Morgunblaðið - 29.01.1997, Síða 56

Morgunblaðið - 29.01.1997, Síða 56
' > 43YUNDJII HÁTÆKNI TIL FRAMFARA m Tæknivai SKEIFUNNI 17 SÍMI 550-4000 • FAX 550-4001 MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKIAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NÉTFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTl 1 MIÐVIKUDAGUR 29. JANÚAR 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Enn hækk- ar fola- ^ tollurinn hjá Orra FOLATOLLURINN undir stóðhest- inn Orra frá Þúfu var hækkaður í 70 þúsund krónur á fundi Orrafé- lagsins sem er sameignarfélag um hestinn. Er hér um 10 þúsund króna hækkun að ræða frá síðasta ári og er Orri því enn sem fyrr langdýrasti hestur landsins. Ákveðið var að fjölga utanaðkom- andi hryssum, sem aðgang fá að hestinum, úr tíu í fimmtán á þessu ári en fækka þeim í fimm á næsta ári sem er landsmótsár. Líklegt þyk- ir að Orri verði sýndur til heiðurs- verðlauna fyrir afkvæmi á landsmót- inu. Eignarhlutirnir í Orra eru sex- tíu og gefur hver hlutur rétt á einni hryssu undir hestinn árlega. Alls hafa því um sjötíu hryssur verið leiddar undir hestinn árlega en verða nú sjötíu og fimm. Þá hafnaði fundurinn ósk Hrossa- ræktarsamtaka Suðurlands um að tekið yrði sæði úr hestinum á stóð- hestastöðinni í Gunnarsholti. ■ Hestaþáttur/39 Lofsamlegur dómur um Sjálfstætt fólk í The Washington Post Hefur næstum allt sem sögu má prýða „SJÁLFSTÆTT fólk hefur næst- [ Sóllilju vera um allt, sem skáldsögu má prýða: IjF ij áhrifamiklar Meistaralegt sögusvið, persónur, y - | persónur en sem fanga hug lesandans, ástríðu- pSa'iMP' íýsingar Lax- þunga, mikla breidd og frásagnar- *•. ness á aukaper- kraft. Þýðingin er listrænt afrek Jj sónunum séu í óbundnu máli ensku." Svo segir ' Jtt jafnvel enn list- m.a. í ritdómi um skáldsögu Hall- rænni. Nefnir dórs Laxness, Sjálfstætt fólk, sem hann sem dæmi kom nýlega út í Bandaríkjunum Rauðsmýrar- öðru sinni í þýðingu J.A. Thomp- frúna, „en lofsöngur hennar um sons. Ritdómurinn birtist í The íslenska bændastétt er snilldarleg Washington Post 12. janúar sl. og lýsing á skinhelgi, sem minnir er höfundur hans ritstjórinn og mest á Pecksniff hjá Dickens". rithöfundurinn Dennis Drabelle. Og Drabell segir einnig m.a.: Brad Leithauser, sem skrifar „Jafnvel í þýðingunni leynir sér formálann, talar um hana sem ekki, að Laxness er frábær rithöf- „bók lífs míns“; að mati E. Annie undur. Hann getur sagt ýmsan Proulx er hún ein af „tíu bestu sannleik, sem ekki liggur í augum bókum allra tíma“ og Jane Smiley uppi, með fáum orðum. Mælska telur hana „eitt af bestu ritverkum hans rís þó einna hæst þegar hann tuttugustu aldar“. Segist Drabelle lýsir landinu og veðrinu." fagna því að fá tækifæri til að Og dóminum lýkur svo: „Það bætast í þennan hóp. er gott að fá hann aftur.“ Drabelle rekur efni sögunnar og --------------------- segir svo feðginin Bjart og Ástu ■ Kraftbirting/22 Lokafrá- gangur í Helguvík „ VIÐ vonumst til að geta byijað að bræða þegar loðnan kemur, eftir hálfan mánuð eða þijár vikur,“ segir Þórður Jónsson rekstrarstjóri SR-mjöls hf., en hann sljórnar byggingu nýrrar loðnuverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík á Reykjanesi. Framkvæmdir við verksmiðjuna hófust snemma á síðasta ári en nú er uppsetningu hennar að mestu lokið og þessa dagana er unnið að lokafrágangi, verið er að ganga frá rörum og reynslukeyra vélar. Nýja verksmiðjan er byggð inni í gijótnámu við Helguvíkur- höfn og er með 16-20 metra háa klettaveggi á þijá vegu. í gær var meðal annars verið að vinna við dæluhús í hrá- efnisþró. Fyrir ofan smiðina sést innsiglingarmerki á hamraveggnum. Samkeppnisráð Flugleið- umsett skilyrði FLUGLEIÐIR hf. hafa tilkynnt Samkeppnisstofnun að félagið hyggist nýta sér kauprétt að afganginum af hlutafé í Ferða- skrifstofu Islands en áður hafði félagið keypt þriðjungshlut í fyrirtækinu. Samkeppnisráð kemst að þeirri niðurstöðu að kaup Flugleiða feli í sér yfír- töku á Ferðaskrifstofu íslands og hefur sett félaginu skilyrði í níu liðum. Meðal skilyrðanna er að Ferðaskrifstofan starfi áfram sem sjálfstætt fyrirtæki. Flug- leiðum er óheimilt að veita Ferðaskrifstofunni mikilvægar viðskiptalegar upplýsingar nema keppinautum standi þær einnig til boða. Þá skulu keppi- nautum Ferðaskrifstofu Is- lands tryggð sambærileg við- skiptakjör og dótturfélög Flug- leiða njóta hjá Flugleiðum í sölu og skipulagningu ferða. ■ Skilyrði/10 T~I* Kjarasamningar í Danmörku breytast Stöðugt fleiri gera vinnustaðasamninga STOÐUGT fleiri stéttarfélög í Dan- mörku hafa kosið að semja við vinnu- veitendur um launakjör starfsmanna í vinnustaðasamningum. Hans Skov Christensen, framkvæmdastjóri landssambands iðnrekenda, Dansk Industri, segir að þetta sýni að stétt- arfélögin telji að þau nái betri árangri í vinnustaðasamningum en í samningum um hefðbundið taxta- launakerfi. Um 90% af öllum samningum sem Dansk Industri gerir, en þau eru stærstu samtök atvinnurekenda í Danmörku, eru gerðir samkvæmt kerfi vinnustaðasamninga. Fyrir 10-15 árum var þetta hlutfall um 50%. Dines Schmidt Nielsen, yfirhag- fræðingur samtaka danskra málm- iðnaðarmanna, segir að reynslan af vinnustaðasamningunum sé góð. Þeir tryggi ákveðinn sveigjanleika sem sé nauðsynlegur á dönskum vinnumarkaði. í síðustu aðalkjarasamningum, sem voru undirritaðir 10 dögum áður en eldri samningar runnu úr gildi, var samið um aukinn sveigjanleika í vinnutíma. Schmidt Nielsen segir að starfsmenn í einstökum fyrirtækjum semji um hagræðingu sem hlýst af sveigjanlegri vinnutíma og fái þannig hlutdeild í hagræðingunni. Morgunblaðið kynnti sér í síðustu viku vinnustaðasamninga í Dan- mörku og ræddi við forystumenn á dönskum vinnumarkaði. Fyrsta um- fjöllunin af þremur um þetta efni birtist í blaðinu í dag. ■ Samningar eru/28-29 Morgunblaðið/Kristinn Krapaflóð féllu úr tveimur giljum fyrir ofan Bíldudal Stór hluti íbúa gisti í frystihúsinu MEGINHLUTI húsa á Bíldudal var rýmdur í gærkvöldi og íbúum þeirra safnað saman í frystihúsi staðarins eftir að tvö krapaflóð féllu úr giljum fyrir ofan bæinn í miklu vatnsveðri án þess að valda mannskaða eða eignatjóni. Þórólfur Halldórsson sýslumaður á Patreksfirði sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að búið væri að ganga úr skugga um að enginn maður hefði lent í flóðunum og að þau hefðu ekki valdið neinu eignatjóni en þó fór aur og vatn í kjallara tveggja verslunarhúsa þegar fyrra flóðið féll. Það var vatnsflóð sem féll úr Búðagili um kl. 20.45 en hið seinna féll úr Gilsbakkagili, sem er innar í firðinum, um það bil klukkustund síðar. Fyrra flóðið var fremur lítið vatnsflóð en hið seinna féll yfir veg og í sjó fram og er tal- ið að það hafi verið um það bil 30 metra breitt og 4-5 metra hátt. Tveir lögreglumenn frá Patreks- firði fóru yfir til Bíldudals eftir að fyrra flóðið féll og voru komnir á staðinn þegar það síðara féll. Auk þeirra unnu björgunarsveitarmenn á Bíldudal að því að rýma hús á staðn- um fram á nótt. Hús rýmd í öryggisskyni Að sögn Þórólfs Halldórssonar sýslumanns var gripið á það ráð að rýma hús í öryggisskyni. Fólk var flutt í frystihúsið þar sem komið var upp fjöldahjálparstöð. Slagveður var á Bíldudal og erfitt að meta aðstæður og snjósöfnun í nokkrum giljum milli þeirra tveggja sem hafa rutt sig, að sögn sýslu- manns, en Bílddælingar sem rætt var við í gærkvöldi minntust þess að úr gili milli þessara tveggja hefðu áður fallið skriður og valdið eignatjóni. Ungmenni börðu mann í Laugardal HÓPUR ungmenna réðst á mann um tvítugt í Laugardal um klukk- an níu í gærkvöldi og gekk í skrokk á honum svo hann var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl. Um miðnætti í gær sagði Jón Baldursson yfirlæknir á slysadeild að maðurinn væri illa leikinn og lemstraður en óbrotinn. „Það er hins vegar ekki að þakka þeim sem réðust á hann,“ sagði Jón. Að sögn lögreglu voru árásar- mennirnir á bak og burt þegar komið var að manninum meðvit- undarlausum. Tildrög árásarinnar voru óljós í gær en maðurinn hafði verið á ferð á göngustíg í grennd við skautasvellið í Laugardal þeg- ar á hann var ráðist.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.