Morgunblaðið - 14.01.1997, Qupperneq 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(SCENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1
ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Tillögur að starfsleyfi álvers Columbia á Grundartanga
30-40 athuga-
semdir komnar
FRESTUR til að skila athugasemdum
við starfsleyfí álvers Columbia Vent-
ures á Grundartanga rann út í gær.
Að sögn Ólafs Péturssonar, deildar-
stjóra hjá Hollustuvemd ríkisins,
höfðu um miðjan dag í gær borist
30-40 athugasemdir. Hann sagðist
eiga von á að margar athugasemdir
bærust stofnuninni í dag og á morg-
un, en hafí athugasemdir farið í póst
í gær verða þær teknar til greina.
Ólafur sagði að áhugi manna á
d»jMihrifum álversins á umhverfið væri
greinilega mikill enda hefðu þessi mál
mikið verið rædd síðustu daga.
Endanlegar tillögur til
ráðherra um miðjan febrúar
Athugasemdimar sem borist hafa
eru misviðamiklar en þær bárust frá
einstaklingum, félögum og stofnun-
um. Ólafur sagði að gert væri ráð
fyrir því að Hollustuvemd gæti af-
greitt endanlegar starfsleyfistillögur
til umhverfisráðuneytisins um miðjan
næsta mánuð. „Við reiknum með að
kynna öllum aðilum sem sent hafa
athugasemdir hvemig við tökum á
þeim en síðan sendum við tillögumar
til ráðherra," sagði Ólafur.
Skv. mengunarvamareglugerð skal
Hollustuvemd gera nákvæma grein
fyrir skriflegum athugasemdum sem
berast stofnuninni við starfsleyfistil-
lögumar, hvernig stofnunin tekur á
þeim hverri fyrir sig og skal tiltaka
sérstaklega þær athugasemdir sem
hún tekur ekki tillit til og færa rök
fyrir því.
Lagnir ij'ar-
lægðar í
Skerjafirði
REYKJAVÍKURBORG hefur
keypt lóð Skeljungs hf. í
Skerjafirði og er fyrirtækið nú
að fjarlægja olíutanka og lagn-
ir. Fjórir, stórir tankar eru í
Skerjafirði og verða þeir fjar-
lægðir í heilu lagi. Þá er verið
að taka upp gamlar löndunar-
lagnir en ráðgert er að verkinu
verði lokið um mitt næsta sum-
ar. Tæplega 30 ár eru síðan
síðast var landað olíu í Skerja-
firði en olía hefur verið geymd
þar á tönkum alveg fram á síð-
ustu ár. Öll olíulöndun fer fram
með neðansjávarleiðslum í Ör-
firisey.
Morgunblaðið/RAX
Innflutningsgj öld
á bifreiðir
Jöfur leitar
til banda-
ríska sendi-
ráðsins
JÖFUR hf., umboðsaðili Chrysler-bif-
reiða, hefur leitað til sendiráðs Banda-
ríkjanna á Islandi vegna hugmynda
sem verið er að skoða í fjármálaráðu-
neytinu um nýjar leiðir í innheimtu
vömgjalda á bifreiðir.
Forsvarsmenn Jöfurs telja að svo-
kölluð norsk leið, sem verið er að
skoða í ráðuneytinu og felur í sér að
gjöld em miðuð við þyngd bíls, vélar-
stærð og vélarafl, myndi leiða til þess
að bandarískar bifreiðir myndu
hækka veralega í verði hérlendis.
Chrysler í Evrópu hefur látið í ljós
miklar áhyggjur af hugmyndum sem
fram hafa komið hérlendis um brejd-
ingar á vörugjöldum bifreiða í þessa
vem.
Magnús Guðfinnsson, verslunar-
fulltrúi hjá bandaríska sendiráðinu,
segir að norski markaðurinn sé nán-
ast lokaður fyrir bandarískum bifreið-
um.
„Norska kerfið er þungt í vöfum
og mismunar mjög stærri og þyngri
bílum sem er einmitt einkenni banda-
rískra bíla. Þetta eru hins vegar ör-
uggari bílar og hentugri fyrir stærri
fjölskyldur og fyrir landsbyggðar-
fólk,“ sagði Magnús.
Hann segir að innflutningsreglur
hefðu ekki verið hliðhollar bandarísk-
um bílum fram að þessu en nú virtist
sem ætlaði að keyra um þverbak ef
norska kerfið yrði fyrirmynd þessara
mála hérlendis.
Sven Fischer, svæðisstjóri Chrysler
í Evrópu, segir að íslendingar vilji
flytja út vöm til Bandaríkjanna óá-
reittir og án nokkurra þvingana en
íslendingar hafi reist múr í kringum
innflutning á bandarískum bílum.
Magnús segir að þetta sé mikið
alvömmál. Ekki hafi þó verið rætt
um það hvort bandarísk stjórnvöld
grípi til aðgerða ef niðurstaðan yrði
enn frekari mismunun gagnvart
bandarískum bílum með nýjum regl-
um um innflutningsgjöld.
■ Chrysler/12
VSÍ kynnir nýjar hugmyndir í viðræðum um fy r irtækj asamninga
Starfsmenn geti knúið á um
sanminga með aðgerðum
Fjöldi inn-
brota í
myrkrinu
ÞRJÁTÍU innbrot voru tilkynnt til
lögreglunnar í Reykjavík frá föstu-
degi fram á mánudagsmorgun og
er það með allra mesta móti. Lög-
reglan rekur innbrotahrinuna m.a.
til þess, að veður var milt um helg-
ina, en myrkrið sem fylgir snjóleys-
inu gerði þjófunum auðveldara fyr-
ir.
Meðal annars var brotist inn í
fyrirtæki og stolið leysiprentara og
nálaprentara, tölvu, þráðlausum
síma og geislaspilara. Þá var gluggi
w á safnaðarheimili Háteigskirkju
spenntur upp og stolið prentara sem
stóð við tölvu sóknarprestsins.
Einnig var farið inn í nokkur
íbúðarhús og m.a. stolið magnara,
geislaspilara, tæplega 400 geisla-
diskum, frakka, jakkafötum, ljós-
myndavélum, myndbandstækjum,
skartgripum og gjaldeyri.
■ Ofbeldi og ófriður/51
VSÍ lagði fram nýjar hugmyndir
um fyrirtækjasamninga á fundum
með fulltrúum stærstu landssam-
banda innan ASÍ í gær. Hugmynd-
irnar ganga út á að ef samningar
takast ekki innan fyrirtækja innan
tiltekins tíma geti starfsmenn grip-
ið til aðgerða til að knýja á um
samninga. Hingað til hafa fyrir-
tækjasamningar verið gerðir undir
friðarskyldu.
Fundurinn var fyrsti _ sameigin-
legi samningafundur VSÍ og lands-
sambanda ASÍ um vinnustaða-
samninga, en í nóvember og desem-
ber voru viðræður um þessi mál
milli VSÍ og einstakra landssam-
banda. Samningamenn ákváðu að
hittast aftur eftir viku og þá er
gert ráð fyrir að landssamböndin
verði tilbúin með viðbrögð við hug-
myndum VSÍ.
Flest ASÍ-félög vísa til
sáttasemjara í vikulok
Forystumenn landssambanda
ASÍ reikna með að flest landssam-
böndin vísi kjaraviðræðum sínum
við vinnuveitendur til ríkissátta-
semjara í lok þessarar viku. Verka-
mannasambandið og Dagsbrún
ætla að vísa til sáttasemjara á
morgun, Iðja á fimmtudag og Raf-
iðnaðarsambandið og Samiðn ætla
að taka ákvörðun um að vísa til
sáttasemjara á föstudag.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
sagði að ekkert hefði gerst í viðræð-
um sambandsins við viðsemjendur
í heilan mánuði og enginn samn-
ingafundur hefði verið boðaður á
þessu ári.
Örn Friðriksson, formaður Sam-
iðnar, sagði að þeir samningafundir
sem haldnir hefðu verið á þessu ári
hefðu engu breytt um stöðuna.
Hann sagði að skattastefna stjórn-
valda væri eitt þeirra atriða sem
tefði fyrir samningum.
Ingibjörg Guðmundsdóttir, for-
maður Landssambands verslunar-
manna, sagði að engin ákvörðun
hefði verið tekin um hvenær versl-
unarmenn vísuðu kjaraviðræðum til
sáttasemjara. Viðræður hefðu farið
hægt af stað eftir áramót, en menn
vildu sjá hvað kæmi út úr viðræðum
um vinnustaðasamninga.
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagðist reikna með að allmörg félög
myndu vísa kjaraviðræðum til sín
á næstu dögum. Verkalýðsfélög
geta ekki boðað til verkfalls fyrr
en kjaraviðræðum hefur verið vísað
til sáttasemjara og tilraun hefur
verið gerð til að ná samningum á
þeim vettvangi. Þórir var spurður
hvort hann myndi gefa út einhvers
konar vottorð um að slík sáttatil-
raun hefði verið reynd án árangurs
eða hvort það væri alfarið í valdi
samninganefnda stéttarfélaganna
að meta hvort frekari viðræður
væru tilgangslausar. Hann svaraði
því til að hann myndi sjá til þess
að það yrði gerð alvörutilraun til
að ná samningum. M.ö.o. þyrfti
fleiri en einn fund áður en fullreynt
væri hvort samningar tækjust.