Morgunblaðið - 29.01.1997, Síða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Myrtu
verkalýðs-
leiðtoga
París. Reuter.
ALSÍRSKIR ofsatrúarmenn drápu í
gær æðsta verkalýðsleiðtoga lands-
ins, Abdelhak Benhamouda, í mið-
borg Algeirsborgar.
Lágu fjórir vopnaðir hryðjuverka-
menn fyrir Benhamouda og myrtu
hann er hann yfírgaf höfuðstöðvar
samtaka sinna.
Benhamouda var á leið út í bifreið
sína er hafin var á hann vélbyssuskot-
hríð. Féll iífvörður hans og einnig
starfsmaður verkalýðssamtaka hans.
Benhamouda var á fímmtugsaldri.
Honum var sýnt banatilræði árið
1993 en slapp naumlega. Ofsatrúar-
menn myrtu bróður hans í fyrra.
Stjóm Alsírs hefur heitið að taka
hart á hryðjuverkamönnum. í gær
var hafínn flutningur öryggissveita
til úthverfa Algeirsborgar þar sem
ofsatrúarmenn eru sagðir eiga grið-
land. Talið var að í uppsiglingu væri
stórsókn gegn vígamönnum þeirra.
Háttsettur í sovéska hernum
Grozni. Reuter.
ASLAN Maskhadov virtist í gær
hafa tryggt sér sigur í forsetakosn-
ingunum í Tsjetsjníju með rúmlega
helming greiddra atkvæða að baki
sér. Hann er sagður hógvær maður
og sker sig úr í landi þar sem stolt
manna á að vera í eldi hert og byss-
an nánasti félaginn.
Maskhadov skipti á bardagaföt-
unum og jakkafötum í kosningabar-
áttunni, en í átökunum við Rússa,
sem stóðu í 21 mánuð, stjómaði
hann skæruliðum Tsjetsjena og lék
andstæðingana oft grátt.
Rússneski herinn lagði Grozní
undir sig í upphafi átakanna, en
neyddist á endanum til að hörfa
eftir þrálátar skæmr manna Mask-
hadovs.
Andlit Maskhadovs varð brátt
þekkt meðal Tsjetsjena eftir að
Rússar ákváðu að bijóta sjálfstæð-
isbaráttu þeirra á bak aftur með
valdi. Á hvequ kvöldi vom sjón-
varpsútsendingar úr kjallara for-
setahallarinnar í Grozní, þar sem
skæraliðar höfðu höfuðstöðvar sín-
ar, og lýsti Maskhadov þar gangi
átakanna frá sjónarhóli Tsjetsjena.
Stjórnaði samningaviðræðum
Þegar blóðbaðinu lauk hafði
Maskhadov forystu í samningavið-
ræðunum við Rússa. Hann fór sér
hægt, var rólegur og raunsær og
nú kveðst hann hafa tryggt
Tsjetsjníju sjálfstæði í raun.
Ráðamenn í Moskvu hamra aftur
á móti á því að ekki komi til greina
að Tsjetsjníja fái sjálfstæði. Þeir em
hins vegar flestir þeirrar hyggju að
af þeim fjómm frambjóðendum, sem
flest fengu atkvæði, hafi Maskhadov
verið besti kosturinn. Auðveldast
verði að semja við hann um framtíð-
arsamskipti Rússa og Tsjetsjena.
Krefst stríðsskaðabóta
Nú bíður uppbyggingin Mask-
hadovs. Stór hluti mannvirkja í
Tsjetsjníju er í rúst eftir átökin.
Maskhadov hefur sagt að hann vilji
„stríðsskaðabætur" fyrir skemmd-
imar, sem unnar vom í átökunum
við Rússa. Rússar hafa heitið fé til
uppbyggingar, þar á meðal til að
endurreisa olíuhreinsunarstöðvar
Tsjetsjena, en vænta má að þau
framlög verði lykilatriði í samning-
um milli Rússa og Tsjetsjena.
Maskhadov fæddist í Kazakstan.
Fjölskylda hans var meðal þeirra
tugþúsunda, sem sovéski einvaldur-
inn Jósef Stalín sendi út á steppurn-
ar árið 1944. Stalín sakaði Tsjetsj-
ena um að hafa hjálpað nasistum
í heimsstyijöldinni síðari.
Maskhadov er kvæntur og á son
og dóttur.
í kosningabaráttunni vitnaði
Maskhadov oft til Dzokhars
Dúdajevs, hins látna leiðtoga Tsjetsj-
ena, eins og reyndar hinir frambjóð-
endumir 15. Dúdajev er sagður hafa
verið myrtur með flugskeyti, sem
hæfði hann þar sem hann stóð á
akri og var að semja við Rússa í
farsíma. Hann lagði einnig áherslu
á að Tsjetsjenar þyrftu að horfa til
íslams I leit að lífsgildum.
Reuter
ASLAN Maskhadov, fyrrverandi leiðtogi tsjetsjenskra skæruliða og verðandi forseti Tsjetsjnyu,
steytir hnefann eftir að hafa greitt atkvæði í forsetakosningunum á mánudag.
Maskhadov var háttsetur foringi
í sovéska hernum eins og Dúdajev.
Það var fátítt að Tsjetsjenar næðu
frama þar vegna þess að almennt
var litið svo á í Sovétríkjunum að
Tsjetsjena skorti pólitíska sannfær-
ingu til að treysta mætti þeim fyrir
mikilvægum stöðum í hernum.
Maskhadov og Dúdajev eiga hins
vegar fátt annað sameiginlegt.
„Hann var þver og tilfinninga-
heitur, en ég sagði að við ættum
ekki að rasa að stríði," sagði Mask-
hadov í viðtali fyrir skömmu og
bætti við: „En hvað varðar sjálf-
stæði Tsjetsjníju er ekki nokkur
munur. Við erum sjálfstætt ríki.“
Fjölgar í starfs-
liði Parker-Bowles
London. The Daily Telegraph.
KARL prins af Wales er svo
áhyggjufullur vegna ágengni
fréttamanna f Bretlandi gagn-
vart ástkonu sinni, Camillu
Parker-Bowles, að hann hefur
ráðið bílstjóra og fleiri starfs-
menn henni til aðstoðar. Kornið
sem fyllti mælinn var þegar
blaðamaður sem elti Parker-
Bowles, var svo ágengur að hún
ók út af þjóðvegi á bíl sínum.
Fullyrða vinir hennar að ástæða
aukinnar verndar sé ekki til
marks um að prinsinn hyggist
opinbera samband sitt við hana
frekar en orðið er.
Fullyrt er að prinsinn tejji að
áhugi fjölmiðla á Parker-Bowl-
es sé eingöngu vegna sambands
hennar við hann og því sé það
á hans ábyrgð að vernda hana.
Hefur henni reynst æ erfiðara
að lifa eðlilegu lifi vegna ágangs
fjölmiðla og er svo komið að hún
getur vart farið úr húsi eða
keypt í matinn án þess að með
því sé fylgst.
Vangaveltur um að prinsinn
og Parker-Bowles hyggist koma
fram opinberlega saman hafa
fengið byr undir báða vængi að
undanförnu eftir að henni var
boðið að gerast verndari góð-
gerðarstofnunar sem hefur í för
með sér að hún þarf að koma
fram opinberlega við fjölmörg
tækifæri. Parker-Bowles hefur
hins vegar tengst starfi stofnun-
arinnar lengi, en hún aðstoðar
konur sem þjást af beingisnun.
Móðir og systir Parker-Bowles
létust báðar úr sjúkdómnum.
Prinsinn hefur lýst því yfir
að hann hyggist ekki kvænast
Parker-Bowles en hann hefur
einnig gert mönnum það ljóst
að hann muni ekki láta undan
þrýstingi annarra varðandi
samband þeirra. Þrátt fyrir að
prinsinn og ráðgjafar hans vissu
um andstöðu bresks almennings
við Parker-Bowles, mun þeim
hafa komið á óvart hversu djúpt
hún ristir.
Foringi skæru-
liða í forsetastól
Frakkland og Þýzkaland ósammála um þörf á „efnahagsmálaráði“ EMU
Deila um áhrif stjórnmála-
manna á peningastefnu
el. Reuter.
Halli á við-
skiptum
ESB við
NAFTA
Brussel. Reuter.
HALLI var á viðskiptum Evrópusam-
bandsins við NAFTA, Fríverzlunar-
svæði Norður-Ameríku, á árinu 1995
og nam hann alls 2,9 milljörðum ECU
eða um 238 milljörðum íslenzkra
króna. Meginorsök hallans var auk-
inn innflutningur frá Norður-Amer-
íku á skrifstofubúnaði og hátækni-
vömm, að sögn Eurostat, hagstofu
Evrópusambandsins.
Afgangur var af viðskiptum ESB
við NAFTA árin 1993 og 1994. Á
árinu 1995 jókst innflutningur frá
NAFTA (Bandaríkjunum, Kanada og
Mexíkó) hins vegar um 5,3% en út-
flutningur Evrópuríkjanna minnkaði
um 3,6%.
ESB verzlar meira við NAFTA en
nokkur önnur svæðasamtök og eru
um 21% af utanríkisviðskiptum sam-
bandsins við NAFTA-ríkin. Lang-
mest af þeim viðskiptum er hins veg-
ar við Bandaríkin, eða 18%, en
Kanada og Mexíkó standa fyrir eitt
prósentustig hvort.
Mikilvægasta útflutningsvara ESB
til NAFTA em bílar og önnur farar-
tæki.
DEILUR Frakklands og Þýzkalands
um þörfína á að setja á stofn sér-
stakt „efnahagsmálaráð" Efnahags-
og myntbandalags Evrópu (EMU)
hafa magnazt að undanförnu. Frakk-
ar vilja að stjómmálamenn hafi ein-
hver áhrif á mótun peningastefnunn-
ar eftir að sameiginlegur gjaldmiðill,
evró, verður tekinn upp. Þjóðveijar
leggja hins vegar ofuráherzlu á sjálf-
stæði Evrópska seðlabankans, sem á
að fara með stjóm peningamála í
EMU.
Svipað form og
á samstarfi iðnríkjanna
Jean Arthuis, fjármálaráðherra
Frakklands, sagði fyrir skömmu að
nota yrði næstu mánuði til að koma
á fót efnahagsmálaráði EMU, sem
yrði óformleg stofnun án skrifstofu
eða starfsliðs, að mörgu leyti svipuð
hinu óformlega samstarfí sjö helztu
iðnríkja heims, en Frakkar áttu fmm-
kvæði að því á sínum tíma. Frakkar
ræða um að efnahagsmálaráðið (sem
þeir hafa líka kallað stöðugleikaráð)
muni ræða ríkisfjármálastefnu, sjá
um framkvæmd stöðugleikasáttmál-
ans, sem leggur hömlur á fjárlaga-
halla aðildarríkja EMU, og fjalla um
gengisstefnu, til dæmis gengissam-
starf við ríki utan evró-svæðisins.
Samkvæmt Maastricht-sáttmálan-
um verður gengisstefna í höndum
ríkisstjórna aðild-
arríkja EMU, en
peningamála-
stefna í höndum
sjálfstæðs evr-
ópsks seðlabanka
(ECB). Frakkar
hafa áhyggjur af
að peningamála-
stefnan muni beinast eingöngu að
þvi að viðhalda verðstöðugleika og
slíkt geti dregið úr hagvexti og aukn-
ingu atvinnu.
Verður að vernda bankann
fyrir stjórnmálamönnum
Þjóðveijar óttast mjög að Frakkar
muni reyna að nota efnahagsmála-
ráðið til að hafa áhrif á ECB, þótt
franskir embættismenn þvertaki fyr-
ir öll slík áform. Fyrrverandi banka-
stjóri þýzka seðlabankans, Karl-Otto
Pöhl, skrifaði í Frankfurter AUge-
meine Zeitung fyrir skömmu að
Maastricht-sáttmálinn bannaði hvers
konar pólitískan þrýsting á ECB. „Ef
fjármálamarkaðimir sannfærast um
að með pólitískum
þrýstingi mætti
þvinga Evrópska
seðlabankann til
að fylgja vísvit-
andi þeirri stefnu
að fella gengi ev-
rósins gagnvart
dollar eða jeni,
gæti komið til gífuriegrar eignatil-
færslu," skrifar Pöhl.
Hans Tietmeyer, núverandi seðla-
bankastjóri Þýzkalands, sagði nýlega
í ræðu að sjálfstæði ECB væri „gífur-
lega mikilvægt“ og vernda yrði bank-
ann fyrir pólitískum stofnunum. „í
Maastricht-sáttmálanum er þetta svo
skýrt að ekki verður um villzt,“ sagði
Tietmeyer. Alls konar tilraunir til að
skapa pouvoir politique (pólitískt
vald) til að stýra pouvoir monetaire
(peningamálavaldi) eru andstæðar
Maastricht-sáttmálanum."
í síðustu viku tók Wim Duisen-
berg, seðlabankastjóri í Hollandi og
verðandi forseti Peningamálastofn-
unar Evrópu (EMI), undir sjónarmið
Þýzkalands í málinu. Margir búast
við að Duisenberg verði fyrsti banka-
stjóri Evrópska seðiabankans. í við-
tali við Intemational Herald Tribune
segir Duisenberg að Maastricht-
samningurinn „banni skýmm orðum
að Evrópski seðlabankinn taki við eða
leiti eftir pólitískum fyrirmælum.“
Duisenberg segir að þetta mál hafí
verið afgreitt á síðustu ríkjaráðstefnu
ESB fyrir sex ámm. „Frakkar töpuðu
þessari oirustu árið 1991, en þeir
hafa aldrei gefízt upp,“ segir hann.
Duisenberg segist þeirrar skoðun-
ar að með því að veita ríkisstjómum
aðildarríkjanna áhrif á peningamála-
stefnuna væri spillt fyrir möguleikum
seðlabankans til að viðhalda stöðugu
verðlagi og stöðugu gengi evrósins.