Morgunblaðið - 29.01.1997, Page 36

Morgunblaðið - 29.01.1997, Page 36
36 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR «»*• -» t Elskuleg móðir okkar, ÁSTA MAGNÚSDÓTTIR, lést 27. janúar á Hrafnistu í Hafnarfirði. Hildur Bjarnadóttir, Sigríður Bjarnadóttir, Guðmundur Bjarnason, Þóra Bjarnadóttir. t Elskulegur tengdafaðir, afi og langafi, ÁGÚSTBÖÐVARSSON, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis í Barmahlíð 43, lést að kvöldi 27. janúar. Jarðarförin auglýst síðar. Anna B. Ágústsson, Ágúst Gunnarsson, Sveinbjörn Gunnarsson og barnabarnabörn. t Jarðarför elskulegrar mágkonu okkar, CAMILLU D. SVEINSDÓTTUR, Mávahlíð 35, fer fram frá Fossvogskirkju 30. janúar kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Ólafur Finnbogason. t Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SÓLRÚNAR EINARSDÓTTUR, Skipasundi 58, Reykjavík. Einar Kristjánsson, Guðrún Snorradóttir, Gústaf Kristjánsson, Jónína M. Kristjánsdóttir, Þórmar Ragnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur hlýhug og vináttu við and- lát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HALLGERÐAR RÖGNU HELGADÓTTUR, Árbraut 19, Blönduósi. Guð blessi ykkur. Svavar Pálsson, Brynja Svavarsdóttir, Jónas Sumarliðason, Páll Svavarsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Guðmundur Svavarsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Bróðir minn, uppeldisbróðir og frændi, ELLERT LEIFUR THEÓDÓRSSON, Sfðumúla 21, siðast búsettur i Hátúni 10B, verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu í dag, miðvikudaginn 29. janúar, kl. 13.30. Soffía Bjarnrún Theódórsdóttir, María Haukdal, Guðni Kárason, RutSkúladóttir. JÓHANNA KRISTÍN EINARSDÓTTIR + Jóhanna Kristín Einarsdótt- ir fæddist í Landakoti í Sandgerði 13. ágúst 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Keflavikur 20. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hvalsnes- kirkju laugardaginn 25. janúar í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Elskuleg amma mín í Sandgerði er látin. Er ég hugsa til hennar hrannast upp minningar um hana er allar tengjast gjafmildi, hiýju og væntumþykju. Þeirra hjóna voru veraldleg gæði að veita öllum þeim er þau þekktu allt það besta er þau gátu gefið, og þar sem amma var heimavinnandi alla sína tíð, var alltaf sönn veisla á borðum hjá þeim allan ársins hring. Mikið var um gestagang hjá þeim enda gott til þeirra að koma. Hver sá er heimsótti þau hlaut ávallt hlýjar móttökur og góðar veitingar. Amma mín var ætíð vel að sér í öllu sem var að gerast í kringum hana, hún var vel upplýst um dags- ins málefni bæði utanlands og inn- an. Þó að aldrei hefði hún ferðast út fyrir landsins steina, mat hún ávallt að fá fréttir frá ættingjum sínum erlendis. Hins vegar voru fáir sem stóðu henni jafnfætis með þekkingu á landi okkar. Amma var rík af visku og henn- ar áhugamál voru að vita um upp- runa sinn og annarra. Mér er minn- isstætt er hún kynntist konu minni. Vildi hún þá fræðast örlítið um ætt hennar að gömlum, góðum ís- lenskum sið. Þekkti hún þá bæði til afa og ömmu konu minnar í báða ættliði. Upp frá því urðu þær afar góðar vinkonur. Þegar við hjónin eignuðumst son var það barnabarn ömmu og afa númer 24. Amma sagði að þetta væri svo fínn drengur. Ég var mjög stoltur af ummælum ömmu, en að sjálf- sögðu átti þetta við um öll barna- börnin. Veikindi ömmu höfðu verið lang- varandi, hún hafði aldrei gert mik- ið úr þeim, en þau voru henni ban- væn. Undir það síðasta dró hratt af henni. Er við vitjuðum hennar á sjúkrahúsið í Keflavík nokkrum dögum fyrir andlát hennar bar hún höfuðið hátt og hugsun hennar var skýr sem gull. Er við kvöddum hana þrýsti hún sér að okkur þó máttfarin væri, við vissum innst inni að það væri í hinsta sinn. Er ég reyndi að útskýra andlát ömmu fyrir þriggja ára gömlum syni mínum hughreysti hann mig með sínum orðum: Pabbi, nú er langamma kominn til englanna á himninum. Það er ég sannfærður um líka. Elsku amma, þakka þér fyrir allar þínar ljúfu stundir og alla þá ást og umhyggju sem þú gafst okkar. Blessuð sé minning þín. Megi góður guð styrkja afa minn því missir hans er mestur. Jakob Már Harðarson. HÖRÐUR VILHJÁLMSSON + Hörður Vilhjálmsson fædd- ist í Reykjavík 5. september 1929. Hann lést á Landspítalan- um 16. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Breið- holtskirkju 24. janúar. Mig langar að minnast afa míns með nokkrum orðum. Ég á margar góðar minningar um afa. Það var alltaf skemmtilegt þegar afi las á jólapakkana um jólin. Við mamma fórum tvær ferðir með afa þegar t Maðurinn minn, faðir okkar og bróðir, HUGI PÉTURSSON, Aðallandi 6, lést í Landspítalanum mánudaginn 27. janúar. Gróa Herdis Bæringsdóttir, Klara Peterson, Ásgrímur Peterson, Belinda Peterson, og systkini. t Ástkær eiginkona mín, KRISTI'N (GÓGÓ) MAGNÚSDÓTTIR, Ránargrund 5, Garðabæ, lést á Landspítalanum að kvöldi mánudagsins 27. janúar. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Hlynur Ingimarsson. t Elskulegur faðir okkar, tegdafaðir, afi og langafi, GUIDO BERNHÖFT Garðastræti 44, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 30. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er góðfúslega bent á Barnaspítalasjóð Hringsins sími 560 1300. hann var að fylgja ömmu á hestun- um vestur á sumrin. Ég var oft að hjálpa afa á sendibílnum, það var líka mjög gaman. Þegar afi átti hlut í bát fórum við pabbi stundum út á sjó með afa. Þegar ég fékk meiraprófið fór ég í heimsókn til afa og ömmu, þá fór afi að segja mér hvernig prófið var þegar hann tók meiraprófið. Afi minn, ég mun alltaf sakna þín. Sigurður og Inga. Elsku afi, nú er kallið komið og þrautagöngunni hörðu lokið. Við munum sakna þín mikið. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Hörður, Hanna og synir. Elsku afi minn. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin strið. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Ég mun ávallt sakna þín, elsku afi minn. Kristinn. Örn Bernhöft, Svava P. Bernhöft, Ragnar Vilhelm Bernhöft, Kristín Bernhöft, Pétur Orri Þórðarson, barnabörn og barnabarnabarn. ír boðsdagar! | Glös - Matarstell * 20 - 50% afsláttur iittala rpl Laugavegi24. FINI and IX.C4 1 X- 1 sími 562 4525 Sérfræðingar í blómaskreytingum við öll tækifæri blómaverkstæði INNA Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 551 9090

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.