Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 44

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 44
- - 44 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Ástkær faðir okkar, afi og langafi, INGÓLFUR GUÐMUNDSON OTTESEN bóndi og oddviti, Miðfelli, Þingvallahreppi, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag, þriðjudaginn 14. janúar, kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Ingólfur, Miðfelli. t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi, BRAGI BJÖRNSSON lögf ræðingur, Sigtúni 35, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 16. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlega afþakkað- ir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Styrktarfélag vangefinna, Skipholti 50C. Ragnheiður Bragadóttir, Guðmundur Bragason, Auður Gróa Kristjánsdóttir, Dagur Bragason, Unnur Bragadóttir, Guðrún Bragadóttir, Marc André Portal, Gunnar Bragason og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og lang- afa, MAGNÚSAR A. MAGNÚSSONAR bifvélavirkja, Ásbraut 15, Kópavogi. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á hjartadeild 14-E, Landspítalanum. Kolbrún D. Magnúsdóttir, Björn Ólafsson, Björn M. Magnússon, Steinunn Torfadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Bróðir minn og frændi, SKÚLI EINARSSON, sem andaðist mánudaginn 6. janúar, verður jarðsunginn frá Fella- og Hóla- kirkju miðvikudaginn 15. janúar kl. 13.30. Helga Þórðardóttir, Erla Þórðar. + Hjartans þakklæti til allra, sem auð- sýndu okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkur, tengdamóður, ömmu og langömmu, HÖNNU STELLU SIGURÐARDÓTTUR, Suðurgötu 22, Siglufirði. Sérstakar þakkir til Sinawik systra, Siglufirði. Kristinn Georgsson. Inga Sjöfn Kristinsdóttir, Oddur Magnússon, Fríða Birna Kristinsdóttir, Jón Gunnar Jónsson, Georg Páll Kristinsson, Líney Hrafnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar JÓSAFATS HINRIKSSONAR verður fyrirtækið lokað í dag, þriðjudaginn 14. janúar. J. Hinriksson ehf. KRISTINN KRISTINSSON + Kristinn Krist- insson fæddist í Vestmannaeyjum 11. mars 1933. Hann lést í Vest- mannaeyjum 1. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jensína Matt- híasdóttir frá Fær- eyjum og Kristinn Astgeirsson frá Litlabæ, og var Kristinn níundi sonur þeirra. Af bræðrunum lifir nú aðeins Jens. Eftirlifandi eiginkona Kristins er Jóhanna Kolbrún Jensdóttir og eignuðust þau þrjú börn: Kristin, sem býr í Noregi, og dæturnar Báru og Sigríði, sem búa í Vestmannaeyjum. Útför Kristins fór fram í kyrrþey. Nýársdagsmorg- unn reis bjartur og fagur, líkari vordegi en miðsvetrar. Þegar fáninn var dreginn að húni á Hólnum var stillan slík að varla blakti. Nýja árið heilsaði með ólýsan- legri fegurð í Eyjum og fjallasýn til lands. Þá kom helfregnin, Kiddi, + Ástkær konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, systir og amma, MARI'A F. KRISTJÁNSDÓTTIR fóstra, Dunhaga 23, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugardag- inn 11. janúar sl. Jarðarförin auglýst síðar. Lárus Þ. Valdimarsson, Birgir Hrafnsson, Oddný I. Jónsdóttir, Finnur Lárusson, Helga K. Hallgrímsdóttir, Hafliði K. Lárusson, Katarín Aleguiry, Ingibjörg Kristjánsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okk- ur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu HALLDÓRU GUÐJÓNSDÓTTUR frá Réttarholti, Garði, Suðurvangi 2, Hafnarfirði. Sérstakar þakkirtil lækna og starfsfólks St. Jósefsspítala, Hafnarfirði, og starfs- fólks Hrafnistu, Hafnarfirði. Guðný L. Jóhannsdóttir, Haukur Jónsson, Björgvin Þ. Jóhannsson, Katrfn Bjarnadóttir, Guðrún Þ. Jóhannsdóttir, Magnús Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, HALLDÓRLÁRUSSON frá Miklabæ, Guilengi 29, verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í dag, þriðjudaginn 14. janúar, kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarfélög. Kolbrún Guðmundsdóttir, Guðrún Lára Halldórsdóttir, Óðinn Helgi Jónsson, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Óskar Sigþór Ingimundarson, Guðmundur Örn Halldórsson, Regína Jónsdóttir, Guðlaug Halldórsdóttir, Páll Kristinsson, Lárus Halldórsson, Gigja Sveinsdóttir, Kolbrún Birna Halldórsdóttir, Hafsteinn Ágúst Friðfinnsson og barnabörn. + Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, sonar og tengdasonar, SÆVARS ÆGISSONAR, Tangargötu 6A, Isafirði. Margrét Svavarsdóttir, Svavar Þór, Unnur Margrét, Eygió Björnsdóttir, Lilja Hallgrimsdóttir og aðrir aðstandendur. vinur minn í Brekkuhúsi, hafði kvatt um nóttina og fáninn því látinn síga. Enginn má sköpum renna. Við vissum, að Kiddi hafði um árabil átt við vanheilsu að stríða. Kristinn var sonur sæmdarhjón- anna Jensínu Matthíasdóttur frá Færeyjum og Kristins Ástgeirs- sonar frá Litlabæ, af kunnri físki- og listamannaætt í Eyjum. Jens, sem lifir bræður sína alla, býr í Eyjum ásamt eiginkonu sinni Guðnýju Gunnlaugsdóttur frá Gjá- bakka. Kiddi var upphaflega kenndur við Hólmgarð, þar sem vaggan stóð, síðan við Miðhús, hið forna frægðarsetur, en síðustu 30 árin bjó hann í Brekkuhúsi ásamt sinni ágætu eiginkonu Jóhönnu Kol- brúnu Jensdóttur. Eins og Kiddi átti kyn til var hann sannkallað. náttúrubarn. Frá því hann lék sér með félög- um sínum í Klöppunum á Urðum, steinsnar frá Miðhúsum, lá leiðin eins og flestra Eyjapeyja á sjóinn, varð sjómennskan hans aðalstarf um áratugaskeið. Lengi með Guð- jóni, bróður sínum, síðustu árin sem matsveinn, uns hann á miðj- um aldri varð að hætta á sjónum af heilsufarsástæðum. Kiddi var matgæðingur hinn mesti. Lét fáa matreiðslutíma í sjónvarpinu fram hjá sér fara. Er hann vegna skertrar starfsorku komst ekki eins oft og áður með félögum sínum til gæsa- og sil- ungsveiða, sem hann hafði stund- að um árabil, hóf hann anda- og BJÖRN SIGURÐS- SON + Björn Sigurðsson fæddist á Skagaströnd hinn 5. mars 1944. Hann lést á heim- ili sínu í Reykjavík hinn 30. desember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Neskirkju 6. janúar. Það hljóðnaði allt snögglega, þegar sú frétt barst, að mjög góð- ur vinur hefði kvatt næstsíðasta dag ársins. Hans verður saknað, því þar fór öðlingur, vinur og fé- lagi. Bjössi var ævinlega tilbúinn til að leggja góðum málum lið og ekki sízt, þar sem lítilmagninn fór. Hann hafði ekki beinlínis næmi hljóðfæraleikarans í fingr- unum, en þegar kom að smíðum, handverki og útsjónarsemi, þá skóp hann meistarastykki, án flók- inna verkfæra. Kynni okkar stóðu alltof stutt eða tvö til þrjú ár, en nóg til þess að kynnast þeim mannkostum, sem honum fylgdu frá æsku. Bjössi var ákveðinn og hreinskipt- inn við sjálfan sig og ætlaðist jafnframt til þess af öðrum. Minn- isstætt er það, þegar hann taldi sig, stórreykingamanninn, hafa reykt nóg um ævina, þá ákvað hann einn daginn að hætta reyk- ingum, en þá var komið að lang- varandi spítaladvölum vegna æðaþrengsla. Fyrir nokkrum árum komst hann að raun um, að áfengi ætti ekki samleið með sér, því að þar myndi óvinurinn hafa betur. í þessu efni sigraði Bjössi á heimavelli og hélt sínum hlut alltaf síðan. Bjössi var samviskusamur starfsmaður til allrar vinnu, en vinnudagar hans voru í fjölmörg ár hjá Lýsi hf. Við söknum vinar og biðjum Guð að varðveita minninguna um góðan dreng, um leið og við send- um eiginkonu, stjúpdóttur, dóttur- syni, föður hans og systkinum innilegustu samúðarkveðjur okk- ar. Helga og Sigfinnur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.