Morgunblaðið - 06.02.1997, Page 1

Morgunblaðið - 06.02.1997, Page 1
80 SÍÐUR B/C 30. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Reuter SERBNESKIR óeirðalögreglumenn girtu af útifund tugþúsunda stjórnarandstæðinga í miðborg Belgrad. Stjórnarandstaðan heldur áfram mótmælum í Belgrad Tilslökun Serbíu- forseta tortryggð Belgrad. Reuter. ÞUSUNDIR stjómarandstæðinga efndu til mótmæla á götum Belgrad í gær þrátt fyrir tilslökun Slobodans Milosevic, forseta Serbíu, sem ákvað á þriðjudag að láta þingið setja sér- stök lög til að viðurkenna úrslit sveit- arstjómarkosninganna í nóvember. Viðbrögð ráðamanna á Vesturlöndum við ákvörðun forsetans voru varfæm- isleg og serbneskir sérfræðingar efuð- ust um að hún stæðist stjómarskrána. Um 20.000 háskólanemar gengu um miðborg Belgrad án afskipta ör- yggislögreglunnar, sem réðst á stjómarandstæðinga á mótmæla- göngu í serbnesku höfuðborginni fyrr í vikunni. Lögreglumenn, vopn- aðir rifflum, stöðvuðu hins vegar mótmælagöngu á vegum stjórnar- andstöðuflokkanna. Viðbrögðin við tilslökun Milosevic einkenndust af varfærni og tor- tryggni. Bandaríkjastjóm fagnaði tilslökuninni sem „fýrsta skrefi í rétta átt“. Utanríkisráðherrar Norðurland- anna, sem vom á fundi í Ósló, tóku í sama streng en bættu við að þeir myndu halda áfram að hvetja Serbíu- stjórn til að virða mannréttindi. „Ég vona að þetta sé ekki aðferð til að vinna tíma,“ sagði Herve de Charette, utanríkisráðherra Frakk- lands, eftir að hafa boðið þremur helstu leiðtogum serbnesku stjórnar- andstöðunnar til viðræðna í París í dag. Stjórnlagasérfræðingar í Serbíu sögðust í gær efast um að ákvörðun Milosevic stæðist stjórnarskrána. Slobodan Vucetic, dómari í stjóm- lagadómstólnum, sagði að forsetan- um væri heimilt að fela dómstólunum að skera úr um kosningadeiluna, en hann gæti ekki fyrirskipað þinginu að hafa afskipti af henni. Krefjast fjölmiðlafrelsis Drago Hiber, formaður laganefnd- ar stjómarandstöðunnar, sagði að Milosevic væri augljóslega að reyna að tryggja sér gálgafrest og láta líta út fyrir að serbnesk stjómvöld vildu leysa deiluna. Hann kvaðst búast við frekara þjarki um niðurstöðu sendi- nefndar OSE og „hvað þessi sérstöku lög eigi að viðurkenna". Zajedno, bandalag serbneskra stjómarand- stöðuflokka, segist ætla að halda mótmælunum áfram þar til Milosevic verði við öllum kröfum bandalagsins. Samskipti NATO og Rússa Leiðtogíirnir liðki fyrir París. Reuter. JACQUES Chirac Frakklandsforseti hefur komið á flot þeirri hugmynd, að fímmvelda leiðtogafundur verði haldinn í París í apríl til þess að leggja drög að framtíðar-öryggis- kerfi Evrópu. Nýtur tillagan stuðn- ings Þjóðveija en það stendur eða fellur með afstöðu Bandaríkjamanna hvort af fundinum verður. Megintilgangur fundarins er að móta helstu þætti samkomulags er auðvelda ætti Rússum að fallast á stækkun Atlantshafsbandalagsins (NATO). Jarðvegurinn yrði því und- irbúinn fyrir leiðtogafund NATO í Madríd í júlí í sumar. Á Parísarfundinum er ætlunin að bjóða Rússum tryggingar á sviði ör- yggismála, undantekningar frá samningum um vígbúnaðartakmörk- un og að samskipti þeirra við vestúr- veldin verði efld og treyst. Stjómarerindrekar sögðu að fund- ur leiðtoga Bandaríkjanna, Rúss- lands, Frakklands, Þýskalands og Bretlands yrði aldrei að veruleika nema áður væru góðar líkur á um- talsverðri niðurstöðu. Ekki heldur ef einhverjum hinna NATO-ríkjanna fyndist framhjá sér gengið með því að vera ekki boðin þátttaka. Hermt er, að ítölum svíði einkanlega að vera útilokaðir frá samningaumleit- unum iðnaðarstórvelda. Sömuleiðis munu Hollendingar og Danir enn móðgaðir yfir að hafa verið útilokaðir frá fimmveldahópn- um sem tók allar mikilvægustu ákvarðanirnar um framtíð ríkja gömlu Júgóslavíu. Oruglað sjónvarp frá íþróttaviðburðum Brussel. Reuter. FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins (ESB) Iagði í gær fram nýjar tillögur er tryggja ættu að almenningur gæti fylgst með stórviðburðum á sviði íþrótta án þess að þurfa að borga sérstak- lega fyrir. Áskriftarsjónvarpsstöðvar sem keypt hafa einkarétt á útsending- um frá viðburðum á borð við ólympíuleika og heimsmeistara- keppnina í knattspyrnu verða samkvæmt áformum ESB að senda efni út óruglað eða á sér- stakri rás, sem allir hafa aðgang að. Til þess að koma til fram- kvæmda verða tillögurnar að öðl- ast samþykki ríkisstjórna aðildar- ríkja ESB og ná fram að ganga á Evrópuþinginu. Þar hefur verið varað við því að verðstríð vegna kapphlaups áskriftarsjónvarps- stöðva um útsendingar frá mikil- vægum viðburðum gæti leitt til gjaldtöku fyrir horfun. Framkvæmdastjómin leggur til, að í stað einhliða tilskipunar um ómglaðar útsendingar verði ákvörðun um þær að byggjast á gagnkvæmu samkomulagi. Að vissu marki yrði það yfirvalda í hveiju ríki fyrir sig að ákveða hvaða íþróttaviðburðir, innlendir, evrópskir eða á heimsvísu, varði þorra almennings. En til þess að fólk geti horft ókeypis á þá verða sjónvarpsfyrirtækin að samþykkja það. Fyrirkomulag af þessu tagi um gagnkvæmar ókeypis og ótrufl- aðar útsendingar er við lýði milli Breta, Frakka og Beiga og nær m.a. til Wimbledon-tennismótsins og Tour de France-hjólreiðakeppn- innar. í tillögunum er reynt að fara milliveg milli hagsmuna almenn- ings, íþróttasamtaka og sjónvarps- stöðva. Eftir sem áður verður einkaréttur til útsendinga tryggð- ur og stöðvamar geta því hagnast á sölu auglýsinga og kostunar. Norðurlöndin styðja Brundtland Ósló. Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Norð- urlandanna lýstu í gær yfir stuðn- ingi við Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Nor- egs, í nýtt embætti hjá Sameinuðu þjóðunum, sem heyra á beint undir Kofi Annan, framkvæmdastjóra SÞ, og fyrirhugað er að stofna. Þetta kom fram á blaðamannafundi ráð- herranna í Ósló í gær. Arbeiderbladet birti í gær frétt þar sem fullyrt var að Annan hefði boðið Brundtland að gerast næstráð- andi sinn en þau áttu fund í New York um miðjan janúar. Utanríkisráðherrar Svíþjóðar og Danmerkur settu í gær þann fyrir- vara að embættið væri ekki enn til formlega. Sá síðarnefndi, Niels Hel- veg Petersen, gaf einnig til kynna að Norðurlöndin væru reiðubúin að styðja Brundtland í annað embætti, sem yfirmann Alþjóðaheilbrigðis- málastofnunarinnar (WHO), en nýr yfirmaður hennar verður ráðinn í vor eða sumar. Nafn Brundtland hefur áður verið nefnt í tengslum við WHO, en hún er læknir að mennt og býr yfir mik- illi pólitískri og alþjóðlegri reynslu. ÚKRAÍNSKIR kennarar hrópa slagorð í mótmælagöngu í Kænugarði í gær. Um 500 kenn- Krefjast van- goldinna launa Reuter arar tóku þátt í aðgerðum í borginni og kröfðust vangold- inna margra mánaða launa.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.