Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Noregnr
Snjó-
flóða-
hættan
liðin hjá
Ósló. Morgunblaðið.
SÉRFRÆÐINGAR sögðu í
gær að ekki væri lengur hætta
á snjóflóðum á byggðir í
Troms-fylki í Norður-Noregi.
Um 200 íbúar sveitarfélagsins
Breidvik-eiði, sem urðu að
yfirgefa heimili sín vegna
snjóflóða á föstudag, voru þó
tregir til að snúa heim og ótt-
uðust að fleiri snjóflóð myndu
falla.
Þrír sérfræðingar í snjóflóð-
um könnuðu nokkur hættu-
svæði í Troms-fylki og komust
að þeirri niðurstöðu að þar sem
ekki væri spáð versnandi veðri
á næstu dögum væri ekki leng-
ur hætta á frekari snjóflóðum
i fylkinu. Þeir fóru um svæðin
á þyrlum og sáu að snjóflóð
höfðu fallið, sum nálægt
byggðum, en sögðu að hættan
væri liðin hjá að þessu sinni.
Um 140 af íbúunum 200,
sem flúðu frá Breidvik-eiði,
gistu á hóteli í Tromso á kostn-
að bæjarins, en yfirvöld sögðu
að þar sem hættan væri af-
staðin yrði fólkið að greiða
sjálft fyrir gistinguna ef það
vildi ekki snúa heim.
„Hver ber ábyrgðina ef nýtt
snjóflóð fellur eftir að við snú-
um heim?“ spurði einn íbúa
Breidvik-eiðis, Eva Breivik.
„Hvers vegna geta þeir ekki
sprengt stóru snjóskaflana i
fjallinu niður meðan byggðin
er mannlaus? Ég er hrædd en
neyðist til að fara heim.“
Um 40 vegir eru lokaðir
vegna fannfergis og snjóflóða-
hættu í Norður-Noregi. Óveð-
ur geisaði einnig í vesturhluta
landsins i gær en þar var ekki
talin hætta á snjóflóðum á
byggðir.
ERLELNT
Bandaríkin
í kuldagreipum
Rússnesk kjarnorkutækni
Yilja auka
útflutning
Moskvu. Reuter.
MIKLIR kuldar eru í Miðríkjum
Bandaríkjanna og talið er, að 31
maður hafi týnt Iífi frá því á
fimmtudag. Hefur verið lýst yfir
neyðarástandi í Suður-Dakótaen
þar eru skaflarnir víða fimm
metra djúpir. Er miklu kaldara
á þessum slóðum nú en í meðal-
ári og náði norðanstrengurinn
allt suður til Texas. Þar var rúm-
lega tveggja stiga frost um helg-
ina en meðalhitinn á þessum tíma
er þar annars rúmlega 12 gráð-
ur. Mikið fannfergi er líka í Aust-
urríkjunum sums staðar en þessi
mynd var tekin í Buffalo í New
York. Þær systurnar Frances og
Germain Niedzialkowski, báðar
um áttrætt, eru hér að moka frá
húsdyrunum.
VIKTOR Mikhaílov, kjarnorkumála-
ráðherra Rússlands, sagði í gær rúss-
nesku stjómina stefna að auknum
útflutningi á rússneskri kjarnorku-
tækni, en kjamorkuiðnaður Rúss-
lands stendur nú frammi fyrir stór-
kostlegum fjárhagsvanda, auk þess
sem kjamorkuandstæðingum innan
Rússlands er að vaxa fiskur um hrygg.
í skýru svari við gagnrýni, sem
borizt hefur aðallega frá Bandaríkj-
unum, varði Mikhaílov samning
Rússa við írani um kaup hinna síð-
arnefndu á rússneskri kjarnorku-
tækni. Hann greindi jafnframt frá
því, að Rússar myndu láta verða af
byggingu kjarnorkuvera í Kína og
ljúka samningum um svipaðar fram-
kvæmdir á Indlandi.
„Það þarf að auka útflutning,"
sagði Mikhaílov á blaðamannafundi.
„Það er engum stætt á því að skipta
löndum heims upp í ríki sem njóta
velþóknunar og þau sem gera það
ekki... Þetta myndi aðeins ýta und-
ir hermdarverkastarfsemi," sagði
hann. „Það er betra að vera vinir
og vinna saman."
Fjármögnunarvandamál
Mikhaílov sagði að nú þegar störf-
uðu 150 rússneskir sérfræðingar
með írönum að byggingu kjarna-
kljúfs af gerðinni VVER-440. íranir
vilja að smíðaðir verði fjórir slíkir
til viðbótar, en Mikhaílov sagði að
það væri þá aðeins mögulegt, ef
takast myndi að leysa ákveðin ijár-
mögnunarvandamál.
Vestrænir sérfræðingar áætla, að
bygging kjarnakljúfanna í íran, sem
Bandaríkjamenn saka um að styðja
við alþjóðlega hermdarverkastarf-
semi, kosti um tvo milljarða Banda-
ríkjadala (um 120 milljarða íslenskra
króna).
Reuter
Hátíðahöld vegna rík-
isafmælis Dana-
drottningar undirbúin
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
FORMLEG hátíðahöld vegna ald-
arfjórðungs ríkisafmælis Mar-
grétar Þórhildar Danadrottning-
ar hefjast í dag. Fulltrúar íslands
við hátíðahöldin eru Ólafur
Ragnar Grímsson forseti Islands
og kona hans Guðrún Katrín
Þorbergsdóttir. Allir þjóðhöfð-
ingjar Norðurlanda koma og auk
þess konungsfjölskyldur Evrópu,
sem flestar eru skyldar drottn-
ingunni eða tengdar.
Fyrir hádegi verður tekið á
móti þjóðhöfðingjum Norður-
landa og fleiri gestum, en þeir
munu búa í gestaibúðum Amali-
enborgar. Siðar um daginn verð-
ur guðsþjónusta í Hallarkirkju
Kristjánsborgarhallar, en þessi
einkakirkja konungsfjölskyld-
unnar verður nú notuð í fyrsta
skipti eftir bruna fyrir nokkrum
árum. I kvöld verður svo hátíðar-
veisla. A morgun verður drottn-
ingin hyllt á svölum Amalien-
borgar, en siðan keyrir hún í
opnum vagni til hádegisverðar i
Ráðhúsinu. Síðdegis er gestamót-
taka og síðan hátiðasýning i Kon-
unglega leikhúsinu um kvöldið
og næturverður i þeim hluta
Amalienborgar, sem Friðrik
Reuter
MARGRÉT Danadrottning
hefur nú setið við völd í aldar-
fjórðung og verður því fagnað
með hátiðahöldum.
krónprins býr í. Um helgina held-
ur drottningin og fjölskylda
hennar upp á ríkisafmælið í
Arósum.
Fyrir helgi var drottningin far-
in að taka á móti gjöfum í tilefni
tímamótanna, ásamt Henrik prins
og hundunum þeirra. Sumir gef-
enda hafa fengið fengið leyfi til
að afhenda gjafir sínar og mæta
þá með þær, taka í höndina á
hjónunum, afhenda gjöfina og
leyfa svo þeim næsta að komast
að. Drottningin hafði útbúið lista,
þar sem hún óskaði meðal annars
eftir hlutum í nýuppgerða álmu
Amalienborgarhallar.
Danska ríkisútvarpið gaf upp-
tökur með gömlum útvarpsþátt-
um um og með Friðrik 9., föður
drottningarinnar, en hnífapör,
húsgögn og annar húsbúnaður,
bækur og geisladiskar eru ann-
ars dæmigerðar gjafir, auk fjár-
muna í sjóð drottningar og prins-
ins, sem styrkir margvíslega góð-
gerðarstarfsemi.
Dönsk og sænsk umræða um efnahags- og myntbandalag
Danskt áhrifaleysi
og sænsk skattlagning
SVÍAR og Danir standa í ólíkum
sporum hvað aðild að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu varðar, þar
sem Danir hafa fengið undanþágu
frá aðild en Svíar hafa undirritað
Maastrichtsamkomulagið í heild
sinni, en hafa þó ekki tekið endan-
lega afstöðu. I báðum löndum er
ákaft rætt hvort hagur sé af aðild
eða ekki. Nýlega hafa tveir málsmet-
andi menn látið ljós sitt skína um
þessi efni, Göran Persson, forsætis-
ráðherra Svía, og Erik Hoffmeyer,
fyrrverandi seðlabankastjóri Dana,
og leggja þeir áherslu á ólík atriði.
Persson vill ekki móta
skoðanir kjósenda
Persson skrifaði nýlega grein í
Svenska Dagbladet þar sem hann
lýsir aðstöðu Svía og eigin afstöðu.
Þeir, sem álíta að stjórnmálamenn
séu til þess settir að leiða og stjórna,
komast fljótt að því við lestur grein-
ar hans að Persson álítur hlutverk
sitt fremur að efna til umræðna
heldur en að segja kjósendum hvað
hann álíti sjálfur.
Fyrri hluti greinar Perssons er
úttekt á efnahagsþróun í Svíþjóð
Danir og Svíar ræða nú
ákaft hvort hagur
sé í aðild að Efnahags-
og myntbandalagi Evr-
ópu eður ei. Sigrún
Davíðsdóttir fjallar um
sjónarmið tveggja
forystumanna.
EVRÓPA^
undanfarin ár. Persson segir að
ástandið hafi stórversnað á árunum
1991-1994 er hægriflokkarnir sátu
í stjórn undir forsæti Carls Bildts
formanns Hægriflokksins, en lætur
þess ógetið að ástandið þá hafi að
hluta verið arfleifð áratuga jafnað-
arstefnu. Kreppunni hafi núverandi
stjórn sigrast á og nú sé efnahags-
staða Svía sterkari en Þjóðveija.
Persson segir myntbandalagsaðild
ekki aðeins snúast um efnahagsmál,
heldur um þróun Evrópusambands-
ins. Svíar hafi gengið í ESB sem
samstarf sjálfstæðra þjóða. „Verður
ESB þá áfram samstarf sjálfstæðra
þjóða eftir að þriðja stig myntsam-
bandsins verður komið á? Ég álít
að það liggi ekki í augum uppi,“
segir Persson.
Forsætisráðherrann segir að pen-
ingastefnan verði á yfírþjóðlegu
valdsviði og þá sé spurning hvort
fjármálastefnan, þar með talin skatt-
lagning, verði það ekki líka. Óljóst
sé hvort stöðugleikasáttmálinn
myndi jafnvægi þarna á milli. Þá
geti Evrópuþingið þurft að ákvarða
skattlagningu fyrir allt ESB og þar
með verði samstarfið ekki lengur
samstarf sjálfstæðra þjóða, heldur
stefni á evrópskt sambandsríki, sem
sé allt annað en Svíar hafi kosið
yfír sig í þjóðaratkvæðagreiðslu um
ESB-aðild.
Persson segist því ekki skilja
Erik Göran
Hoffmeyer. Persson.
hvernig Bildt geti hvatt sig til að
taka eindregna afstöðu með mynt-
bandalagsaðild til að vísa Svíum leið-
ina. Hana þurfi að ræða, því að hún
geti á endanum snúist um rétt Svía
til að ákveða skatta sína sjálfir.
Sjálfur vilji hann því hafa frum-
kvæði að umræðum um myntsam-
bandið, en ekki að stuðla að því að
forréttindahópar komi því á án sam-
ráðs við Evrópubúa. Ekki þýði að
afhenda borgurunum það sem full-
gerðan hlut með stundatöflu, án
samráðs við þá.
Að standa utan við pólitíska
driffjöður ESB
Erik Hoffmeyer hefur löngum
verið álitinn tortrygginn í garð
myntbandalags líkt og þótti vera um
starfsbræður hans í Bundesbank,
þýska seðlabankanum, en ef marka
má grein hans í Politiken dámar
honum ekki að Danir standi utan
þess, hinn pólitíski samruni Evrópu
fari þar fram.
Hoffmeyer segist fyrir 10-15
árum síðan hafa slegið því alvöru-
laust fram við Þjóðverja að ekkert
yrði af myntbandalagi, nema Evr-
ópuþjóðirnar færu að hegða sér eins
og Þjóðverjar. Viðmælandi hans hafi
þá álitið þetta óvinveitta fullyrðingu
og að réttara væri að segja að ekk-
ert yrði af myntbandalaginu nema
að hin löndin sæju að þýska leiðin
í efnahagsmálum væri sú besta.
Hoffmeyer segir að þýsk-franska
umræðan um myntsambandið, hin
leiðandi umræða, hafi harðnað veru-
lega undanfarið og nefnir ýmis deilu-
mál Frakka og Þjóðveija. Frakkar
hafi meðal annars fengið sínu fram-
gengt við gerð stöðugleikasáttmál-
ans; að ekki verði um að ræða sjálf-
krafa sektargreiðslur ríkja, sem missi
tökin á efnahagsmálunum, heidur
verði það matsatriði í hvert skipti.
Þar sem það er nú að sögn Hoff-
meyers útbreidd skoðun að helstu
kostir myntsambands séu ekki efna-
hagslegir, heldur nánara stjórnmála-
samstarf, telur hann að á næstunni
verði þörf á að skýrgreina í hverju
hinn stjórnmálalegi samruni eigi að
felast. Þótt Persson undrist að evr-
ópskir stjórnmálamenn tali um sam-
eiginiegt ríki, sé það engin ný bóla,
þó að flestir tali skýrlega gegn
Bandaríkjum Evrópu. Ef takist að
koma á myntsambandi margra landa
með hófstilltu stjórnmálalegu
augnamiði muni löndin utan þess
ekki eiga neina aðild að þróun þess
og það verði ekki aðlaðandi staða
fyrir Dani.
Með öðrum orðum þá óttast hag-
fræðingurinn danski pólitískt áhrifa-
leysi Dana utan myntsambandsins,
en sænski stjórnmáiamaðurinn hefur
meiri áhyggjur af skattlagningu hjá
yfirþjóðlegu evrópsku valdi.