Morgunblaðið - 29.01.1997, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 39
HESTAR
Fundur hjá Orrafélaginu
Folatollurinn
sjötíu þúsund
Búið í haginn fyrir sýningu Orra til
heiðursverðlauna
ÁKVEÐIÐ var að hækka folatoll-
inn undir Orra frá Þúfu á fundi
Orrafélagsins sem haldinn var á
föstudag. Þurfa utanfélagsmenn
nú að greiða 70 þúsund krónur
auk virðisaukaskatts fyrir hryss-
una nú en á síðasta ári var verðið
60 þúsund krónur.
Einnig var ákveðið að bjóða
utanaðkomandi aðilum að koma
með 15 hryssur undir klárinn á
þessu ári en fækka þeim í fimm
á næsta ári sem er landsmótsár.
Með þessari ráðstöfun segir Indr-
iði Ólafsson, bóndi í Þúfu í Vestur
Landeyjum, einn af eigendum
Orra að verið sé að búa í haginn
fyrir afkvæmasýningu þar sem
Örri verði hugsanlega sýndur til
heiðursverðlauna á landsmótinu á
Melgerðismelum á næsta ári.
Hann tók hinsvegar fram að ekki
hafi verið tekin ákvörðun um þetta
en sér þætti mjög líklegt að af því
yrði.
Beiðni um sæðistöku hafnað
Þá var tekið fyrir á fundinum
bréf frá Hrossaræktarsamtökum
Suðurlands þar sem óskað var eftir
að leyft yrði að taka sæði úr Orra
á stóðhestastöðinni. Beiðni þessari
var hafnað á fundinum og sagði
Indriði að ástæður þess væru þær
að ekki lægi ljóst fyrir hvernig
staðið yrði að þessu máli í heild
og hinu að það færi ekki saman
við hagsmuni eigenda hestsins að
auka útbreiðslu hans of mikið. í
slíku máli þyrfti að samræma
sjónarmið eigenda. Indriði þvertók
ekki fyrir að leyft yrði að taka
sæði úr klárnum síðar en það yrði
tekið fyrir hveiju sinni þegar óskir
þar um bærust. Eins og sakir
standa hefðu eigendur mestan
áhuga fyrir að tekið yrði sæði úr
honum með það að leiðarljósi að
nýta það þegar hans nyti ekki
lengur við til undaneldis.
Gífurleg eftirspurn hefur verið
í að koma hryssum undir Orra og
sagði Indriði að á síðasta ári hafi
borist formlegar umsóknir fyrir
30 fyrstu verðlauna hryssur en
ellefu hryssum var hleypt að. Þá
væru þeir ótaldir sem hafi haft
samband en ekki sótt um þar sem
sýnt þótti að slíkt þjónaði engum
tilgangi. Það er þessi mikla
eftirspurn sem gerir eigendum
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Dýrastur stóðhesta
ORRI FRÁ Þúfu er langdýrasti stóðhestur landsins í dag og komast færri að en vilja með hryssur
sínar undir þennan eðalgrip. Myndin er tekin á sýningu stóðhesta í Gunnarsholti 1991, Rúna Einars-
dóttir situr Orra.
Orra kleift að hækka verðið en
folatollar hjá þeim hestum sem
næstir koma hafa verið á innan
við 40 þúsund krónur.
Orri frá Þúfu er sem kunnugt
er verðmætasti stóðhestur
landsins og án efa sá eftirsóttasti.
Talið er að verðmæti hans hafi
að minnsta kosti fimmfaldast frá
því að stofnað var félag um hann.
Indriði kvaðst ekki vita um nein
eigendaskipti á hlutum á síðasta
ári en vera kynni að tilfærslur
hafi orðið milli núverandi eigenda
án þess að honum væri kunnugt
um slíkt.
Þá seljast folöld undan Orra á
mjög háu verði og er þá verið að
tala um 200 þúsund krónur og þar
yfir. Ólíklegt er talið að þau fari
undir þessu verði.
Eins og fram hefur komið í
hestaþætti Morgunblaðsins er
staða Orra í kynbótamati
Bændasamtakanna mjög vænleg.
Er hann með 136 stig og vantar
aðeins níu afkvæmi til að komast
í heiðursverðlaunamörk og yrði
hann þá með góða forystu á þeim
vettvangi. Indriði sagði að ekki
væri farið að þjálfa hann ennþá
en það yrði aðeins létt trimm því
ekki væri fyrirhugað að hann
kæmi fram á sýningum á þessu
ári.
Valdimar Kristinsson
Morgunblaðið/V aldimar
HESTAMENN hafa ekki verið nægilega meðvitaðir um varúðarráðstafanir sem viðhafa þarf þegar
tuggan er flutt yfir varnarlínur sauðfjárveikivarna og eins hvar heyið og úrgangur þess lendir að
lokum. Eru þeir með hey af sýktu svæði eða ekki, er tryggt að sauðfé komist ekki í heyið?
Bann við heyflutningi frá
riðubæjum í burðarliðnum
7. ársþing HIS
Sameining’ar-
málin á dagskrá
BLIKUR eru á lofti í verðlagningu
á heyi því fyrir liggur tillaga frá
Sauðfjárveikivörnum þess efnis að
bönnuð verði sala og flutningur á
þurrheyi frá bæjum þar sem riðu-
veiki hefur komið upp í sauðfé. Ljóst
er að niðurskurður á fé vegna riðu
hefur aukið mjög framboð á heyjum
til hestamanna og viðhaldið lágu
verði. Má því ætla að verði tillaga
þessi samþykkt muni það hafa áhrif
á heyverð. Algengt verð á heyi kom-
ið að hlöðudyrum á höfuðborgar-
svæðinu er fimmtán krónur og hefur
verið á því róli í tíu ár eða meira.
Sannað þykir að smitefni sé til
staðar í heyjum víða og sér í lagi
þurrheyi. Smitefnið er talið berast
með heymaurum sem lifa í heyinu
en þeir eru allt að þijár milljónir í
kílói af þurrheyi en mun færri í rúllu-
heyi. Tekist hefur að smita mýs af
riðuveiki með upplausn af heymaur-
um. Þykir þetta sanna að hey frá
riðubæjum geti borið smitefni milli
staða.
Sigurður Sigurðarson dýralæknir
hjá Sauðfjárveikivörnum segir að
tillagan geri ráð fyrir banni á sölu
á þurrheyi frá riðubæjum til að bet-
ur sé hægt að fylgjast með og halda
utan um sölu á heyi frá þessum stöð-
um. Hann tók fram að ráð væri fyr-
ir því gert í tillögunni að undanþág-
ur verði veittar ef ástæða þætti til.
í gildi hafa verið reglur þess efnis
að fá þurfi leyfi hjá Sauðfjárveiki-
vörnum ef flytja skuli hey yfir varn-
arlínur og sagði Sigurður að þeim
hafi ekki verið fylgt eftir. Sagði
hann þá hjá Sauðíjárveikivörnum
ekki sjá ástæðu til að vera með
meiri skriffinnsku en nauðsyn bæri
til. Leyfður hefur verið flutningur
frá riðubæjum ef tryggt hefur þótt
að sauðfé kæmist ekki í heyið á
áfangastað eða úrgangi úr því. Hafa
hestamenn í hestahúsahverfum við
þéttbýli því getað notað sér hey frá
þessum stöðum. Sigurður sagði að
misbrestur hafi orðið á þessu í tveim-
ur tilvikum að því er vitað sé en
mikilvægt er að góð samvinna sé
við hestamenn svo hægt sé að hafa
þessi mál í lagi.
Full ástæða er fyrir hestamenn
að hugleiða þessi mál því þarna geta
verið miklir hagsmunir í húfi bæði
hvað þá sjálfa varðar og ekki síður
fjárbændur.
7. ÁRSÞING Hestaíþróttasam-
bands íslands verður haldið í Hlé-
garði í Mosfellsbæ næstu helgi.
Þingið hefst á laugardag klukkan
13 og mun Ijúka síðdegis á sunnu-
dag. Yfir þijátíu tillögur liggja
fyrir þinginu að þessu sinni og
fjalla langflestar þeirra um keppn-
isreglur. Er þar í mörgum tilvikum
um að ræða smávægilegar breyt-
ingar eða fínpússun eins og Sigrún
Sigurðardóttir starfsmaður sam-
bandsins orðaði það.
Viðamesta tillagan er þó um
sameiningu HÍS og Landsam-
bands hestamannafélaga. Tillagan
er samhljóða þeirri tillögu sem
fram kom á ársþingi LH í haust
þannig að HÍS verði lagt niður til
að rýma fyrir nýjum sameinuðum
samtökum.
Af efni annarra tillagna má
nefna að lagt er til að niðurhæg-
ingarkafli í gæðingaskeiði verði
lengdur í 70 metra úr 50 metrum,
einnig ef keppendur eru fleiri en
tuttugu í gæðingaskeiði skulu að-
eins tuttugu efstu mæta í seinni
umferð. Ein tillaga undirstrikar
að tölt T 2 eða slaktaumatölt sé
aðeins fyrir fimmgangshesta og
óheimilt sé til dæmis að keppa í T
2 og fjórgangi svo ekki sé nú tal-
að um aðaltöltkeppnina.
Svo kann að fara að hindrunar-
stökkskeppnin syngi sinn svana-
söng á þessu þingi því lagt er til
í einni tillögunni að þessi lítt vin-
sæla grein verði ekki tekin með í
stigasöfnun. Ef svo verður má
ætla að stutt verði í endalok grein-
arinnar og þykir víst að ekki muni
margir fyllast söknuði.
Sævar Kristjánsson ritari og
Sigurður Marínusson meðstjórn-
andi eiga að ganga úr stjórn.
Á laugardagskvöldið efnir
Hestaíþróttafélagið Hörður, sem
sér um þinghaldið, til fagnaðar í
félagsheimili sínu, Harðarbóli, sem
stendur á félagssvæðinu á Varm-
árbökkum.
Byggingaplatan
sem abir hafa beðið eftir
WIISsXS’ byggingaplatan er fyrir
veggi, loft og göff
'\íDI3aXS’ byggingaplatan er eldþolin,
vatnsþolin, höggþolin, frostþolin og
hljóöeinangrandi
byggingaplatan er hægt
að nota úti sem inni
'^ffiSlaXg byggingaplatan
er umhverfisvæn _______
'MKsXS’ byggingaplatan er platan
sem vefkfraeðingurinn getur
fyrirskrifað blint.
ÞÞ
&CO
Leitið frekari upplýsinga
Þ. HORGRÍMSSON & CO
ÁRMÚLA 29 • S: SS3 8640 & 568 6100