Morgunblaðið - 29.01.1997, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
JÓN Guðmundsson starfsmaður hátíðardagskrár, Helgi Hall-
dórsson bæjarstjóri, Ólöf Zóphaníasardóttir, Jónas Þór Jóhanns-
son og Sigrún Lárusdóttir sem öll eiga sæti í afmælisnefnd
ásamt Þorkeli Sigurbjörnssyni sem ekki var viðstaddur.
Fjölbreytt hátíða-
höld á 50 ára af-
mæli Egilsstaða
Egilsstöðum - Fimmtíu eru liðin
síðan sveitarfélagið Egilsstaða-
hreppur var stofnað með lögum. í
tilefni af því verður árið 1997 sér-
stakt afmælisár Egilsstaðabæjar. Á
dagskrá afmælisnefndar eru fjöl-
margir atburðir, en sérstök hátíðar-
dagskrá verður 27.-29. júní og verð-
ur forseti íslands heiðursgestur þar.
Bæjarstjóri Egilsstaða, Helgi
Halldórsson, og afmælisnefnd buðu
til kynningar á dagskránni.
24 stunda tónverk
Þar kom m.a. fram að til stendur
að halda kvikmyndaviku í Bíó-Vala-
skjálf, Djasshátíð Egilsstaða verður
haldin 10. árið í röð, frumflutningur
verður á söngverki eftir Keith Reed
söngkennara við Tónlistarskólann á
Egilsstöðum, gefm verður út Saga
Egilsstaða, Egilsstaðamaraþon
verður á sínum stað og flutt verður
24 stunda tónverk eftir Charles
Ross tónlistarkennara svo eitthvað
sé nefnt.
Sérstakt afmælissund verður frá
1. febrúar til 30. apríl þar sem
bæjarbúar eru hvattir til þess að
taka þátt, en þeir þurfa að mæta
50 sinnum á þessu tímabili í sund
og eiga þá um leið möguleika á
verðlaunum. Reiknað er með að
gefið verði út sérstakt afmælisrit
um mánaðamótin aprfl-maí með
endanlegri dagskrá afmælisins og
eins verður hægt að skoða dag-
skrána á heimasíðu bæjarins og
fylgjast með breytingum ef ein-
hveijar verða.
BÖRN úr Tónlistarskólanum á Egilsstöðum tóku lagið undir
stjórn Rosmary Hewlett.
LANDIÐ
Aðilar 1 ferðaþjónustu á Suðurlandi kynna möguleika að vetri
Vilja lengja ferða-
mannatímabilið
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
SIGURÐUR Jónsson, Guðmundur Þorvaldsson, Svanur G. Þor-
kelsson, Kristinn Bergsson, Anna Amadóttir og Björn S. Lárus-
son á Hlöðubarnum á Laugarbökkum.
Hveragerði - Nokkur ferðaþjón-
ustufyrirtæki á Suðurlandi boðuðu
nýverið til blaðamannafundar á
Laugarbökkum undir Ingólfsfjalli
þar sem kynntir voru nokkrir af þeim
möguleikum sem ferðamönnum bjóð-
ast utan hins hefðbundna ferða-
mannatíma á Suðurlandi.
Það eru Gesthús á Selfossi, Hótel
Vík í Mýrdal, Ferðaskrifstofan
Grænn ís, Ferðaskrifstofan Suður-
garður og Ferðamannafjósið á Laug-
arbökkum sem hafa tekið sig saman
um að kynna Suðurland sem athygl-
isverðan valkost fyrir ferðamenn
jafnt sumar sem vetur.
Á fundinum voru m.a. kynntir
tveir athyglisverðir ferðamöguleikar
fyrir hópa sem vilja gera sér glaðan
dag í skammdeginu. Markmiðið er
að ná til hópa, hvort sem það eru
fýrirtæki, íjölskyldur og saumaklúb-
bar, svo dæmi séu tekin, sem vilja
taka þátt í að móta sína eigin ævin-
týrahelgi og fá til þess aðstoð frá
fagfólki á staðnum.
Ævintýri í Vík felur í sér helgar-
dvöl á Hótel Vík í Mýrdal, þar sem
hópamir geta valið úr mörgum mis-
munandi möguleikum á afþreyingu.
Eða eins og gestgjafamir segja: „Þið
ráðið ferðinni sjálf,“ en meðal tæki-
færa sem nú bjóðast er ferð á Skeið-
arársand til þess að sjá ummerki
náttúruhamfaranna undir leiðsögn
heimamanns. Einnig býðst gestum
ferð inni á heiðarlönd Mýrdalsins á
jeppum, gönguferð á Reynisfjall,
kvöldvaka, varðeldur og margt fleira.
Á Selfossi býðst tilsvarandi helg-
ardvöl í Gesthúsum, sem er sumar-
húsabyggð við Engjaveg. Þar geta
hópar sett saman sína helgi allt eftir
óskum hvers og eins. Meðal þess sem
boðið er upp á eru jeppa- eða vél-
sleðaferðir á Hellisheiði eða Þing-
vallasvæðið, heimsókn í Ferða-
mannafjósið, ferð á Skeiðarársand,
gönguferðir um nágrennið, ratleikur,
sundferðir, dansleikir o.fl. Grunnverð
helgarpakkanna á báðum stöðum er
5.900 kr. Innifalið í því verði er gist-
ing í tvær nætur og fæði, m.a. þrí-
rétta kvöldverður.
í máli ferðaþjónustufólksins kom
fram að Suðurland er einn fjölsótt-
asti fjórðungur landsins, bæði af ís-
lendingum sem og erlendum ferða-
mönnum. Markmið hagsmunaaðila í
ferðaþjónustu er að fá fólk til þess
að stoppa lengur og njóta þeirrar
sérstöðu sem svæðið býður upp á. í
því sambandi skiptir afþreying fyrir
ferðamenn miklu máli og augu fólks
eru að opnast fyrir mikilvægi þess
hluta ferðaþjónustunnar.
Reyklaus bar í fjósinu
Á Suðurlandi er sífellt að bætast
við afþreyingarmöguleikana og nú
síðast má nefna Ferðamannafjósið á
Laugarbökkum undir Ingólfsfjalli.
Þar gefst gestum kostur á að fylgj-
ast með mjöltum og öðrum störfum
í íjósinu og bragða um leið á spen-
volgri mjólk og gæða sér á öðrum
veitingum. Nýjasta viðbótin í Ferða-
mannafjósinu er Hlöðubarinn. Er það
eini reyklausi bar landsins, en af
skiljanlegum ástæðum eru reykingar
ekki leyfðar þar innan dyra.
Gestir barsins sitja á böggum í
hlöðunni, en barinn sjálfur er skorinn
út í heystabbann. Þama gefst hópum
tækifæri á að hefja árshátíðina eða
þorrablótin með fordrykk en halda
síðan áleiðis í danshús til frekara
skemmtanahalds.
Samherj amenn funduðu
með áhöfn Guðbjargar
ísaflrði - Tveir af forsvarsmönn-
um Samheija hf. á Akureyri, eig-
anda Guðbjargar ÍS-46, þeir Þor-
steinn Már Baldvinsson og Þor-
steinn Vilhelmsson, komu til ísa-
fjarðar á mánudag til fundar við
áhöfn Guðbjargar, sem landaði
fullfermi af rækju sama dag.
Á fundinn mættu auk þeirra
nafna frá Akureyri um helmingur
skipveijanna, þ.e.a.s. sá hluti
áhafnarinnar sem er búsettur á
ísafirði, auk þeirra Ásgeirs Guð-
bjartssonar og Guðmundar Guð-
mundssonar frá Hrönn hf.
Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins var áhöfninni gerð grein fýrir
þeim breytingum sem átt hafa sér
stað á útgerð skipsins auk þess
sem farið var yfir áætlun stjórn-
enda Samheija um hvar skipið
yrði að veiðum næstu mánuðina.
Guðbjörg hélt í sína aðra veiði-
ferð á árinu í gærkvöldi og var
stefnan tekin á heimamið. Síðan
er ráðgert að skipið fari til veiða
á Flæmingjagrunni og verði þar í
a.m.k. tvo mánuði. í framhaldi af
því er ráðgert að skipið haldi til
veiða á úthafskarfa, en hvenær
það verður, ræðst allt af aflabrögð-
um á Flæmingjagrunni. Ánægja
mun vera á meðal skipveija með
þær hugmyndir sem Samheija-
menn höfðu á lofti á fundinum.
Heildarafli Guðbjargar úr síð-
ustu veiðiferð var 312 tonn af
frystri rækju, að verðmæti um 44
milljónir króna. Rúmlega 157 tonn
af aflanum, svonefnd iðnaðar-
rækja, fór til vinnslu hjá Bakka
hf. í Hnífsdal og Bolungarvík.
Wö
* I
Ik» Ögis-
L 1 1 m
NÚVERANDl bæjarskrifstofa. Vinstra megin sést í Borgarhúsið.
Morgunblaðið/Silli
Húsavíkurbær kaupir
Borgarhúsið
Husavík - Fjárhagsáætlun Husa-
víkurbæjar og fyrirtækja bænum
tengd var samþykkt við aðra um-
ræðu á fundi í síðustu viku. Frá
framlagðri uppbaflegri áætlun
voru þær breytingar gerðar að
rekstrargjöld voru lækkuð um 3%
og skyldi sá sparnaður koma fram
á sem flestum gjaldliðum. Áætlað-
ar skatttekjur eru um 400 milljón-
ir sem eru tæpar 100 millj. kr.
hærri en árið áður. Tekjuafgang-
ur er áætlaður um 85 mil^ónir sem
fara eiga til lækkunar skulda. Sú
breyting hefur orðið á rekstri
bæjarins að hagnaður af rekstri
veitna bæjarins rennur nú ekki til
bæjarsjóðs, en þessi hagnaður
hefur numið 15-20 milþ'. kr. und-
anfarin ár.
Skiptar skoðanir urðu um þá
tillögu Orkunefndar að hækka
sölu á heitu vatni um 10% frá 1.
janúar og aftur um 10% frá 1.
júlí og kalt vatn, sem selt er eftir
mælum, um 7% frá 1. janúar og
7% 1. júlí. Hækkun heita vatnsins
var rökstudd með því að áformuð
er borun nýrrar heitavatnsholu
við Hveravelli og miklar endur-
bætur hafa verið gerðar á bæjar-
kerfinu í sambandi við það að
lagður var breiðvæðingarstreng-
ur um bæinn.
Á fundinum samþykkti bæjar-
stjórnin að kaupa svonefnt Borg-
arhús sem er áföst bygging við
bæjarskrifstofurnar og gera úr
því myndarlega stjórnsýslumið-
stöð Húsavíkurbæjar og flytja
þangað alla starfsemi bæjarins,
stofnanir og félög bænum tengd.