Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 36

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Deilan um hráefnisskort- inn, úrskurður Félagsdóms DEILA sú sem stóð í haust milli Fiskiðj- unnar og Vlf. Fram og endaði með úr- skurði Félagsdóms nú í desember, vakti tals- verða athygli á lands- vísu. Er það eðlilegt, þar sem niðurstaða málsins snerti margt fólk; raunar allt fisk- - vinnslufólk á landinu sem og stjórnendur fiskvinnslufyrirtækj a. Eitthvað hefur borið á því að ekki hafi allir gert sér grein fyrir aðalatriðum þessa máls. Verður því gerð tilraun hér á eftir til að útskýra málið og varpa á það því ljósi, að þeir sem áhuga hafi geti betur gert sér grein fyrir því. Dómur Félagsdóms frá 17. des. 1996 í gr. 16.8.1. í aðalkjarasamn- ingi stendur: „Ef horfur eru á lang- vinnri rekstrarstöðvun vegna hrá- efnisskorts er fyrirtæki þó jafnan heimilt með tilkynningu til starfs- fólks, vinnumiðlunar og verkalýðsfé- lags að boða vinnslustöðvun með fjögurra vikna fyrirvara". Þ. 17. desember sl. felldi Félags- dómur úrskurð í ágreiningsmáli Verkalýðsfélagsins Fram við Fiskiðj- una Skagfirðing. Stóð deilan um lög- mæti þess að tilkynna vinnslustöðv- un við frystideild fyrirtækisins á Sauðárkróki og saltfískvinnsluna á Hofsósi frá 12. ágúst til 1. október. í raun og veru var tekist á um þetta eina orð; hráefnisskortur. Um túlk- unina á þvi gekk dómurinn - félag- inu og starfsfólki í vil, sem kunnugt ' er. Við málflutninginn kom fram að fyrirtækið kvað ástæðu þessarar ákvörðunar vera hráefnisskort og síðan taprekstur á þessum umræddu vinnslugreinum. Vlf. Fram taldi hinsvegar að eftir að það tímabil hófst, að sannanlega væri til nægi- legt hráefni á vegum fyrirtækisins, gæti ekki staðist að hægt væri að halda fólki án vinnu vegna hráefniss- korts. Taprekstur kæmi þessu máli ekki við. Væri hann til staðar væru önnur rekstrarúrræði sem ættu við en þau, að hætta vinnslu og setja starfsfólkið á atvinnuleysisbætur. Atvinnuöryggi Lengi framan af öldinni sem senn er liðin, var atvinnuöryggi þess fólks sem hafði afkomu sína af vinnu við fisk í landi lítil. í áratugi fylgdi þetta öryggisleysi reyndar ýmsum öðrum starfsgreinum, en eftir því sem atvinnulífið varð almennt flölbreyttara og fólk gat ráðið sig í „fasta“ vinnu, var áber- . andi hvað þetta átti einkum við um fisk- vinnslufólk og var reyndar mjög bundið því hvernig hagaði til með hráefnisöflun. Verk- stjórar gátu sagt við fólkið að kveldi, að ekki væri þörf fyrir vinnu þess næsta morgun eða næstu daga. Það yrði látið vita. Sumsstaðar var notuð sú aðferð að draga flagg að húni á áberandi stað, sem merki þess að nú hæfist vinna næsta dag. Kauptryggingarsamningur Á áttunda áratugnum var farið að vinna að því að breyta þessu ástandi. Þá var gerður hinn fyrsti kauptryggingarsamningur, sem fól það m.a. í sér að tilkynna varð með nokkurra daga fyrirvara ef vinnslu- stöðvun vegna hráefnisskorts var framundan. Með betur búnum skip- um og aukinni tækni við veiðar og vinnslu var um leið hægt að gera meiri kröfur til fyrirtækjanna um jafnari hráefnisöflun. Enda var sá tilgangurinn, jafnframt kröfunni um aukið atvinnuöryggi. 1986 voru gerð- ar verulegar breytingar á kauptrygg- ingarsamningnum. M.a. var það, að væru horfur á hráefnisskorti, bæri að tilkynna vinnslustöðvun með fjög- urra vikna fyrirvara. Að loknum þeim tíma eru þá greiddar atvinnuleysis- bætur, eftir rétti hvers og eins. Við kjarasamningagerð 1995 voru gerðar breytingar á ýmsum þáttum þessa samnings, sem flestar miðuðu að því að að auðvelda fyrirtækjunum að- gang að opinberu fé til að geta hald- ið fólki á launum.Samkv. reglugerð um greiðslu atvinnuleysisbóta í hrá- efnisskorti, er heimilt að tilkynna vinnslustöðvun með þriggja daga fyr- irvara, enda haldi fólk þá dagvinnu- launum. Hefur þá fyrirtækið rétt á að fá endurgreitt frá Atvinnuleysis- tryggingasjóði verulegan hluta launakostnaðarins, eða sem nemur ca. 85%. Hvað er hráefnisskortur? Löngum hefur verið uppi nokkur ágreiningur um túlkun á orðinu „hrá- efnisskortur" í þessu sambandi. Hafa fiskvinnslufyrirtæki sótt í að túlka það svo, að þeim sé heimilt að búa Þegar það var sannan- lega á valdi fyrirtækis- ins að geta haft hráefni til vinnslu, segir Jón Karlsson, var þá hægt að segja „hráefniss- kortur“? til „hráefnisskort". Hefur t.d. viljað til að skip hafa verið látin sigla með afla til sölu erlendis, en starfsfólki tilkynnt vinnslustöðvun og það sett á atvinnnuleysisbætur. Af hálfu verkalýðsfélaganna hefur því sjónar- miði jafnan verið haldið fram, að hráefnisskortur verði að koma til af ófyrirsjáanlegum ástæðum t.d. óveðri, stórfelldum bilunum, bruna eða skipstapa. Um þetta var í raun- inni deilt fyrir Félagsdómi. Reyndar hafa mál af þessu tagi farið fyrir dóm áður og niðurstaða fallið á annan veg en nú var. Það virðist hinsvegar stafa af því að forsendur og málsatvik hafa verið með öðrum hætti. Niðurstaða dómsins Nú lá fyrir nægilega „hreint“ mál, þannig að dómurinn þurfti ekki að taka tillit til annars en aðalatriðis- ins: Þegar það var sannanlega á valdi fyrirtækisins að geta haft hrá- efni til vinnslu, var þá hægt að segja „hráefnisskortur"? Fyrir lá að frá 1. september 1996 hafði fyrirtækið yfir að ráða hátt í 10 000 þorskígild- istonnum. Niðurstaða dómsins í þessu efni var ótvíræð. Þetta er ólög- mætt frá og með 1. september. Rekstrarlegar forsendur, s.s. tap- rekstur í ákveðinni rekstrareiningu eða deild fyrirtækisins, er ekki hægt að taka til greina. Að ráðstafa skip- um fyrirtækisins til veiða annars- staðar, t.d. í Smugunni, kemur þessu ekki við. Að stöðva vinnslu með þeim hætti sem hér var gert - og hefur raunar oft verið gert áður, stenst ekki. Þessu ákvæði kjarasamnings- ins er ekki hægt að beita sem ai- mennu rekstrarúrræði. Þetta er neyðarréttur sem ekki er heimilt að nota nema sem slíkan. Niðurstaða dómsins er sú, að ekki ber síður að taka tillit til hagsmuna starfsfólksins en hagsmuna fyrirtækjanna. Höfundur er formaður Verkalýðsfélagsins Fram á Sauðárkróki. Jón Karlsson Rökþrota for- stjóri ÁTVR I MORGUNBLAÐ- INU þann 10. janúar sl. birtir Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, grein sem á m.a. að heita svar við grein minni frá 24. desember sl. um verð- myndun og álagningu ÁTVR við sölu á einum kassa af íslenskum bjór. Grein hans ber því miður öll einkenni rökþrota en hann velur að svara mér með út- úrsnúningi, rangfærsl- um og segist loks hættur að skrifa um málið. Útúrsnúningar í stað þess að gera athugasemd- ir við nákvæma verðútreikninga Þó Höskuldur telji mig best heima í hænsna- rækt, segir Jón Stein- dór Valdimarsson, treysti ég mér vel til þess að fullyrða að 403 kr. séu nálægt 50% af 800 kr. sem fylgdu grein minni kýs Hös- kuldur heldur að kalla mig hávaða- mann sem þekki betur til hænsna- ræktar en álagningarreglna ÁTVR. Þá beitir Höskuldur gamalkunnu stílbragði til að gera lítið úr við- mælanda sínum með því að nefna mig hvergi á nafn í grein sinni. Þetta heita sjálfsagt rö_k í stað hávaða í höfuðstöðvum ÁTVR og verður hann að eiga það við sjálfan sig telji hann slíkan máflutning sjálfum sér sæmandi. Rangfærslur Ég birti aftur tölur sem fylgdu með fyrri grein minni. Þar kemur glöggt fram að álagning ÁTVR er 402,59 kr. Þar er ekki talið með áfengisgjald, skilagjald eða um- sýsluþóknun. Þessar 402,59 kr. eru hrein álagning ÁTVR. Það kemur líka skýrt fram að verð bjórkassans frá íslenska framleið- andanum er 800 kr. í dæminu áður en áfengisgjald, skila- gjald og umsýsluþókn- un leggjast við. Það stendur því óhaggað þrátt fyrir grein Hö- skuldar að framleið- andinn fær 800 kr. í sinn hlut þegar ÁTVR tekur til sín 402,59 kr. Þótt Höskuldur telji mig best heima i hænsnarækt treysti ég mér vel til þess að full- yrða að 403 kr. séu nálægt 50% af 800 kr. í grein minni held ég því hvergi fram að áfengisgjald, skilagjald og umsýsluþóknun séu hluti af álagningu ÁTVR hvað þá að umrædd gjöld séu hluti álagn- ingar framleiðandans. Hér hiýtur Höskuldur að vita betur. Hættur að skrifa Höskuldur klykkir svo út með því að segja að hann muni ekki skrifa meira um málið. Ekki harma ég það í ljósi síðustu greinar hans. Ég bið lesendur hins vegar að skoða meðfylgjandi töflu og grein hans. Ég get jafnframt upplýst að í bjór- kútnum sem hann nefnir í grein sinni og kostar 7.340 kr. frá ÁTVR er hlutur framleiðandans 1.753 kr. en hlutur ÁTVR er u.þ.b. 694 kr. Það lætur því nærri að álagning ÁTVR nemi 39,6% af hlut framleið- andans í kútnum. kassi af bjór Verð framl. 800,00 Áfengisgjald 1.937,10 Skilagjald 135,12 Umsýsluþóknun 6,76 Samtals 2.878,98 0,3% heilds.ál. ÁTVR 8,64 Samtals 2.887,61 13% smásöluál. ÁTVR 375,39 Samtals 3.263,00 Vsk. 799,44 Samtals 4.062,44 Upphækkun ÁTVR 18,56 Útsöluverð ÁTVR 4.080,00 Heildarál. ÁTVR 402,59 Heildarál. ÁTVR sem hlutf. af innk.verði 50,3% Höfundur er aðst.framkvæmda- stjóri Samtaka iðnaðarins. Jón Steindór Valdimarsson Réttlátt og heiðarlegt þjóðfélag LENGI hefur verið rætt um sam- einingu vinstri manna og ekki er ólíklegt að sumum sé farið að leið- ast þófið. Að mínu mati er þessi umræða þó nauðsynleg þar sem fenn á eftir að stíga stærstu skrefin í átt að sameiningu jafnaðarmanna þó nokkur séu að baki. Þann 18. janúar ætlar ungt fólk að stofna samtök til þess að þrýsta á um samvinnu jafnaðarmanna fyrir næstu kosningar og stíga þar með enn eitt skrefið í átt að markmiðinu stóra. Ungliðahreyfingar Alþýðu- flokks og Alþýðubandaiags munu eiga formlega aðild að þessum samtökum auk einstakl- inga úr röðum Kvenna- lista og Þjóðvaka auk ■feinstaklinga sem ekki hafa starfað í hefð- bundnu stjórnmála- starfi áður. Stofnun samtakanna var form- lega ákveðin á Bifröst í nóvember á síðasta ári og hefur frá þeim tíma verið unnið ötullega að undirbúningi m.a. *með málefnastarfi, kynningu og síðast en ekki síst opn- un skrifstofu á Lauga- vegi 103 þar sem sam- tökin munu starfa á næstunni. Markmið samtakanna er ekki að kijúfa vinstri menn enn og aftur og ijúka í framboð heldur miklu frekar að stuðla að málefnalegri umræðu um sameiningu, til- gang hennar og mark- mið. Umræðuvett- vangur um réttlátt og heiðarlegt þjóðfélag er nauðsynleg- ur og mikil- vægt að allir fái tæki- færi á að leggja þar orð í belg. Umræða um afkomu og framtíð venjulegs fólks sem löngu er hætt að fylgj- ast með pólitík, enda er pólitík löngu hætt að snú- ast um venjulegt fólk, afkomu fjölskyldna og aðbúnað barna. í dag er það svo að þorri almenn- Hreinn Hreinsson ings er með lág laun sem varla duga til framfærslu, hvað þá fjárfestinga tii fram- tíðar. Það umhverfi sem íslensku launa- fólki er boðið upp á hér á landi er orðið gersamlega óþolandi. Hin dæmigerða ís- lenska fjölskylda þarf tvær fyrirvinnur sem vinna rúmlega fullan vinnudag til þess að ná endum saman með öllum þeim afleiðing- um sem það hefur á uppeldi og aðbúnað barna. Samt er það svo að mjög stór hluti venjulegs Iaunafólks ræð- ur hreinlega ekki við að framfæra sér og sínum samhliða því að koma þaki yfir höfuðið auk alls annars, svo ekki sé talað um þá sem hafa ekki vinnu. Hvaða skilaboð er verið að senda þessu fólki? Fólki sem gerir sitt besta í lífsbaráttunni en uppsker það eitt að ráða ekki við daglegan heimilisrekstur og hefur Ungliðahreyfingar AI- þýðubandalags og Al- þýðuflokks munu eiga, segir Hreinn Hreins- son, formlega aðild að þessum samtökum. ekki tíma til að ala upp börnin sín. Þessu fólki er verið að senda þau skilaboð út um allt þjóðfélag að það standi sig ekki. Fólk kemur í Húsnæðisstofnun og þarf að semja um framlengingu lána eða ný greiðsluerfiðleikalán, þetta upplifir fólk sem niðurlægingu vegna þess að það er að gera sitt besta. Fólk þarf að mæta til bankastjóra og semja við hann um fresti og ný lán til að bjarga sér, þetta upplifir fólk sem niðurlægingu vegna þess að það er að gera sitt besta. Fólk upplifir mikla erfiðleika og upp- lausn í sinni eigin fjölskyldu þar sem enginn getur almennilega staðið sig í sínu hlutverki vegna tímaleysis og álags, fólk upplifir þetta sem niðurlægingu vegna þess að það er að gera sitt besta. Þann- ig er verið að niðurlægja almennt launafólk út um allt land í stað þess að umbuna fólkinu fyrir að halda þessu þjóðfélagi gangandi með dýrmætu vinnuframlagi sínu. Afleiðing þessa alls er vaxandi upplausn, agaleysi og vangeta fólks og áhugaleysi um að breyta sínu nánasta umhverfi. Fólk hefur verið barið til hlýðni í stað þess að virkja þann lífskraft sem býr í fólki. Þann sköpunarkraft sem flutti fslendinga út úr moldarkofum og inn í framtíð- ina á aðeins einum mannsaldri. Sú þjóð sem gat framkvæmt slíkt kraftaverk getur vel brotist úr þeim höftum fátæktar og óréttlætis sem í dag halda aftur af lífskjörum al- mennings. Það markmið að sam- eina krafta jafnaðarmanna í sterkt afl sem vinnur að almannahags- munum er því göfugt og tími til kominn að gefa venjulegu fólki tækifæri á að vinna að því markm- iði. Vonandi verður 18. janúar að- eins upphafið að nýrri framtíð þjóð- ar sem hefur markmið jafnaðar- manna að leiðarljósi. Höfundur er félagsráðgjafi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.