Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR * VÍÐA þurfti að moka duglega til þess að bílar kæmust leiðar sinnar. Samgöngiir úr skorðum í áhlaupinu Margir urðu seinir til vinnu í gærmorgnn vegna ófærðar. Þá voru margir sem komust alls ekki ferða sinna, hvorki á láði né í lofti, í einu versta áhlaupi í meira en áratug. Morgunblaðið/Árni Sæberg VILBERG Ágústsson yfirverkstjóri snjóruðningsdeildar Gatna- málastjóra er vel tækjum búinn til þess að fylgjast með öllu, m.a. hefur hann aðgang að nýjustu veðurtunglamyndum. SAMGÖNGUR fóru úr skorðum á Suðvesturlandi þegar kröpp lægð gekk yfir landið með mikilli snjó- komu aðfaranótt miðvikudags og fram eftir degi í gær. Innanlands- flug lá að langmestu leyti niðri og truflanir urðu á millilandaflugi en margir nýttu sér almennings- samgöngur og skildu bfla sína eft- ir heima. Þó var nokkuð um að lögregla þyrfti að fjarlægja van- búna bíla þar sem þeir lokuðu vegum eða hindruðu starf snjóm- okstursmanna sem eru í stöðugri vinnu við að opna götur og vegi. Um 40 björgunarsveitarmenn á höfuðborgarsvæðinu tóku þátt í að aðstoða bíleigendur og við að koma skólabörnum heim úr skóla og sett var upp sérstök aðgerðar- stjórn í lögreglustöðinni í Reykja- vík til þess að sinna þeim málum. Jafnt fannfergi um alla borg Starfsmenn Reykjavíkurborgar og sjálfstæðir verktakar í þjónustu borgarinnar sem áttu að hætta störfum kl. 11 á þriðjudagskvöld héldu áfram störfum við snjó- mokstur fram til kl. 4 um nóttina. Þá unnu ellefu bílar við að ryðja götur höfuðborgarinnar og 28 hjólaskóflur og dráttarvélar og hafði þessi floti engan veginn und- an snjónum sem kyngdi niður. Vilberg Ágústsson, yfírverk- stjóri í snjómokstursdeild Gatna- málastjóra, segir að versta veðrið Morgunblaðið/Golli BÍLAR voru margir hverjir fenntir í kaf þegar eigendur þeirra komu út í gærmorgun. hafí skollið á rétt upp úr miðnætti aðfaranótt miðvikudags en upp úr kl. 4 hafi dregið úr mesta vindinum og tekið að snjóa mikið frameftir morgni. „Það er eiginlega ekki hægt að taka neinn einn stað út úr, það hefur verið jafnt fannfergi um alla borgina. Það hefur verið lítið verra í úthverfunum en í vest- urbænum,“ sagði Vilberg. Búið var að opna leiðir strætis- vagna strax þegar þeir byrjuðu að ganga kl. sjö um morguninn og tókst að halda þeim opnum allan daginn. Mikið óunnið verk var þó eftir í húsagötum um miðj- an dag í gær. „Það fer allur dagur- inn í það og dugar ekki til. Það bætir alltaf í þetta,“ sagði Vilberg. Vilberg sagði að það væri alltaf eitthvað um vanbúna bíla sem væru til trafala. Vaka hefði verið fengin til þess að fjarlægja milli 10 og 15 bíla. Vilberg sagði að þegar svona áhlaup yrði.væri mik- ið álag á starfsmönnum. Aðeins aðalgötumar eru mokaðar en íbúð- areigendur eiga sjálfír að láta ryðja bílastæði og heimreiðar. Vilberg hefur starfað í yfír tutt- ugu ár hjá Gatnamálastjóra og .íann segir að þetta sé ekki versta áhlaup sem komið hafi. „Verra var það 1983 og 1984. Þá kom mikið skot en reyndar er þetta ekki yfir- staðið núna.“ Þórir Þórðarson, verkstjóri hjá Vegagerðinni, hafði sömu sögu að segja og Vilberg. Sólarhringsvakt var hjá snjómokstursmönnum á Reykjanesbraut og upp úr kl. 5 aðfaranótt miðvikudags var tækj- um fjölgað á Hafnarfjarðarvegi og Suðurnesjum. Hellisheiði var lokað upp úr kl. 9 í gærmorgun en búið var að ryðja hana skömmu áður. Vegagerðin ætlaði að reyna að halda Þrengslunum opnum en mjög slæmt veður var á þessum slóðum og óvíst hvort það tækist. Sæmilegasta veður var hins vegar í Hvalfírði og allir vegir opnir þar. Þórir sagði að helmingi minni umferð væri á helstu vegum en hefði verið daginn áður. Aðeins 180 bílar höfðu farið Hellisheiðina frá því á miðnætti aðfaranótt mið- vikudags fram til hádegis í gær og 737 bílar á Reykjanesbraut, sem er helmingi minna en á venju- legum degi. Engar tímaáætlanir stóðust hjá SVR Sæmilega gekk að halda áætlun hjá Bifreiðastöð íslands í Umferð- armiðstöðinni í gær. Þó gekk erfið- lega að halda áætlun austur fyrir fjall og var bíll á leið til Selfoss fjóra tíma á leiðinni, sem tekur venjulega einn tíma að aka. Aust- urleið var fjóra tíma austur á Hvolsvöll sem tekur jafnan einn og hálfan tíma að aka. Þrengsla- vegur og vegarspottinn hjá Litlu kaffistofunni reyndist mörgum mestur farartálmi. Veghefill fór út af veginum við Litlu kaffístof- una og stöðvaðist öll umferð þar í um tvo tíma og sömu sögu var að segja í Þrengslunum, þar sem var gífurlega snjóþungt. Keflavík- urrútan var aðeins 20 mínútur á eftir áætlun en aðeins þurfti að fella niður eina ferð til Borgamess og aðra til Selfoss og Þorlákshafn- ar. Flugi var aflýst til Vestfjarða upp úr hádegi í gær en til stóð að athuga með flug til Norður- lands, Austfjarða og Vestfjarða seinnipartinn. Útlitið var þó alls ekki gott. Tæplega 1.000 manns biðu eftir flugi í gær, aðallega til Norðurlands. Allir vagnar SVR hófu akstur kl. 6.45 í gærmorgun en allar tímaáætlanir voru látnar lönd og leið. Töluvert var um að vagnarn- ir festu sig í fannferginu og voru nokkrir dráttarbílar í sérstökum ferðum til þess að losa vagnana. Óbyggð svæði í Grafarvogi voru mesti farartálmi strætisvagnanna upp úr hádegi í gær enda var mjög hvasst þar og skóf. Mikil hálka var einnig á Gullinbrú og stóð til að dreifa salti þar. Mun fleiri hafa nýtt sér ferðir strætis- vagna en áður. Aðgerðarstjórn Heiða Ingadóttir, félagi í Flug- björgunarsveitinni í Reykjavík, varð fyrir svörum hjá aðgerðar- stjórn lögreglu. Þátt í starfinu tóku lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið og starfsmenn Reykja- víkurborgar. „Við höfum virkjað saman lögreglu, björgunarsveitir og stjórnendur ruðningstækja. Þetta hefur gengið ágætlega en starfið gengur út á að hreinsa göturnar, losa bíla og aka bömun- um heim úr skólum.“ Einnig tóku þátt í starfinu björgunarsveitir úr Mosfellsbæ. Mest var um fasta bíla í úthverfum borgarinnar, en þessi mál vom komin í gott lag í miðbænum. Skólahaldi var aflýst í nokkrum skólum borgarinnar en þó ekki öllum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.