Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Aframhaldandi lækk-
un langtímavaxta
LANGTÍMAVEXTIR héldu áfram
að lækka á verðbréfamarkaði í gær
í kjölfar þess að vextir á 20 ára
spariskírteinum lækkuðu um 0,15
prósentustig eða 15 punkta í við-
skiptum á föstudaginn var. Ávöxt-
unarkrafa 20 ára spariskírteina hélt
áfram að lækka í líflegum viðskipt-
um í gær og hafði í lok viðskipta
lækkað um 5 punkta til viðbótar og
ávöxtunarkrafa húsbréfa lækkaði
enn meira, en hún hafði lækkað ein-
ungis Iítilsháttar í viðskiptum á
föstudaginn.
Tuttugu ára spariskírteini seldust
fyrir 190 milljónir króna á Verð-
bréfaþingi í gær og lækkaði ávöxt-
unarkrafan úr 5,36% í 5,29%, en
hækkaði síðan örlítið aftur og við
lok viðskipta var krafan 5,31% eða
5 punktum lægri en í lok viðskipta
á föstudag. Ávöxtunarkrafa hús-
bréfa á Verðbréfaþingi lækkaði um
15 punkta frá því á föstudag úr
5,84% í 5,69% í öðrum flokki frá því
í fyrra. Ávöxtunarkrafan var orðin
enn lægri hjá verðbréfafyrirtækjum
í lok viðskipta í gær eða 5,67%.
Hlutabréf hækka í verði
Þá voru einnig lífleg viðskipti með
hlutabréf á Verðbréfaþingi og
hækkaði gengi hlutabréfa mikið í
nokkrum félögum. Gengi hlutabréfa
í íslandsbanka hækkaði um 5,26%
í 2,00 og seldust hlutabréf fyrir 7,5
milljónir króna. Hlutabréf í Tækni-
vali hækkuðu þó enn meira eða um
6,15% í 6,90 og seldust hlutabréf
fyrir 600 þúsund krónur. Hlutabréf
í Síldarvinnslunni seldust fyrir 12
milljónir króna og hækkaði gengið
um 0,30 eða um 2,56%. Loks hækk-
aði gengið á hlutabréfum í Eim-
skipafélaginu úr 7,38 í 7,45 eða um
0,95%, og nam sala hlutabréfa í
félaginu rúmum sjö milljónum.
Gengi hlutabréfa í öðrum félögum
hækkaði einnig en þó minna. Eina
félagið sem lækkaði í verði var
Tangi á Vopnafirði. Gengið lækkaði
úr 2,10 í 2,05 eða um 2,38%, en
viðskiptin með bréf í félaginu námu
rétt rúmum 500 þúsund krónum.
Hlutafjárútboði
Hólmadrangs lokið
HÓLM ADRAN GUR hf. á
Hólmavík hefur lokið útboði á
nýju'hlutafé sem hófst í byijun
desember sl. Bréfin voru að
nafnvirði 15 milljónir króna og
voru seld á genginu 4,5 eða fyr-
ir 67,5 milljónir. Forkaupsréttar-
hafar keyptu bréf að nafnvirði
4,1 milljón, en á almennan
markað fóru 10,9 milljónir að
nafnverði eða um 50 milljónir
að markaðsverðmæti.
Með útboðinu náðist það
markmið að breikka eignarhald
fyrirtækisins. Þannig minnkaði
hlutur Kaupfélags Steingríms-
fjarðar og tengdra fyrirtækja
úr 62% í 54% og hlutur Hólma-
víkurhrepps fór úr 10% í 8%.
Fram kemur í frétt að þetta
útboð hafi styrkt rekstrar-
grundvöll fyrirtækisins í kjölfar
mikilla fjárfestinga á síðastl-
iðnu ári. Þá hafi skráning fyrir-
tækisins á Opna tilboðsmarkað-
inum samhliða útboðinu auð-
veldað viðskipti með hlutabréf-
in.
Tap var á rekstri Hólma-
drangs á árinu 1996, en áætlun
ársins 1997 gerir ráð fyrir að
afkoma batni verulega, einkum
vegna mikillar endurnýjunar á
vinnsluaðstöðu á árinu 1996.
Er því búist við nokkrum hagn-
aði á nýbyijuðu ári. Búnaðar-
bankinn Verðbréf sá um útboð-
ið og sölu bréfanna.
Vöruskiptin í nóvember í járnum
1,2 milljarða
afgangurá
11mánuðum
í NÓVEMBERMÁNUÐI sl. voru
fluttar út vörur fyrir 11,5 milljarða
króna og inn fyrir nær sömu upp-
hæð fob. Vöruskiptin í nóvember
stóðu því í jámum en í nóvember
1995 voru þau hagstæð um 1,7
milljarða króna á föstu gengi segir
í frétt frá Hagstofunni.
Fyrstu ellefu mánuði þessa árs
voru fluttar út vörur fyrir 114,8
milljarða króna en inn fyrir 113,7
milijarða króna fob. Afgangur var
því á vöruviðskiptunum við útlönd
sem nam 1,2 milljörðum króna en
á sama tíma árið áður voru þau
hagstæð um 12,3 milljarða á föstu
gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn er
því 11,1 milljarði króna lakari en
á sama tíma í fyrr en um 6,1 millj-
arði lakari að frátöldum innflutn-
ingi og útflutningi á skipum og
flugvélum.
Fyrstu ellefu mánuði þessa árs
var verðmæti vöruútflutningsins
8% meira á föstu gengi en á sama
tíma árið áður. Sjávarafurðir voru
76% alls útflutningsins og var verð-
mæti þeirra 12% meira og verð-
mæti kísiljárns 18% meira en á
sama tíma árið áður.
Heildarverðmæti vöruinnflutn-
ingsins fyrstu ellefu mánuði þessa
árs var 21% meira á föstu gengi
en á sama tíma árið áður. Innflutn-
ingur sérstakrar fjárfestingavöru
(skip, flugvélar, Landsvirkjun),
innflutningur til stóriðju og olíu-
innflutningur er jafnan mjög
breytilegur frá einu tímabili til
annars. Að þessum liðum frátöld-
um reynist annar vöruinnflutning-
ur hafa orðið 18% meiri á föstu
gengi en á sama tíma árið áður.
Þar af jókst innflutningur á mat-
vöru og drykkjarvöru um 10%,
fólksbílainnflutningur jókst um
43% og innflutningur annarrar
neysluvöru var 10% meiri en á
sama tímabili íf yrra Loks hefur
innflutningur annarrar vöru, þ.m.t.
fjárfestingar og rekstrarvöru, auk-
ist um 19% frá sl. ári.
VÖRUSKIPT4N X .
æt_ ■■ \ . iv
VIÐ UTLOND
Verðmæti vöruút- og innflutnings ^ .
jan.-nóv. 1995 og 1996 1995 1996 Breytingá
(fob virði í milljónum króna) jan.-nóv. jan.-nóv. föstu gengi*
Útflutningur alls (fob) 106.626,5 114.848,2 +7,7%
Sjávarafurðir 77.327,9 86.733,0 +12,2%
Ál 10.899,2 11.120,9 +2,0%
Kísiljárn 2.924,2 3.441,3 +17,7%
Skip og flugvélar 3.761,3 1.509,2 -59,9%
Annað 11.713,9 12.043,8 +2,8%
Innflutningur alls (fob) 94.371,0 113.670,4 +20,5%
Sérstakar fjárfestingarvörur 2.587,4 5.335,4
Skip 1.741,2 5.147,4
Flugvélar 793,6 104,6
Landsvirkjun 52,6 83,4
77/ stóriðju 5.829,1 7.158,3 +22,8%
íslenska álfélagið 5.110,4 6.252,9 +22,4%
íslenska járnblendifélagið 718,7 905,4 +26,0%
Almennur innflutningur 85.954,5 101.176,7 +17,7%
Olía 6.744,8 8.820,5 +30,8%
Alm. innflutningur án olíu 79.209,7 92.356,2 +16,6%
Matvörur og drykkjarvörur 9.506,5 10.454,1 +10,0%
Fólksbílar 4.278,4 6.118,1 +43,0%
Aðrar neysluvörur 20.016,3 21.982,1 +9,8%
Annað 45.408,5 53.801,9 +18,5%
Vöruskiptajöfnuður 12.255,5 1.177,8
Án viðskipta íslenska álfélagsins 6.466,7 -3.690,2
Án viðskipta íslenska álfélagsins,
íslenska járnblendifélagsins
og sérstakrar fjárfestingarvöru 3.087,3 -2.399,9
Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog; á þann mælikvarða var meðalverð erlends gjaldeyris í
janjar-nóvernber1996óbreyttfrásamatímaáriðáður. . T
Við rýmum til fyrir nýrri vöru og seljum nokkra rafeindavarpa
□ g glærur (sýningartæki) með verulegum afslætti næstu daga.
Tækin sem um ræðir eru m.a. eftirtalin:
RaÍBÍndBvarpar Vnrð áður: TiIIiaðBvarð:
InfocuB LP 550 halogen 640 x 480 kr. 650.000 kr. 300.000
Infocus LP 210 metal halide 640 x 480 kr. 570.000 kr. 450.000
3M MP 8020 metal halide 640 x 480 kr. 990.000 kr. 550.000
Rafeindaglærur
Infocus PB 550 B40 x 480 video/tölvur kr. 420.000 kr. 260.000
Infocus PB 3600 G40 x 480 kr. 380.000 kr. 180.000
InfocuB PB 2600 640 x 480 kr. 220.000 kr. 110.000
Infocus PB 82QV 800 x 600 video/tölvur kr. 510.000 kr. 350.000
3M PB 6450 640 x 480 video/tölvur kr. 510.000 kr. 310.000
Tækin eru öll í fyrsta flokks
ástandi og með 1 árs ábyrgð.
Nánari upplýsingar gefa Sveinn
□ g Kolbeinn í sima 569 7600 á
skrif stofutíma.
InFccus"
NÝHERJI
RADÍÓSTOFAN
Skiphalt 37 - 1D5 Reykjavík
Sími: 569 76DD - Fax: 569 7629
http://www.nyherji.is
par & glærur^
Samkeppnisráð
Rættum
breyting-
ar á verði
mjólkur
NIÐURFELLING hámarksálagn-
ingar á mjólkurvörum í smásölú
hefur verið rædd í Samkeppnisráði
í tengslum við breytilegan afslátt á
heildsölustigi á mjólkurafurðum,
segir Guðmundur Sigurðsson, for-
stöðumaður samkeppnissviðs Sam-
keppnisstofnunar. Hann segir þó
að engin ákvörðun hafi verið tekin
í málinu og verði að öllum líkindum
ekki tekin fyrr en nýr fulltrúi neyt-
enda hefur verið skipaður í fímm-
mannanefndina og niðurstaða sé
komin í málið innan hennar.
í fréttapósti Kaupmannasamtaka
íslands kemur fram að Kaup-
mannasamtökin muni ekki gera
athugasemd um málið ef þetta
gengur eftir. „Því þá eru viðskipti
með þessar vörur \omar í það horf
sem talið er eðlilegt. En lögð verður
áhersla á að afslátturinn verði uppi
á borðinu og innan skikkanlegra
marka. Ljóst er að stærri kaupend-
ur muni ætíð ná betri kjörum en
hinir smærri. Það er eðli viðskipta.
En kjörin þurfa að vera gagnsæ
og öllum opin sem uppfylla þær
magn- og greiðslukröfur sem gerð-
ar eru, - það er krafa Kaupmanna-
samtaka íslands.“
----» ♦ ♦----
Verslunar-
ferðir til
Islands
ÁKVEÐIÐ hefur verið að setja upp
verkefnishóp til að undirbúa versl-
unarferðir frá Bandaríkjunum til
íslands frá og með desember næst-
komandi.
Að sögn Sigurðar Jónssonar,
framkvæmdastjóra Kaupmanna-
samtaka íslands, munu fulltrúar
Flugleiða, Ferðamálaráðs, Kaup-
mannasamtaka Islands, Kringlunn-
ar, Laugavegssamtakanna, Reykja-
víkurborgar og Europe Tax Free
Shopping taka þátt í að undirbúa
verslunarferðir hingað til lands þar
sem einnig yrði boðið upp á ýmis-
konar afþreyingu. „Flugleiðir hafa
undanfarin ár boðið upp á verslun-
arferðir frá Bandaríkjunum til ís-
lands og í ljós hefur komið að áhugi
er fyrir hendi þar í landi fyrir stutt-
um ferðum til íslands og raunhæft
sé að áætla að ferðamenn gætu
orðið um 400-500 til að byrja með,“
segir Sigurður.