Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 12

Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga ákveður umfangsmiklar skipulagsbreytingar Breytingar til að treysta grnnn landvinnslunnar Landsbréf Mikil sölu- aukning milli ára SALA í hlutabréfasjóði Landsbréfa á Akureyri á árinu 1996 v_ar sjöfalt meiri en árið á undan. Útibúið á Akureyri tvöfaldaði einnig hlutdeild sína í heildarsölu Landsbréfa miðað við árið 1995. Önnur útibú á Norðurlandi juku sölu verulega og var Norðurlandið í heild með um fimmföldun á sölu. Heildarsalan í hlutabréfasjóði Landsbréfa á Norðurlandi nam 115 milljónum króna og þar af um 86 milljónum króna á Akureyri. Landsbréf _ er dótturfyrirtæki Landsbanka Islands. Fyrirtækið hóf starfsemi í upphafi árs 1990 og er leiðandi í verðbréfaviðskiptum með innlend og erlend verðbréf. Lands- bréf hefur undanfarið Iagt áherslu á að efla starfsemi sína á Norður- landi m.a. með opnun skrifstofu í útibúi Landsbankans á Akureyri í september sl. STJÓRN Kaupfélags Eyfirðinga samþykkti á fundi í gær að ráðast í umfangsmikla endurskipulagningu á rekstri frystihúsa féiagsins á Dal- vík og í Hrísey og fjárfesta í nýjum búnaði og endurbótum á húsum fyr- ir 150-170 milljónir króna. „Framtíð landvinnslunnar hefur verið í sí- felldri skoðun og með þessum breyt- ingum erum við að treysta grunn hennar, enda höfum við trú á að þetta gangi,“ sagði Magnús Gauti Gautason, kaupfélagsstjóri KEA, í samtali við Morgunblaðið. Frystihús KEA á Dalvík og í Hrís- ey eru að mörgu leyti svipuð og í svipaðri vinnslu, þótt húsið á Dalvík sé mun stærra. „Hugmyndir okkar ganga út á það að húsið á Dalvík verði alfarið í bolfiskvinnslu og sjái um að frysta fisk og hugsanlega salta. Húsið í Hrísey verður sérhæft í pökkun og þar áfram unninn koli. Stórt hlutfall af okkar framleiðslu fer í smásölupakkningar og þar eru vaxandi verkefni. í dag taka bæði húsin á móti hráefni til vinnslu en í okkar áætlunum verður eingöngu tekið á móti bolfiski á Dalvík. Þar verður fiskurinn unninn í frysta bita sem síðan eru fluttir til Hríseyjar og pakkað þar í smásölupakkning- ar.“ Vinna um 5.000 tonn á ári Magnús Gauti segir nokkrar ástæður fyrir þessari breytingu á landvinnslu félagsins, sem hefur verið rekin með tapi síðustu miss- eri. „Við höfum það mikið af samn- ingum í fullunna vöru í neytenda- umbúðum, að núverandi tækjabún- aður húsanna annar þessu ekki með góðu móti og þarf að vinna þar bæði dag og nótt. Því teljum við það geta verið hagkvæma fjárfestingu að sérhæfa húsin og auka fram- leiðslugetuna í smásölupakkningun- um.“ Frystihús félagsins hafa unnið um 5.000 tonn af bolfiski á ári. Á Dal- vík starfa um 80 manns, þar af um 60 manns í frystingunni. í Hrísey hafa starfsmenn verið um 55 í fryst- ingu og skreiðarverkun. Magnús Gauti gerir ráð fyrir að við þessar breytingar muni starfsfólki fækka í Hrísey en fjölga frekar á Dalvík. „Heimamenn í Hrísey munu þó halda sinni vinnu en við þurfum þá ekki lengur að fá fólk að, eins og verið hefur síðustu ár. Á Dalvík verða unnin um 5.000 tonn á ári við þessa breytingu í stað 3.000 tonna áður og því er viðbúið að þar fjölgi starfs- fólki eitthvað." Stefnum á haustið Frystihúsinu á Dalvík verður nán- ast umbylt við þessar breytingar og mjög mikil endurnýjun verður á tækjakosti og er það kostnaðarsam- asti þátturinn. Húsnæðisbreytingar í Hrísey verða ekki miklar en tækja- búnaður í pökkun verður endurnýj- aður. Magnús Gauti gerir ráð fyrir að vinnslan verði komin í gang eftir breytingar í september nk. „I þess- um áætlunum er gert ráð fyrir tækjabúnaði sem ekki er á markaði í dag en er í þróun. Því er nokkur óvissa í okkar tímaáætlun, en við stefnum á haustið." EKKERT verður af ioðnuflokkun hjá Krossanesverksmiðjunni á þessum vetri eins og til stóð. Hugmyndin var að flokka loðnu hjá verksmiðj- unni, sem síðan yrði fryst á Japans- markað hjá Útgerðarfélagi Ákur- eyringa hf. Vegna óhagstæðs tíðarf- ars síðustu vikur tókst ekki að ljúka framkvæmdum við að koma upp aðstöðu fyrir flokkun í Krossanesi. Jóhann Pétur Andersen, fram- kvæmdastjóri Krossanes,, sagði þessa niðurstöðu ekki svo mjög bagalega fyrir fyrirtækið, þar sem útlitið í loðnufyrstingunni væri ekki eins og gott og menn héldu. „Miðað við þær fréttir, sem maður hefur, virðast alveg nógu margir um að framleiða þessi tonn sem Japanir eru tilbúnir að kaupa. Þannig að ég held að skaðinn hjá okkur sé ekki mjög mikill." Jóhann Pétur segir stefnt að því að hefja framkvæmdir þegar hlýnar með vorinu. Við verksmiðjuna í Krossanesi á að malbika plan undir skemmu sem reist verður fyrir loðnuflokkunina. Fyrsting fyrir Jap- ansmarkað stendur yfir í 2-3 vikur en til viðbótar er hægt að frysta loðnu á markaði, sem ekki eru eins kröfuharðir, að sögn Jóhanns. „Þetta hefur ekki verið gert hér áður og er í raun ákveðin tilraun sem við erum tilbúnir að gera. Við setjum upp búnaðinn og það er mögulegt að farið verði í einhverja loðnuflokk- un fyrir aðra markaði seinni partinn í sumar. Ef aðstæður leyfa munum við grípa það tækifæri sem gefst.“ Eng’in loðnu- flokkun í vetur Morgunblaðið/Guðmundur Þór STRAX var hafist handa við hreinsun úr rústunum og svo var ráðist í endurbyggingu fjárhússins Getur þurr húð komist í gott form? CLINIQUE 100% ilmefnalaust Nýjung frá Clinique. Moisture On-Line fyrirþurra og viðkvæma húð. Ný árangursrík leið fyrir þurra húð. Oflugur rakagjafi sem vinnur stöðugt að því að metta húðina Hefur þú þörf fyrir Ráðgjafi frá Clinique verður i versluninni dagana 6. og 7. febrúar frákl 12-17. af raka og eflir eiginleika hennar til að varðveita hann. Dregur úr fínum línum, sléttir og frískar. Spornar gegn skaðlegum áhrifum frá umhverfinu. Moisture On-Line 50 ml verð kr. 2.925. Moisture On-Line? O TTTTT Q 1 H Y G E A j n yrti v ö ruve r,i l u n Austurstræti Þak fauk af fjárhúsi við Kvíabekk í Olafsfirði Ólafsfirði. Morgunblaðið. ÞAK FAUK af 200 kinda_ fjárhúsi á bænum Kvíabekk í Ólafsfirði snemma í gærmorgun. Þetta gerð- ist í sterkri austanátt sem gekk yfir um nóttina og fram á morgun. I látunum brotnaði þakið niður og brak og plötur fuku út um allt tún. Plöturnar fuku alllanga Ieið eða rúmlega einn kílómetra sumar hveijar. Skemmdir á húsinu eru það miklar að það er talið ónýtt. Endurbygging þess hófst þegar. Mildi að kindurnar voru ekki inni Einn hestur drapst og er talið að þakplata hafi fokið á hann og drepið. Engar kindur voru í húsinu en þær ganga úti allt árið, nema í sérlega vondum veðrum. Andrés Kristinsson bóndi sagði að hann hefði verið að hugsa um að setja kindurnar inn deginum áður, en sem betur fer hafi ekki orðið úr því. Þær hefðu verið komnar heim á hlað, en það geri þær alitaf þeg- ar vont veður er í aðsigi. Áður skemmdir í austanáttinni „Ég vaknaði klukkan 6 um morguninn við veðrið en þá gekk á með austan byljum, en sú átt er mjög slæm hér á Kvíabekk," sagði Anette Ruck húsfreyja á Kvíabekk. „Ég hugsa að það hafi verið um 11-12 vindstig þegar mest var. Austanáttin er mjög slæm hér á Kvíabekk og gengur oft á með slæmum byljum. Það virðist vera staðbundið því hinum megin í firðinum koma ekki svona miklir vindar." Anette varð ekki vör við skemmdirnar fyrr en birta tók og sagðist hún hafa hugað að útihús- unum strax en það geri hún alltaf eftir sterka austanátt. Að sögn Andrésar er þetta ekki í fyrsta skipti sem skemmdir verða á Kvíabekk í veðri sem þessu. Fyrir rúmum þremur árum fauk þak í heilu lagi af hesthúsi og fyr- ir 6-7 árum fauk heyvagn, en bæði atvikin urðu í sterkri austan- átt. Árið 1888 fauk Kvíabekkjar- kirkja af í heilu lagi. ANDRÉS Kristinsson bóndi á Kvíabekk í Ólafsfirði tíndi saman brak og plötur af þaki fjárhúss síns, en það brotnaði í sterkri austanátt snemma í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.