Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 48

Morgunblaðið - 14.01.1997, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Langar þig... í skemmtilegan skóla eitt kvöld í viku eða eitt laugardagssíðdegi í viku? □ Laagar þig að vita hvar látnir vinir þínir og vandamenn hugsanlega og líklegast eru í dag og hversu öruggt meint samband við þá og þessa undarlegu heirna er með aðstoð miðla? □ Langar þig að vita hvað eru afturgöngur, líkamningar, álfar, huldufólk, fjarskynjun, fyrirboðar, berdreymi, svifjógar, ærsladraugar, eða bara hvers vegna skilaboð koma að handan? □ Og langar þig að setjast í skemmtilegan og svo sannarlega spennandi skóla í glaðværum og jákvæðum hópi nemenda eitt kvöld í viku eða eitt laugardagseftirmiðdegi í viku fyrir hófleg skólagjöld, þar sem farið er ítarlega í máli og myndum sem og í námsefni yfir allt, sem lýtur að framhaldslífi okkar jarðarbúa eins og mest og best er vitað um það á hnettinum í dag, fyrir hófleg skólagjöld? Ef svo er þá áttu ef til vill samleið með okkur og yfír fimm hundruð ánægðum nemendum sl. fimm misseri. Tveir byrjunarbekkir hefja brátt nám í Sálarrannsóknum 1 núá vorönn ‘97. Skráning senduryfir. Hringdu ogfáðu allar nánari upplýsingar um langskemmtilegasta skólann í bœnum sem í boði er í dag. Yfir skráningardagana er svarað í síma Sálarrannsóknarskólans alla daga vikunnar kl. 14 til 19. Sálarrannsóknarskólínn „skemmtilegasti skólinn í bænum“ Vegmúla 2, símar 561 9015 og 588 6050. irtE BOX Kpiii pr IIké l!i íœ # Vandað og margbreytilegt fjaðrakerfi sem tryggir réttan stuðning, þægindi og endingu. # Margar gerðir eru til þannig að allir geta fundið dýnu við sitt hæfi, þungir eða léttir -það skiptir engu máli. # Margar stærðir eru í boði, allt frá 80 sm. # Góð yfirdýna fylgir öllum Ide Box fjaðradýnunum. # Ide Box fjaðradýnurnar eru á tréramma og geta staðið einar sér eða passa ofan í flest öll rúm. # Hjón geta valið sitthvora dýnugerðina ef vill og eru þá dýnurnar einfaldlega festar saman. # Ide Box fjaðradýnurnar hafa leyst málin fyrir þær þúsundir íslendinga sem kusu betri svefn. # Ide Box fjaðradýnurnar eru alltaf til á lager # Ide Box fjaðradýnurnar eru ekki dýrar. Komdu og prófaðu Ide Box fjaðradýnurnar. Sérþjálfað starfsfólk okkar tekur vel á móti þér. Munið bara \ Ide Box fjaðra- v dýnurnar fást > \ aðeins hjá J \ okkur. HÚSGAGNAHÖLLIN öildshofói >0 - 112 Rvik - S:0a7 1109 Góð leiðsögn í bland við köttinn í sekknum MEÐAL þeirra hesta sem fram komu í mynd Sigurbjörns er stór- gæðingurinn Oddur frá Blönduósi sem verið hefur í fremstu röð í töltkeppni síðustu árin. HESTAR Kcnnslumyndband TÖLT Kennshimyndband og bæklingur um tölt. Kennari: Sigurbjöm Bárðarson. Framleiðandi: Kvikmyndafélagið Sleipnir. Lengd: Um 40 mín. FYRIR allnokkru voru þau boð látin út ganga að unnið væri að gerð kennslumyndbands um tölt með hinum kunna hestamanni Sig- urbirni Bárðarsyni. Var mynd- bandsins beðið með mikilli eftir- væntingu og kom það loks út rétt fyrir jólin. Með spólunni fylgir lítill bæklingur til enn frekari glöggvun- ar á kennsluefninu. í kynningu á myndbandinu er ekki tekið skýrt fram fyrir hvaða hóp hestamanna myndin er sérstak- lega ætluð og hætt við að mörgum hinna vanari þyki þeir hafa keypt köttinn í sekknum. Myndin sem er um fjörutíu mínútur að lengd fjallar aðeins að hálfu leyti eða varla það, um tölt eða undirbúning fyrir tölt- reið. Að þessu tvennu leyti mun þessi mynd valda mörgum von- brigðum. Vinna með hestinn í hendi En þrátt fyrir þessa ágalla er margt gott á spólunni og fullyrða má að hún muni nýtast mörgum í glímunni um hinn hreina tón tölts- ins, fjaðurmagn og hreyfingafeg- urð. Sigurbjörn Bárðarson er eins og flestir vita einn fremsti reiðmað- ur landsins og löngum verið vin- sælt að ausa úr fjölskrúðugum viskubrunni hans. Að sjálfsögðu er margt gagnlegt á þessari spólu og má þar til dæmis nefna kaflann sem fjallar um vinnu með hestinn í hendi. Þarna er um að ræða gagn- legri hluti en margur hyggur og má hiklaust hvetja hina vanari sem kannski hafa orðið fyrir vonbrigð- um að gefa þessum kafla góðan gaum. Það má einnig hvetja þá sem telja sig bæði vita og kunna að skoða spóluna oftar en einu sinni því það sem í fljótu bragði virðist einfalt og borðleggjandi er ef til vill ekki alveg eins einfalt og talið er í fyrstu. Ekki er óhugsandi að þessi mynd geti unnið á við frekara áhorf en það ætti að koma í ljós þegar hestamenn fara að nota hana samhliða töltþjálfun. Gott efni fyrir skemmra komna Fyrsti hluti myndarinnar fjallar um mél og beislabúnað, já, reyndar reiðtygi yfir höfuð. Þarna er fyrst og fremst efni sem nýtist byijend- um og skemmra komnum vel. Kaflinn þar sem kennt er að fara á bak er sömuleiðis meira fyrir byijendur en hafa ber í huga að margir af hinum svokölluðu vönu hestamönnum fara með ýmsu móti á bak og gott fyrir hvern og einn að hugleiða hvort rétt sé að farið. Að síðustu er komið að kjarna málsins, töltinu sjálfu, og er það að sjálfsögðu besti kaflinn á þess- ari töltspólu. Þar eru mörg góð ráð- in og aðferðir sem nýtast væntan- lega hinum mörgu aðdáendum töltsins. Hafa ber í huga að spóla þessi og fylgiritið nýtist best sem uppsláttarmiðill, það er að knapinn noti þetta samhliða þjálfun hestsins og leiti sér ráða um einstök atriði sem verið er að fást við hveiju sinni. Einnig ætti hún að nýtast vel sam- hliða því að knapinn sæki námskeið í reiðmennsku. Komið inn á kjarna málsins Myndataka er ágæt og sömuleið- is klippingar. Sigurbjörn flytur allan texta í myndinni og verður það að segjast eins og er að hann er mun betri í reiðmennskunni en fram- sögn. Eigi að síður er allt sem fram er sett vel skiljanlegt og skiptir það vissulega höfuðmáli. Af og til er óþarflega mikið orðskrúð í kringum einfalda hluti og gætir þess bæði í töluðu máli á spólunni og í rituðu máli í bæklingnum. Betur hefði einnig verið að talsetja myndina að mestu eftir á í hljóðveri. Með því hefði verið hægt að koma í veg fyrir ýmsa hnökra og gera textann hnitmiðaðri. Að láta mann ríða á hesti og útskýra um leið hvað er að gerast eða hvað hann er að gera rétt eða rangt er út í hött. í lagi hefði verið að láta knapann (kenn- arann) byija útskýringar, eina eða tvær setningar, á hestbaki en láta síðan talsetja framhaldið í hljóð- veri. Hinsvegar kemur mjög vel út að ríða hesti á tölti samhliða bíl í hljóðupptöku og kvikmyndun og ná með því frá sama sjónarhorni sam- felldum hreyfingum hestsins og takti á nokkur hundruð metra kafla. Afbragðs góðar útskýringar á mjög mikilvægum atriðum vega að nokkru upp ýmsa galla myndarinn- ar. Má þar benda á kafla „5.3 Unn- ið á feti“ og ekki síður „5.4 Að gefa (eftir) og taka (í)“ á blaðsíðu 38 og 39 í pappírskiljunni. Þótt heitið á síðarnefnda kaflanum sé klúðurslegt er innihaldið afar mikil- vægt svo ekki sé meira sagt. Beri menn gæfu til að öðlast fullan skiln- ing á því sem Sigurbjörn setur þar fram má gera ráð fyrir miklum framförum í reiðmennsku hjá þeim. Að halda sig við efnið Möguleikarnir við það að gera kennslumyndband um tölt eru margir. Hægt er að taka viðfangs- efnið mjög mismunandi tökum. Hinsvegar verður myndin aldrei góð nema aðstandendur haldi sig við efnið, það er töltið í þessu tilfelli. Þótt vissulega þurfi mél, beisli, hnakk og reiðmúl til að ríða tölt er líklega ekki brýn þörf á að eyða svo miklu púðri í það sem hér er gert. Hér er á ferðinni að mörgu leyti ágæt en alls ekki gallalaus kennslumynd sem nýtist best þeim sem skemmra eru komnir á veg í reiðmennskunni. Ekki má þó gleyma því að margt gagnlegt er í henni að finna fyrir alla hestamenn en spurning er hvort þeir séu tilbún- ir að greiða á sjöunda þúsund fyrir góð ráð. Verð sem réttlætt er með meðfylgjandi þunnri pappírskilju sem sumir kjósa að kalla bók. Valdimar Kristinsson ÆTTFRÆÐINAMSKEIÐ Hin sívinsælu ættfræðinámskeið hefjast um og upp úr 13. jan. hjá Ættfræði- þjónustunni, Austurstræti 10a, og standa í 3-4 vikur (tvær mætingar á viku). Lærið að rekja ættir og setja þær upp í skipulegt kerfi. Þjálfun í rannsóknum. Frábærar aðstæður til ættarleitar. Einnig er hægt að fá teknar saman ættir og niðjatöl (hentar vel til gjafa á stórafmælum). Leitið uppl. í s. 552 7100 og 552 2275. Ættfræðiþjónustan er með fjölda nýlegra og eldri ættfræði- og æviskrárrita til sölu, kaupir slík rit og tekur í skiptum. ÆTTFRÆÐI-BÓKA- MARKAÐUR verður í Kolaportinu um helgina (á D-gangi nr. 9) og uppl. veittar þar um námskeið og annað. (D Ættfræðiþjónustan, Austurstræti lOa, s. 552 7100. ÍT/5T hð er^ ÚTSALA!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.