Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 9

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 9 FRETTIR Úrskurður Einkaleyfastofu Vörumerkið Naggar eign KÞ EINKALEYFASTOFAN hefur úr- skurðað að Kaupfélag Þingeyinga, Húsavík, hafi einkarétt á notkun vörumerkisins Naggar. Heitið hefur verið notað um litla forsteikta og mótaða kjötbita. Sláturfélag Suður- lands hefur í framhaldi af úrskurð- inum breytt heiti sínu á þessari vöru í bita. Að sögn Ásgeirs Baldurs, markaðsstjóra KÞ, eru þó enn til sölu naggar frá SS, pakkaðir 7. jan- úar, en úrskurðurinn féll 17. desem- ber. Hann segir að KÞ muni óska eftir lögbanni á notkun SS á heitinu. KÞ óskaði eftir skráningu vöru- merkisins í júlí 1995 en í nóvember sama ár bárust andmæli Sláturfé- lagsins. Rökstuðningurinn var sá að orðið væri of almennt, fyndist í orða- bókum og hefði merkinguna „eitt- hvað smávaxið, biti eða afbitið stykki“ og því sjálfsagt orð yfir litla kjötbita eða hliðstæða vöru. Bent var á hliðstæðu í notkun orðsins pylsa sem er lýsandi fyrir ástand og form vörunnar og ekki skráning- arhæft. Einnig var bent á að það líkist enska orðinu nuggets, sem sé í daglegu tali notað um sérstaklega formaða kjötbita. Skyldleiki orðanna naggar og nuggets væri augljós. Frumleg og skemmtileg hugmynd segir KÞ í rökstuðningi KÞ segir að sam- kvæmt túlkun vörumerkjalaga sé skráning orða sem finnast í orðabók ekki útilokuð, heldur aðeins orða sem notuð eru í daglegu máli og fagmáli í viðskiptum. Orðið naggur hafi auk þess ekki áður verið notað um matvöru, hvað þá litla kjötbita og sé hugmynd KÞ því bæði frum- leg og skemmtileg. Jafnframt segir að eftir að KÞ kynnti vöru undir vöruheitinu Naggar hafi Sláturfé- lagið hafið framleiðslu á eftirlíkingu á vörunni undir nákvæmlega sama heiti. Þetta er að áliti _KÞ andstætt vörumerkjalögum. í úrskurði Einkaleyfastofu er að mestu leyti tekið undir rökstuðning KÞ. Steinþór Skúlason, forstjóri Slát- urfélags Suðurlands, segist ekki vera fullkomlega sammála rök- semdafærslu í úrskurðinum, en vilji ekki eyða meiri tíma í málið. Hann segir að vörumerkinu hafi verið breytt um leið og úrskurðurinn barst. Kjötbitarnir, sem áður nefnd- ust naggar, heita nú lamba- og grísabitar. Samningum SR- mjöls vísað til sáttasemjara VERKALÝÐSFÉLÖGIN sem semja við SR-mjöl hf. hafa vísað kjaraviðræðum sínum við VSÍ til ríkissáttasemjara. Signý Jóhann- esdóttir, formaður verkalýðsfé- lagsins Vöku, segir að viðræður hafi engum árangri skilað og eng- inn samningafundur hafi verið boðaður á þessu ári. Það eru verkalýðsfélögin á Siglufirði, Raufarhöfn, Seyðisfirði og Reyðarfirði sem vísuðu kjara- viðræðum sínum við VSÍ vegna SR-mjöls hf. til sáttasemjara. „Viðræður við vinnuveitendur hafa engu skilað og í raun hafa engin svör fengist við þeim kröf- um sem við lögðum fram 13. nóvember. Meginatriðið í okkar kröfugerð er að vinnutilskipun Evrópusambandsins skerði ekki kjör starfsmanna," sagði Signý. SR-mjöl hefur oftast nær samið beint við verkalýðsfélögin um kjör starfsmanna sinna, en _að þessu sinni fól fyrirtækið VSÍ að fara með samningsumboð. Signý vildi ekki tjá sig um hvort hún teldi líkur á að verkalýðsfé- lögin myndu þrýsta á vinnuveit- endur með vinnustöðvun. Hún sagðist vilja heyra tóninn í við- semjendum sínum fyrst, en boðað- ur hefur verið fundur í kjaradeil- unni á morgun. Loðnuveiðar eru að hefjast að nýju þessa dagana. Veiðarnar standa að jafnaði fram í lok mars. Tímasetning verkfalls skiptir því miklu máli í þessari atvinnugrein ef verkalýðsfélögin vilja að það hafi áhrif á viðsemjandann. BJÖRGUNARSVEIT Slysavarnafélagsins á Kjalarnesi aðstoðaði mann sem slasaðist í fjallgöngu í Esjunni á sunnudag. Féll á svelli í Esjunni MAÐUR slasaðist lítillega þegar hann féll á svelli í Esjunni á sunnudag. Björgunarsveit Slysa- varnafélagsins á Kjalarnesi náði í manninn og flutti hann á slysa- deild. Maðurinn, sem er um sjötugt, var í gönguferð síðdegis á sunnu- dag ásamt öðrum manni við Laugagnípu fyrir ofan bæinn Esju- berg á Kjalarnesi. Veður var mjög gott og því margir sem lögðu leið sína á fjallið. Launhált var víða á þessum slóðum og hrasaði maður- inn á svelli. Hann slasaðist ekki mikið, en nóg til þess að hann komst ekki hjálparlaust niður. Félagi mannsins fór niður að bænum á Esjubergi og fékk að hringja eftir aðstoð. Björgunar- sveitin var komin á staðinn innan fárra mínútna, en félagar hennar þekkja Esjuna vel og eru vel þjálf- aðir og búnir til fjallabjörgunar. Björgunin reyndist samt nokkuð erfið, enda var um brattan og hálan gilskorning að fara og orðið dimmt á niðurleið. Ferðin með manninn gekk þó að óskum og var hann fluttur á Sjúkrahús Reykja- víkur. Útsala - útsala TESS i neðst við \ Dunhaga, sími 562 2230 Opið virka daga kl.9-18, laugardag kl. 10-14. SVIPMYNDIR Hvcrfisf»ötu 18, s. 5S2 2690 Útsala Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga firá kl. 10-18.30 og laugardaga frá kl 10-15 Hef opnað lækningastofu í Domus Medica Egilsgötu 3. Sérgrein: Geðlækningar. Tímapantanir frá kl. 9-17 í síma 563-1071. Sigurður Páll Pálsson, geðlæknir. 10-50% afsláttur A.th. 25% afsláttur af KS. drögtum í staerð 36 40% afsláttur af hálfsíöum kápum Vorlfnan frá C ’ FVI og KS er komin Lauganesi 07 S: 551 7015 UTSALA 3 0% - 70% AFSLÁTTUR B O G N E R sérverslun v/Óðinstorg, sími 552 5177

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.