Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
10 ára Eyrbekkingur fer á Norðurlandamótið í skólaskák
BEKKJARFÉLAGAR Pálmars kunnu vel að meta það að eiga góðan skákmann innan sinna raða.
Morgunblaðið/Sig. Jóns.
PÁLMAR Jónsson 10 ára skákmaður frá Eyrarbakka.
Ný tækni tekin upp
við skattframtal
Breytt
útlit
vegna
tölvu-
vinnslu
TEKIN verður upp ný tækni
við skráningu á skattgögnum
á þessu ári hjá Ríkisskatt-
stjóraembættinu og hefur því
útliti skattframtalseyðublaða
sem berast landsmönnum í
síðari hluta mánaðarins verið
breytt.
Breytingin felur það í sér
að í stað þess að handskrá
framtöl verða þau skönnuð
og skráð vélrænt inn í tölvu-
kerfi skattyfirvalda. skv. upp-
lýsingum Hrefnu Einarsdótt-
ur, deildarstjóra hjá Ríkis-
skattstjóra. Þessi tækni ræð-
ur jafnt við handskrifuð
framtöl sem vélrituð svo
framarlega sem fylgt er leið-
beiningum um útfyllingu
talna í reiti framtalsins.
Samhliða þessari breyt-
ingu verða einnig tekin upp
stöðluð rekstrarframtöl, ef
rekstraraðilar óska eftir að
skila upplýsingum á stöðluðu
formi. Eru reitirnir á framtal-
inu skilgreindir fyrirfram og
upplýsingar skráðar þar inn.
Mikill ávinningur
Hin nýja tækni felst í því
að tekin er mynd af framtal-
inu og það vistað á stafrænu
formi, sérstakur hugbúnaður
fer yfir skjalið og skynjar og
greinir tölur í reitunum. Ræð-
ur þessi tækni við greiningu
á handskrift og aðspurð sagði
Hrefna að þessi tækni hefði
verið prófuð rækilega og því
ætti ekki að vera hætta á að
handskrifaðar tölur verði ekki
greindar rétt.
Mikill ávinningur verður
af þessari breytingu þegar
fram í sækir fyrir skattyfír-
völd m.a. vegna þess að ekki
þarf að handskrá framtölin
inn á tölvur og mikill tími
sparast með þessu fyrirkomu-
Iagi sem áður fór í að flokka
og nálgast framtalsgögn.
Tefli langar
skákir og
æfi byrjanir
Selfossi. Morgunblaðið.
PÁLMAR Jónsson 10 ára Eyr-
bekkingur sigraði örugglega í
undankeppni fyrir Norður-
landamótið í einstaklingskeppni
í skólaskák. Keppnin fór fram
um helgina og var keppt um
eitt sæti í yngsta flokki 10 ára
og yngri. Pálmar mun því keppa
á Norðurlandamótinu í Færeyj-
um sem haldið verður í febrúar.
Pálmar sigraði örugglega,
vann fyrstu átta skákirnar og
fékk átta vinninga af níu mögu-
legum. í öðru til þriðja sæti urðu
Víðir Petersen, Kópavogi, og
Aron Nílsson, Reykjavík, með 7
vinninga, báðir 8 ára gamlir.
Pálmar vakti fyrst athygli á
Landsmótinu í skólaskák sem
haldið var á Eyrarbakka í fyrra.
Pálmar byijaði að tefla 8 ára
í skólanum. „Það er mikið teflt
hér í skólanum, aðallega yngri
krakkarnir,“ sagði Pálmar.
Hann sagði að sér fyndist gaman
að tefla vegna þess að það þyrfti
að reikna mikið út alls konar
möguleika en hann hefur gaman
af stærðfræði. Hann segist
hugsa svona 3-4 leiki fram í
tímann þegar hann er að tefla
og segist ætla að æfa vel fyrir
Norðurlandamótið í Færeyjum.
„Ég ætla að tefla langar skákir
og æfa nýjar byijanir til að nota
á mótinu," sagði hinn ungi og
efnilegi skákmaður frá Eyrar-
bakka.
Bekkjarfélagar Pálmars voru
hinir ánægðustu með að eiga svo
góðan skákmann innan sinna
raða og nánast allir í bekknum
sögðust tefla og hafa gaman af
skák. Allir voru tilbúnir að vera
í stuðningsklúbbi Pálmars þegar
hann fer á Norðurlandamótið í
Færeyjum í febrúar. Þegar
Pálmar kom í skólann í gær-
morgun fékk hann afhentan veg-
legan blómvönd frá skólanum.
Samkeppnisstofnun telur auglýsingar Brimborgar um nýja fjármögnun villandi
Nýir bílar seldust
upp um helgina
ALLIR nýir bílar á lager Brimborg-
ar hf. seldust upp á sýningu fyrir-
tækisins um helgina þar sem ný
fjármögnunarleið var kynnt með
yfírskriftinni „fislétt fjármögnun“.
Þannig seldust upp allir nýir smá-
bílar hjá umboðinu af gerðunum
Ford og Daihatsu Charade og fjöi-
margar pantanir bárust, þ.á m. í
dýrari bíla af Volvo-gerð. „Mér
sýnist að salan eftir helgina verði
á bilinu 60-100 bílar,“ sagði Egill
Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Brimborgar. Samkeppnisstofnun
hefur hins vegar gert athugasemd-
ir vegna auglýsinga Brimborgar
um helgina á hinni nýju fjármögn-
unarleið þar sem þær eru taldar
villandi og mun fyrirtækið breyta
auglýsingunum.
Eins og fram hefur komið er
umrædd fjármögnun á vegum Lýs-
ingar hf. Hún er hagstæðari fyrir
einstaklinga en hefðbundin bílalán,
sem nemur 1,5% stimpilgjaldi. Slíkt
gjald er Iagt á hefðbundin bílalán
eins og önnur skuldabréfalán, en
kaupleigusamningar eru undan-
þegnir. Þar að auki eru samning-
arnir mun sveigjanlegri en þau bíla-
lán sem hafa verið í boði hjá trygg-
ingafélögum og eignarleigufyrir-
tækjum. Vaxtakjör og lántökugjald
bílasamninga er hins vegar sam-
bærileg og á öðrum bílalánum.
Egill benti á að hin nýja fjár-
mögnun Lýsingar gæfi einstakling-
um kost á lítilli greiðslubyrði vegna
kaupa á nýjum bílum, þar sem
hægt væri að fresta verulegum
hluta afborgunar til loka láns-
tímans. Þegar þar að kæmi mætti
framlengja samninginn þannig að
greiðslubyrðin héldist óbreytt. í
öðru lagi gæti viðkomandi greitt
upp eftirstöðvar samningsins í lok
lánstímans og eignast bílinn þannig
alfarið. í þriðja lagi væri unnt að
setja gamla bílinn upp í nýjan bíl
og gera upp samninginn með nýjum
bílasamningi.
Fjöldi ábendinga borist
til Samkeppnisstofnunar
Að sögn Önnu Birnu Halldórs-
dóttur hjá Samkeppnisstofnun eru
auglýsingar Brimborgar mjög vill-
andi. Hún sagði að Samkeppnis-
stofnun hefði í gær borist fjöldi
kvartana og ábendinga vegna aug-
lýsinganna, bæði frá keppinautum
Brimborgar og neytendum.
í auglýsingum um greiðslukjör
og afborganir þarf samkvæmt
reglugerð um verðupplýsingar í
auglýsingum að koma fram annars
vegar staðgreiðsluverð þess sem
auglýst er og hins vegar heildar-
upphæðin sem greiða þarf. Anna
Birna segir að þetta komi ekki fram
í umræddum auglýsingum Brim-
borgar í blöðum og sjónvarpi og
þær séu mjög villandi.
Samkeppnisstofnun mun senda
Brimborg athugasemdir vegna
auglýsinganna og óska skýringa
fyrirtækisins á þeim.
Egill sagðist mundu skoða at-
hugasemdirnar og breyta auglýs-
ingunum til samræmis við þær.
„Astæðan fyrir því að við höfðum
þennan hátt á er sú að hér er um
nýjung að ræða, miklar upplýsingar
og erfítt er að koma þeim á fram-
færi í stuttri auglýsingu'. Því var
fólk hvatt til að leita nánari upplýs-
inga.“
Glitnir hf., sem er umsvifamikið
fyrirtæki í bílalánum, tilkynnti á
föstudag eftir að kunngert var um
bílasamninga Lýsingar, að hann
myndi einnig bjóða einkabíla á
kaupleigusamningum á sambæri-
legum kjörum.
Hrapaði til
banaí
Merkigili í
Skagafirði
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
BANASLYS varð í Akrahreppi um
hádegisbil á sunnudag. Helgi Jóns-
son, bóndi á Merkigili, hrapaði í gilið
og mun hafa látist
samstundis.
Tildrög slyssins
munu hafa verið
þau að Helgi hafði
sammælt sig við
Stefán Hrólfsson,
bónda á Keldu-
landi, að Stefán
sækti hann að
eyðibýlinu Gils-
bakka um hádeg-
isbil, en Helgi ætlaði að ganga yfír
gilið. Saman ætluðu þeir síðan á
fund í sveitinni.
Þegar Helgi kom ekki á tilsettum
tíma að Gilsbakka fór Stefán við
annan mann fram að gilinu og þar
sáu þeir slóð Helga meðfram gilbarm-
inum og síðan hvar hann hafði hrap-
að fram af gilbrúninni að norðanverðu
um 150 metra niður í gljúfrið.
Helgi Jónsson var ættaður frá
Herríðarhóli í Rangárþingi og kom
fyrst að Merkigili sem ráðsmaður
Moniku H. Helgadóttur sem þar bjó
þá ein, orðin gömul kona. Árið 1976”’
keypti Helgi Merkigil með allri áhöfn
og bjó þar síðan. Monika dvaldist þar
hjá honum meðan aldur og heilsa
hennar leyfði, en eftir það var Helgi
einn á Merkigili.
♦ ♦ ♦
Lést í vinnu-
slysi
á Suðurey
HELGI Arnar Guðmundsson, Hvalba
á Suðurey, lést að morgni 10. janúar
á sjúkrahúsinu í Þórshöfn í Færeyj-
um af völdum vinnuslyss um borð í
færeyska togaranum Fönix.
Samkvæmt
upplýsingum lög-
reglunnar á Suðu-
rey átti slysið sér
stað að kvöldi
fimmtudags og
var verið að hífa
troll um borð í
togarann þegar
vír slitnaði og
slóst í Helga, þar
sem hann stóð við
þriðja mann aftast
í skipinu. Hann var fluttur á sjúkra-
hús á Suðurey þar sem hann gekkst
undir aðgerð en var síðan fluttur á
sjúkrahúsið í Þórshöfn, þar sem hann
lést að morgni föstudags af völdum
innvortis blæðinga.
Helgi var 31 árs gamall. Hann
lætur eftir sig eiginkonu og tvö böm
í Færeyjum auk 11 ára dóttur á ís-
landi.
------♦ ♦ ♦------
18 mánaða
fangelsi fyrir
líkamsárás
Sauðárkróki. Morgunblaðið.
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra dæmdi í gær tæplega tvítugan
mann til átján mánaða óskilorðs-
bundinnar fangelsisvistunar og
greiðslu 190 þúsund króna í máls-
vamarlaun, vegna líkamsárásar sem
framin var á dansleik í félagsheimilinu
Miðgarði í desember síðastliðnum.
Málsatvik voru þau að hinn dæmdi
sló mann í höfuðið með hafnabolta-
kylfu svo að af hlutust miklir áverk-
ar og var sá sem fyrir árásinni varð
fluttur með sjúkraflugi til Reykjavík-
ur þar sem hann gekkst undir að-
gerðir og hefur verið á sjúkrahúsi
síðan.
Hinn dæmdi hefur ekki áður kom-
ist í kast við lögin og gekkst við
broti sínu.