Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 10

Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Meðaltalsstyrkur Félagsmálastofnunar Reykjavíkur hækkaði um 21 þúsund kr. Fj árhagsaðstoð jókst úr 96 í 733 m.kr. á áratug ÚTGJÖLD Reykjavíkurborgar til fjárhagsaðstoðar við einstaklinga jukust úr 96 m.kr. í 733 m.kr. á árunum 1986 til 1996. Fjárhags- áætlun Reykjavíkurborgar gerir ráð fyrir 40 m.kr. minni útgjöldum til fjárhagsaðstoðar á vegum Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar árið 1997 en varið var til þess verk- efnis árið 1996. Framlag ársins 1997 er 693 m.kr. Árið 1996 runnu 733 m.kr. til fjárhagsaðstoðar sem var 8% aukning frá árinu 1995 þeg- ar framlögin námu 682 m.kr. Árið 1994 var 540 m.kr. varið til ijár- hagsaðstoðar. Meðaltalsstyrkur hækkaði um nímlega 21 þúsund krónur á mann á ári milli 1995 og 1996, eða úr 162.136 krónum árið 1995 í 183.483 árið 1996. Færri styrkþegar, hærri útgjöld Styrkþegar voru hins vegar færri 1996 en 1995. Fyrstu 10 mánuði ársins fækkaði þeim úr 3.416 í 3.320. Fyrstu 10 mánuði ársins 1994 voru styrkþegar 2.828. Allt árið 1995 þáðu 3.800 manns styrk, 3.293 árið 1994 og 2.891 árið 1993. Frá 1986 hefur styrkþegunum hins vegar fjölgað úr 2.185 og hefur fjöldi þeirra vaxið ár frá ári nema árin 1988 og 1992. Lára Bjömsdóttir félagsmálastjóri segir að í þessum tölum endurspegl- ist atvinnuleysisþróun á tímabiiinu. Aðspurð hvers vegna útgjöldin ykjust þegar styrkþegum fækkar sagði Lára að vaxandi fjöldi styrk- þega væri að glíma við langtímaat- vinnuleysi. Um 60% styrkþega voru atvinnulaus og runnu um 75% út- gjaldanna til þeirra. Þar af runnu 43% útgjalda til þeirra sem hafa verið atvinnulausir lengur en í 7 mánuði. Aukið atvinnuleysi „Áður hafa flestir fengið fjár- hagsaðstoð í skamman tíma, flestir í nokkra mánuði, en nú er fólk hneppt í gildru atvinnuleysis og fá- tæktar,“ segir Lára Björnsdóttir. Meðalstyrkur til atvinnulausra sem hafa fengið styrk 8 mánuði eða lengur er 440 þús. kr. á ári en meðaltalsstyrkur til annarra en at- vinnulausra var 291 þús. kr. á árinu. 12% styrkþeganna árið 1995 voru í launavinnu, 4% í námi, 15%öryrkj- ar, 5% ellilífeyrisþegar og 4% sjúk- lingar. 60% voru atvinnulaus eins og fyrr sagði. Félagsmálastofnun tók upp nýjar reglur um afgreiðslu fjárhagsað- stoðar á árinu 1995 og segir Lára að markmiðið með þeim reglum hafi verið að gera afgreiðslu fljót- virkari, einfaldari og gagnsærri og auka jafnræði með umsækjendum. Hún hafnar því að útgjaldaaukn- ingin síðasta ár tengist nýju reglun- um. Fjárhagsaðstoðarútgjöld Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar og meðalfjöldi atvinnulausra 1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994 1995 Hlutfallsleg skipting styrkþega Félagsmála- stofnunar, eftir atvinnustöðu árið 1995 Öryrkjar Launa- fólk Ellil.þegar Sjúklingar Nemar Meðaupphæð á hvern styrkþega á 10 mánaða tímabili árin 1994-96 183.483 Jan.-okt. Jan.-okt. Jan.-okt. „Mín kenning er sú að fjár- hagsaðstoðin hefði verið hærri á síðasta ári ef ekki hefði verið búið að setja nýju reglurnar," segir Lára Björnsdóttir og kveðst byggja þá skoðun á því að með nýju reglunum hafi verið dregið úr svigrúmi ein- stakra starfsmanna stofnunarinnar til svonefndra heimildargreiðslna vegna einstaklingsbundinna að- stæðna. Lára Björnsdóttir segir að álitið sé að nú taki að hægja enn frekar á aukningu fjárhagsaðstoðar af þessu tagi. Á næstunni muni Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkurborg- ar snúa sér að því að skoða sérstak- lega þann hóp sem nýtur langtíma- aðstoðar og veita þeim hópi öflugri aðstoð og ráðgjöf en áður og skoða aðstæður hans sérstaklega, hvað einkenni hann og hvað þurfi til að koma til hjálpar þeim einstakling- um sem hann skipa. 211 manns eru í þeim hópi sem fékk fjárhagsstyrki frá Félags- málastofnun 8 mánuði eða meira hvort áranna 1995 og 1996. Stefán Baldursson þjóðleikhússtjóri Dauðans hönd Sjón- varpsins á leikhúslífinu Virðist líða ákaflega illa, segir Jón Viðar STEFÁN Baldursson, þjóðleikhús- stjóri, hafði hörð orð um störf Jóns Viðars Jónssonar, leiklistargagn- rýnanda Dagsljóss Ríkissjónvarps- ins, á hátíðardagskrá sem efnt var til í tilefni af aldarafmæli Leikfé- lags Reykjavíkur í Borgarleikhús- inu á sunnudagskvöld. Sagði hann að leiklistargagnrýni Ríkissjón- varpsins lægi eins og dauðans hönd á íslensku leikhúslífi. Ennfremur sagði hann að það væri sama hversu harðger gróðurinn í garði íslenskra lista væri, hann væri alltaf hægt að drepa með því að úða yfír hann úr eiturbrúsum. Útvarpsráð bókaði í gær stuðn- ing við Jón Viðar: „Í tilefni um- mæla þjóðleikhússtjóra í ræðu á 100 ára afmæli Leikfélags Reykja- víkur lýsir Útvarpsráð fyllsta stuðn- ingi við leikhúsgagnrýnanda Sjón- varpsins sem hefur fjallað málefna- lega og af þekkingu um leikhús- mál.“ í samtali við Morgunblaðið sagði Jón Viðar að þessi ummæli þjóðleik- hússtjóra væru einungis einhver órökstudd stóryrði og fúkyrði sem hann gæti lítið sagt um. „Honum virðist líða ákaflega illa, aumingja manninum, og ég verð bara að vona að hann taki gleði sína með hækkandi sól. Ég veit ekki til þess að ég hafí gefíð honum neitt tilefni til að láta svona; ég hef bara unnið mitt starf hjá Sjónvarpinu og við það situr.“ Aðspurður hvað Jóni Viðari þætti um slíka gagnrýni á störf gagnrýn- enda sagðist hann aðeins geta svar- að því á einn veg. „Því miður er alltaf eitthvað um það að fólk fari út í listir sem hefur ekki þroska til að taka gagnrýni. Það er í rauninni ekki höfuðverkur gagnrýnandans, heldur er það vandi þessa fólks sem hefur farið út í þetta á röngum forsendum. Listafólk verður að gera til sín kröfur og vera viðbúið því að til þess séu gerðar kröfur, bæði af samfélaginu og af okkur sem höfum það hlutverk að fjalla um listir á gagnrýnin hátt. Annars hefur hver sína skoðun á gagnrýni og menn verða bara að búa við það. Ég hef reyndar ekki orðið var við að ég liggi undir meiri ámælum fyrir mín störf en aðrir. Það er þama einhver einn maður sem er eitthvað vanstilltur og það er hans vandamál.“ Talað hefur verið um að Jón Viðar beiti óvægnum stíl í gagnrýni sinni og sjálfur segist hann hafa haft þá reglu að tala umbúðalaust um hlutina. „Ég hef ekki legið á skoðun minni, hvort sem hún er til lofs eða lasts. Það getur vel verið að það komi misjafnlega við menn. Það getur líka verið að menn séu orðnir vanir silkihanskagagnrýni í fjölrniðlum hér. Ég get ekki metið tilfínningaleg áhrif þess sem ég skrifa eða segi á aðra. Reynslan kennir manni að sársaukaþröskuldur listafólks er ákaflega mishár; flestir eru tilbúnir til að taka gagniýni og geta unnið úr henni fyllilega en aðrir virðast ekki geta þolað hana og telja sig jafnvel vera hafna yfir hana. Ég veit ekki hvort þjóðleikhússtjóri er í þeim hópi en mér þykja þessi við- brögð hans upp á síðkastið fremur benda til þess.“ Skiltaþvottur Morgunblaðið/Þorkell BÍLAR og húsgluggar eru óhrein- Þessi borgarstarfsmaður stuðlaði ir í vetrarslabbinu þessa dagana að því að ökumenn gætu greint og það eru umferðarskiltin líka. hvert leiðin lægi. 15 mán- aða fang- elsi fyrir nauðgrm HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands hef- ur dæmt 26 ára mann í 15 mánaða fangelsi fyrir nauðgun og til að greiða 350 þúsund krónur í miska- bætur, auk alls sakarkostnaðar. Maðurinn bar við minnisleysi um atburði vegna ölvunar, en kvaðst þó fullviss um að hann hefði ekki nauðgað konunni. Dómurinn kemst að niðurstöðu sinni með vísan til þess að framburður konunnar var staðfastur og skýr og rannsóknar- gögn studdu sögu hennar. Maðurinn hefur áfrýjað dómnum til hæsta- réttar. Atburðurinn varð um mitt síðasta ár. Maðurinn og konan, sem eru fyrrverandi vinnufélagar, urðu sam- ferða af veitingastað heim til sam- eiginlegrar kunningjakonu sinnar. Þegar þangað var komið fór konan inn í herbergi og lagðist til svefns en maðurinn sat í stofu ásamt hús- ráðanda. Þegar húsráðandi fór að sofa lagðist maðurinn til svefns í stofusófanum. Batt hana við rúmið Konan bar að hún hefði vaknað við að maðurinn var að reyna að færa hana úr buxum. Þegar hún streittist á móti batt hann vinstri hönd hennar og hægri fót við rúm- gaflinn og kom fram vilja sínum. Eftir að maðurinn fór náði konan að losa sig. Hún leitaði til neyðar- móttöku Sjúkrahúss Reykjavíkur næsta dag. Við yfirheyrslur svaraði maður- inn því til að hann myndi ekkert eftir atvikum sökum ölvunar, en fyrir dómi neitaði hann allri sök og kvaðst alltaf verða sannfærðari um sakleysi sitt eftir því sem liði á. Hann væri með alveg hreina sam- visku. í niðurstöðum dómsins segir að konan hafi frá upphafi verið stað- föst í skýrslum sínum og þær verið trúverðugar. Þá samrýmist fram- burður hennar rannsókn læknis á áverkum sem hún hlaut. Dómurinn taldi því sannað að maðurinn hefði gerst sekur um nauðgun. 350 þúsund krónur í bætur Konan fór fram á eina milljón króna í miskabætur og rúmar 22 þúsund krónur í þjáningabætur, auk tæplega 112 þúsund króna í máls- kostnað. Dómurinn taldi hæfilegar bætur 350 þúsund krónur og máls- kostnað 60 þúsund krónur, auk þess sem manninum var gert að greiða veijanda sínum 80 þúsund krónur og 80 þúsund króna saksóknarlaun. Dóminn kváðu upp héraðsdómar- arnir Hervör Þorvaldsdóttir, Pétur Guðgeirsson og Sigurður Tómas Magnússon. Kröfu logreglu fyrir héraðsdómi hafnað Saka veijanda um að bera upplýsingar milli manna Fíkniefnalögreglan krafðist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í síð- ustu viku að veijandi eins sakborn- ings í stóra hassmálinu yrði látinn víkja sæti þar sem hann hefði borið upplýsingar á milli manna og hindrað þannig rannsókn málsins. Lögmað- urinn neitaði ásökununum og dómar- inn tók kröfu lögreglunnar ekki til greina. Jóhann Hauksson, lögmaður hjá embætti lögreglustjórans í Reykja- vík, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fíkniefnalögreglan teldi yfir- gnæfandi líkur á að veijandinn hefði borið upplýsingar á milli sakborn- inga, sem í byijun hefðu ekki allir setið í varðhaldi á sama tíma. „Við fórum fram á að veijandinn yrði lát- inn víkja sæti í þágu rannsóknar málsins," sagði Jóhann, sem viður- kenndi að þetta mál væri óvenjulegt og sjálfur myndi hann ekki til þess að lögreglan hefði áður farið fram á að veijandi viki sæti. Lögreglan hefði hins vegar talið yfírgnæfandi líkur á að veijandinn hefði gert sig sekan um þessi afglöp og því hefði þurft að reyna þessa leið. „Við kærðum ákvörðim héraðsdóms til Hæstarétt- ar, sem tekur afstöðu til kærunnar í þessari viku,“ sagði Jóhann Hauks- son. Veijandinn, Pétur Gautur Krist- jánsson, sagði í gær að hann harð- neitaði þessum ásökunum, en hann ætlaði að svara þeim efnislega fyrir hæstarétti. Sjálfur áfrýjaði hann þeim úrskurði héraðsdóms, að skjól- stæðingur hans þyrfti að sæta fram- lengingu á gæsluvarðhaldi. Sex manns sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar málsins og rennur varðhald þeirra út 17. og 22. janúar og 6. og 7. febrúar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.