Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Atlantis á fímmta
stefnumótið við Mír
Canaveralhöfða. Reuter.
Jeltsín sagður gegna
embættisstörfum
Moskvu. Reuter.
BANDARÍSKA geirnferjan Atlant-
is á að öllu óbreyttu stefnumót í
geimnuin í dag við rússnesku
geimstöðina Mír. Verður það
fimmta stefnumót þeirra af níu
ráðgerðum. Með Atlantis er
bandarískur læknir og leysir hann
af hólmi landa sinn, sem verið
hefur í Mír frá í september við
rannsóknarstörf.
Geimskotið Canaveralhöfða í
Bandaríkjunum á sunnudag sást
úr mörghundruð kílómetra fjar-
lægð í tæru næturloftinu og átta
mínútum seinna mátti enn greina
Atlantis eins og skínandi, bjarta
stjörnu, en þá var ferjan í 480
kílómetra fjarlægð frá skotstaðn-
um og í 110 km hæð yfir jörðu.
í áhöfninni er 41 árs bandarísk-
ur flotaforingi og iæknir, Jerry
Linenger, sem taka mun við af
landa sínum, John Blaha, í Mír.
Linenger er fjórði og jafnframt
yngsti bandaríski geimfar-
inn, sem dvelst um borð í
geimstöðinni. Þar mun hann
vinna að 80 tilraunaverkefn-
um þar til í maí, en þá er
gert ráð fyrir því að Atlantis
sæki hann.
Jafnframt er gert ráð fyrir
að Linenger fari í sex stunda
geimgöngu, hina fyrstu sem
bandarískur geimfari fer í
úr rússnesku geimfari.
Linenger sagðist eiga þá
ósk heitasta að komast til
jarðar á tilsettum tíma svo
hann geti orðið viðstaddur
fæðingu annars barns þeirra
hjóna, en kona hans á von á sér
í júní.
Færa áhöfn
Mír vistir
í ferðinni færir Atlantis áhöfn-
inni á Mír um 1.600 kíló af vistum,
en vegna fjárskorts reiðir rúss-
neska geimferðastofnunin sig í
auknum mæli á ferðir bandarísku
geimferjunnar með birgðaflutn-
inga út í geim.
Reiknað hefur verið út, að Atl-
antis hóf sig á loft 42 þúsundustu
úr sekúndu á eftir margra mánaða
fyrirfram ákveðinni áætlun.
LÆKNAR Borís Jeltsíns, forseta
Rússlands, sem er á sjúkrahúsi
vegna lungnabólgu, segja að for-
setinn sé farinn að að gegna emb-
ættisstörfum að nýju en ekki kom
fram í gær hvenær hann verður
útskrifaður af sjúkrahúsinu.
Eiginkona Jeltsíns, Naína, hefur
einnig verið lögð inn á sjúkrahúsið
vegna sýkingar, að sögn tals-
manna forsetans í gær. Þeir
greindu ekki nánar frá veikindum
hennar en gáfu til kynna að þau
væru ekki alvarleg. Hastarleg
flensa hefur gengið í Moskvu að
undanförnu og Alexander Lívshíts
fjármálaráðherra var lagður inn á
sjúkrahúsið á miðvikudag vegna
pestarinnar.
Sergej Jastrzhembskí, talsmað-
ur Jeltsíns, sagði að ástand forset-
ans væri stöðugt, hann væri hita-
laus og blóðþrýstingurinn eðlileg-
ur. Hann kvaðst ekki geta staðfest
fréttir um að Jeltsín færi af sjúkra-
húsinu í dag eða á morgun. Sergej
Míronov, einn af læknum forset-
ans, sagði á föstudag að Jeltsín
yrði líklega í þijá daga til viðbótar
á sjúkrahúsinu og síðan ætti hann
að dvelja á sveitasetri sínu í þrjár
vikur á meðan hann væri að ná sér.
„Jeltsín hefur styrkst verulega
og hann er byrjaður að vinna við
skjöl,“ sagði í tilkynningu frá
Kreml á sunnudag.
Jeltsín var lagður inn á sjúkra-
húsið á miðvikudag og þá var sagt
að greinst hefði bólga í öðru lung-
anu. Nú hefur hins vegar verið
staðfest að bólga sé í báðum lung-
um og lungnabólgan sé því erfið-
ari viðfangs en gefrð var til kynna
í fyrstu.
Lebed sigurviss
Helsti andstæðingur Jeltsíns,
Alexander Lebed, fyrrverandi öt'-
yggisráðgjafi hans, kvaðst stað-
ráðinn í að láta spádóma margra
stjórnmálaskýrenda um að hann
yrði næsti forseti Rússlands ræt-
ast. „Eg vil verða forseti og verð
forseti,“ sagði Lebed í sjónvarps-
viðtali á sunnudag. Aðspurður
kvaðst hann viss um að forseta-
kosningum yrði flýtt vegna veik-
inda Jeltsíns og að hann myndi
fara með sigur af hólmi. Hann
sagði engar líkur á að kosningarn-
ar yrðu árið 2000, þegar kjörtíma-
bil forsetans rennur út.
„Veikindi forsetans eru ekki
fyrst og fremst heilsufarslegt
vandamál, heldur pólitískt," sagði
fréttaskýrandi rússneska sjón-
varpsins NTV. „Meðan spár lækn-
anna eru bjartsýnar eru póiitísku
horfurnar slæmar.“
Embættismenn „ráðalausir“
Viktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra er enn í fríi skammt frá
Moskvu og hvorki hann né Ana-
tolí Tsjúbajs, skrifstofustjóri for-
setans, hafa tjáð sig opinberlega
um veikindi Jeltsíns. „Embættis-
mennirnir vita ekki hvað þeir eiga
að segja," sagði fréttaskýrandi
NTV um þessa þögn. „Svo virðist
sem þeir séu ráðalausir eða jafnvel
skelkaðir."
Jeltsín hafði aðeins starfað í
tvær vikur í Kreml eftir hjarta-
skurðaðgerðina fyrir tveimur
mánuðum þegar hann fór á
sjúkrahúsið að nýju. Langvinn
veikindi hans hafa valdið umræðu
um hvort breyta eigi stjórnar-
skránni til að draga úr völdum
forsetans og auka völd þingsins.
Eitt dagblaðanna í Moskvu sagði
á laugardag að ef til vill væri tíma-
bært að Jeltsín drægi sig I hlé
vegna veikindanna.
Reuter
ELDSÚLA stendur aftan úr geimferj-
unni Atlantis er hún hefur sig á loft
frá Canaveralhöfða.
Kýpurdeilan
Segja 16
mánuði til
stefnu
Nikosíu. Reuter.
DREGIÐ hefur úr ótta við yfirvof-
andi átök milli Tyrkja og Kýpur-
Grikkja en Kýpurstjóm segir, að
flugskeytunum, sem hún ætlar að
kaupa af Rússum, verði komið upp
eftir 16 mánuði hafi þá ekki verið
fundin lausn á Kýpurdeilunni.
Yiannakis Cassoulides, talsmaður
Kýpurstjómar, sagði að loknum fundi
GÍafcos Clerides Kýpurforseta með
Carey Cavanaugh, fulltrúa Banda-
ríkjastjómar, að það, sem nú þyrfti
að gera, væri að setjast niður og finna
pólitíska lausn á Kýpurdeilunni. Sagði
hann, að 16 mánuðir væra nægur
tími til þess en liðin eru 23 ár síðan
Tyrkir lögðu norðurhlutann og þriðj-
ung eyjarinnar undir sig. í síðustu
viku hótuðu þeir nokkram sinnum að
beita hervaldi ef Kýpurstjóm kæmi
fyrir S-300-fIugskeytum, sem hún
ætlar að kaupa af Rússum.
------» ♦ ♦
Ítalía
Atta manns
bíða bana í
lestarslysi
Piacenza. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti átta manns biðu
bana og þrjátíu slösuðust þegar hrað-
lest fór af sporinu og rakst á há-
spennumöstur í norðurhluta Ítalíu á
sunnudag. Verið er að rannsaka or-
sök slyssins og er talið að lestin hafí
verið á of miklum hraða.
Öryggislögreglan í Róm sagði að
ekkert benti t;l að lestin hefði farið
af sporinu vegna skemmdarverka.
Nokkrir stjórnmálamenn höfðu getið
sér þess til þar sem Francesco Cos-
siga, fyrrverandi forseti Ítalíu, var í
lestinni. Hann sakaði ekki og flaug
síðar til Rómar.
Lestin var á leið frá Mílanó til
Rómar. Slysið varð þegar lestin fór
í beygju nálægt Piacenza; um 50 km
sunnan við Mílanó.
• •
Onnur misheppnuð tilraun til hnattflugs í loftbelg á einni viku
Reuter
BELGFAR belgísk-svissnesks leiðangurs stígur upp á við yfir svissnesku Ölpunum á sunnudag en hnattflugstilraunin stóð aðeins í sex stundir.
Genf, London. Reuter. ^
„Ottuðumst að olíugufum
ar yfirbuguðu okkur
SVISSNESKI belgfarinn Bertr-
and Piceard sagðist i gær hafa
hætt hnattflugstilraun í loftbelg
á sunnudag vegna þrálátrar
olíugufu í klefa þeirra Wims
Verstraetens. Lentu þeir fari
sínu á Miðjarðarhafi sex stund-
um eftir flugtak í svissneska
bænum Chateau d’Oex á sunnu-
dag.
Veðurfarsaðstæður til belg-
flugs voru eins og best verður á
kosið er Piccard og Verstraeten
lögðu upp. Eftir þrjár stundir
byrjaði olíufnykur hins vegar
að angra þá. Gátu þeir ekki
fundið út hvort gufurnar bærust
frá steinoliuhitabúnaði belg-
hylkisins eða hiturum, sem hita
áttu loftbelginn upp. „Ákvörð-
unin var mjög erfið, en við óttuð-
umst að gufurnar yfirbuguðu
okkur. Sviði í augum og verkur
í hálsi var orðinn óbærilegur.
Það lá fyrir áður en lagt var
upp, að við ætluðúm ekki að
tefla á tvær hættur, heldur hafa
öryggið í fyrirrúmi,“ sagði Picc-
ard.
Hann sagðist hafa kosið frem-
ur að lenda á sjó en landi til að
belgurinn og belgfarið skemmd-
ust sem minnst. Reyndist búnað-
urinn í góðu ásigkomulagi mætti
nota hann til nýrrar hnattflugst-
ilraunar seinna meir.
I hnattfluginu hugðust Piccard
og Verstraeten leggja að baki
um 38 þúsund kílómetra en belgf-
ar hefur til þessa lengst flogið
viðstöðulaust 11.270 kílómetra.
Þá hefur belgfar lengst verið
viðstöðulaust á lofti i fimm sólar-
hringa en þeir gerðu ráð fyrir
að vera 15 til 20 daga. Saman
hafa Piccard og Verstraeten
Iengi flogið loftbelgjum. Árið
1992 fóru þeir með sigur af hólmi
r kappflugi yfir Atlantshaf.
Branson hyggstreyna
aftur í nóvember
Richard Branson, breski
auðkýfingurinn sem gerði mis-
heppnaða hnattflugstilraun í síð-
ustu viku, fór til Chateaux d’Oex
um helgina og hvatti Piccard og
Verstraeten til dáða. Skömmu
eftir flugtak þeirra fór hann á
loft í einkaþotu sinni og hringsól-
aði um belgfarið i 30 þúsund feta
hæð. „Þvi fylgdi óvenjuleg til-
finning. Ég finn mjög til með
þeim, en eftir að hafa gengið í
gegrrum samskonar reynslu sjálf-
ur, er gott að þá sakaði ekki,“
sagði Branson í gær. Sjálfur
sagðist hann ráðgera aðra til-
raun til viðstöðulauss belgflugs
umhverfis jörðina næstkomandi
nóvember.
Bandarískur belgfari, Steve
Fossett, er í startholunum og
takist hnattflugstilraun hans
verður þó væntanlega ekkert af
annarri tilraun Bransons.