Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 52

Morgunblaðið - 14.01.1997, Síða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Tommi og Jenni Ferdinand BREF TLL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylgavik • Sími 569 1100 • Simbréf 569 1329 • Netfang: lauga@mbl.is Enn um íslenska tónlist á rás 2 Frá Magnúsi Einarssyni: HINN 24. nóv. sl. birtist í Morgun- blaðinu bréf frá fjórum formönnum hagsmunasamtaka í tónlistariðnað- inum þar sem því var haldið fram að spilun íslenskrar tónlistar á rás 2 hefði dregist saman um 30% á nokkrum árum. í þessu bréfi var birt einhver heimasmíðuð prósent- utala sem fjórmenningarnir töldu sanna lágkúru og aumingjaskap undirritaðs og rásar 2. Þessu var svarað og bent á að rangt væri farið með staðreyndir í málinu. Skömmu síðar snaraðist fram á ritvöllinn einhver líkami sem kall- ast Tónlistarráð íslands og jórtraði sömu tugguna. Þessu var einnig svarað af hálfu undirritaðs í bréfi þar sem birtar voru opinberar skýrslur Útvarpsins sem sönnuðu hið gagnstæða, spilun á íslenskri tónlist á Rás 2 hafði aukist gríðar- lega, u.þ.b. 63% milli ára, sömuleið- is reyndar á Rás 1, eins og sjá má í bréfinu í Morgunblaðinu 18. des- ember sl. Þar með taldi undirritað- ur málið vera úr sögunni, misskiln- ingi hefði verið eytt og menn gætu nú farið að vinna í friði hver að sínum málum. Birtist þá ekki enn ein ritsmíð þeirra félaga í Morgun- blaðinu 8. janúar sl. þar sem þeir eru greinilega haldnir vanstillingu hugarins og ritræpu af verri sort- inni. í þessari grein segjast þeir reyndar fagna því að spilun ís- lenskrar tónlistar hafi aukist á Rás 2, viðurkenna sem sé að hafa haft rangt fyrir sér og farið með fleipur í upphafi. Ágætt svo langt sem það nær og batnandi mönnum best að lifa. En það er snákur í hverri Para- dís, eins og danskurinn segir, því í þessari sömu grein setja þeir fram tillögu um 50% kvóta á íslenska tónlist á Rás 2 í janúar og febrúar á þesu ári. Ekki á öðrum útvarps- stöðvum, ekki á Rás 1, Aðalstöð- inni, Fm95,7, Bylgjunni og öllum hinum, bara á Rás 2. Ekki eftir 1. mars heldur bara í janúar og febrúar á þessu ári. Rökstuðningur og forsendur eru ekki gefnar fyrir þessari kvótakröfu, þær eru engar að finna í greininni, tala að vísu um að sýna vilja í verki. En vilja hvers er ekki ljóst, þeirra sjálfra ef til vill? Þessi krafa er með tölu- verðum ólíkindum svo ekki sé meira sagt. Til að taka eitt lýsandi dæmi, hvað yrði nú sagt ef Rithöfunda- samband íslands og Félag bókaút- gefenda settu fram þá kröfu að helmingur þeirra bóka sem lánuð yrðu úr Landsbókasafninu í janúar og febrúar yrðu að vera íslenskar bækur? Ekki á öðrum bókasöfnum, bara Landsbókasafninu. Ekki af neinum sérstökum ástæðum, bara af því Rithöfundasambandið og bókaútgefendur hefðu svo mikinn vilja til þess! Það er ekki ástæða til að elta ólar við rangfærslur for- mannanna og vísvitandi ósannindi í grein þeirra í Morgunblaðinu 8. janúar sl. slíkt væri eingöngu til skemmtunar skrattanum. Undirritaður varð óneitanlega nokkuð forviða þegar formönnun- um tókst að lesa úr skrifum hans skoðanir eins og að hann „telur íslenska tónlist vonda upp til hópa“, „veitist ítrekað að höfundum og flytjendum sem samið hafa og flutt tónlist á ensku og telur slíkt aðför að íslenskri menningu", „fullyrðir að útgefendur séu að hafa flytjend- ur og höfunda að fíflum", „skuli hæða íslenska tónlistarmenn sem sett hafa stefnuna á alþjóðamarkað og meina þeim flutning tónlistar sinnar á heimamarkaði". Um þetta er ekkert annað að segja en lygi- mál og della, eins og sagt var fyr- ir austan í æsku undirritaðs. Sérstakur áhugi er samt fyrir því að formennirnir rökstyðji þá fullyrðingu að tónlistarritstjóri Rásar 2 hafi meinað íslenskum tón- listarmönnum, „sem sett hafa stefnuna á alþjóðamarkað, flutning tónlistar sinnar á heimamarkaði"; komi með dæmi um í hvaða tilvik- um og með hvaða hætti. Formanni Shf vafðist reyndar tunga um háls þegar hann var spurður um ástæð- ur fyrir þessari fullyrðingu. Undir- ritaður reyndi að benda honum á sönnunarbyrði ásakandans, um nauðsyn þess að hafa orsök á und- an afleiðingu og fleiri element sem þykja eðlileg í almennri skynsemi og rökræðu. Án árangurs. Takist honum og hinum þrem ekki að finna þessum orðum sínum rök þá eru þeir minni menn en áður. Það er þekkt aðferð að reyna að gera hagsmuni sína að hagsmunum heildarinnar. Þetta „trix“ er gam- alt í allri hagsmunabaráttu og for- mennirnir spila þessu snjáða korti fram af nokkrum reigingi. Nú er það ekkert minna en „sjálfsímynd þjóðarinnar" og „uppeldi kynslóð- anna“ sem er í húfi ef Rás 2 skammast sín ekki og spilar 50% af íslenskri tónlist í dagskránni í janúar og febrúar. Ja, gott væri ef satt væri. Hagsmunir útgefenda, sem fá 70 krónur fyrir hveija mín- útu sem spiluð er af íslenskri tón- list, eru nú orðnir að hagsmunum þjóðarinnar, menningu hennar og framtíðar. Það liggur við að maður taki sér í munn máltæki sem ensku- mælandi mönnum er nokkuð tamt þegar þeir standa frammi fyrir ólýsanlegri fírru og vitleysu, „get real“. Það er ekki ástæða til að eiga frekari orðastað við þessa menn á þessum vettvangi, því ekki verður séð að hún hafi orðið til annars en að skaða þá sem hana hófu á svo neikvæðan hátt, formennina sjálfa. Veldur sá miklu sem upphafinu veldur. Þeir eru nú búnir að auglýsa málþing um það hvernig ljósvakam- iðlar geti hjálpað tónlistariðnaðinum sem á í einhveijum kröggum um þessar mundir. Ef til vill gefst þar tækifæri til að byija þessa umræðu um hlutfall íslenskrar tónlistar á útvarpsstöðvunum á nýjan leik og þá vonandi á uppbyggilegri og já- kvæðari nótum en hingað til. Gleðilegt nýtt ár. MAGNÚS EINARSSON, tónlistarritstjóri Rásar 2. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.