Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 18

Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Metverð á rússneskum verðbréfum JAPANSKUR verðbréfasali spáir í hlutina í gær. Japönsk bréf ná sér á strik RÚSSNESK hlutabréf seldust á metverði á föstudag vegna mikillar eftirspurnar erlendra fjárfesta þrátt fyrir ugg vegna veikinda Borísar Jeltsíns forseta. Mörg bréf hækkuðu um meira en 10% í verði, en markaðurinn var óstöðugur. Verð bréfa í orku- fyrirtækinu Mosenergo í Moskvu , sem margir erlendir fjárfestar nota til viðmiðunar, komst í 1,53 dollara síðdegis og lækkaði í 1,42 dollara, en lokaverð á fimmtudag var 1,26 dollarar. Þau hafa hækkað úr tæp- lega einum dollar fyrir jól. Arðsemi 155,9% Rússneska viðskiptavísitalan hækkaði um 1,6% á fimmtudag í 231.48, sem er met, þrátt fyrir veikindi Jeltsíns. Mikil lækkun varð á verði hlutabréfa þegar aðgerð var gerð á Jeltsín í nóvember. Þrátt fyrir veikindi Jeltsíns og ótryggt ástand í Rússlandi í fyrra stóðu verðbréfaviðskipti með meiri blóma þar en í öðrum löndum sem hafa nýlega haslað sér völl á þessu sviði. Arðsemi var um 155,9% og áhugi erlendra fjárfesta hefur vaknað. „Stjórnendur venjulegra er- lendra fjárfestingasjóða hafa í fyrsta skipti ráðizt í verulegar fjár- festingar í Rússlandi," segir sér- fræðingur í Lúxemborg. Hong Kong. Reuter. JAPÖNSK bréf náðu sér á strik í gær eftir mikið tap fyrir helgi og hafði það jákvæð áhrif á öðrum mörkuðum Asíu. Nikkei 225 vísitalan í Tókýó lækk- aði í fyrstu í 17.019,56, en hækkaði að lokum um 815,14 punkta, eða 4,71%, í 18.118,79, sem er fyrsta hækkun vísitölunnar í eina viku. Hækkunin var svo mikil að hún vó á móti tapinu á föstudag og ríf- lega það. Lækkunin fyrir helgi var sú mesta á einum degi í tvö ár. Nik- kei lækkaði um rúmlega 2000 punkta í síðustu viku vegna aukinna efa- semda um að ríkisstjórn Japans geti tryggt áframhaldandi efnahagsbata. Sérfræðingur sögðu að hækkunin í gær hefði verið „tæknileg" og að markaðurinn mótaðist enn af ugg vegna efnahagsástandsins og stöðu ýmissa fjármálastofnana. Hækkunin stafaði einnig af því að einn af leiðtogum stjórnarflokksins hafði hvatt til ráðstafana vegna veikrar verðbréfastöðu. Annar emb- ættismaður flýtti sér hins vegar að bera tii baka að ríkisstjórnin mundi grípa til fjármálalegra björgunarað- gerða. LUMAR ÞU A AUGLYSINGU? ■ ÍMARK efnir til samkeppni í samráði við Samband íslenskra auglýsingastofa um athyglisverðustu auglýsingu ársins 1996. Skilyrði fyrir þátttöku er að auglýsingin sé gerð af íslenskum aðila og hafi birst fyrst á árinu 1996. Tilgangur samkeppninnar er að vekja almenna athygli á vel gerðum auglýsingum og auglýsingaefni og veita aðstandendum þeirra verðskuldaða viðurkenningu. Skilafrestur rennur út föstudaginn 31. janúar 1997. Auglýsingaefni ásamt útfylltum þátttökuseðlum skal skila í pósthólf 8393, 128 Rvk. Veitt verða verðlaun fyrir bestu auglýsinguna í eftirtöldum flokkum: Kvikmyndaðar auglýsingar Útvarpsauglýsingar Dagblaðaauglýsingar Tímaritaauglýsingar • Auglýsingaherferðir • Umhverfisgrafík • Markpóstur • Vöru- og firmamerki • Kynningarefni annað en markpóstur • Óvenjulegasta auglýsingin Kynningarf lokkur: • Vefur fyrirtækja íMARK- Skeifan 11A, 108 Reykjavík, sími og fax 568 9988 PÓSTUR OG SÍMI HF UjSVANSJ 'oþus2\\t |j| OPIN KERFI HF rrawi ATHYGLISVERÐASTA AUGLÝSING ÁRSINS 1996 GM og Volks- wagen leysa deilu sína Detroit. Reuter. VOLKSWAGEN og General Mot- ors hafa náð samkomulagi í deilu sinni um meintar njósnir starfs- manna sem hættu störfum hjá GM og voru ráðnir til starfa hjá VW. Verð hlutabréfa í VolkSwagen hækkaði um 2% þegar tilkynnt hafði verið um samkomulagið og seldust á 724,50 mörk sem er met. Bréfin höfðu áður hækkað um 10% í verði vegna frétta um að samkomulag væri í nánd. Samkvæmt samkomulaginu hættir GM málarekstri gegn VW í Bandaríkjunum og Volkswagen greiðir GM 100 milljónir dollara. Jafnframt heitir VW því að kaupa bílahluti af GM fyrir 1 milljarð dollara á næstu sjö árum. VW viðurkennir einnig að hugs- anlegt sé að Jose Ignacio Lopez de Arriortua og aðrir sem hættu störfum hjá GM og komu til liðs við VW í marz 1993 hafi gerzt sekir um ólöglegt athæfi. GM fór í mál við VW í Detroit í fyrra og sakaði Lopez og félaga hans um að hafa stolið leyniskjöl- um um framleiðsluáætlanir GM í Evrópu, verð á bílahlutum og fram- leiðslutækni, sem gerðu VW kleift að draga úr kostnaði. GM hefur einnig sakað forstjóra VW, Ferdiand Piech, og aðra yfir- menn VW um að hafa verið í vit- orði með Lopez í samsæri um að koma skjölunum til Þýzkalands og innbyrða upplýsingarnar í tölvu- kerfi VW. VW mun rjúfa öll tengsl við Lopez til marz 2000 samkvæmt samkomulaginu að sögn GM. Þeg- ar Lopez sagði af sér sem fram- leiðslustjóri VW í nóvember sögðu ráðamenn VW að hann yrði áfram ráðgjafi fyrirtækisins á launum og vakti sú ákvörðun mikla reiði GM og dótturfyrirtækisins Adam Opel AG í Þýzkalandi. Hættu á sekt afstýrt Samkomulagið náðist að loknum í leyniviðræðum í Detroit og af- stýrði hættu á því að dómstólar dæmdu Volkswagen til að greiða marga milljarða dollara sekt. Fyrirtækin komast hjá dýrum málarekstri og í sameiginlegri yfir- lýsingu er því fagnað að þau geti átt með sér snurðulausa samvinnu í framtíðinni. Samkomulagið hefur ekki áhrif á opinbera rannsókn á máli Lopez og félaga í Þýzkalandi og svipaða rannsókn í Bandaríkjunum. VW viðurkennir að lögsókn GM hafi ekki þjónað þeim tilgangi að valda VW álitshnekki og dregur til baka ásakanir um að starfsmenn GM kunni að hafa hagrætt sönnunar- gögnum í málinu. Stefnuyfirlýsing veldur titringi Andvíg sveigjan- legri vinnutíma Montpellier. Morgunblaðið. MIKILS titrings gætir nú á frönsk- um vinnumarkaði í kjölfar yfirlýs- ingar Alain Juppé, forsætisráð- herra Frakklands, þess efnis að ríkisstjórnin hyggist halda ótrauð áfram endurbótum sínum innan opinbera geirans, sem fela m.a. í sér frekari einkavæðingu og auk- inn sveigjanleika á vinnufyrir- komulagi opinberra starfsmanna. Hafa verkalýðsfélög starfsmanna frönsku járnbrautanna m.a. lýst yfir allsheijarverkfalli þann 24. janúar næstkomandi. Alain Juppé lýsti því yfir sl. miðvikudag að helstu áhersluatriði ríkisstjórnar sinnar stæðu óbreytt, þ.e. að reyna að draga úr atvinnu- leysi, stefna áfram að aðild að evrópska myntbandalaginu og síð- ast en ekki síst að herða enn á umbótum innan ríkisgeirans. Þessi yfirlýsing hefur valdið nokkrum titringi meðal verkalýðs- félaga opinberra starfsmanna, ef frá eru talin verkalýðsfélög starfs- manna France Telekom, sem undir- rituðu sl. fimmtudag samkomulag við stjórn fýrirtækisins, sem gilda mun í tvö ár og felur m.a. í sér aukinn sveigjanleika á vinnufyrir- komulagi starfsmanna þess. Meiri spennu gætir hins vegar innan frönsku járnbrautanna (SNCF). Ríkisstjórnin hyggst stokka upp fyrirkomulagið á stjórnun samgangna í Frakklandi, en enn er óljóst hvenær þær breyt- ingar munu taka gildi. Ríkisstjórn- in kynnti viðkomandi verkalýðsfé- lögum áform sín á fundum á mið- vikudag og fimmtudag. Áform ríkisstjórnarinnar fela það m.a. í sér að komið verður á fót nýju fyrirtæki sem mun hafa umsjón með rekstri allra innviða- þátta járnbrauta landsins. Er þetta liður í undirbúningi á einkavæð- ingu SNCF. Sem fyrr segir hafa verkalýðsfélög frönsku járnbraut- anna boðað til sólarhringsverkfalls þann 24. janúar. Helsta krafa þeirra að þessu sinni er lækkun eftirlaunaaldurs í 55 ár. Dale Carnegie Þjálfun Betri mannleg samskipti - Meiri eldmóður Minni áhyggjur - Betri ræðumennska Meira öryggi - Meiri ánægja í lífinu KYNNINGARFUNDUR FIMMTUDAG KL. 20:30 A£> SOGAVEGI 69, RHYK.IAVÍK FJÁRFESTING í MENNTUN SKILAR ÞÉR ARÐIÆVILANGT 0 STJÓRNUN ARSKÓLINN „ h»„„u - Konráð Adolphsson i ) i i i > i

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.