Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sameiginleg æfing Landhelgisgæslunnar og danska sjóhersins á Faxaflóa
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
,PATARINN“ leiðbeinir TF-SIF við iendingu á þyrlupalli danska
varðskipsins Hvidbjernen úti á Faxaflóa.
flotadeild danska sjóhersins og er
það nýjasta af fimm varðskipum
hennar. Fjögur þeirra eru af gerð-
inni „Thetis" og eru smíðuð í
Svendborg skibsværft í Danmörku.
Þau voru tekin í notkun á árunum
1990 til 1992. Hvidbjornen er 3.500
tonn að stærð, 112,5 metrar að
lengd og 14,4 metrar á breidd. Það
er búið háþróuðum afísingarbún-
aði og sérstaklega styrkt til sigl-
inga í miklum hafís. I áhöfn eru
62 manns og eru þeir að jafnaði
tvo til þijá mánuði í túrnum.
„Höfum miðlað Gæslunni
af reynslu okkar“
Nýr skipherra, Theis Riber, er
að taka við starfi á Hvidbjornen
o g af því tilefni er Axel Fiedler,
flotaforingi í fyrstu flotadeiid sjó-
hersins, með i för. Nýja starfið
leggst vel í Riber ogkveðst hann
nyög ánægður með skipið. Það sé
afbragðsgott sjóskip af góðri
stærð, þoli vel að sigla í ís og henti
vel til siglinga í öllu Norður-Atl-
antshafinu. Það tekur flotaforing-
inn undir og segir það einnig mik-
ilsvert hversu góður allur aðbúnað-
ur áhafnarinnar er um borð.
Aðspurður um hvort hann myndi
ráðleggja Landhelgisgæslunni að
fjárfesta í skipi af þessari tegund
segir Fiedler að ákvörðunin sé
auðvitað íslendinga, en vissulega
sé hann afar ánægður með Thetis-
skipin. „Við höfum miðlað Land-
helgisgæslunni af reynslu okkar
og hún er nyög góð,“ segir Fiedler.
Aðflug, sig, nauð-
lending og bruni
Landhelgisgæslan og
danski sjóherínn héldu
sameiginlega björg-
unaræfingu á Faxaflóa
sl. laugardag. Margrét
Sveinbjörnsdóttir og
Halldór Kolbeins ljós-
myndari fylgdust með.
ÚTI á Faxaflóa, nánar tiltekið um
níu sjómílur vestsuðvestur af
Akranesi, blaktir danski fáninn
við hún á varðskipinu Hvidbjorn-
en. Sameiginleg æfing Landhelg-
isgæslunnar og danska sjóhersins
er í þann mund að hefjast.
Þyrla Gæslunnar, TF-SIF, nálg-
ast skipið, sveimar yfir því um
stund og er í stöðugu fjarskipta-
sambandi við sljórnstöð þess. Von
bráðar fæst heimild til lendingar
og þyrlan færir sig hægt en örugg-
lega upp að hlið skipsins, stað-
næmist í loftinu yfir þyrlupallin-
um og sígur mjúklega niður. Lend-
ingarsljóri, sem áhöfn þyrlunnar
kallar raunar „patara", stendur á
þyrlupallinum með tvær gular
veifur, sem hann patar upp, niður
og til hliðar eftir kúnstarinnar
STÝRIMAÐURINN og sigmaðurinn Auðunn Kristinsson
sígur niður úr þyrlunni.
reglum, í þeim tilgangi að leið-
beina við lendinguna, auk þess
sem flugstjóri og flugmaður fá
áfram nákvæm fyrirmæli úr
stjórnstöð skipsins.
Þyrla í neyð
Æfingin hefst á aðflugi og lend-
ingu þyrlunnar á þyrlupalli, með
nákvæmri tilsögn úr stjórnstöð
skipsins. Þá er æft sig úr þyrl-
unni, þar sem þyrlan er staðsett
ofan við skipið, sigmaður og lækn-
ir síga niður í línu og eru hífðir
upp aftur. Næst kemur tilkynning
um þyrlu í neyð, með tvo slasaða
menn innanborðs. Þyrlan nauð-
lendir, slökkvilið skipsins er í við-
bragðsstöðu með fulikominn
siökkvibúnað og björgunarlið fær-
ir hina „slösuðu" á börum inn á
vel búinn skipsspítalann og kannar
ástand þeirra.
Hvidbjornen tilheyrir fyrstu
Andlát
ÞORSTEINN S.
THORAREN SEN
ÞORSTEINN S. Thor-
arensen, fyrrverandi
borgarfógeti í Reykja-
vík, lézt síðastliðinn
laugardag á 80. aldurs-
ári.
Þorsteinn var fædd-
ur 12. maí 1917 á Mó-
eiðarhvoli í Hvolhreppi
í Rangárvallasýslu.
Foreldrar hans voru
hjónin Skúli Þorsteins-
son Thorarensen og
Ástríður Kjartansdóttir
Thorarensen.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Menntaskól-
anum í Reykjavík árið
1936 og embættisprófi í lögfræði frá
gegndi hann því emb-
ætti til 1987, er hann
fékk lausn frá störfum
vegna aldurs.
Hann var oft settur
setudómari og setufóg-
eti víða um land. Þá var
hann settur hæstarétt-
ardómari frá 1. október
til 31. desember árið
1980 og oft endranær í
einstökum málum. Þor-
steinn var aukakennari
við lagadeild Háskóla
íslands frá 1970 til
1988 og varadómari í
félagsdómi 1974-1983,
Morgunblaðið/Albert Kemp
EINS og sjá má er bíllinn mikið skemmdur.
Alvarlega slasað-
ur eftir bílveltu
Fáskrúðsflrði. Morgunblaðið.
Háskóla Islands 1943. Arið 1948
hlaut hann réttindi til málflutnings
fyrir héraðsdómi.
Þorsteinn stundaði bústörf á Mó-
eiðarhvoli 1943-44. Hann var síðan
fulltrúi hjá borgarfógetanum í
Reykjavík 1944-1963, en þá var
hann skipaður borgarfógeti og
forseti dómsins 1980-
1983. Eftir Þorstein liggja greinar
og ritgerðir um lögfræði.
Þorsteinn kvæntist árið 1949 Unu
Hansdóttur Thorarensen, f. Peters-
en. Hún lézt árið 1987. Börn þeirra
eru Ástríður Thorarensen, hjúkrun-
arfræðingur og forsætisráðherrafrú,
og Skúli Thorarensen, starfsmaður
Landspítalans.
Maður liggur alvarlega slasaður á
gjörgæsiudeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur eftir að bíll hans fór út af
veginum innst í Vattamesskriðum
milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðar-
fjarðar sl. laugardagskvöld. Veg-
farandi sem átti leið um skriðurnar
sá hjólför sem lágu út af veginum
og lét lögreglu vita.
Talið er að slysið hafi átt sér
stað um kl. 21 á laugardagskvöld
eða örfáum mínútum áður en veg-
farandinn kom að slysstaðnum.
Hann tilkynnti lögreglu strax að
hann hefði séð að hjólför lágu út
af veginum og fór síðan niður
skriðurnar til að hlúa að hinum
slasaða.
Jeppabifreiðin, sem fór út af
veginum og valt, stöðvaðist á hjól-
unum 50-60 metra neðan við veg-
inn en þarna er mjög bratt niður
og stórgrýtt urð. Veður var mjög
slæmt, allhvöss norðaustanátt og
krapahríð og hálka á vegi.
Kallað á þyrlu
Eftir að tilkynnt hefði verið um
slysið fór sjúkrabíll frá Fáskrúðs-
firði og menn frá björgunarsveit-
inni Geisla á Fáskúrðsfirði og
komu þeir manninum upp á veg.
Enginn læknir er starfandi á Fá-
skrúðsfirði, en læknar frá Eskifirði
og Reyðarfirði fóru til móts við
sjúkrabílinn.
Eftir að komið var með manninn
á Heilsugæslustöðina á Reyðarfirði
kom í ljós að hann var meira slas-
aður en talið var í fyrstu og var
þá ákveðið að kalla út þyrlu. Út-
kallið barst stjórnstöð Landhelgis-
gæslunnar kl. 23.06. Þyrlan þurfti
að hafa viðkomu á Höfn í Horna-
firði til að taka eldsneyti og súr-
efni, en hún lenti við Sjúkrahús
Reykjavíkur kl. 5.43.
Að sögn læknis á gjörgæsludeild
er maðurinn með mjög alvarlega
höfuðáverka.
Hlaut alvar-
lega háls-
áverka í
árekstri
KONA, sem slasaðist alvarlega í
hörðum árekstri tveggja bifreiða í
Borgarfirði á sunnudag, gengst að
öllum líkindum undir aðgerð vegna
hálsáverka í Sjúkrahúsi Reykjavík-
ur í dag, að sögn læknis á gjör-
gæsludeild.
Lögreglunni í Borgarnesi barst
tilkynning um slysið um kl. 16.30
á sunnudag, þegar bóndinn á
Hraunsnefi í Norðurárdal óskaði
eftir að sjúkrabíll, læknir og lög-
regla kæmu á staðinn, en slysið
varð skammt frá bænum.
Tveir bílar höfðu rekist saman á
veginum og annar kastast út af
honum. Kona, sem ók öðrum bíln-
um, slasaðist mjög mikið og var í
fyrstu flutt í sjúkrahúsið á Akra-
nesi, en þar var tekin ákvörðun um
að fá þyrlu Landhelgisgæslunnar
til að flytja hana í Sjúkrahús
Reykjavíkur.
---------------
Tafir á fimm
ferðum Flug-
leiða
VEGNA bilunar í flugvél Flugleiða
í Fort Lauderdale sl. laugardag
varð seinkun á fimm ferðum Flug-
leiða í millilandaflugi á sunnudag.
Farþegar sem voru á leið frá Banda-
ríkjunum til meginlands Evrópu
gistu hérlendis aðfaranótt mánu-
dagsins.
I einni af þessum fimm ferðum,
sem tafir urðu á, var vegna mistaka
í Bandaríkjunum settur rangur kost-
ur um borð í eina flugvélina. í stað
kvöldverðar var farþegum boðið upp
á morgunverð og kvörtuðu sumir
undan fæðinu. Farið var með tengif-
arþega til Evrópu á Hótel Esju og
þeim gefinn kvöldverður þar.
IKEA veitiittíastaðui'iiin
' J J , . , 4MLt'
er
í hádeginu
Salatdiskur
298.-
Veitingastaður