Morgunblaðið - 29.01.1997, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 41
FRETTIR
BRAUTSKRÁNINGARNEMAR frá Tækniskóla íslands í janúar 1997.
Fjölmenn brautskráning frá Tækniskólanum
86 NEMENDUR frá Tækniskól-
anum brautskráðust laugardag-
inn 18. janúar sl. og var þetta
fjölmennasta brautskráning frá
stofnun skólans árið 1964. Að
þessu sinni hlutu lokaprófs-
skírteini fimmtíu iðnrekstrar-
fræðingar, tíu byggingartækni-
fræðingar með B.Sc. gráðu,
þrír röntgentæknar með B.Sc.
gráðu og tíu iðnfræðingar.
Einnig luku þrettán nemendur
Lyfjaávani á
Norðurlönd-
um ræddur á
málþingi
ÞRIÐJA málþingið um lyfjaávana
frá norrænu sjónarmiði verður hald-
ið 23.-25. apríl nk. í Mogenstrup
í Danmörku. Hin tvö málþingin um
sama efni voru haldin í Stokkhólmi
1994 og í Reykjavík 1995.
Málþingið mun fyrst og fremst
fjalla um lyfjategundir; róandi lyf
og svefnlyf (benso-diazepin), lyf
við þunglyndi og verkjalyf. Frum-
mælendur verða fólk með mismun-
andi viðhorf til þessara lyfja eins
og t.d. fulltrúar yfirvalda, vísinda-
menn, læknar og hjúkrunarfólk,
svo og lyfjaneytendur. Lyfjaávani
og annar vandi sem kemur fram
þegar lyf hafa verið skrifuð út og
þeirra neytt á löglegan hátt vekur
oft blandaðar tilfinningar, alveg
án tillits til þess frá hvaða sjónar-
horni litið er á málið. Málþingið í
Mogenstrup hefur undirfyrirsögn-
ina „ágreiningur og samstaða" en
lyíjaávani er ágreiningsmál á öllum
raungreinadeildarprófi sem
veitir rétt til náms á háskóla-
stigi.
I ræðu sinni sagði Guðbrand-
ur Steinþórsson, rektor skólans,
að skólinn fengi afhent í júlí nk.
1.200 fermetra húsnæði á efri
hæð skólahússins á Höfðabakka
9. Þá mun rætast úr húsnæðis-
málum skólans en hluti nemenda
hefur þurft að sækja tíma í öðr-
um húsakynnum. Nemendur
Norðurlöndum, segir í fréttatil-
kynningu.
I samvinnuhópi þeim sem skipu-
leggur málþingið eru eftirtaldir:
Ebba Holm Hansen, prófessor við
Lyfjafræðiháskólann í Danmörku,
Curt West, geðlæknir, rithöfundur,
Finnlandi, Olafur Ólafsson, land-
læknir, íslandi, Kalle Gjesvik, nám-
skeiðsstjóri við Hjúkrunarháskól-
ann í Tromsö, Noregi, Olof Edhag,
yfírforstjóri Félagsmálastofnunar
Svíþjóðar, Jan Albinsson, stofnandi
KILEN, Svíþjóð og Lena Westin,
stofnandi KILEN, Svíþjóð.
Málþingið er vinnuþing og er
haldið á vegum KILEN - Institut
för lákemedelsberoende. Málþingið
nýtur stuðnings Norðurlandaráðs
og mun talsmaður þess verða með-
al frummælenda.
Helgarnám-
skeið í áfalla-
hjálp
REYKJAVÍKURDEILD RKÍ
gengst fyrir helgamámskeiði í
áfallahjálp og stórslysasálfræði
laugardaginn 1. febrúar. Þetta
námskeið er haldið vegna fyrir-
spurna frá fólki, einkum af lands-
skólans eru nú um 550 sem er
mesti fjöldi frá upphafi. Lang-
flestir nemenda skólans eru í
rekstrarnámi. Rektor er það
áhyggjuefni hversu dræm að-
sókn er í hefðbundið tækninám
og nefnir í því sambandi að ljóst
sé að haldi þessi þróun áfram
muni verða skortur á tækni-
menntuðu fólki áatvinnumark-
aðnum innan nokkurra ára, seg-
ir í fréttatilkynningu.
byggðinni, um það hvort ekki sé
hægt að taka slíkt námskeið á einni
helgi. Námskeiðið hefst kl. 10 og
kennt verður til kl. 17.
Námskeiðið er ætlað öllum sem
áhuga hafa á áfalla- og stórslysa-
sálfræði og eru eldri en 15 ára.
Væntanlegir þátttakendur þurfa
ekki að hafa neina fræðilega þekk-
ingu né reynslu á þessu sviði. Nám-
skeiðshaldari verður Lárus H. Blön-
dal, sálfræðingur.
Gengið um
virkjunarsvæði
Hitaveitunnar
HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer
í miðvikudagskvöldgöngu sinni i
fyrstu ferðina til að kynna starfsemi
Hitaveitu Reykjavíkur.
Farið verður frá Hafnarhúsinu
kl. 20 og gengið með ströndinni
inni að einni af gömlu borholunum
við Höfða. Þaðan gengið um virkju-
arsvæði Hitaveitunnar og að aðal-
dælustöð hennar við Bolholt. Þar
mun Einar Gunnlaugsson, jarð-
fræðingur, rifja upp í stuttu máli
sögu Hitaveitunnar og segja frá
starfsemi hennar. Val verður um
að ganga til baka eða fara með
Rektor telur brýnt að bæta
kennslu í raungreinum á grunn-
skóla- og framhaldsskólastigi,
það sé forsenda þess að góðir
nemendur fáist í tækninám. Við
athöfnina voru veitt verðlaun
Iðntæknistofnunar fyrir besta
lokaverkefni í iðnrekstrarfræði.
Tveir lokaverkefnishópar sem
unnu að verkefnum fyrir Sól hf.
og ístex hf. skiptu þeim á milli
sín að þessu sinni.
SVR. Hugmyndin er að seinna verði
genginn í áföngum hitaveitustokk-
urinn upp í Mosfellsbæ að elstu
borholunni þar.
Allir eru velkomnir í ferð með
Hafnargönguhópnum.
Fyrirlestur
um samkirkju-
lega guðfræði
EINAR Sigurbjörnsson, prófessor,
heldur fyrirlestur á vegum Vísinda-
félags íslendinga í Norræna húsinu
miðvikudaginn 29. janúar kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnist: Samkirkju-
leg guðfræði.
„Samræður og samvinna kirkju-
deilda hafa verið einkenni 20. aldar
guðfræði. Mikill árangur hefur
náðst af samræðum og komið í ljós
ótrúleg mál milli ólíkra kirkna. í
fyrirlestrinum verður leitast við að
gera grein fyrir þeim samræðum
sem hafa átt sér stað milli róm-
versk-kaþólsku kirkjunnar og hinn-
ar lúthersku undanfarin 30 ár. Þær
samræður eru nú komnar á loka-
stig og framundan að taka afdrifa
ákvörðun um samneyti kirknanna
með því að þær láti af að fordæma
kenningu hvor annarrar um réttlæt-
ingu mannsins fyrir Guði,“ segir í
fréttatilkynningu.
Fundurinn er öllum opinn.
Fræðslu-
fundur um trjá-
og runna-
klippingar
FRÆÐSLUFYRIRLESTUR um
trjá- og runnaklippingar verður
haldinn föstudagskvöldið 31. janúar
kl. 20-23 í húsnæði Landgræðslu-
sjóðs, Suðurhlíð 38 í Reykjavík.
Fyrirlesari verður Kristinn H. Þor-
steinsson, garðyrkjufræðingur og
garðyrkjustjóri Rafmagnsveitna
Reykjavíkur.
Hann mun m.a. fjalla um lim-
gerðisklippingar frá gróðursetningu
til grisjunar, tijáklippingar hvað
varðar lögun tijáa og grisjun tijá-
krónu og um skraut- og berjarunna
í tengslum við grisjun og aðrar
klippingar til að viðhalda fegurð,
blómríki og beijauppskeru.
Fjölmargar litskyggnur verða
notaðar við fyrirlesturinn. Verð er
1000 kr. Skráning á fyrirlesturinn
fer fram hjá Magnúsi Hlyn Hreið-
arssyni, endurmenntunarstjóra
Garðyrkjuskóla ríkisins, til fimmtu-
dagsins 30. janúar. Fyrirlesturinn
er öllum opinn, jafnt fagfólki sem
áhugafólki. Boðið verður upp á
kaffi og kleinur.
Grískar goð-
sögur í máli
o g myndum
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ
heldur fræðslufund fimmtudaginn
30. janúar kl. 20.30 í Komhlöðunni,
Bankastræti 2, og er fundarefnið:
Grískar goðsögur í máli og myndum.
Fyrst mun Kristján Ámason, for-
maður félagsins, flytja forspjall um
goðsögur almennt en einkum þátt
þeirra í bókmenntum. Síðan mun
Helga Bachmann, leikkona, lesa upp
og loks flytur Hrafnhildur Schram,
listfræðingur, erindi með litskyggn-
um um grískar goðsögur í myndlist
Vesturlanda.
Fundurinn er öllum opinn.
LEIÐRÉTT
Röng höfundarmynd
í MORGUNBLAÐ-
INU sl. laugardag
(bls. 34) birtist
grein eftir Birgi
Rafn Jónsson,
varaformann Fé-
lags íslenzkra stór-
kaupmanna, undir
yfírskriftinni
„Steinum bætt í
múrinn“. Með
greininni birtist röng höfundarmynd.
Blaðið biður hlutaðeigendur velvirð-
ingar á þessum mistökum. Rétt höf-
undarmynd fylgir hér með.
Birgir Rafn
Jónsson
VEGNA fréttar Morgunblaðsins
laugardaginn 25. janúar um samn-
inga Verkamannasambands ís-
lands, Landssambands íslenskra
verslunarmanna, Rafiðnaðarsam-
bands íslands og Samiðnar, lands:
sambands iðnfélaga, við VSÍ
vegna Pósts og síma hf. vill samn-
inganefnd þessara landssambanda
koma á framfæri eftirfarandi at-
hugasemd:
„Fyrsti fundur samninganefnd-
ar landssambanda með samninga-
mönnum VSÍ og formanni samn-
inganefndar Pósts og síma hf.,
um kjarasamning vegna starfs-
manna sem eru félagar innan
ASÍ, var föstudaginn 25. febrúar.
Fundur þessi stóð í 45 mínútur
og þar lagði samninganefnd
landssambanda fram drög að kja-
rasamningi fyrir félagsmenn sína.
A þessum fundi var óskað upplýs-
inga um hvaða störf hjá Pósti og
síma hf. VSÍ hefði samningsum-
boð fyrir. Það var tekið fram af
okkar hálfu að ekki væru neinar
Athugasemd vegna kjaraviðræðna
við VSÍ vegna Pósts og síma hf.
hugmyndir um að krefjast þess
að félagar í Póstmannafélagi ís-
lands og Félagi íslenskra síma-
manna gerðust félagsmenn í fé-
lögum innan ASÍ. Þessu til stað-
festingar var lögð fram meðfylgj-
andi yfirlýsing sem samin var í
viðræðum undirnefndar samn:
inganefndar landssambanda ASÍ
og formanna þessara félaga, sem
undirstrikar að landssambönd
ASÍ hafa engin áform um að hafa
afskipti af starfsemi FÍS og Fé-
lags póstmanna heldur þvert á
móti boðið þeim upp á samvinnu
um kjarasamningamál á jafnrétt-
isgrundvelli.
Á áðumefndum fundi óskaði
samninganefnd VSÍ eftir tíma til
að skoða samningsdrög þau sem
lögð voru fram af landssambönd-
um ASÍ. Þeir hefðu ekki samn-
ingsumboð frá Pósti og síma hf.
til að semja um störf skrifstofu-
fólks. Þeim var bent á að þeir
hefðu enn ekki svarað bréfi Verzl-
unarmannafélags Reykjavíkur
sem varðar forgangsréttarákvæði
í samningum verslunarmanna við
VSÍ og fyrr en það lægi fyrir og
hvaða störf þeir hefðu samnings-
umboð fyrir væru slíkir fyrirvarar
óljósir. VSÍ kvaðst mundu hafa
samband þegar þeir væru tilbúnir
til frekari viðræðna. Það er því
ljóst að samninganefnd VSÍ fyrir
Póst og síma hf. hefur ekki hafnað
gerð kjarasamnings við landssam-
bönd innan ASÍ vegna Pósts og
síma hf.
Það er skoðun samninganefndar
landssambanda ASÍ að það sé
bæði heppilegra og eðlilegra að í
framtíðinni fari kjarasamninga-
gerð vegna Pósts og síma hf. fram
við samningaborðið en ekki í fjöl-
miðlum.“
Yfirlýsing
„Neðangreindir aðilar gera með
sér samkomulag um að standa
saman að gerð kjarasamnings við
Póst og síma hf. Samkomulagið
grundvallast á neðangreindum at-
riðum.
Aðilar samkomulagsins munu
sameiginlega gera einn kjara-
samning sem gildir fyrir alla fé-
lagsmenn þeirra sem koma til með
að starfa hjá Pósti og síma hf.
Aðilar samkomulagsins munu
við afgreiðslu hins sameiginlega
kjarasamnings láta fara fram
sameiginlega skriflega atkvæða-
greiðslu.
Aðilar samkomulagsins munu
láta fara fram sameiginlega at-
kvæðagreiðslu um afstöðu starfs-
manna til verkfallsboðunar.
Aðilar samkomulagsins eru
meðvitaðir um ágreining sem
varðar forgangsrétt kjarasamn-
inga en munu hver fyrir sig virða
núverandi skipan mála á meðan
sameiginlegur heildarkjarasamn-
ingur er í gildi. Á samningstíman-
um munu aðilar þessa samkomu-
lags leita Ieiða til að eyða þeim
tilfellum ágreinings, sem uppi hef-
ur verið.
Yfirlýsing þessi gildir meðan
gerður er sameiginlegur heildar-
kjarasamningur við Póst og síma
hf., þó aldrei skemur en þijú ár
frá dagsetningu kjarasamnings.
Æski einhver aðili yfirlýsingarinn-
ar að segja sig frá henni skal það
gert með minnst sex mánaða fyrir-
vara áður en hún fellur næst úr
gildi.“