hverri önn lýkur með tónleikum og/eða stigsprófum. Deildarstjóri: Friðrik S. Kristinsson. SÖNGDEILD FYRIR ÁHUGAFÓLK Einsöngstímar, raddþjálfun, hliðargreinar. Hóptímar fyrir kórsöngvara 2 til 4 saman. Litlir hópar, 6 til 12 saman, tekin fyrir létt tónlist. Unglingahópar. Kennarar: Jóhanna Þórhallsdóttir og Ragnheiður Linnet. BARNAKÓR REYKJAVÍKUR Syngjandi forskóli fyrir börn 2 til 5 ára. Kórskóli fyrir 5 til 9 ára. Kór I fyrir 9 til 12 ára. Kór II fyrir 13 til 15 ára. Stúlknakór Reykjavíkur fyrir 15 til 18 ára. Aðalstjórnandi: Margrét Pálmadóttir. Innritun og upplýsingar á Ægisgötu 7, sími 562 6460. Innritun barna í síma 551 5263. Kennsla hefst þriðjudaginn 14. janúar. FJOLBRAUTASXÓUNN BREIÐNOUI Fjölbrautaskólinn Breiðholti Kvöldskóli Námsframboð vorönn 1997 í boði 144 áfangar og eftirtaldar námsbrautir. Bóknám Eðlisfræðibraut Náttúrufræðibraut Nýmálabraut Félagsfræðibraut Iðnnám Grunndeild í tréiðnum Grunndeild í rafiðnum Húsasmíðabraut Listnám Starfsmenntanám Rafvirkjabraut Handíðabraut Myndlistarbraut Grunnnám í matvælagreinum Matartæknabraut Sjúkraliðanám Heimilisrekstrarbraut Viðskiptanám Ritarabraut Skrifstofubraut Verslunarbraut Bókhaldsbraut Tölvubraut Hagfræðibraut Markaðsbraut Stúdetspróf er hægt að taka af flestum brautum í kvöldskóla FB Innritun fímmtudag 09.01. kl. 16.30-19.30 Kennsla hefst mánudaginn 13.01. 1997 kl. 18.00 I DAG SKAK Umsjón MarÉcir Pétursson STAÐAN kom upp á árlega jólaskákmótinu í Hastings í Englandi, en það hefur ver- ið háð í meira en öld. Stiga- hæsti keppandinn á mótinu fékk hér slæman skell í fyrstu umferð og náði sér ekki á strik: Mark Hebden (2.530) hafði hvítt og átti leik, en Michael Adams (2.685) var með svart. 40. Rg6+! - fxg6 41. fxg6 (Svartur verður nú að gefa heilan hrók, en fær samt aðeins annað frípeð hvíts í staðinn.) 41. - Ke6 42. g7 - Hxh7 43. Hxh7 - Hg8 (Með skiptamun yflr í endatafli stendur hvítur til vinnings.) 44. Rf2 - e4 45. Rg4 - Bf4 46. Rh6 - Bxh6 47. Hxh6 - Re7 48. Hh8 - Kf7 49. Hxg8 - Kxg8 50. Kcl og þvítur vann örugglega. Úrslitin í Hastings urðu þessi: 1.-3. Rosentalis, Lit- háen, Hebden og Nunn 6 v. af 9 mögulegum, 4.-5. Lalic, Króatíu, og Movse- sjan, Armeníu, 5 v. 6. Ad- ams 4 */* v. 7. Xie Jun, Kína, 4 v. 8.-9. Conquest og Motwani, Skotlandi, 3 v. 12. Flear 2!A v. Aukaaðalfundur Taflfé- lags Reykjavíkur fer fram í kvöld kl. 20 í félagsheimil- inu Faxafeni 12. HVÍTUR leikur og vinnur. Með morgunkaffinu Áster... ... súkkulaðikaka á afmælisdaginn. TM Reg. U S. Pat. Off. — all nghts reserved (c) 1996 Los Angeles Times Syndicate ÞETTA er Magnús Jóns- son, skipstjóri, sem hefur ekki komið i land i rúmlega ár. ÉG vil í fyrsta lagi þakka foreldrum mínunt, sem gerðu mér kleift að koma hingað og í öðru lagi vil ég þakka börnunum mín- um, sem urðu þess vald- andi að ég kom hingað. ERTU nú ekki orðin illa haldin af hrein- gerningaæði? VELVAKANDI Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Netfang: ellyÞmbl.is Lélegt grænmeti á Blönduósi ÉG KEM stundum við á Blönduósi á ferðum mín- um norður í land og þá fer í kaupfélagið þar til innkaupa, m.a. á mat- vöru. Það er alveg ótrú- legt að í skipti eftir skipti sem ég kem þama er í boði hálfónýtt græn- metni, t.d. morkið kál og svarbrúnir sveppir. Ef ég bið um ferskara græn- meti hef ég bara fengið loðin svör og mér sagt að varan sé í lagi, þó ég telji hana varla æta. Það er ekki boðið upp á að slá af verðinu þó maður verði að skera jafnvel helming burtu. Mér finnst ótækt að Kaupfé- lagið á Blönduósi bjóði viðskiptavinum sínum hálfónýta vöru og það á fullu verði, þar sem kaupfélagið situr eitt að markaðnum. R. Björk Eiríksdóttir. Villiöndin ERNA Jóhannsdóttir hringdi og langaði að fá upplýsingar um það hvort leikritið Villiöndin hefði verið sýnt áður, og þá hvar, hvenær og hveijir léku. Hún er í síma 553-5063. Tapað/fundið Gleraugu töpuðust LÍTIL, dökk karlmanns- gleraugu töpuðust lík- lega á skemmtistaðnum Casablanka í Lækjargötu eða á leið í vesturbæinn frá miðbæ á gamlárs- kvöld. Finnandi vinsam- legast hafið samband í síma 552-4099. Armband tapaðist ÞREFALT perluarm- band tapaðist á nýárs- fagnaði á Hótel Sögu. Finnandi er vinsamlega beðinn að láta vita í síma 557-9935. Kettlingar FIMM gullfallegir kettl- ingar, kassavanir og þrifnir óska eftir góðum heimilum. Upplýsingar í síma 554-4045 eftir kl. 17. MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót o.fl. lesend- um sínum að kostnað- arlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrir- vara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælis- barns þarf að fylgja afmælistilkynning- um og eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréf- síma 569-1329 eða sent á netfangið: gusta@mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Dagbók Morgunblaðsins, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Yíkverji skrifar... Nýlega eða nánar tiltekið hinn 29. september síðastliðinn voru 90 ár liðin frá því er Landsími íslands var stofnaður með hátíð- legri skeytasendingu ráðherra og konungs. Síminn náði brátt mikilli útbreiðslu, varð lyftistöng athafna- lífs og átti m.a. stærstan þátt í því, að heildverzlun við útlönd komst á innlendar hendur. Árið 1935 voru svo sett lög sem sameinuðu Landsíma íslands og Póststofuna og til varð fyrirtækið Póstur & sími. Þetta fyrirtæki var svo um síðustu áramót gert að hlutafélagi, sem allt er í eigu ríkis- ins, en breyttir tímar ollu því, að nauðsynlegt þótti að breyta rekstr- arformi fyrirtækisins, sem lengi hefur verið eitt stærsta fyrirtæki á íslandi. Víkveija er ekki kunnugt um að nokkurn tíma hafi Póstur & sími veitt þjónustu án endurgjalds. Það var því skemmtileg tilbreyting er hið nýja fyrirtæki tilkynnti með sérprentuðu smáblaði, sem borið var í hús, að ókeypis yrði að hringja innanlands frá klukkan 10 árdegis á nýársdag til miðnættis. Merkilegt að breyta þurfti rekstrarforminu til þess að slíkur höfðingsskapur þyrfti að koma í ljós. Víkverja finnst þessi gerð hins nýja hlutafélags til fyrirmyndar. Fólk fékk sem sé nýársgjöf frá sím- anum, það mætti hringja ókeypis að vild til vina og vandamanna og óska þeim gleðilegs nýárs. Hitt furðaði Víkveiji sig á að í heilsíðu- auglýsingum Pósts & síma hf., þar sem fyrirtækið óskaði landsmönn- um öllum farsældar á nýju ári, var þess í engu getið að ókeypis væri að hringja út um land á tilteknum tíma á nýársdag. Hvers vegna? Önnur fyrirtæki hefðu verið stolt af þessari breytni sinni og hefðu ekki falið hana í sérprentuðum bæklingi, sem fæstir hirða um að lesa og telja bara einn auglýsinga- póstinn enn. En samt: Til hamingju Póstur & sími, sem greinilega er rétt byijaður að hugsa eins og sjálf- stætt hlutafélag, en virðist þó enn pínúlítið ragur við það. xxx * Adögunum kom sonur Víkveija, sem vildi fara að heimsækja kærustuna, sem býr í Breiðholts- hverfí og spurði, hvort hann gæti fengið bílinn lánaðan. Víkveiji taldi, að hann gæti nú rétt eins tekið strætisvagn, þeir væru þægilegur ferðamáti í höfuðborginni, starf- ræktir fyrir borgarana til þess að komast á milli hverfa hennar. Son- urinn kvað nei við. Það væri útilok- að að komast milli þessara tveggja staða miðað við leiðakerfið, nema það tæki lungann úr kvöldinu. Kerf- ið væri meinlega gallað. Þessu vildi Víkvetji ekki trúa og sótt var inn í skáp lítil bók, sem Strætisvagnar Reykjavíkur gefa út og er leiðalýsing vagnanna og þar á korti á að vera unnt að sjá hvern- ig komast megi milli borgarhiuta án þess að þurfa að ganga einhveij- ar meiri háttar vegalengdir. Og viti menn, strákurinn hafði rétt fyrir sér. Útilokað var að nálgast strætis- vagn í heimahverfi Víkverja, nema taka fyrst vagn og aka niður á Hlemm, marga kílómetra vestan við heimili Víkveija, og skipta þar um vagn, sem ók upp í Breiðholtshverf- ið. Á austurleið frá Hlemmi ekur svo vagninn rétt við heimili Vík- veija — en heitir þá hraðferð eða eitthvað í þá áttina og stansar hvergi í nágrenninu. Víkverja varð hugsað til allrar þeirrar gagnrýni, sem nýja leiða- kerfí SVR hefur sætt á undanförn- um misserum. Hann sannfærðist á þessu kvöldi, að sú gagnrýni á við mikil rök að styðjast. En hvað ger- ist? Nákvæmlega ekki neitt. F’yrir hvetja eru þessir vagnar? Svo virð- ist sem stjórnendur SVR líti svo á, að þeir séu ekki fyrir borgarana. Það eitt virðist augljóst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.