Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Utandagskrárumræður á Alþingi um
kynferðislega misnotkun á börnum
Kannað hvern-
ig efla má með-
ferðarúrræði
FÉLAGSMÁLARÁÐHERRA hefur
ákveðið að fela Bamavemdarstofu
að gera tillögur um hvernig efla
megi meðferðarúrræði fyrir börn
sem beitt hafa verið kynferðislegu
ofbeldi. Þetta kom fram í utandag-
skrárumræðum á Alþingi í gær um
kynferðislega misnotkun á bömum,
en þar beindi Jóhanna Sigurðardótt-
ir, þingmaður Þjóðvaka, spurningum
til dómsmálaráðherra og félags-
málaráðherra í kjölfar upplýsinga
sem fram hafa komið I skriflegu
svari félagsmálaráðherra við fyrir-
spurn hennar um kynferðislega mis-
notkun á bömum.
Sagði Jóhanna þær upplýsingar
sýna að sérstaklega þurfí að skoða
og vinna að úrbótum á þeim þætti
sem snýr að stöðu brotaþola kyn-
ferðisofbeldis í réttarkerfinu, og að
bæta verulega stuðning og meðferð-
arúrræði sem fómarlömbum kyn-
ferðisafbrota standa nú til boða. Hún
sagði að kynferðisleg misnotkun á
bömum væri einn alvarlegasti glæp-
ur sem framinn er og því sé mikil-
vægt að Alþingi ásamt fram-
kvæmdavaldinu geti í samvinnu
komið fram með aðgerðir sem leiði
til úrbóta á þessu ófremdarástandi.
„Staða þessara mála er mjög al-
varleg og ógnvekjandi þegar fyrir
liggur að barnaverndamefndir hafi
haft 465 mál til meðferðar þar sem
560 börn hafi komið við sögu eða
112 á hveiju ári. Ekki síst er hún
alvarleg þegar allar erlendar rann-
sóknir sýna að einungis lítill hluti
þessara mála komi fram í opinberum
gögnum og engin ástæða til að ætla
að staðan sé önnur hér á landi en
annars staðar," sagði Jóhanna.
Rannsóknir samræmdar
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráð-
herra sagði mikilvægt að samfélagið
reyndi að taka hart og skynsamlega
á kynferðislegu ofbeldi gagnvart
bömum. Hann sagði að leitast hefði
verið við að samræma rannsóknar-
aðferðir í málum er varða meint
kynferðisafbrot gagnvart bömum,
en um meðferð slíkra mála væri
farið eftir lögum um meðferð opin-
berra mála. Þann 1. júlí næstkom-
andi taka gildi ný lögreglulög og
samkvæmt þeim verður sett á fót
embætti ríkislögreglustjóra, sem
Þorsteinn sagði að hefði m.a. það
hlutverk að samræma lögreglurann-
sóknir í brotamálum, og að því væri
stefnt að umræddum málaflokki yrði
gerð rækileg skil í því samræmingar-
starfi sem fyrir höndum er og nú
væri verið að vinna að.
Þá sagði Þorsteinn að ákveðið
hefði verið að næsta stóra verkefni
réttarfarsnefndar, sem væri að ljúka
endurskoðun á dómstólalögum, yrði
heildarendurskoðun á lögum um
meðferð opinberra mála.
Barnaverndarnefndir efldar
í máli Páls Péturssonar félags-
málaráðherra kom m.a. fram að hluti
meðferðarúrræða fyrir börn sem
beitt hefðu verið kynferðislegu of-
beldi væri á verksviði heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytis, þ.e.
bama- og unglingageðdeildir og
geðlækningar sem geti komið til í
kjölfar slíkra afbrota.
„Barnaverndarlögin eru í endur-
skoðun og ég tel að það sé einboðið
að huga að þeim þætti sem snýr að
fómarlömbum kynferðisofbeldis í
þeirri endurskoðun. Ég tel að það
þurfi að efla bamavemdamefndirn-
ar mjög en þeim hefur fækkað um
helming frá því bamaverndarlögin
tóku gildi 1993, en það þarf enn að
fækka þeim og efla þær með samein-
ingu á stærra svæði,“ sagði Páll.
„Hér er um stóralvarlega glæpi
að ræða. Þetta gengur næst morði
að mínum dómi. Meginatriðið væri
auðvitað að koma í veg fyrir að
glæpimir séu framdir og reyna að
hafa áhrif á þá sem hafa tilhneig-
ingu til að fremja svona svívirðu,"
sagði félagsmálaráðherra.
Hólmaborgin land-
aði 2.600 tonnum
HÓLMABORG SU landaði me-
tafla á Eskifirði í gær en skipið
kom í land með fullfermi, í fyrsta
skipti eftir breytingarnar í haust,
með alls um 2.600 tonn af loðnu
eftir eina veiðiferð. Aflinn fékkst
í níu köstum.
Þar með bætti Þorsteinn Krist-
jánsson, skipstjóri, tveggja daga
gamalt eigið íslandsmet en 1.910
tonnum var landað úr Hólma-
borginni á mánudag. Áætla má
að aflaverðmæti þessarar einu
veiðiferðar sé nálægt 17 milljón-
um króna.
Mjög góð loðnuveiði var á mið-
unum gmnnt austur af Stokknesi
í fyrradag en skipin gátu lítið
verið að í gær vegna veðurs.
Loðnan úr Hólmaborginni fór öll
í bræðslu vegna átu.
Nú færðu
1 i n s u r i
Linsunni
Fagleg ráögjöf. LIN^AN Góö þjónusta. a * a i s t r » t i b
FRÉTTIR
Morgunblaðið/RAX
MAÐUR viljar bifreiðar sinnar við Sandgerði í gær, eftir að versta veðrið var gengið yfir.
Læg'ðin myndaðist í köldu
lofti við Nýfundnaland
LÆGÐIN sem gekk yfír landið í
gær myndaðist í köldu lofti vestur
af Nýfundnalandi. Einar Svein-
bjömsson veðurfræðingur segir að
gjaman sé einkenni á slíkum lægð-
um að þær verði mjög brattar en
ekki stórar um sig.
„Lægðin kom upp að landinu á
vondum stað við suðvesturströnd-
ina. Samfara skilum á undan lægð-
inni fór að snjóa á þriðjudagskvöld
og varð mjög blint á Suðurlandi frá
kl. 22 og mestalla nóttina," sagði
Einar.
Einar sagði að um fótaferðatíma i
í gærmorgun hefði verið hið skap-
legasta veður, svikalogn eins og
kallað er, en þá var lægðarmiðjan
yfir höfuðborgarsvæðinu.
„Lægðin var þá orðin mjög hæg-
fara og djúp og var tvískipt um
tímar. Það var kalt allt í kringum
hana í háloftunum og ekkert sem
ýtti á eftir henni yfír landið. Vest- j
anóveðrið með éljunum og skaf- I
renningnum um hádegisbilið getur
skrifast á reikning hala lægðarinn- )
ar. í halanum og sunnan hans var
mjög vont veður,“ sagði Einar.
Eyðist í dag
Því var spáð seinnipartinn í gær
að lægðin staðnæmdist skammt
vestur af landinu sem þýddi að
hali lægðarinnar yrði yfir landinu
suðvestan- og vestanverðu. Lægðin
átti síðan að grynnast í nótt og í
dag og eyðast. Spáð er að næsta
lægð fari austan við landið og valdi
norðanátt með skaplegu veðri á
GERVITUNGLAMYND sem tekin var klukkan 13.30 í gær sýn- Suðurlandi en versnandi á Norður-
ir hala lægðarinnar yfir sunnanverðu landinu. landi.
Skil á vaski framlengd
EMBÆTTI Ríkisskattstjóra auglýsti
í gær að framteljendur virðisauka-
skatts mættu fresta skilum á honum
um einn dag, vegna óveðurs á land-
inu. Snorri Olsen ríkisskattstjóri seg-
ir þetta einstakt dæmi og hann efíst
um að það hafi fordæmisgildi. Skila-
dagur var 5. febrúar, en virðisauka-
skattskýrslu má skila í dag þess í
stað.
Reglan er sú að um leið og fram-
teljendur gera skil á virðisaukaskatt-
skýrslu, greiði þeir skattinn sem er
eðli málsins samkvæmt afskaplega
mishár. Snorri segir að spyija megi
hvort embættið hafí átt að standa
fyrir þessari ákvörðun, enda sé hún
frávik frá almennri reglu um fram-
kvæmd sambærilegra mála.
„Þetta er í raun óvenjuleg að-
gerð, vegna þess að venjulega metur
hver af hinum níu skattstjórum
landsins það hvort ástæða sé til að
falla frá beitingu álags tímabundið,
ef aðstæður eru með þeim hætti að
erfítt er að koma greiðslu til skila.
Þá getur skattstjóri vikið frá þeirri
meginreglu að álagi sé beitt.
Seinasta dæmið sem ég man eftir
um slíkt kom upp þegar náttúru-
hamfarimar urðu á Súðavík. Ég
býst við að þessi ákvörðun sé um-
deilanleg, en ef aðstæður em með
þeim hætti að erfitt er að koma
greiðslu til skila, verður skattstjóri
að meta það og bregðast við í sam-
ræmi.“
Hann kveðst ekki vita hvort hafí
verið haft samband við skattstjórana
til að athuga hvort þeir hefðu verið
sammála frestinum eða ekki, en
hann teþ'i eðlilegra að í framtíðinni
muni þeir sammælast um að veita
slíkan frest, sé vilji fyrir hendi, án
afskipta embættis Ríkisskattstjóra.
L