Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 19

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 19 ÚRVERIMU Smábátamenn kaupa tryggingar af bresku fyrirtæki á Loyds-markaði Allt að 48% lækkun iðgjalda þilfarsbáta LANDSSAMBAND smábátaeigenda hefur gert samning við breskt trygg- ingafélag, sem starfar á Loyds- markaðinum, um kaup á tryggingum fyrir smábáta. Alls tóku 173 smá- bátaeigendur þátt í tryggingaútboð- inu, en frestur til þess rann út þann 1. desember sl. sem er eindagi sem flest tryggingafélög hafa sett sér til að segja upp tryggingum smábáta. LS leitaði til Alþjóðlegrar miðlunar, þar sem íslenskir tryggingamiðlarar eru við störf, til að annast útboðið, en það er sama fyrirtæki og bauð út bílatryggingar hjá félagsmönnum í FÍB á síðasta ári er þeir ákváðu að leita tilboða erlendis. Örn Pálsson, framkvæmdastjóri LS, segir að kjörin séu að öllu leyti betri en smábátaeigendur hafi áður kynnst, en nú hafa á annað hundrað smábátaeigendur gengið frá trygg- ingunum skv. nýju skilmálunum. Vátryggingaskilmálarnir eru víðtæk- ari fyrir opna báta, en verið hefur, en þeir sömu og gilt hafa hjá þilfars- bátum. Víðtækari skilmálar og ýmis bónusákvæði Að sögn Arthurs Bogasonar, for- manns LS, þýðir þetta verulega lækkun á iðgjöldum. „Þetta felur í sér gríðarlega lækkun iðgjalda þil- farsbátanna, allt að 48%, en heldur minni lækkun hjá opnu bátunum. Skilmálar eru allir mun víðtækari og Lokaðá loðnuveiði í flottroll VEÍÐISVÆÐINU við svokallaðan Hvalbakshalla var lokað fyrir loðnu- veiðar í flottroll um helgina. Hlut- fall ókynþroska loðnu í afla flot- trollsskipanna var yfir leyfilegum mörkum og því var gripið til viku- loknunnar sem gekk í gildi eftir miðnætti á laugardag. Mælingar úr afla nótaskipanna gáfu ekki til- efni til lokunnar fyrir loðnuveiðar í nót. Hjálmar Vilhjálmsson, fiskifræð- ingur á Hafrannsóknarstofnun, segir að ástæða þess að hlutfall smáloðnu í afla flottrollsskipanna sé hærra en hjá nótaskipunum sé sú að meðfram kantbrúninni fyrir austan land sé venjulega töluvert magn smáloðnu. Þegar að stærri loðnan gangi yfir þessi svæði fylgi smærri loðnan með í aflanum og yfírleitt í meira magni í troll. Hann segir þetta tímabundið ástand sem hverfi með öllu þegar veiðarnar færist suður með landinu. Væn loðna á Þórsbanka Fremur lítil loðnuveiði var á mið- unum í gær og um helgina en flot- trollskipin voru þá stödd utan við Þórsbanka, djúpt austur af landinu og fundu þar stóra og góða loðnu. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins gekk veiðin sæmilega og lönduðu Beitir NK, Jón Sigurðsson GK og Þorsteinn EA um 1.740 tonnum af loðnu á Neskaupstað á laugardag. Þá ganga nótaveiðarnar hægt og svo virðist sem vonir manna um að vertíðin gæti hafist fyrr nú en áður verði ekki að veru- leika. Heildarafli íslenskra loðnu- skipa á vertíðinni er nú orðin rúm 485 þúsund tonn og eftirstöðvar upphafskvótans því 252 þúsund tonn. Lítil síldveiði var um helgina, en hamlaði veiðum að mestu. Skipin fengu þó þokkalegan afla á sunnu- dag en voru flest komin í land í gærmorgun vegna brælunnar. Þijú skip lönduðu þá rúmlega eitt þús- und tonnum af síld í Neskaupstað. Þá varð síldar vart í umtalsverðu magni í Reyðarfjarðardýpi fyrir helgi en hún stendur djúpt, á um 70 föðmum og næst ekki í nótina, auk þess sem hún dreifist þegar hún kemur ofar og þykir stygg með eindæmum. ýmis bónusákvæði eru sem maður sér allt of lítið af og nánast ekkert hjá íslensku tryggingafélögunum hér heima. Við höfum að vísu vitað af einhveijum slíkum dæmum, en þau eru svo fjarri því að vera almenn eða eitthvað sem menn hafa getað geng- ið að sem vísu,“ segir Arthur. Iðgjaldataxtinn á þilfarsbátum, sem eru skyldutryggðir, árið 1996 var 4,5%, en þessi nýju iðgjöld fara niður í 2,34%. Iðgjaldið af bát, sem metinn er á tíu milljónir kr., var þar af leiðandi 450 þúsund kr., en fer nú niður í 234 þúsund kr. sem þýðir 216 þúsund kr. spamað. Iðgjöldin á opnu bátunum lækka aðeins minna þar sem iðgjöldin af þeim hafa verið heldur minni á tryggingamarkaði hérlendis. „Þeim bátum er samt sem áður boðið upp á sama iðgjaldataxta og þilfarsbátunum og sömu skilmála, sem eru víðtækari en þeir skilmálar, sem okkar menn hafa hingað til ver- ið að tryggja eftir. Þetta er því veru- legt sem menn spara sér á þessu auk þess sem sjálfsábyrgðin er mun hag- stæðari en hún hefur verið til þessa,“ segir Örn Pálsson. Að sögn Arthurs hefur mikið verið hringt og spurst fyrir um þetta nýja tryggingafyrirkomulag síðustu daga. „Þetta á örugglega eftir að gera margvíslegan skurk á trygginga- markaði hérlendis á næstunni. Við vitum að tryggingamál eru mjög við- kvæm þannig að við getum ekki annað en verið ánægðir með viðbrögð okkar manna og erum alveg klárir á því að ef menn geta losnað úr tryggingum annars staðar á næsta ári muni stór hópur bætast við þann hóp, sem þegar hefur sagt upp trygg- ingum hjá íslensku félögunum. Eg held að það sé ekki nokkur vafi á því að menn munu flykkjast í þetta nýja kerfi þegar fram líða stundir." Blab allra landsmanna! -kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.