Morgunblaðið - 29.01.1997, Page 38

Morgunblaðið - 29.01.1997, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JONA JÓHANNESDÓTTIR + Jóna Jóhannesdóttir fædd- ist að Ytra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit 5. október 1905. Hún lést á Kristnesspítala 18. janúar síðastliðinn og fór útfðr hennar fram frá Munka- þverárkirkju 25. janúar. Einn af öðrum kveðja þeir, sam- ferðamennirnir sem við höfum átt á mislangri lífsgöngu, samferða- menn sem með nærveru sinni hafa áhrif á líf okkar hinna og varpa á það ljósi eða gefa því lit eftir atvikum. Nú síðast féll í valinn Jóna Jó- hannesdóttir frá Ytra-Laugalandi, sem við öll í daglegu tali kölluðum Jónu frænku. Jóna var dóttir hjónanna Aðal- bjargar Tryggvadóttur og Jóhann- esar Helgasonar á Ytra-Lauga- landi, og þar átti hún heima nær alla sína ævi ásamt bræðrum sín- um þeim Tryggva og Finni, en sá síðamefndi er látinn fyrir nokkrum árum. Síðustu árin var Jóna vistmaður á dvalarheimili aldraðra að Krist- nesi, þar sem hún undi sér vel, bjó við gott atlæti, þar var hún á heimaslóð. Jóna var harðdugleg kona, þurfti ung að standa fyrir heimilis- haldi að Ytra-Laugalandi með föð- ur sínum og bræðrum, þegar Aðal- björg móðir hennar féll frá um aldur fram, og eins og annað sem hún tók sér fyrir hendur leysti hún það með þeim skörungs- og mynd- arskap, sem einkenndi alla hennar framgöngu. Síðar þegar Tryggvi bróðir hennar kvæntist og tók ásamt konu sinni Guðrúnu Jónsdóttur við búi föður síns, voru þau systkinin Jóna og Finnur áfram að Lauga- landi og unnu heimili og búi eins og áður. Jóna var víkingur til allra starfa bæði innan húss og utan og gekk til útiverka svo sem heyskapar meðan þörf var handverkfæra við slík störf. Hún var stálgreind, minnug, ljóðelsk og mjög vel lesin og áti safn góðra bóka og tímarita og var verðugur fulltrúi þeirra fjöl- mörgu einstaklinga sem á eigin spýtur öfluðu sér staðgóðrar þekk- ingar um hin ýmsu mál. En lengst munum við eftir Jónu fýrir hennar glöðu lund og hlýja viðmót, sem við eins og allir aðrir nutum í sam- skiptum við hana. Jóna hafði ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og hvikaði hergi frá þeim hver sem í hlut átti, hún rökstuddi mál sitt einarðlega og sköruglega svo að enginn velkt- ist í vafa um skoðanir hennar, stundum beitt, en þó miklu oftar með skemmtilegri glettni, og víst var að eftir orðum hennar var munað. Jóna var bamgóð og þess nutu ekki einata synir þeirra Rúnu og Tryggva heldur líka börn og ungl- ingar sem dvöldu á Ytra-Lauga- landi um lengri eða skemmtri tíma og má þar nefna Guðnýju Magnús- dóttur og Símon Jónsson sem þar voru langdvölum, og síðar börn þeirra Hjörleifs og Aðalbjamar Tryggvasona, en á Ytra-Lauga- landi var hin dæmigerða stórfjöl- skylda, þar sem kynslóðirnar undu saman við leik og störf. Af þessari glaðværu og hispurs- lausu heild, var hlutur Jónu býsna afgerandi og átti sinn stóra þátt í að alltaf var bæði gott og gaman að koma í Ytra-Laugaland og heimsóknir þangað gleymast seint. Við leiðarlok þökkum við fyrir þær góðu minningar sem tengjast ótöldum heimsóknum milli bæja um árabil, megi minningar um góða og ljúfa frænku lifa með okk- ur sem þeirra nutum. Góður Guð blessi minningu Jónu Jóhannes- dóttur. Systkinin frá Syðra-Laugalandi. Hið íslenska Biblíufélag Aðalfundur Hins íslenska Biblíufélags verður haldinn í safnaðarheimili Grensáskirkju sunnudaginn 2. febrúar nk. kl. 15.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundurstörf. Stjórnin. "..... VEGAGERÐIN Hringvegur (1), Skeiðará, smíði stálbita Vegagerðin óskar eftir tilboðum í smíði 176 m langra stálbita í brú á Skeiðará á Hringvegi (1). Helstu magntölur: smíði úr stálplötum 118 tonn, smíði úr völsuðum bitum 60 tonn, hreinsun og málun 1.800 m2, galvanhúðun og málun 1.700 m2 (61 tonn). Verki skal að fullu lokið 1. júní 1997. Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 27. janúar 1997. Verð útboðsgagna er 3.000 kr. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 mánudaginn 10. febrúar 1997. Verktakar athugið Vegagerðin býður út á ári hverju fjölda stórra og smárra verka í jarðvinnu, efnisvinnslu, snjómokstri, sáningu, byggingarvinnu, stál- smíði o.fl. Útboð þessara verka eru auglýst í Framkvæmdafréttum, fréttabréfi Vegagerð- arinnar, og ekki annarsstaðar nema í undan- tekningartilfellum. Þeir verktakar sem kynnu að hafa hug á að bjóða í verk hjá Vegagerð- inni og eru ekki áskrifendur að Framkvæmd- afréttum nú þegar, eru hvattir til að gerast áskrifendur. Áskrift er endurgjaldslaus. Sendið óskir um áskrift skriflega til: Vegagerðin, Framkvæmdafréttir, Borgartúni 7, 105 Reykjavík, (bréfsími 562 2332). Skrifstofuhúsnæði Til leigu er vandað skrifstofuhúsnæði á 2. hæð í húsi við sjávarsíðuna í vesturhluta Reykjavíkur. Húsnæðið, sem er rúmlega 170 fm að flatarmáli, auk hlutdeildar í sameign, skiptist í 5 herbergi, móttöku, fundarher- bergi, eldhús og salerni. Nánari upplýsingar í síma 562 1018 á skrif- stofutíma. Lausafjáruppboð Uppboö fer fram á kranabifreiðinni HB-830, P&H, árgerð 1980, við bifreiöageymslu embaettisins Aðalstræti 12, Bolungarvík, miðviku- daginn 5. febrúar 1997 kl. 13.30. Sama dag kl. 15.30 verður eftirtaliö lausafé boðiö upp að Sjávar- braut 9, Bolungarvlk: 160 fiskkör, 80 blokkarammar 2 x 16,4 Ibs., blokkahrærivél, diesel lyftari JL-2427 árg. 1995 ásamt snúningi, flæðilína 10 manna, smíðuð af vélsm. Þristi hf. og Baader 694 marningsvél. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp- boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurirm i Bolungarvík, 28. janúar 1997. A ÝMÍSLEGT KÓPAV OGSBÆR Auglýsing um sérstakan fasteigna- skatt á verslunar- og skrifstofuhús- næði í Kópavogi Bæjarstjórn Kópavogs hefur ákveðið að nýta heimild til álagningar sérstaks skatts á fast- eignir, sem nýttar eru fyrir verslunarrekstur eða skrifstofuhald, sbr. bráðabirgðaákvæði í lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfé- laga sbr. og 7. gr. laga nr. 148/1995 um breytingu á þeim. Skattskyldan tekur til aðila sem skattskyldir eru skv. 1. kafla laga nr. 75/1981 eða laga nr. 65/1982 með síðari breytingum. Gjaldstofn skattsins skal vera fasteignamat eignar í árslok, ásamt tilheyrandi lóðarmati samkvæmt skrám Fasteignamats ríkisins frá 1. desember 1996. Bæjarstjórn Kópavogs hefur ákveðið að' skatturinn skuli vera 0,625% af gjaldstofni og gjalddagar hinir sömu og fasteignagjalda. Gjaldendur eru vinsamlega beðnir um að koma á framfæri athugasemdum við skattinn fyrir 15. febrúar nk. ef einhverjar eru. Verði ágreiningur um gjaldstofn má vísa honum til Fasteignamats ríkisins og verði ágreiningur um gjaldskyldu sker yfirfast- eignamatsnefnd úr, sbr. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 4/1995, sbr. 3. mgr. bráðabirgðaákvæðis í sömu lögum. Kærufrestur er sex vikur frá birtingu álagn- ingar, sbr. 10. gr. reglugerðar nr. 320/1972. 20. janúar, 1997. Bæjarstjórinn í Kópavogi. KIPULAG RÍKISINS Auglýsing um mat á umhverfisáhrifum Bygging 125 MW Sultartangavirkjunar Niðurstöður frumathugunar og úr- skurðar skipulagsstjóra ríkisins Skipulagsstjóri ríkisins hefur úrskurðað sam- kvæmt lögum nr. 63/1993 um mat á um- hverfisáhrifum. Fallist er á byggingu Sultart- angavirkjunar svo sem henni er lýst í frum- matsskýrslu með því skilyrði að fram- kvæmdaraðili ábyrgist þær mótvægisað- gerðir og rannsóknir sem lagðar eru til ífrum- matsskýrslu og hann hefur fallist á í bréfum til Skipulags ríkisins, dags. 8. og 13. janúar 1997, sbr. einnig umfjöllun um mótvægisað- gerðir og rannsóknir í 5. kafla þessa úrskurð- ar. Úrskurðurinn í heild liggur frammi hjá Skipu- lagi ríkisins, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Úrskurðinn er einnig að finna á heimasíðu Skipulags ríkisins: http://www.islag.is. Úrskurð skipulagsstjóra ríkisins má kæra til umhverfisráðherra innan fjögurra vikna frá því að hann er birtur eða kynntur viðkom- andi aðila. Skipulagsstjóri ríkisins. Hörgshlíð 12 Boðun fagnaðarerindisins. Bænastund í kvöld kl. 20.00. I.O.O.F. 18 = 1771298 = I.FL. I.O.O.F. 9 = 178129872 = M.A. I.O.O.F. 7 = 17801 298’/é = Sp. □ Glitnir 5997012919 III 1 SAMBAND (SLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Orð lífsins, Grensásvegi8 Samkoma í kvöld kl. 20. Jódís Konráðsdóttir prédikar. Beðið fyrir lausn á þínum vandamálum. Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl. 20.30. Hugleiöing: Kjartan Jónsson. Söngur: Heiðrún og Ólöf Inga. Allir velkomnir. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Lofgjörð, bæn og biblíulestur í kvöld kl. 20.00. Ræðumaður: Hafliði Kristinsson. Allir hjartanlega velkomnir. KFUM Félagsfundur Umræðufundur um stjórnskipu- lag félaganna og hugsanlegar breytingar verður í húsi félag- anna, Holtavegi 28, kl. 20.00 í kvöld. Kynning á skýrslu nefnd- ar, hugmyndum stjórnanna og umræður. Félagsfólk ereindreg- ið hvatt til að mæta. Stjórnir KFUM og KFUK i Reykjavik.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.