Morgunblaðið - 29.01.1997, Page 32

Morgunblaðið - 29.01.1997, Page 32
32 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ____________AÐSEIMPAR GREIMAR_ Næstu kjarasamningar 1. Ný þjóðarsátt? Miðað við aðdrag- anda kjarasamninga fyrri ára bendir margt til að forysta ASI sé að undirbúa næstu þjóðarsátt. Sennilegar forsendur slíkrar sátt- ar eru þessar: 1. Að launahækk- anir megi ekki vera umfram aukningu á framleiðni. 2. Að gengið verði stöðugt (þ.e. laun í fiskvinnslunni miðist við burðargetu fisk- vinnslunnar). 3. Að allir hópar launamanna, einnig opinberir starfsmenn, axli sömu ábyrgð á framleiðniforsend- unni, svo og stöðugleika gengis og verðlags. 4. Að opinberir starfsmenn hafi nú þegar fengið meiri launahækk- anir en aðrir og að auki sérstakar kjarabætur í formi breytinga á líf- eyrisréttindum og eigi þess vegna ekki rétt á neinum launahækkun- um nú. 5. Að bændur hafi ekki lækkað búvöruverð í samræmi við alþjóð- lega samninga og eigi þess vegna að taka á sig enn meiri kjaraskerð- ingar nú (alþekkt er að fátækt fer nú vaxandi meðal bænda). 6. Að kaupmáttur launa verði aukinn með skattkerfisbreyting- um. 7. Að dregið verði úr ríkisút- gjöldum (lesist: launakostnaði vegna starfsmanna ríkis) til að draga úr innlendri eftirpurn og verðbólgu og auka kaupmátt launamanna innan ASI. Út frá þessum forsendum tala forystumenn ASÍ um að launa- menn innan ASÍ eigi einir að njóta allra launahækkana sem mögulegar eru m.v. framleiðni og gengisforsendur. 2. Undirbúningur þjóðarsáttar Forysta ASÍ hefur tönnlast á því undan- farið að laun opinberra starfsmanna hafi auk- ist miklu meira en hjá ASÍ á tímabilinu 1. ársij. 1990 til 2. ársfj. 1996. Samanburður á greiddum dagvinnu- launum skv. kjara- rannsóknanefndum á almennum vinnu- markaði og hjá opinberum starfs- mönnum sýnir að laun allra opin- berra starfsmanna hafa aukist um 34,6% en launamanna innan ASI um 33,1%. Munurinn er ekki mark- tækur tölfræðilega (engu breytir hér þó að lítið úrtak skv. rannsókn Hagstofu sýni aðra þróun á al- mennum vinnumarkaði). Er ég raunar viss um að launaskrið hafi verið mun meira á almennum markaði en fram hefur komið í úrtökum hingað til. Ekki má held- ur líta framhjá því að úrtak kjara- rannsóknarnefndar á almennum vinnumarkaði tekur til 10-15.000 almennra starfsmanna en hækkun opinberra starfsmanna miðast við alla, einnig æðstu stjórnendur. Þá er einnig nauðsynlegt að benda á að lífeyrisréttindi í Lífeyr- issjóði starfsmanna ríkisins hafa ekki verið aukin á kostnað ríkisins eða vinnuveitenda eins og forysta ASÍ hefur margsinnis haldið fram. Aðeins þeir starfsmenn fá aukin réttindi sem greiða hærri iðgjöld og er aukning réttinda í samræmi við hærra iðgjald. Þessar rangfærslur um opinbera Ég er raunar viss um, segir Birgir Björn Sigxnjónsson, að launaskrið hafi verið mun meira á almennum markaði. starfsmenn hafa verið settar fram í því skyni að draga úr kröfum og væntingum þeirra og til að hræða stjórnvöld frá því að semja við starfsmenn sína. Herferðin hefur nú þegar skilað nokkru miðað við viðbrögð ráðherra. ASÍ-forystan trúir því að launakakan sé fyrir- fram ákveðin og virðist líta á opin- bera starfsmenn sem andstæðinga en ekki samhetja í baráttunni um bitana. 3. Sjónarmið vinnuveitenda Ég get ímyndað mér að VSÍ hafi í meginatriðum sömu sýn og ASÍ hvað varðar nýja þjóðarsátt, enda býður VSÍ sáralitlar almenn- ar launahækkanir í takt við tvær fyrstu forsendurnar. í rökréttu framhaldi býður VSÍ vinnustaða- samninga, þar sem hvert fyrirtæki getur hækkað laun starfsmanna m.v. eigin getu og án afskipta stéttarfélaga. Þetta á sér áreiðan- lega hljómgrunn meðal margra launamanna á almennum markaði sem hafa kjarasamningsbundin taxtalaun á bilinu 40-80.000 en semja svo sjálfir við vinnuveitendur sína um yfirborganir sem geta numið margföldum taxtalaunum. Herbragð VSÍ felst í því að halda ASÍ félögunum sem fjærst raun- verulegum launaákvörðunum til að hafa mikinn sveiganleika þegar á móti blæs og til að tryggja að launamenn fari ekki að fylkja sér um ASÍ-forystuna í aðgerðir um kauptaxta sem aðeins fáir nota. Bæði ASÍ og VSÍ sjá að með þess- um hætti er hægt að leiða mestan hluta kauphækkana framhjá opin- berum starfsmönnum en þessi leið gagnast ekki heldur láglaunahóp- um á almennum vinnumarkaði. 4. Hlutverk hagstjórnar Ofangreindar hugmyndir um þjóðarsátt, ef sannar reynast, byggja á kolröngum forsendum. Hagkerfið hefur um árabil verið að festa sig æ meira í kreppufarinu með stórfelldum ijárfestingum í hnignandi atvinnugreinum, þar sem okkur er ætlað hlutverk hrá- efnasalans og örfá lykilfyrirtæki ráða hagstjórninni. Stóriðjuáform- in eru af sama toga. Þessar fjár- festingar byggja á því að launa- stigið í landinu verði lágt til fram- búðar. Þetta eru einnig forsendur erlendra stóriðjufjárfesta nú, enda auglýsa stjórnvöld að launin hér séu 56% af því sem gerist í Þýska- landi, um 53% af launum í Noregi og 49% af launum í iðnaði í Dan- mörku. Hækkanir launa sem eiga alfarið að byggjast á aukningu framleiðni gætu látið á sér standa. Fastgengisstefnan byggir á því að launastigið í útflutningsgreinum verði ávallt miðað við burðargetu fiskvinnslunnar sem er hnignandi atvinnugrein með síminnkandi möguleika til aukinnar framleiðni. Þess vegna er stórhættulegt fyrir stéttarfélög að sætta sig við þá kenningu að aukning framleiðni (í hnignandi atvinnugreinum) eigi að stjórna launahækkunum. Stéttarfélög og launamenn verða með beinum hætti að stuðla að því að hagkerfið komist upp Birgir Björn Siguijónsson úr hjólförunum. Hin lágu laun eru til skammar. Þau eru vandamál heimilanna og íjölskyldna sem þurfa að framfleyta sér af þeim. Lágu launin viðhalda einnig núver- andi atvinnuháttum og festa þá í sessi. Hér er ekki síður þörf fyrir alþjóðleg markaðslaun en alþjóð- lega markaðsvexti til að fyrirtækin fari að hagnýta vinnuaflið á hlið- stæðum skilmálum og í samkeppn- islöndunum. Vinnuaflið býr yfir óvenju mikilli þekkingu og mennt- un sem árlega fer forgörðum; er vannýtt auðlind. Langur daglegur vinnutími landsmanna er einnig alþekktur. Hvorutveggja sýnir só- unina í hagkerfmu. Þessi staða mála ætti að að kalla á umræðu innan stéttarfélag- anna um ógöngur hagstjórninnar. Stéttarfélögin verða nú að horfa á fleira en verðlags- og gengismál. Reynslan hefur kennt okkur að markaðurinn sér ekki um skyn- samlega hagstjórn ef launahækk- unum er haldið niðri. Þvert á móti eykst bara sukkið hjá fyrirtækjun- um. Þau þurfa aðhald sem fæst m.a. með alþjóðlegum markaðs- launum á íslandi. Við verðum að hafa í huga að hlutdeild launa- manna mæld á grunni landsfram- leiðslu hefur snarminnkað á und- anförnum árum (um 6 %-stig) og skattkerfið hefur á sama tíma dregið enn frekar úr ráðstöfunar- tekjum. Næsta þjóðarsátt á ekki aðeins að snúast um verulega hækkun dagvinnulauna og kaupmáttar þeirra heldur einnig um það hvern- ig hlutur launamanna verði aukinn til framtíðar. Við þurfum þjóðar- sátt um nýja hagstjórn sem miðar að nýjum atvinnuháttum þar sem menntun og þekking landsmanna gegnir lykilhlutverki í því að koma á nýjum atvinnuháttum, auka tekjusköpunina og stækka launa- kökuna. Höfundur er hngfræðingur og framkvæmdastjóri Bandalags háskólamanna. OFT hef ég dáðst að því, hve alvarlegum augum þú lítur ýmis mikilvæg þjóðmál. Það kom mér því nokkuð á óvart, er ég sá brot úr ræðu þinni á Fiski- þingi. Þar brást þú all harkalega við því að sjómenn höfðu sagt sannleikann um hina neikvæðu hlið fisk- veiðistjórnunar okkar. Þætti sem flestum sæmilega víðsýnum mönnum hafa verið ljós í langan tíma og oft verið reynt að koma á framfæri við stjómvöld. Ég tel víst, að þar sem þú ert löglærður maður, sé þér Ijóst að menn verða ekki sóttir til saka hér á landi, fyrir að segja sannleik- ann. Sama hversu sár og óþægileg- ur sem hann er fyrir einhveija aðra. Það er einungis í ríkjum þar sem mannréttindi eru að litlu virt, sem slíkt getur átt sér stað. Ég vona að þessi ádrepa þín hafí ekki verið boðskapur um að dómsmálaráð- herrann, sem þú ráðfærir þig trú- 1 lega stundum við, sé ekki að opna á að sannleikurinn verði kæfður með valdhroka, eins og helst á sér stað í ríkjum þar sem lýðræði er ekki virt. Tilgangur laga Raunar ætla ég mér ekki þá visku að segja löglærðum manni V til um tilgang laga. Eitthvað finnst mér þó hafa farið úr- skeiðis í lagasmíð um stjórnun fiskveiða. Er hugsanlegt að það sé vegna þekkingarskorts á aðferðum við veið- arnar eða hegðunar- þáttum _ fiskitegund- anna? Ég er fyrrver- andi sjómaður, sem stundað hefur veiðar með öllum þekktum veiðiaðferðum hér við land. Ég hef einnig aflað mér nokkurrar þekkingar á lögum, auk þess sem ég tel mig vera með nokkuð skýra vitund um rétt- læti. En, það er sama hvernig ég leita út frá þessari þekkingu, ég hef hvergi getað fundið grundvöll réttlætis, í núverandi lögum um stjórnun fiskveiða. Þá er ég ekki að tala um hin aumkunarverðu brot á 1. gr. laganna, sem eru öllum sem málið varða til ævarandi niður- lægingar. Ég er ekki heldur að tala um kvótabraskið, því í mínum augum setur það alla sem að því koma á bás með öðrum sem kjósa að hagnast á vafasaman hátt, á kostnað alþýðunnar í landinu. Ég er að tala um skiptingu aflaheim- ilda og þær refsingar sem boðaðar eru við brotum á þeim. Það er svo- lítið undarlegt að reyna að tengja þetta í samhengi. Vilji skipstjóri ekki henda fiski sem hann fær í veiðarfærin, en hefur ekki kvóta fyrir, verður hann að sæta refsingu Menn hafa orðið að velja á milli þess að brjóta gegn banni við að kasta fiski, segir Guðbjörn Jónsson, eða koma með fisk að landi, sem þeir höfðu ekki kvóta fyrir. fyrir að koma með hann í land. Hann hefur ekki möguleika á þeim samskiptum við fiskitegundirnar á veiðislóðinni, að hann geti komið til þeirra boðum um hvaða tegund- ir megi verða á vegi veiðarfæra hans. Ekki hafa heldur verið gefn- ar út, af hinum opinberu aðilum, reglur um ákveðin veiðisvæði, þar sem einungis væri hægt að veiða þær tegundir sem menn hafi kvóta fyrir. Ekki er heldur séð fyrir því í lögunum, að útgerðir sem vantar kvóta fyrir meðafla, geti fengið aðgang að ónýttum aflaheimildum annarra, á sama verði og ráðuneyt- ið úthlutar þeim. Meðan ekki er tekið tillit til þessara þátta, verður ekki betur séð en lögin bijóti í bága við þau grundvallarsjónarmið lagasetningar, að menn eigi valkost um að koma heiðarlega fram og fara í einu og öllu eftir lögunum. í þessu tilfelli er það ekki hægt. Stjórnvöld geta ekki byggt löglega útgönguleið úr blindgötu lagasetn- ingar, á því að keypt séu á okur- verði ónýttar aflaheimildir, af þeim sem þau úthluta þeim ókeypis. Menn hafa því orðið að velja á milli þess að bijóta gegn ákvæðum um að kasta fiski eða koma með fisk að landi sem þeir höfðu ekki kvóta fyrir. í fyrrgreinda tilfellinu eru menn að fást við eigin sam- visku, sem þeir svara fyrir gagn- vart réttlætisúrskurði Guðs. I hinu tilfellinu eiga menn í samskiptum við réttlæti réttarfars í landinu okkar. Af framgangi þessara mála á undanförnum árum, ætti varla að fara á milli mála hvoru réttlæt- inu menn treysta betur. Segir þú sannleikann, sætir þú ákúru Þessi skilaboð hafa verið að skýr- ast í þjóðfélagi okkar, nú um nokk- urra ára skeið. Eftir því sem virð- ing manna fyrir gildandi lögum hefur dvínað, hafa þessi skilaboð verið borin fram í sífellt minni umbúðum. Fólk sem sagt hefur sannleikann um margt sem aflaga fer í þjóðfélaginu, hefur orðið að sæta aðkasti og vera sniðgengið. Einnig hefur það stundum verið svipt vinnu sinni og lífsviðurværi. Þessi þróun hefur verið afar mark- viss og er nú svo komið að fólk talar um að tilgangslaust sé að segja frá lögbrotunum, því það nenni ekki að taka á sig þau óþæg- indi sem því fylgi. Ekki verður annað sagt en sjáv- arútvegsráðherra okkar hafí lagt þungt lóð á þessa vogarskál, með ummælum sínum um þá sem sagt hafa sannleikann um óframfram- kvæmanleg lög um aflaheimildir. Ef menn leiða hugann að því að hann hafí ekki sagt þetta í beinni andstöðu við dómsmálaráðherrann, eru komin afar skýr skilaboð um að vera ekki að segja frá því sem fólk verður vart við. Séu þetta skila- boðin sem þessir tveir hæstvirtu ráðherrar vilja koma á framfæri við þjóðina, tel ég ljóst að verið sé end- anlega að kasta lýðræðisgrímunni fyrir borð. Framsetning ráðherrans á máli sínu úr ræðustóli á Fiski- þingi gæti einmitt bent til þess, sé hún borið saman við framsetningu valdamanna í þeim ríkjum sem að litlu virða mannréttindi. Leiðin til réttlætis Kæri Þorsteinn! Á allri lífsleið okkar, eru lögð fyrir okkur verk- efni til að mæla réttlætisvitund okkar. Hér á jörðu erum við sjálf dómarar í úrlausnum þeirra. Verði úrlausnin hins vegar ekki á þann veg að hið æðsta réttlæti viður- kenni þær, verða verkefnin lögð fyrir okkur aftur, en aðeins örlítið erfíðari úrlausnar. Opnun þessa máls, á þann hátt sem það gerðist, var trúlega prófverkefni á réttlæt- isvitund þína og annarra sem þess- um mála ráða. Því miður virðist augljóst að þið ætlið flesir að falla á þessu prófi. Ekki er þó alveg orðið ljóst með formann Framsókn- arflokksins, sem enn hangir á veiku hálmstrái. Flestum er ljóst að leiðin til réttlætis er erfið þeim sem hefur misstigið sig. Hins vegar vekur það alltaf almenna gleði réttlátra, þeg- ar einhver gengur fram og viður- kennir yfírsjón sína og snýr sér af alhug til betri vegar. Geri hann það með reisn, öðlast hann almenna virðingu, fyrir að hafa tekið stórt skref fram á við í þroska. Það er ekki mitt að segja þér hvað þú ættir að gera í þessu máli. Ég leyfi mér hins vegar að vona að ég geti verið stoltur af þér í framtíðinni, því þjóð okkar er mik- il þörf á sterkum og vel þroskuðum mönnum til að takast á við erfið- leika komandi ára. Hlustaðu vel á innri vitund þína, þá mun þér vel farnast í framtíðinni. Með bestu framtíðaróskum. Höfundur er skrifstofumaður. Opið bréf til sjávar- útvegsráðherra Guðbjörn Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.