Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 43
I
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 43~ -
MINNIIMGAR
KAROLINA GUÐNY
INGÓLFSDÓTTIR
+ Karólína Guðný
Ingólfsdóttir
fæddist á Gríms-
stöðum á Hólsfjöll-
um 31. júlí 1932.
Hún lést á Sjúkra-
húsi Reykjavíkur 3.
janúar síðastliðinn
rúmlega 64 ára að
aldri. Foreldrar
Karólínu voru Ing-
ólfur Krisljánsson
bóndi, f. 8.9. 1889 í
Víðikeri í Bárðar-
dal, d. 9.6.1954 á
Akureyri, og Katrín
María Magnúsdóttir
frá Böðvarsdal í Vopnafirði, f.
13.10. 1895, d. 17.3.1978 í
Reykjavík. Systkini Karólínu
sem fallin eru frá eru Kristjana
Hrefna, f. 12.11. 1914, Hörður,
f. 22.2. 1916, Sigurður, f. 27.10.
1917, Ragna Ásdís, f. 23.6.1922
og Stefán Arnbjörn, f. 13.11.
1925. Eftirlifandi systkini eru
þau Baldur, f. 6.5.1920, Þórunn
Elísabet, f. 16.9. 1928, Jóhanna
Kristveig, f. 28.11. 1929, Krist-
ján Hörður, f. 9.5. 1931, Hanna
Sæfríður, f. 31.7.1932, sem var
tvíburasystir Karólinu, Birna
Svava, f. 13.1. 1938, Magnús og
Páll sem fæddir
voru 24.9. 1940.
Karólína var alin
upp í Hólseli hjá
Karen Sigurðar-
dóttir, f. 1.12. 1893,
d. 17.6. 1991 og
Birni Jónssyni,
bónda, manni henn-
ar, frá Geirastöðum
í Mývatnssveit, f.
14.7. 1887, d. 7.10.
1962 Hinn 1.12.
1953 giftist Karó-
lína eftirlifandi
eiginmanni sinum,
Steingrími _ Sig-
valdasyni, vélstjóra frá Ólafs-
firði, f. 18.4. 1932. Fyrsta bú-
skaparár sitt bjuggu þau á
Akureyri en síðan fluttust þau
til Ólafsfjarðar þar sem þau
dvöldust í 6 ár, 1953 til 1959.
Þaðan flyljast þau aftur til
Akureyrar i eitt ár, þar til þau
flytjast til Reykjavíkur þar sem
þau hafa búið síðan. Þau eign-
uðust soninn Björn Steingríms-
son, f. 31.5. 1953 á Akureyri.
Björn er búsettur í Danmörku.
Útför Karólínu fer fram frá
Neskirkju í dag og hefst athöfn-
in klukkan 10.30.
Vinur þinn er þér allt. Hann er
akur sálarinnar, þar sem samúð
þinni er sáð og gleði þín uppskorin.
Hann er brauð þitt og arineldur.
Þú kemur til hans svangur og í leit
að friði.
Þegar vinur þinn talar, þá and-
mælir þú honum óttalaust eða ert
honum samþykkur af heilum hug.
Og þegar hann þegir, skiljið þið
hvor annan. Því að í þögulli vináttu
ykkar verða allar hugsanir, allar
langanir og allar vonir ykkar til,
og þeirra er notið í gleði, sem krefst
einskis. Þú skalt ekki hryggjast,
þegar þú skilur við vin þinn, _því
að það, sem þér þykir vænst um í
fari hans, getur orðið þér ljósara í
fjarveru hans, eins og fjallgöngu-
maður sér fjallið best af sléttunni.
Og láttu vináttuna ekki eiga sér
neinn tilgang annan en að auðga
anda þinn, því að sú vinátta, sem
leitar einhvers annars en síns eigin
leyndardóms, er ekki vinátta, heldur
net, sem kastað er í vatn og veiddir
í tómir undirmálsfiskar.
Og gefðu vini þínum, það sem
þú átt best. Ef hann verður að
þekkja fátækt þína, lát hann þá
einnig kynnast auðlegð þinni. Hví
skyldir þú leita vinar þíns aðeins
til að drepa tímann? Leitaðu hans
með áhugamál þín. Því að það er
hans að uppfylla þörf þína, en ekki
tómleika þinn. Og vertu glaður með
vini þínum og njóttu með honum
lífsins. Því að í dögg lítilla hluta
finnur sálin morgun sinn og endur-
nærist. Kahlil Gibran, Spámaður-
inn.
Þegar ég hugsa tilbaka um Línu
eins og ég kallaði hana jafnan,
minnist ég andlits sem var bros-
andi, fullt af kærleika og hlýju. Hún
var jákvæð og lífsglöð sem best
má sjá af baráttu hennar við sjúk-
dóm sinn í rúm 56 ár. Á tíunda ári
veiktist Karólína af sykursýki og
hefur barist við þann sjúkdóm af
hetjuskap.
Eg varð þess heiðurs aðnjótandi
nýfædd að fá að heimsækja þau
hjónin og dvaldi ásamt móður minni
mína fyrstu ævidaga á heimili
þeirra. Þegar við frændsystkinin
komum til Reykjavíkur stóð heimili
þeirra ávallt opið fyrir okkur, mik-
ill gestagangur .var hjá þeim og
jafnan var veitt af höfðingsskap.
Lína fylgdist grannt með okkur
systkinunum og hvatti okkur ávallt
til dáða.
Þegar lífsförunautar eru kvaddir
er þeirra jafnan minnst með sögum
af eftirminnilegum atvikum og ein
þeirra er á þá leið að þau hjónin
hafí eitt sinn verið á ferðalagi þeg-
ar þau missa bílinn út af veginum.
Lína var nú ekki ráðalaus, heldur
sagði hún við mann sinn af still-
ingu, ja, þú bakkar bara upp á veg-
inn og heldur áfram. Þetta var
dæmigert fyrir Línu, hvergi hugs-
anleg uppgjöf, öll vandamál leyst
eins og hvert annað verkefni.
Karólína og Steingrímur voru
sérstaklega hamingjusöm hjón alla
tíð. Það var einstakt að kynnast
þeirri ást og virðingu sem þau báru
hvort til annars. Þau voru ávallt
samtaka um alla hluti. Steingrímur
sýndi Karólínu mikla umhyggju í
langvinnum veikindum hennar.
Síðustu 4 árin hefur hún verið í
dagvist hjá vinnu- og dvalarheimili
Sjálfsbjargar þrjá daga í viku. Kar-
ólína var ávallt þakklát fyrir þá
hlýju og umönnun sem hún hlaut
þar. Karólína var einstaklega kær-
leiksrík eins og maður hennar eftir-
lifandi er gott dæmi um. Það átti
hún einnig sammerkt með systkin-
um sínum sem öll bera vitni um
mikinn kærleika og manndóm. Ég
er full af þakklæti að hafa fengið
að alast upp og mótast í þessum
hópi.
Þótt sorglegt sé að horfa á eftir
kærri frænku og systur móður
minnar þá veit ég að foreldrar henn-
ar og systkini sem fallin eru frá,
taka á móti henni.
Að leiðarlokum er mér þakklæti
í_ huga fyrir hlýlegt viðmót alla tíð.
Ég og íjölskylda mín vottum Stein-
grími og Birni syni þeirra okkar
dýpstu samúð og minnumst Karól-
ínu með innilegri hlýju og virðingu.
Guð varðveiti Karólínu Ingólfsdótt-
ur sem nú hefur fengið hvíld.
Iðunn Bragadóttir.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORSTEINN S. THORARENSEN
fyrrverandi borgarfógeti,
lést laugardaginn 11. janúar.
Ástríður Thorarensen,
Skúli Thorarensen,
Davíð Oddsson
og barnabörn.
t
Frændi okkar,
JÓHANNES GUÐMUNDSSON,
frá Syðra-vatni,
Bólstaðarhlíð 45,
sem andaðist 8. þessa mánaðar á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 16. janúar
kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Anna Friðbjarnardóttir,
Helga Friðbjarnardóttir,
Anna Pétursdóttir,
Guðmundur Pétursson.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
SIGVALDI KRISTJÁNSSON,
Skipasundi 12,
Reykjavik,
lést laugardaginn 11. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ingibjörg Guðbjörnsdóttir,
Guðbjörn Sigvaldason, Jónfna Marta Árnadóttir,
Kristján Jóhann Sigvaldason,
Silja Hlfn Guðbjörnsdóttir,
Gísli Freyr Guðbjörnsson.
+
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
HELGI ARNAR GUÐMUNDSSON,
Hvalba,
Færeyjum,
lést af slysförum föstudaginn
10. janúar.
Jarðarförin fer fram frá Hvalba miðviku-
daginn 15. janúar.
Anja Guðmundsdóttir,
Oddný, Jón og Angela Helgabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
HARALDUR Þ. JÓHANNESSON
fyrrverandi lögregluþjónn,
Gunnarsbraut 36,
Reykjavik,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli föstu-
daginn 10. janúar.
Jóhanna Haraldsdóttir,
Málfríður Haraldsdóttir,
Margrimur G. Haraldsson
og fjölskyldur.
+
Elskulegur bróðir okkar,
HJALTI ÖXNDAL SVANLAUGSSON
frá Akureyri,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 10. janúar.
Kveðjuathöfn fer fram í Reykjavík, en jarðsett verður á Akureyri
samkvæmt ósk hins látna.
Eva Svanlaugsdóttir,
Ragna Svanlaugsdóttir,
Hrefna Svanlaugsdóttir,
Hulda Svanlaugsdóttir,
Þorsteinn Svanlaugsson,
Helga Svanlaugsdóttir.
+
Maðurinn minn, faöir okkar, tengdafaðir
og afi,
ARNAR ÁGÚSTSSON
frá Varmahlið,
Vestmannaeyjum,
Bjarnhólastig 1,
Kópavogi,
andaðist á gjörgæsludeild Landspítalans
aðfaranótt sunnudagsins 12. janúar.
Elin Aðalsteinsdóttir,
Guðrún Arnarsdóttir, Magnús Axelsson,
Pálina Arnarsdóttir, Kristján Níelsen,
Ester Arnarsdóttir, Sigurður Halldórsson
og barnabörn.
+
Eiginkona mín og móðir,
KARÓLÍNA GUÐNÝ INGÓLFSDÓTTIR,
Kaplaskjólsvegi 65,
Reykjavík,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 3. janúar,
verður jarðsungin frá Neskirkju í dag, þriðjudaginn 14. janúar,
kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar,
er bent á Sjálfsbjörg - Landssamband fatlaðra, Hátúni 12.
Steingrfmur Sigvaldason,
Björn Steingrfmsson.
+
Frænka mín,
GUÐRÚN JÓSEPSDÓTTIR,
áðurtil heimilis
á Hagamel 43,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu
Grund 10. janúar sL
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristin D. Guðmundsdóttir.