Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Nordfoto
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti íslands, veitir gestum í samsætinu
eiginhandaráritun.
BÖRNIN voru ánægð með heimsókn forsetahjónanna og hér hefur ein af yngri
kynslóðinni vingazt við frú Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur forsetafrú.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
UM 500 íslendingar þáðu í gær boð ís-
lensku forsetahjónanna um að koma til
kaffisamsætis í Moltkes Palæ í miðborg
Kaupmannahafnar. Þarna var fólk á öll-
um aldri, allt frá smábörnum upp í aldrað
fólk, og þáði kaffi og vínarbrauð í góðu
yfirlæti.
Forsetahjónin komu til Kaupmanna-
hafnar frá Stokkhólmi, en þar voru þau
viðstödd jarðarför Bertils prins, sem fór
500 íslendingar í kaffi-
samsæti forsetahjónanna
fram um hádegi í gær. Forsetahjónin sátu mannahafnar og tóku á móti löndum sín-
þó ekki síðdegisverð sænsku konungs- um þar.
hjónanna, heldur héldu rakleiðis til Kaup- Samsætið var mörgum kærkomið tæki-
færi til að heilsa upp á forsetahjónin, sem
gengu á milli gesta og tóku þá tali. Það
voru ekki síst krakkarnir, sem voru
ánægðir að komast í tæri við þau hjónin,
sem sinntu þessum áhugasömu gestum
sínum vel.
Forsetahjónin dvelja í Kaupmannahöfn
fram að helgi og taka þátt í hátíðahöldum
í tilefni af ríkisafmæli Margrétar Þórhild-
ar Danadrottningar, ásamt öðrum nor-
rænum þjóðhöfðingjum.
Harkalegar deilur Stöðvar 2 og Stöðvar 3
Báðír segjast
kanna málshöfðun
Athugasemd frá Stöð 3
Alvanalegt að starfs
menn færi sig milli
HARKA er í deilum forsvarsmanna
Stöðvar 2 og Stöðvar 3 eftir að fimm
stjórnendur fyrrnefnda fyrirtækisins
hófu fyrirvaralaust störf hjá því síð-
arnefnda og kanna báðir aðilar
möguleika á málshöfðun. Sigurður
G. Guðjónsson, stjórnarmaður í Stöð
2, segist m.a. íhuga að krefjast lög-
banns á störf mannanna hjá Stöð 3.
Einar Kristinn Jónsson, stjórnar-
formaður Stöðvar 3, segir að fyrir
hönd Magnúsar E. Kristjánssonar,
nýráðins sjónvarpsstjóra, og annarra
starfsmanna hafi fyrirtækið falið
lögmönnum sínum að bregðast við
og kanna möguleika á höfðun meið-
yrðamáls í framhaldi af yfirlýsingum
talsmanna Stöðvar 2 um að þeir
telji að Magnús og jafnvel fleiri
fimmmenninganna hafi tekið skjöl
með upplýsingum um rekstur Stöðv-
ar 2 af skrifstofum sínum þegar
þeir létu af störfum á föstudag.
„Ég tók engin gögn, ég hef ekki
misnotað nein gögn, ég hef ekki lát-
ið einum eða neinum í té trúnaðar-
upplýsingar frá íslenska útvarpsfé-
laginu, hvorki munnlegar né skrif-
legar og mun ekki láta neinum í té
slíkar upplýsingar," sagði Magnús
E. Kristjánsson í samtali við Morg-
unblaðið í gær.
Að öðru leyti vildi hann ekki tjá
sig um málið að svo stöddu og sagði
það komið í lögfræðilegan farveg.
Stöð 2 íhugar lögbann
„Að því leyti sem þetta fyrirtæki
verður fyrir tjóni af völdum þessara
manna verða þeir látnir bera það
tjón. Við munum höfða skaðabóta-
mál og ég velti því fyrir mér að fá
sett lögbann á að þeir mæti til starfa
hjá Stöð 3 meðan þeir hafa mæting-
arskyldu, vinnuskyldu og hlýðni-
skyldu gagnvart okkur. Meðan við
höfum ekki leyst þá undan þeim
skyldum eiga þeir að mæta hér,“
segir Sigurður G. Guðjónssonar,
stjórnarmaður í íslenska útvarpsfé-
laginu.
Sigurður segir að Magnús E.
Kristjánsson, nýráðinn sjónvarps-
stjóri Stöðvar 3, hafi setið stjórnar-
fund í íslenska útvarpsfélaginu þann
4. janúar og þá hafi hann fengið
afhentar allar rekstraráætlanir fyrir-
tækisins, auk upplýsinga um tekjur
þess á liðnu ári, fjölda áskrifenda
og hreyfingar á áskrifendum, aug-
lýsingatekjur og fleira.
„Þessi gögn eru ekki á skrifstofu
Magnúsar," segir Sigurður. „Þessum
mönnum hafði verið treyst fyrir mikl-
um upplýsingum um framtíð fyrir-
tækisins. Jón Axel Ólafsson hafði t.d.
allar nýjustu upplýsingar þessa fyrir-
tækis um „pay-per-view“ og fýrirætl-
anir okkar í því sambandi. Þau gögn
eru ekki á hans skrifstofu. Thor 01-
afsson, sölustjóri auglýsinga, var hér
á fimmtudagskvöld. Hann hefur ekki
afhent okkur upplýsingar um stöðu
einstakra mála.“
Sigurður segist telja að útganga
stjórnendanna fimm sem ráðnir hafa
verið til Stöðvar 3 sé svívirðileg.
„Þetta er svívirðileg útganga sem á
sér ekkert fordæmi í íslensku við-
skiptalífi. Þess eru varla dæmi í ís-
lenskri viðskiptasögu að menn skuli
tæma skrifstofur sínar að kvöldi og
snemma að morgni og koma svo
eftir hádegi, henda í menn sundur-
klipptum kreditkortum og bensín-
kortum og segjast vera farnir að
vinna hjá Stöð 3.“
Sigurður segir að þeir Magnús,
Jón Axel, Thor og Magnús Viðar
Sigurðsson, framleiðslustjóri, hafí
ekki haft uppi neina tilburði til þess
að ganga frá starfslokum hjá fyrir-
tækinu og setja stjórnendur þess inn
i stöðu þeirra mála sem undir þá
hafa heyrt. Þó undanskilji hann að
þessu leyti Hannes Jóhannsson
tæknistjóra. „Hann er sá eini sem
hefur farið formlega fram á að vera
leystur undan sínum samningi og
hann hefur boðist til að vera okkur
innan handar meðan yfírfærslan
milli fyrirtækja eigi sér stað, segir
Sigurður."
Ómæld yfirvinna
Sigurður segir að tjón Stöðvar 2
vegna útgöngu stjórnendanna geti
orðið margvíslegt. T.d. ómæld auka-
vinna starfsmanna sem nú standi
yfir til þess að reyna að fá botn í
stöðu mála þeirra sem mennirnir
hafi borið ábyrgð á. Þá segir hann
að hagnýti mennirnir sér í starfi
fyrir keppinautinn þær upplýsingar
sem þeir hafí haft á brott frá Stöð
2 sé það skýlaust brot á 27. grein
samkeppnislaga. Lögmenn fyrirtæk-
isins hafi framhaldið til skoðunar.
Sigurður segist telja að allt þetta
mál sé íhugunarefni fyrir íslenskt
viðskiptalíf. „Er þetta löglegt og ef
svo er er þetta það siðferði sem
menn eru að sækjast eftir; að menn
geti komið samkeppnisfyrirtæki í
uppnám með þessum hætti? Menn í
viðskiptalífinu í heild ættu að velta
því fyrir sér hvort svona útganga
sé það sem íslensk fyrirtæki sjá fyr-
ir sér í framtíðinni. Þetta er eins-
dæmi, það þýðir ekkert að skírskota
til þess að þetta sé alvanalegt.“
Sigurður kvaðst telja þetta mál
sambærilegt frægu máli General
Motors og Volkswagen sem kennt
er við Lopez, frakvæmdastjóra sem
fór milli starfa hjá fyrirtækjunum.
„Við erum komnir inn á Evrópska
efnahagssvæðið og það hafa tekið
gildi samkeppnisreglur sem vernda
neytendur og einnig fyrirtæki gegn
óréttmætri samkeppni innanlands."
Sigurður var spurður hvort Stöð
2 hefði haft samband við stjórnend-
urna fimm um helgina til þess að
reyna að telja þeim hughvarf og
sagði hann að haft hefði verið sam-
band við Hannes Jóhannsson en
ekki við aðra. Hins vegar hefði öllum
fímm verið sent bréf með áskorun
um að mæta til vinnu í dag.
Spurður um fregnir af því að
starfsmönnum Stöðvar 2 hefði á
laugardaginn verið gert að undirrita
samning um að þeir mundu ekki
hefja störf hjá samkeppnisaðilum
næstu tvö ár sagði Sigurður það
rangt enda stæðust slík ákvæði
sennilega ekki í ráðningarsamning-
um almennra starfsmanna. Á laug-
ardag hefðu hins vegar fyrir tilviljun
verið undirritaðir almennir ráðning-
arsamningar nokkurra starfsmanna
um kaup og kjör og starfsheiti;
samningar sem markaðsstjóri hefði
dregið að ganga frá.
ÍSLENSK margmiðlun hf., eigandi
Stöðvar 3, sendi á sunnudagskvöld
frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna
fréttaflutnings Stöðvar 2 á laugar-
dagskvöld um ráðningu fram-
kvæmdastjóra og annarra starfs-
manna til Stöðvar 3:
„í fyrsta lagi er fréttaflutningur
Stöðvar 2 algjörlega einhliða og
þjónar fyrst og fremst einkahags-
munum eigenda íslenska útvarpsfé-
lagsins undir afar þjálli fréttastjórn
þeirra, frekar en hagsmunum áhorf-
enda og almennings. Aldrei var leitað
eftir sjónarmiði annarra aðila málsins
en eigenda íslenska útvarpsfélagsins.
Fréttaflutningur af þessu tagi á sér
ekki hliðstæðu í ábyrgri fjölmiðlun.
Af þessum ástæðum og öðrum er
blásið til sóknar hjá Stöð 3 til að
gefa almenningi nýjan og verðugan
valkost.
í öðru lagi eru viðbrögð Islenska
útvarpsfélagsins í innbyrðis ósam-
ræmi. Haft er eftir lögmanni félags-
ins og stjórnarmanni í fjölmiðlum í
fyrradag og gærmorgun að við þessu
hafí verið búist og að Stöð 2 líti á
þetta sem eðlilega ákvörðun, en í
gærkvöld er haft í hótunum.
í þriðja lagi beinist fréttaflutning-
ur Stöðvar 2 að persónu Magnúsar
E. Kristjánssonar á þann hátt að
jaðrar við atvinnuróg.
í fjórða Jagi var í fréttinni greint
frá bréfi Islenska útvarpsfélagsins
til Magnúsar í gær. Þess var hins
vegar ekki getið að íslenska útvarps-
félagið sendi í gær öllum þeim
starfsmönnum sem í fyrradag réðu
sig til Stöðvar 3, sérstakt hótunar-
bréf um skaðabætur og málaferli
vegna starfaskipta sinna. Við þetta
er ýmislegt að athuga.
Samkeppnislög hindra ekki
starfsmenn í að skipta um starfsvett-
vang á markaði þar sem fákeppni
ríkir eins og í ljósvakamiðlun. Sam-
keppnislög færa íslenska útvarpsfé-
laginu viðkomandi starfsmenn ekki
til eignar, almenn þekking þeirra og
reynsla er nokkuð sem þeir hafa
áunnið sér með menntun og störfum
fyrir ýmsa aðila í gegnum tíðina.
Álvanalegt er og eðlilegt að starfs-
menn færi sig milli fyrirtækja í sam-
bærilegum rekstri eins og íslenska
útvarpsfélagið þekkir sjálft, en
margir starfsmanna þess unnu áður
hjá Ríkisútvarpinu.
Við ráðningu hinna nýju starfs-
manna til Stöðvar 3 er fyrst og
fremst leitað eftir almennri færni,
þekkingu og reynslu þeirra til að
byggja upp sjónvarpsstöð á öðrum
tæknilegum og dagskrárlegum for-
sendum en Stöð 2.
Með hótunarbréfum er ómaklega
vegið að starfsmönnum, sem um
áraraðir hafa unnið óeigingjarnt og
ötult starf hjá íslenska útvarpsfé-
lagsins og ættu frekar þakkir skildar
en lögfræðihótanir.
Jafnframt er á afar ósmekklegan
hátt vegið að atvinnufrelsi og tekju-
möguleikum viðkomandi sarfs-
manna um komandi framtíð. Stöð 3
mun að sjálfsögðu slá skjaldborg um
hina nýju starfsmenn og fjölskyldur
þeirra gegn svo óvæginni árás frá
Islenska útvarpsfélaginu hf. á fram-
færslumöguleika þeirra.
Engar forsendur eru fyrir því áliti
að samkeppnislög eða önnur lands-
lög séu brotin að mati lögmanna
Stöðvar 3, sem hafa fengið málið til
umfjöllunar."
Rannsókn
á viðskiln-
aði sveitar-
stjóra
BÆJARSTJÓRl ísafjarðarbæj-
ar fór þess fyrir nokkru á leit
við lögfræðing bæjarins að
hann óskaði eftir opinberri
rannsókn á viðskilnaði og fjár-
reiðum fyrrverandi sveitar-
stjóra á Suðureyri og er málið
nú til meðferðar hjá Rannsókn-
arlögreglu ríkisins, að því er
Kristján Þ. Júlíusson, bæjar-
stjóri á ísafirði, staðfesti í sam-
tali við Morgunblaðið.
Málið kom upp þegar unnið
var að milliuppgjöri á reikning-
um hjá sveitarfélaginu en þá
komu í ljós atriði sem stjómend-
ur hins nýja sameinaða sveitar-
félags ísafjarðarbæjar vildu fá
nánari skýringar á. Sveitarstjór-
inn sem um ræðir lét af störfum
á fyrri hluta seinasta árs.
Í
I
f
I
I
I
I
I
Í
I
i
í
I
I
I
I
1
I
I
i
í