Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 7

Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 7
VJS / GISQH VIJAH MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 7 Skatturá jjármagns tekjur -viðskipti með verðbréf Hvaða upplýsingar á að skrá á verðbréf? Eftir 1. janúar 1997 er skylt að skrá upplýsingar á verðbréf þegar þau eru seld eða afhent sem greiðsla. Þetta á við um öll verðbréf, jafnvel þó að um sé að ræða viðskipti við eða á milli aðila sem undanþegnir eru greiðslu skatts á fjármagnstekjur. Við sölu á verðbréfum skal skrá á þau dagsetningu sölunnar, nafn og kennitölu seljanda og söluverð (kaupverð í hendi kaupanda). Hvað telst kaupverð? Með kaupverði í þessu sambandi er átt við kaupverð verðbréfsins að viðbættri umsýsluþóknun vegna kaupanna ef um hana er að ræða. Hvað telst söluverð? Með söluverði er átt við söluandvirði bréfsins að frádregnum sölukostnaði eða umsýsluþóknun vegna sölunnar. Hver á að skrá hvað á bréfin? ... ef ég sel verðbréfin sjálfur? Svar: Það veltur á hverjum þú selur. • Ef kaupandinn er skilaskyldur, t.d. verðbréfafyrirtæki, banki, sparisjóður eða lögmaður er það hann sem sér um að skrá réttar upplýsingar á bréfið. • Ef kaupandinn er einhver einstaklingur eða fyrirtæki sem ekki er skattskylt, sérð þú sjálf(ur) um að skrá upplýsingarnar á bréfið, þ.e. nafn þitt, kennitölu, söludag og söluverð. -... en ef bankinn selur bréfið fyrir okkur? Svar: Ef skilaskyldur aðili hefur milligöngu með viðskiptin ber hann ábyrgð á þvíað skrá réttar upplýsingar á verðbréfið. Hann skráirþá nafn og kennitölu seljanda, söludag og kaupverðið eins og það er íhendi kaupanda. Nánari upplýsingar um skráningu á verðbréf er að finna í Orðsendingu um skatt á fjármagnstekjur nr. 1/1997. Orðsendinguna er hægt að fá hjá skattstjórum og ríkisskattstjóra. RSK RlKISSKATTSTJÓRI "r . _ ^ 4 7. ’ • j T

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.