Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR * Kæra Nemendafélags MHI vegna heilsuspillandi húsnæðis í Laugarnesi Ráðherra bíður niðurstöðu heil- brigðiseftirlits KÆRA Nemendafélags Myndlista- og handíðaskóla íslands vegna hús- næðis skólans í Laugamesi er til meðferðar hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Nemendurnir telja húsnæðið heilsuspillandi og krefjast þess að því verði lokað tafarlaust BÓKHALDSHUGBÚNAÐUR fyr/rWINDOWS Sjáðu nýjan frábæran hugbúnað: KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 www.treknet.is/throun KRINGLAN Til sölu glæsileg 3ja herb. 99 fm endaíbúð á 2. hæð. Yfirbyggðar svalir. Vönduð íbúð á frábærum stað. Sérinng. Bílageymsla. Draumaíbúð fjölmargra. Verð 10,5 millj. Fasteignasalan CflRÐUR, SÍMI 562 1200 Fasteignasalan É^KJÖRBÝLI NÝBÝLAVEGUR 14 FAX 5543307 |f 564 1400 NYJAR EIGNIR A SKRA FURUGRUND - 2JA. Sérlega fal- leg 56 fm Ib. á 3ju hæð í góðu fjölb. Paket, góðar innrétt. Ákv. sala. V. 5,5 m. ÁSTÚN 10 - 3JA. Falleg 80 fm íbúð á 3ju hæð. Inng. af svölum. Góðar innrétt. Áhv. 4,1 m. V. 6,8 m. EFSTIHJALLI - 4RA. Sérl. falleg 86 fm íb. á 2. hæð (efstu). Suðursv., norðurútsýni. Nýl. eldhús. V. 7,1 m. ESPIGERÐI 4-5 HERB. Sérl. fal- leg 110 fm Ibúð á 8. hæð í eftirsóttu fjölbýli. Glæsilegt útsýni, stórar stofur. V. 10,6 m. GRÆNAMÝRI - SELTJNES. Glæsileg ný 112 fm efri sérhæð sem afhendist fullb. án gólfefna. Áhv. 2,5 m í 25 ára láni. V. 10,6 m. og gerðar á því nauðsynlegar úr- bætur. Björn Bjarnason menntamála- ráðherra segir að kæran muni hafa sinn gang. „Nemendurnir hljóta að vilja fá niðurstöðu hjá þeim sem þeir hafa kært til og mér finnst alveg sjálfsagt að heilbrigðiseftirlit- ið fái tækifæri til að gera sínar athuganir á þessu húsi. Við hljótum að bíða eftir því. Ef heilbrigðiseftir- litið telur húsnæðið óhæft verður því náttúrulega lokað en ég ætla ekki að fara að taka fram fyrir hendumar á heilbrigðiseftirlitinu,“ segir menntamálaráðherra. Reiðubúinn að skoða aðrar hugmyndir „Myndlista- og handíðaskóli ís- lands hefur fram að þessu lagt höfuðkapp á að fá að vera í þessu húsi og þegar hreyft hefur verið hugmyndum um að hann fari eitt- hvað annað þá hafa menn lagt mikið kapp á að hann yrði að vera þarna áfram. Ef hinsvegar koma upp aðrar hugmyndir, er ég reiðu- búinn að taka undir og skoða þær,“ segir Björn Bjarnason ennfremur. Friðrik Friðriksson, heilbrigðis- fulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir málið vera í vinnslu þar. Næsta skref sé að fara yfir húsnæðið, skoða það og meta og í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um aðgerðir. Það verði þó ekki fyrr en á fundi heil- brigðisnefndar 21. febrúar nk. . Formaður bygginganefndar listaháskóla, Þórhallur Arason, segir að bygginganefndin aðhafist ekkert í málinu fyrr en mennta- málaráðuneytið hefur gert upp hug sinn varðandi framtíðarnýtingu á húsnæðinu í Laugarnesi. Stjórn Myndlista- og handíðaskólans Tímasett áætlun liggur ekki fyrir STJÓRN Myndlista- og handíða- skóla íslands telur rétt að fram komi eftirfarandi atriði vegna þeirr- ar athygli sem bágt ástand í kennsluhúsnæði skólans hefur vak- ið: „í byrjun desember brást skóla- stjóri Myndlista- og handíðaskóla íslands við ítrekuðum kvörtunum frá nemendum og starfsfólki skól- ans um aðbúnað í því húsnæði sem skólinn leigir í Laugamesi með því að óska eftir að Vinnueftirlit ríkis- ins gerði úttekt á húsnæðinu. Forsaga þessa máls er sú að árið 1992 var skólanum veitt bráða- birgðaleyfi til starfsemi í hluta SS- hússins í Laugarnesi að því tilskildu að framtíðarhúsnæði yrði tekið í notkun innan þriggja ára. Skólinn hefur hins vegar ekki hvorki fengið leyfí né fjárveitingu frá yfirvöldum til þess að ganga frá þessu framtíð- arhúsnæði og er því enn starfandi í ófullgerðu bráðabirgðahúsnæði. Að úttekt lokinni gerði Vinnueft- irlit ríkisins kröfu um tafarlausa úrbætur og tímasetta fram- kvæmdaáætlun um framtíðarlausn á húsnæðismálum skólans fyrir 1. febrúar 1997. Þann 30. janúar sl. sendi skólastjóri Vinnueftirliti ríkis- ins bréf þar sem gerð er grein fyr- ir með hvaða hætti skólinn hafi komið til móts við kröfur um tafar- lausar úrbætur. Enn liggur ekki fyrir tímasett framkvæmdaáætlun um framtíðar- lausn á húsnæðisvanda skólans enda krefst það ákvarðana af hálfu yfirvalda fjármála og menntamála. Menntamálaráðherra hefur lýst fullum vilja til að taka á vanda skólans og fullvissar stjórnendur skólans um að af hálfu ráðuneytis- ins sé verið að vinna að málinu. Stjórn skólans er skuldbundin til að tryggja nemendum og starfsfólki viðunandi starfsumhverfi og treyst- ir á stuðning sinna yfirvalda til þess að svo megi verða í nánustu framtíð.“ Morgunblaðið/Þorkell Samstarfs- samningur umNý- sköpunar- keppni UNDIRRITAÐUR hefur verið samstarfssamningur um Ný- sköpunarkeppni grunnskóla- nema og stofnun nýsköpunar- sjóðs milli Kennaraháskóla Islands, Samtaka iðnaðarins, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, Félags ísl. smíðakennara, Tækniskóla íslands og Félags ísl. iðnhönn- uða. Með breyttu rekstrar- formi grunnskóla hafa því nýir aðilar tekið við nýsköp- unarstarfi grunnskólanna. Markmiðið er að vekja at- hygli á frjórri sköpunargáfu skólanemenda og stuðla að nýtingu hennar til nýsköpun- ar. Hæstiréttur dæmir Tryggingastofnun til að endurgreiða lyfsala Ríkíð gæti þurft að endur- greiða yfir 200 milljónir HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Tryggingastofnun ríkisins til að endurgreiða ívari Daníelssyni, fyrrverandi apótekara í Borg- arapóteki í Reykjavík, 4 milljónir króna með dráttarvöxtum, alls um það bil 7 m.kr. Telur Hæstiréttur að ívar hafi ekki verið bundinn af ákvörðunum sem lyfjaverðlagsnefnd tók í jan- úar og september 1990 um að lyf- Reykjavík - sérhæð Fjársterkur kaupandi Leitum fyrir tvo trausta kaupendur að sérhæð - raðhúsi á verðbilinu 9,5-13,5 millj., sem þegar hafa selt sínar eignir. Vantar 3ja-4ra herb. - staðgreiðsla Fjársterkur kaupandi Höfum kaupanda að 3ja-4ra herb. íbúð. Æskileg staðsetning í vesturbær, miðbær eða austurbær á verðbilinu 6-8 millj. Einnig má skoða Kópavog og Foldahverfi í Grafarvogi. Allar nánari upplýsingar veita Bárður, Ingólfur eða Þórarinn á Valhöll, fasteignasölu, sími 588 4477. sölum væri skylt að veita Trygg- ingastofnun ríkisins tiltekinn af- slátt af reikningum vegna skertrar endurgreiðslu stofnunarinnar til tiltekinna lyíjaverslana miðað við veltu þeirra. Til grundvallar ákvörðun lyfja- verðlagsnefndar lá að álagning væri ákveðin hærri en ella þar sem hún miðaðist við rekstrarskilyrði apóteka í dreifbýli og því væri tal- ið eðlilegt að stærri lyfsalar veittu TR afslætti. Fjárhæðin sem apótekaranum var greidd er sú sama og dregin var af reikningum apóteks hans til TR vegna ákvörðunar lyfjaverð- lagsnefndar á árunum 1990 til 1994. Hæstiréttur segir að í ákvæðum laga sé enga heimild að finna fyrir lyfjaverðlagsnefnd til að ákveða mismun á smásöluá- lagningu lyfja eftir því hvaða lyf- sali krefði TR um greiðslu hlut- deildar hennar í söluverði lyfja. Tók við greiðslum með fyrirvara Lyfsalinn hafði gert fyrirvara við lögmæti ákvörðunar lyfjaverð- lagsnefndar hverju sinni sem hann tók við greiðslu reikninga sem sættu frádrætti samkvæmt ákvörðununum og segir í dóminum að maðurinn hafi ekki veitt hinum umdeildu ákvörðunum samþykki fyrir sitt leyti og hafi þær ekki orðið bindandi fyrir hann vegna þess eins að þær voru teknar með samþykki fulltrúa lyfsala í nefnd- mm. Alls 206,2 m.kr.? Miðað við þær upplýsingar sem fram komu í málinu nam afsláttur þessi 122,3 m.kr. á árunum 1990- 1993. Ekki náðist í taismann Tryggingastofnunar ríkisins til að fá upplýsingar um útgjöld síðan í árslok 1993 en ef miðað er við 42 m.kr. í afslátt hvort áranna 1994 og 1995 - sömu upphæð og nam afslætti ársins 1993 - er alls um að ræða 206,4 m.kr. Samskonar mál tveggja annarra apótekara bíða nú meðferðar í Héraðsdómi Reykjavíkur, að sögn Tryggva Gunnarssonar hæstarétt- arlögmanns. Hann sagði að svo stöddu ekki hægt að fullyrða um þýðingu þess fyrir endurkröfurétt apótekarans í málinu sem leitt hefur verið til lykta að hann gerði fullan fyrirvara við móttöku greiðslu. Þó teldi hann nýlegt for- dæmi Hæstaréttar styðja þá túlkun að menn hefðu ekki glatað rétti til endurkröfu þótt þeir hefðu ekki gert fulla fyrirvara. Biðstaða Ingolf J. Petersen, formaður Apótekarafélags íslands, sagði í samtali við Morgunblaðið að málið hefði verið rætt á stjórnarfundi í félaginu í fyrrakvöld. Aðspurður hvort allir apótekarar mundu nú gera kröfu til endurgreiðslu sagði hann að málið væri í biðstöðu meðan málin tvö sem fyrr voru nefnd fara í gegnum dómskerfið. Hæstaréttardómararnir Hjörtur Torfason, Markús Sigurbjörnsson, Pétur Kr. Hafstein, Haraldur Henrysson og Hrafn Bragason kváðu upp dóminn á fimmtudag. Tveir þeir síðastnefndu skiluðu sératkvæði og vildu staðfesta nið- urstöðu Héraðsdóms sem hafði hafnað kröfu lyfsalans.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.