Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 23 ERLENT Mál gegn Clinton fyrir hæstarétti Yítisengill skotinn til bana 26 ÁRA félagi í bifhjólageng- inu Vítisenglum í Danmörku var skotinn til bana í Álaborg á föstudag. Lögreglan handtók 14 félaga í öðru bifhjólagengi, Bandidos, vegna rannsóknar málsins. Félagi í sænsku bifhjólagengi var einnig fluttur á sjúkrahús eftir skotbardaga nálægt Hels- ingborg í gær. Ekki var vitað hvort tengsl væru á milli bar- daganna en óttast er að nýtt stríð sé að blossa upp milli gengjanna. Átta manns hafa beðið bana í átökum gengjanna í Svíþjóð, Danmörku og Noregi á þremur árum. Hashimoto bjartsýnn RYUTARO Hashimoto, forsæt- isráðherra Japans, kvaðst í gær vona að samningaviðræður gætu hafist sem allra fyrst við skæruliða sem halda enn 74 mönnum í gíslingu í bústað jap- anska sendiherrans í Lima. Fyrirhuguðum fundi skærulið- anna með samningamönnum stjórnarinnar í Perú var frestað á sunnudag þar sem skærulið- arnir héldu til streitu þeirri kröfu sinni að 400 félögum þeirra yrði sleppt úr fangelsum. Þjarmað að Harnisch FAST er nú lagt að Hanno Harnisch, vinsælum forystu- manni í flokki fyrrverandi kommúnista í Þýskalandi, Flokki lýðræðislegs sósíalisma, að segja af sér vegna ásakana um að hann hafi njósnað fyrir Stasi, leyniþjónustu kommún- istastjórnarinnar í Austur- Þýskalandi. Harnisch viður- kenndi í vikunni sem leið að hann hefði verið knúinn til að njósna fyrir Stasi frá árinu 1976 en í gær bentu nýjustu fréttir til þess að hann hefði sjálfur boðist til að starfa fyrir leyniþjónustuna árið 1971. Paris Match greiði sekt DÓM- STÓLL í París dæmdi í gær viku- blaðið París Match til að greiða 100.000 franka, jafnvirði tæpra 13 milljóna króna, í sekt fyrir að birta tvær myndir sem teknar voru af Franeois Mitterrand, fynverandi forseta Frakk- lands, á dánarbeðinu. Blaðinu var einnig gert að greiða nán- ustu ættingjum Mitterrands einn franka, sem svarar tæpum 13 krónum, hveijum í skaða- bætur vegna myndbirtingar- innar. Dæmdur fyrir smygl KÍNVERSKUR dómstóll dæmdi í gær bandarískan kaupsýslumann, William Ping Chen, í tíu ára fangelsi fyrir að smygla 238 tonnum af „út- lendu rusli“ til Kína í ágóða- skyni. Manninum var einnig gert að greiða sem svarar 4 milljónum króna í sekt og lög- reglunni var fyrirskipað að vísa honum úr landi. Washington. Reuter. HÆSTIRÉTTUR í Bandaríkjunum fjallaði í gær um það hvort rétta mætti í máli, sem hefur verið höfðað gegn Bill Clinton Bandaríkjaforseta vegna meints kynferðislegs áreitis, á meðan hann situr í embætti, eða hvort fresta verði málaferlunum þar til kjörtímabili forsetans lýkur. Búist er við úrskurði í sumar. Málið snýst ekki um ásakanirnar, sem hafa verið birtar í smáatriðum. Rétturinn átti ekki að fjalla um það hvort fótur væri fyrir ásökununum. í fyrsta sinni átti að skera úr um það hvort stefna mætti sitjandi for- seta Bandaríkjanna og fara fram á bætur vegna atviks, sem átti sér stað áður en hann settist í embætti. „Ólíkt öðrum bandarískum emb- ættismönnum ber forsetinn einn ábyrgð á heilu sviði stjórnsýslunn- ar,“ sagði Robtert S. Bennett, lög- fræðingur Clintons, í þeim gögnum, sem lögð voru fyrir réttinn til þess að fá málinu frestað. „Jafnvel þótt forseti hefði á endanum sigur mundu langvinn málaferli vegna einkamála gera honum ófært að veita kröftum sínum óskiptum til eins erfiðasta starfs í heimi.“ Forsetinn hafinn yfir lög? Lögmaður Jones, Gilbert K. Da- vis, sagði hins vegar í þeim gögnum, sem hann sendi réttinum, að skjól- stæðingur sinn ætti rétt á því að málið yrði tekið fyrir nú þegar. Hann sagði að höfundar stjórnar- skrárinnar hefðu „ekki ætlast til þess að forsetinn yrði hafmn yfir lögin og áskildu forsetum því engin persónuleg forréttindi í ætt við þau, sem kóngafólk hefur“. I áfrýjun Clintons sagði að mála- ferli gætu stefnt í hættu skiptingu dómsvalds og framkvæmdavalds. Dómari ætti ekki að geta haft áhrif á það hvaða mál hafi forgang i störf- um forseta stangist dagskrá hans á við dagskrá réttarins. Jones heldur því fram að Clinton hafi farið á fjörur við sig á hótelher- bergi í Little Rock í Arkansas árið 1991 þegar hann var þar ríkis- stjóri. Hún segir að hann hafi leyst niður um sig og kveðst geta lýst „sérkennum“ kynfæra hans. Clinton hefur vísað ásökunum Jo- nes á bug og kveðst aldrei hafa hitt hana. Jones stefndi Clinton árið 1994 og krefst 700 þúsund dollara (tæp- lega 50 milljóna króna) í skaðabætur. Hæstiréttur úrskurðaði árið 1982 að ekki væri hægt að fara í skaða- bótamál við forseta vegna embætt- isstarfa og það ætti einnig við eftir að þeir létu af embætti. Það gæti haft áhrif á ákvarðanir forseta að vita að hann gæti átt málsókn yfir höfði sér. Allianz_____________ eftirlaunasparnaður Hefur þú eitthvað að hlakka til í ellinni, eins og Páll? f k. *mmssz Páll hóf eítivlaunaspamaó hja Allianz 30 ára gamall og hyggst leggja til hliðar 10.000 kr. a mánuúi. Auk þeinar ávöxtunar sem hann a i \ ændum er lrann, meú þessu sparnaúarlormi, líftryggúur fyrir ö.242.860 kr. \ iú upphat samnings. l’egar l’all verúur 62 ara a hann von a 1 1.563.270 krónum i skattfrjalsri eingreiúslu, sem era.vtluú ávöxtun lramtíúai. L l hann kvs hins vegar aú avaxta upphæúina lengur. a hann von a.. 12.566.700 kr. 63 ára eða 13.645.170 kr. 64 ára eða 14.806.710 kr. 65 ára eða 16.057.665 kr. 66 ára eða 17.404.875 kr. 67 ára Hafðu samband og kannaðu hvernig dæmið gæti litið út hjá þér. Allianz Síöumúla 32, sími 588 3060 Dæmi þetta miðast við nð aldur tryggingartnka er 50 nr við upphaf sofnunar og reiknað er nieð að hann greiði 10.000 kr. a mantiði Reiknað er eftir verðskra Allianz L2M Abruftarif 5 ar. Gengi marksins miðast við 1 DM = 45 kr. Ofnngreinclar tölur byggjast a útreikningum framtiðaravoxtunar hja Allinnz. Mitterand

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.