Morgunblaðið - 29.01.1997, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hafa hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkað of mikið í verði?
Hlutabréf írótgrónum
félögum rétt inetin
VERÐ hlutabréfa í ýmsum sjávar-
útvegsfyrirtækjum, sem nýkomin
eru á markað, er hærra en afkoma
þeirra gefur til kynna. Verð hluta-
bréfa í ýmsum rótgrónum sjávarút-
vegsfyrirtækjum, einkum stórum
fyrirtækjum, er þó síst of hátt.
Þetta kom fram í máli Andra Teits-
sonar, viðskiptastjóra fyrirtækja-
sviðs íslandsbanka hf., á fundi hjá
VÍB í gær.
Andri leitaðist við að svara
spumingunni hvort verð á hluta-
bréfum sjávarútvegsfyrirtækja væri
orðið of hátt eins og Sighvatur
Björgvinsson, formaður Alþýðu-
flokksins, fullyrti í fjölmiðlum fyrir
skömmu. Andri lagði einkum
áherslu á tvennt í máli sínu. Ann-
ars vegar hvort hlutabréf í sjávarút-
Á DÖGUNUM var undirritaður
samningur milli Olíufélagsins
hf. og Landsbanka íslands, um
beingreiðslur vegna Einkakorts
ESSO, sem er greiðslukort fyrir
einstaklinga. Oliufélagið hefur
lagt mikla áherslu á að auka veg
skjalalausra viðskipta og um það
snýst þessi samningur að miklu
leyti. Allar sendingar milli
Landsbankans og Olíufélagsins
eru samkvæmt EDI-staðli sem
er alþjóðlegur staðall um skjala-
laus viðskipti. Beingreiðslur
hafa verið þekktar hér á landi
í nokkurn tíma en þessi aðferð,
sem nefnd hefur verið Direct
Viðskiptakerfi fyrir RR
Tilboði
Tæknivals
verði tekið
STJÓRN Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar hefur lagt til við
Borgarráð að tekið verði tilboði
Tæknivals hf. að upphæð tæpar
30,5 milljónir króna í viðskipta- og
upplýsingakerfí fyrir Rafmagns-
veitu Reykjavíkur.
Tveimur aðilum var gefinn kost-
ur á að gera tilboð í kerfið að undan-
gengnu forvali, Tæknivali hf. fyrir
hönd EllipsData og Teymi fyrir
hönd Info Synergi. Tilboð Tækni-
vals var að upphæð 39,9 milljónir
og Teymis að upphæð 46,8 milljón-
ir, en að auki barst frávikstilboð frá
Tæknivali að upphæð 30,8 millljón-
ir króna. Það tilboð varð fyrir valinu
eftir viðræður við Tæknival og
smávægilegar breytingar á því.
vegi hafi hækkað meira en við
mætti búast og hins vegar hvort
gengi hlutabréfa einstakra fyrir-
tækja í greininni væri í samræmi
við mat á kvótaeign. Ef hægt væri
að svara því neitandi væri verð
hlutabréfanna ekki of hátt.
Andri benti á að verðmæti þorsk-
kvóta hefði tvöfaldast frá upphafi
ársins 1992 en hlutabréf í sjávarút-
vegi hefðu hins vegar þrefaldast á
sama tíma. Miðað við arðsemi væru
hlutabréf rótgróinna fyrirtækja í
sjávarútvegi fremur ódýr en lítið
eitt yfir meðallagi er miðað væri
við bókfærðar eignir. Hins vegar
væru hlutabréf margra sjávarút-
vegsfyrirtækja, sem nýkomin væru
á hlutabréfamarkað, mjög dýr mið-
að við afkomu. Miðað við endurmet-
Debet, er nýjung hérlendis.
Einkakortið hefur staðið við-
skiptavinum Olíufélagsins til
boða í hálft ár og segir í frétt
frá ESSO að það hafi greinilega
fallið fólki vel í geð því sífellt
fleiri bætast í hóp Einkakort-
hafa. Hliðstæður samningur og
þessi hefur áður verið gerður
við íslandsbanka og Póstgíró-
stofuna. Geir Magnússon, for-
stjóri ESSO, Jóhann P. Jónsson
frá ESSO, Ingólfur Guðmunds-
son frá Landsbankanum og Jó-
hann Ágústsson, bankastjóri
Landsbankans gengu frá samn-
ingnum.
Kjallari til
sölu í
Borgar-
kringlunni
HÚSNÆÐIÐ þar sem ís-
lenski bjórkjallarinn er til
húsa í Kringlunni hefur verið
auglýst til sölu hjá Firmasöl-
unni ehf. Um er að ræða 918
fermetra húsnæði sem hefur
verið í eigu Mænis ehf. frá
1994.
Kristmann Árnason hjá
byggingafyrirtækinu Mæni
segir sölu húsnæðisins engu
breyta um rekstur veitinga-
staðarins íslenska bjórkjall-
arans þar sem í gildi er lang-
tímaleigusamningur við eig-
endur veitingastaðarins.
ið eigið fé væru hlutabréf uppsjáv-
arfyrirtækja dýrari en hlutabréf
bolfísk- og rækjufyrirtækja og
hlutabréf „rótgróinna“ fyrirtækja
dýrari en hlutabréf „nýrra“.
Með rótgrónum sjávarútvegsfyr-
irtækjum sagðist Andri eiga við
hlutafélög eins og Granda, Hrað-
frystihús Eskifjarðar, Síldarvinnsl-
una, Þormóð ramma, Skagstrend-
ing, Vinnslustöðina, Útgerðarfélag
Akureyringa og Harald Böðvars-
son. Með „nýjum“ fyrirtækjum
ætti hann hins vegar við þau fyrir-
tæki sem nýkomin væru á hluta-
bréfamarkað, t.d. Tanga, Bú-
landstind, Jökul, Hólmadrang,
Básafell, Bakka, Snæfelling og
Fiskiðjusamlag Húsavíkur.
Niðurstaða Andra er sú að
FÉLAG íslenskra stórkaupmanna og
Kaupmannasamtök íslands hafa nú
fyrir hönd félagsmanna sinna sent
bæði Eimskip og Samskipum erindi
þar sem kvartað er yfir nýjum þjón-
ustugjöldum í flutningum til og frá
landinu. Um er að ræða afgreiðslu-
gjöld fyrir stykkjavörusendingar,
gámagjöld og gjöld fyrir útgáfu
farmskírteina.
í erindi samtakanna kemur fram
að athugasemdir félagsmanna FIS
og KÍ lúti að upphæð gjaldanna, en
Ijóst sé að þau valdi hækkun heildar-
flutningskostnaðar, enda hafi ekki
verið tilkynnt um samsvarandi lækk-
un annarra flutningsgjalda. „í öðr-
BÚAST má við að hlutabréf í ís-
lenskum fyrirtækjum haldi áfram
að hækka í verði og hækkunin
nemi samtals 12% á fyrsta árs-
fjórðungi að því er segir í ársfjórð-
ungsskýrslu Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka, sem kynnt var í
gær.
I skýrslunni segir að árið 1997
sé fjórða árið í uppsveiflunni hér-
lendis sem hófst sumarið eða
haustið 1993. Líklegt sé að hag-
vöxtur hafi orðið um 5,5 - 6% á
síðasta ári og reikna megi með
4,3% hagvexti á þessu ári, þegar
tillit sé tekið til byijunarfram-
kvæmda fyrir stóriðju. Þrátt fyrir
góðar efnahagshorfur ríki þó
nokkur óvissa vegna niðurstöðu
kjarasamninga sem gæti hægt á
hagkerfinu um sinn.
Líkur eru á að verðtryggðir
vextir lækki vegna minna fram-
hækkun hlutabréfa rótgróinna fyr-
irtækja í sjávarútvegi sé ekki óeðli-
lega mikil og verðið á bréfunum
sé ekki sérlega hátt. „Hlutabréf
nýrra fyrirtækja í sjávarútvegi
hafa hins vegar hækkað meira en
afkoma þeirra fram að þessu gefur
tilefni til. Ég efast um að fjárfest-
ar séu jafn viljugir að fjárfesta í
fyrirtækjum sem eiga eftir að
sanna sig rekstrarlega í öðrum
greinum,“ sagði Andri.
Hann sagðist ekki telja að verð-
hækkunin á kvótanum væri orsök
þeirrar miklu hækkunar, sem orðið
hefði á gengi hlutabréfa rótgróinna
félaga í sjávarútvegi. Hækkunin
hefði orðið vegna þeirrar hag-
kvæmni og hagnaðarvonar sem
kvótakerfið hefði leitt af sér.
um tilvikum er um að ræða gjald-
töku fyrir þjónustu sem ekki hefur
verið óskað eftir við skipafélögin,
t.d. útgáfu farmskírteina, en útflytj-
endur hafa sjálfir séð um þá vinnu
hingað til. Félögunum hafa einnig
borist erindi sama efnis frá erlendum
flutningsmiðlurum þar sem m.a.
hefur verið fullyrt að gjöldin séu
mun hærri en þekkist annarsstaðar.
Einnig hefur það valdið óánægju
félagsmanna að þjónustugjöldin
skuli lögð á fyrirvaralaust, án nokk-
urra tilkynninga þar um og óháð
gildandi flutningasamningum."
Afrit af bréfinu var sent til Sam-
keppnisstofnunar.
boðs skuldabréfa en óverðtryggð-
ir vextir hækki vegna óvissu í
verðlagsmálum að mati VIB.
„Vegna óvissu um verðlagsmál
og kjaraviðræður er gert ráð fyr-
ir að vextir óverðtryggðra skulda-
bréfa og víxla hækki um allt að
50 punkta og raunávöxtun þeirra
verði aðeins 3-4%,“ segir í skýrsl-
unni.
Hlutabréfavísitalan hérlendis
hækkaði um 4% fyrri hluta jan-
úarmánaðar eftir litlar breytingar
á hlutabréfaverði síðustu vikur
ársins 1996. í skýrslunni segir
að bjartsýni sé nægileg á verð-
bréfamarkaði til að hlutabréf
haldi áfram að hækka og gera
megi ráð fyrir að hlutabréfaverð
hækki um samtals 12% á fyrsta
ársfjórðungi. Erlend verðbréf séu
því í bráð lakari fjárfestingarkost-
ur en innlend verðbréf.
Nýherji
ræður þijá
frá Apple-
umboðinu
NÝHERJI hf. hefur ráðið til sín þrjá
lykilstarfsmenn Apple-umboðsins sem
eiga þar langan starfsaldur að baki.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
á laugardag hætti
Ámi G. Jónsson
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
Apple-umboðsins
þar störfum sl.
fóstudag og hóf
hann störf hjá Ný-
herja í gær. Nú
hafa þeir Sveinn
Orri Tryggvason
sölustjóri og Jón
Páll Vignisson hug-
búnaðarsérfræð-
ingur fýlgt í fótspor
hans og ráðið sig
til Nýheija. Ekki
er orðið ljóst hve-
nær Sveinn Orri og
Jón Páll geta hafíð
störf.
Að sögn Frosta
Siguijónssonar,
forstjóra Nýheija
hefur fyrirtækið að
undanförnu bætt
við þekkingu sína á
þeim sviðum sem
nauðsynleg eru til
að fyrirtækið geti
veitt viðskiptavin-
um sínum ráðgjöf
og þjónustu á sviði
heildarlausna. Með þessum nýju
starfsmönnum efli fyrirtækið þekk-
ingu sína á sviði Mac-OS búnaðar og
efli sérstöðu sína í samkeppninni.
Margir af viðskiptavinum Nýheija
hafí þurft að reiða sig á blandað tölvu-
umhverfí og nú sé fyrirtækið vel í
stakk búið til að veita þeim enn betri
þjónustu en áður.
Ámi G. Jónsson hefur unnið hjá
Radíóbúðinni hf. og Apple-umboðinu
hf. í 17 ár.
Sveinn Orri Tryggvason, viðskipta-
fræðingur, hefur unnið hjá Apple-
umboðinu í tæp 7 ár og verið sölu-
stjóri þar undanfarin 2 ár.
Jón Páll Vignisson, rafeindavirki,
hefur starfað hjá Apple-umboðinu í 7
ár, séð um sölu og ráðgjöf á sviði
hugbúnaðar fyrir Apple-tölvur.
„Árni var rekinn“
Grímur Laxdal, framkvæmdastjóri
Apple-umboðsins, segir að það sé lítið
við því að segja þótt menn hætti hjá
einu fyrirtæki og hefji störf hjá öðru.
„Árni G. Jónsson var rekinn þannig
að það var viljandi gert. Hinir starfs-
mennimir tveir kusu að fylgja honum
og þeir ráða því auðvitað hvar þeir
vinna. Ég sé ekki betur en að Ný-
herji ætli sér að fara að selja Macint-
osh-útgáfur af tölvubúnaði og mér
líst vel á það enda er samkeppni af
hinu góða. Búist er við mikilli upp-
sveiflu á næstunni hjá Apple enda
era þeir að setja á markað nýtt stýri-
kerfí sem tekur öllu fram. Risk örgjör-
vinn er einnig að taka stórstígum
framföram," segir Grímur.
------» ♦ ♦-----
Tóbaksrisar
lögsóttir
New York. Reuter.
SAKSÓKNARI New York-ríkis,
Dennis Vacco, hefur höfðað mál gegn
sex stórum tóbaksfyrirtækjum og
gefur þeim að sök að villa um fyrir
íbúum ríkisins með því leyna hættum
samfara reykingum.
Vacca sakar eftirtalin fyrirtæki
um að „tæla unglinga til sígarettu-
reykinga með ólöglegum hætti“:
R.J. Reynolds, deild í RJR Nabisco
Holdings Corp; Philip Morris Cos
Inc; American Tobacco Co, og Brown
and Williamson Tobacco Corp, sem
era í eigu B.A.T Industries Plc; Lo-
rillard, fyrirtæki Loews Corp; og Lig-
gett Group Inc, fyrirtæki Brooke
Group Ltd.
Beingreiðslur hjá Esso
Kaupmenn segja ný þjónustugjöld skipa-
félaganna hærri en annarsstaðar
Veldur hækk-
un flutnings-
kostnaðar
Ársfjórðungsskýrsla VÍB
Frekari hækkun
hlutabréfa spáð
Jón