Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 45

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 45 gæsaeldi í hlaðvarpanum og lánað- ist vel. Honum var sérlega sýnt um að tilreiða fiskmeti og fugla í reyk- húsi sínu og eru ótaldar þúsundir lunda sem hafnað hafa í frystikist- um okkar, eftir að Kiddi hafði beitt snilld sinni. Þau hjónin, Hanný og Kiddi, voru sérlega samtaka, léttur and- blær í kring. Hanný er ein af fáum Eyjapæjum, sem ennþá handreyta lundann, varð landsþekkt með þátttöku Eyjamanna í sjónvarps- þætti í fyrra, þar sem þeytingur varð reytingur, enda Hanný í for- ystuhlutverki. Lengi vel var Kiddi mikill radíó- áhugamaður og hafði ómælda ánægju af samböndum sínum um víða veröld. Ávallt fylgdist hann með hvernig gekk á sjónum, ekki síst er veðrin voru verst. Þegar Kiddi er allur, sakna margir og Brekkuhúsin verða ekki söm. Undirritaður hefur sérstakar taugar til staðarins en þar var faðir minn, yngstur 13 systkina, fóstraður eftir föðurmissi í sjóslys- inu mikla við Eyjar 1901. Kiddi var ótrúlega hress í bragði, þrátt fyrir langvarandi veikindi, harðnaði við hveija raun og kvartaði aldrei. Einn af hetjum hversdagsins, sem gott er að minnast og Drottni falinn að leiðarlokum. Ég bið Brekkuhúsafólkinu blessunar Guðs og styrks um ókomna ævidaga. Jóhann Friðfinnsson. ÞOREY ÁSMUNDS- DÓTTIR + Þórey Ásmundsdóttir fædd- ist í Snartartungu í Strandasýslu 18. nóvember 1930. Hún Iést í Landspítalan- um 31. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hallgrímskirkju 10. janúar. Elsku Þórey mín. Þá ert þú farin frá okkur í ferðalagið langa sem bíður okkar allra fyrr eða síðar. Mér finnst þú nú fara allt of fljótt og ég veit að þú hefðir gjarnan kosið að vera lengur með öllum dætrunum og barnabörnunum, stórum og smáum. Eins hjálpsöm og þú varst, alltaf mætt á staðinn ef eitthvað var um að vera og byij- uð að taka til hendinni. Ætli þú hafir nokkurn tíma verið aðgerða- laus? Já, þú varst ótrúleg kona. Eignaðist sjö yndislegar dætur sem þú ólst að mestu upp alein. Þið bjugguð í þriggja herbergja íbúð sem í dag þætti rétt nógu stór fyr- ir þriggja manna fjölskyldu. En aldrei man ég eftir að hafa séð drasl né dót úti um allt. Ekki nóg með það, heldur var alltaf allt straujað, heitur maður, heimabak- aðar kökur, saumuð föt. Svo vannstu fulla vinnu. Það voru ekki boð og bönn á heimilinu. Bara ósagðar reglur eða virðing sem all- ir fóru eftir. Ég er svo lánsöm að tvær af dætrum þínum eru mínar bestu vin- konur og þegar að ég flutti að heim- an fannst þér lítið mál að ég fengi herbergi á loftinu ásamt þeim „fóst- ursystrum“ mínum. Álltaf var mér boðið í mat og ekkert þýddi að vera með neitt múður. Þú vissir hvað mér þótti slátur gott og sást alltaf til þess að ég fengi vitneskju um þegar það var á borðum. Elsku Þórey mín, þakka þér fyrir allt sem þú varst mér. Ég veit að þín er sárt saknað enda missirinn mikill. Elsku systur, mágar, barna- böm og fjölskyldur. Mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Guð veri með ykkur öllum. Þín vinkona Elsa. t Þökkum öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu og samúð við andlát bróður og góðs fraenda, iÓNS SNORRA BJARNASONAR fró Ögurnesi. Bestu þakkir til starfsfólks Hrafnistu, Hafnarfirði. Vinátta ykkar mun lifa í minningunni. Fyrir hönd aðstandenda, Ingibjörg Þ. Bjarnadóttir. t Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför SVAVARSHELGASONAR frá Fagradal i Breiðdal, Snorrabraut 56, Reykjavík. Ellen Olga Svavarsdóttir, Már Svavarsson, Marey Linda Svavarsdóttir, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, SIGFÚSAR HALLDÓRSSONAR, Víðihvammi 16, Kópavogi. Steinunn Jónsdóttir, Gunnlaugur Y. Sigfússon, Jóhanna G. Möller, Hrefna Sigfúsdóttir, Ágúst E. Ágústsson, Sigfús Gunnlaugsson, Hulda Egilsdóttir, Yngvi Páll Gunnlaugsson, Helga Ágústsdóttir, Gunnlaugur Yngvi Sigfússon. t MARGRÉT VALDIMARSDÓTTIR ÓLAFSSON frá Hnífsdal, lést á elliheimilinu Grund 23. desember síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey eins og hún hafði lagt fyrir um. Fyrir hönd aöstandenda, Jóhann J. Ólafsson. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúö og hlýhug við andlát og útför GUNNARS BJÖRNSSONAR bifreiðasmiðs. Rannveig Gunnarsdóttir, Sigurður Tómasson, Þórarinn B. Gunnarsson, Ólafía B. Matthíasdóttir, barnabörn og fjölskyldur. t Innilegar þakkir flytjum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, BERGUÓTAR KRISTINSDÓTTUR, Seyðisfirðl. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkra- húss Seyðisfjarðarfyrirfrábaera hjúkrun og umönnun. Bjarney Emllsdóttir, Ólafur R. Ólafsson, Bára Emilsdóttír, Eyþór Borgþórsson, Hjörtur Emilsson, Ágústa U. Gunnarsdóttir, Einar Emilsson, Sigriður Ingibjörg Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir færum við öllum, sem auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS ÞÓRÐARSONAR, Reykhóli, Skeiðum. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrun- arheimilis aldraðra, Ljósheimum, Selfossi. Unnur Jóhannsdóttir, Þórður Þorsteinsson, Málfríður Steinunn Sigurðardóttir, Bergljót Þorsteinsdóttir, Guðmundur Sigurðsson, Bríet Þorsteinsdóttir, Þórir Bergsson, Guðrún Þorsteinsdóttir, Eyvindur Þórarinsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Eyjólfur Kristmundsson, Óskar Þorsteinsson, Steingerður Katla Harðardóttir, Erla Þorsteinsdóttir, Pálmi Hilmarsson, barnabörn og barnabarnabarn. t Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ÁGÚSTS JÓNSSONAR skipstjóra, Austurströnd 4, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks 14-E, hjartadeild Landspítalans. Margrét Sigurðardóttir, Bogi Ágústsson, Jónína Maria Kristjánsdóttir, Emilía Ágústsdóttir, Yuzuru Ogino Ágúst Bogason, Þórunn Elísabet Bogadóttir, Jónína Guðný Bogadóttir, Guðbjörg Yuríkó Ogino, Ólafur Jónsson, Þorbjörg Jónsdóttir. innilegar þakkir til allra, sem sýndu okk- ur samúð og vinsemd við fráfall föður okkar og tengdaföður, KRISTJÁNS SIGURÐSSONAR frá Bergi, Grindavik. Sigurður Kristjánsson, Þorgerður Halldórsdóttir, Björg Kristjánsdóttir, Ólafur Jónsson, Ólafía Kristjánsdóttir, Helgi Kristinsson og fjölskyldur. t Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og vinsemd við andlát og útför STEFÖNU GUÐMUNDSDÓTTUR frá Lýtingsstöðum f Skagafirðl, fyrrum kaupkonu i Reykjavik. Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkr- unarheimilinu Eir, sem annaðist hana af alúð og viröingu. Þórunn Sólveig Ólafsdóttir, Gylfi Eldjárn Sigurlinnason, Stefana Björk Gylfadóttir, Guðmundur Björgvinsson, Olafur Gylfi Gylfason, Bergþóra Kristín Garðarsdóttir, Þórunn Rakel Gylfadóttir, Þorsteinn Eyfjörð Jónsson, Þröstur Ingvar Gylfason, Dóróthea Jónsdóttir og barnabörn. t Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTMANNS MAGNÚSSONAR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Sigríður Rósa Sigurðardóttir, Hólmfríður Kristmannsdóttir, Guðmundur Wiium Stefánsson, Guðrún Kristmannsdóttir, Jakobína Guðfinnsdóttir, Sonja Hilmarsdóttir, Ólöf S. Björnsdóttir, Ruth Baldvinsdóttir, Anna Bjarnadóttir, Sigmar Gislason, Kristmann Kristmannsson, Ómar Kristmannsson, Magnús Kristmannsson, Ólafur Kristmannsson, Birgir Kristmannsson, Ásta Kristmannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.