Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Egill Egilsson
KVIKMYNDALIÐINU var boðið heim til Eiriks Finns Greipsson-
ar og var myndin tekin við það tilefni. Frá vinstri: Robert C.
Poole ljósamaður, Jack McDonald framleiðandi, David Pickner
tökumaður, Dave Ruddick hljóðmaður, Eiríkur Finnur og Kate
Churchill aðstoðarframleiðandi.
Mannlíf myndað á Flateyri
Flateyri - Á dögunum var stadd-
ur hér hópur bandarískra kvik-
myndagerðarmanna. Hópurinn
kemur frá sjónvarpsstöðinni
Nova, sem sérhæfír sig í heim-
ildamyndum um vísindi, ferða-
lög, og mannlíf. í þessu tilfelli
var verið að fjalla um mannlíf á
snjóflóðasvæðum víða um heim
og er Island eitt þeirra.
Hópurinn hafði þegar lokið
tökum í Sviss og til stóð að hefja
tökur eftir Islandsdvölina í
Colorado, á heimaslóðum
hópsins. Þegar tökur stóðu sem
hæst hér á Flateyri, komust
kvikmyndagerðarmennirnir í
feitt, því lítinn kóp á ísspöng
hafði rekið inn í voginn við aðal-
götu bæjarins. Kópurinn var
myndaður í bak og fyrir af
Bandaríkjamönnunum, og voru
þeir nokkuð ánægðir með að
hafa náð honum á filmu.
Tekin voru viðtöl við þá sem
lentu í hremmingum snjóflóðs-
ins, og þar á meðal var Eiríkur
Finnur Greipsson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs Onfírðinga,
en hann og fjölskylda hans
misstu hús sitt í flóðinu.
Bandaríkjamennirnir létu vel
af dvöl sinni hérna þrátt fyrir
Ieiðindaveður.
Ný lögmanns-
stofa á
Egilsstöðum
Egilsstöðum - Jónas A. Þ. Jónsson
lögmaður hefur opnað lögmanns-
stofu á Egilsstöðum. Jónas rekur
ennfremur stofu á Seyðisfirði sem
var opnuð 1. ágúst sl. og Fasteigna-
og skipasölu Austurlands á Eskifírði
sem hann rekur í félagi við Gísla
Auðbergsson lögfræðing.
Ástæðuna fyrir opnun lögmanns-
stofu á Egilsstöðum segir Jónas
vera vegna fjölmargra fyrirspurna
og áskorana. Skrifstofan á Egils-
stöðum verður til að byija með opin
tvo daga í viku.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
STARFSMENN Fasteigna- og
skipasölu Austurlands og Lög-
mannsstofu Jónasar, Gísli Auð-
bergsson, Þórarinn Þórhalls-
son og Jónas A.Þ. Jónsson.
Undirbúningur fyrir opinbera heimskókn til Noregs
Morgunblaðið/Bemhard Jóhannesson
SÉRA Geir Waage, Ragný Emilsdóttir, Guðrún Katrín Þorbergs-
dóttir og Ólafur Ragnar Grímsson í kaffisamsæti í Reykholti.
Forseta-
hjóniní
Reykholti
Borgarfirði - Forseti íslands, hr.
Ólafur Ragnar Grímsson, og frú
Guðrún Katrín Þorbergsdóttur
heimsóttu Reykholt og voru við
messu sunnudaginn 2. febrúar.
Eins og kunnugt er fara forseta-
hjónin í opinbera heimsókn til Nor-
egs í febrúar og af því tilefni boð-
uðu þau komu sína í Reykholt til
að kynna sér staðinn og þá miklu
uppbyggingu sem átt hefur sér stað
þar á liðnum árum. Ný kirkja og
safnaðarheimili hafa verið tekin í
notkun í Reykholti en Snorrastofa
er ekki nema fokheld ennþá.
í kaffí á eftir messu bauð Guð-
laugur Óskarsson, formaður sókn-
arnefndar Reykholtssóknar, for-
setahjónin velkomin. Hr. Ólafur
Ragnar Grímsson þakkaði fyrir sig
og frú Guðrúnu Katrínu og fór
nokkrum orðum um það hversu saga
Reykholts og Noregs eru samofnar
og ekki síður saga Bessastaða og
Reykholts en Snorri Sturluson hafði
þar bú og átti Bessastaði um tíma.
„Illt er að vera konungur
Noregs og hafa ekki komið
í Reykholt"
„Norðmenn eiga Snorra Sturlu-
syni margt að þakka þegar rifjuð
er upp saga þeirra og það er og
verður okkar áhersla að varðveita
minningu Snorra Sturlusonar og
halda merkjum hans hátt á lofti.
Reykholt verður einskonar „Mekka"
Norðmanna í framtíðinni. Ólafur
Haraldsson Noregskonungur kom í
Reykholt bæði sem krónprins og
konungur en Haraldur Noregskon-
ungur hefur ekki átt því láni að
fagna ennþá og þess vega er „illt
að vera konungur Noregs og hafa
ekki komið í Reykholt", sagði hr.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
LEIKSKÓLABÖRNIN á Barnabóli sungu og sýndu leikrit í tilefni dagsins,
I
I
)
)
>
í
i
VERKSMIÐJUÚTSALAN
Síðustu
dagar
fimmtudag og
Opið ffrá kl. 9-18,
laugardag kl. 10-14
SÓLIN SAUMASTOFA NÝBÝLAVEGI 4 DALBREKKUMEGIN KÓPAVOGI SÍMI 554 5800
Leikskólinn á Þórshöfn fagnar 20 ára afmæli
Aðeins það besta >
fyrir bömin ►
Þórshöfn - Opið hús var á leikskól-
anum Bamabóli um síðustu helgi og
var tilefnið 20 ára afmæli leikskóla-
starfsemi hér á Þórshöfn. Rausnar-
legar veitingar voru í boði og bömin
sungu og léku fyrir gestina.
A þessum tuttugu árum hafa
miklar breytingar orðið í leikskóla-
málum - og allar til batnaðar. í
upphafí var leikskólinn til húsa í
félagsheimilinu Þórveri - litlum sal
sem nefndur er kaffistofan og segir
það sig sjálft að það húsnæði var
afar óhentugt, oft reykmettað eftir
helgarskemmtanir fullorðna fólksins
eða nauðsynlegt reyndist að nýta
plássið vegna annarrar starfsemi.
Ef sú staða kom upp voru börnin
einfaldlega úti á meðan. Fyrir sextán
árum var starfsemin flutt á neðri
hæð hússins á Langanesvegi 14 en
í því húsi býr jafnframt elsti starfs-
maður leikskólans, Edda Jóhanns-
dóttir. Þar var starfsemin með mikl-
um blóma þar til loks var flutt í
nýtt húsnæði Barnabóls við Fjarðar-
veg 5a en bygging hússins hófst
árið 1981.
Mikil breyting átti sér stað við
tilkomu nýja hússins en síðan hefur
starfíð vaxið og börnum fjölgað -
sem aftur kallaði á aukið húsnæði.
Fjölmenni var í afmælinu og
skemmtu fullorðnir og böm sér dá-
vel - ekki síst vakti það kátínu barn-
anna þegar virðulegir foreldrar og
kennarar léku lítið leikrit fyrir við-
stadda í gervi hinna ýmsu dýra með
tilheyrandi dýrahljóðum.
Á leikskólanum eru 25 börn
Á leikskólanum Bamabóli eru nú
fjórir starfsmenn; Fanney Jónsdóttir
leikskólastjóri, Anna Jenný Einars-
dóttir, Edda Jóhannsdóttir og Sóley
Vífílsdóttir. Þar eru nú 25 börn, allt
frá eins og hálfs árs aldri til sex
ára. Sú breyting hefur orðin í gegn-
um tíðina að nú fá börnin heitan
I
I
I
mat í hádeginu sem í fyrstu var
útbúinn á leikskólanum en fyrir
skömmu var ákveðið að samnýta
mötuneyti dvalarheimilisins Nausts
með leikskólanum og þaðan fá börn-
in núna fullkomna heita máltíð í .
hádeginu. Það kemur mjög vel út I
segir leikskólastjórinn, bæði í kostn-
aði og gæðum. k
Að sögn Fanneyjar er meira rými 9
fyrir bömin nokkuð aðkallandi eftir
því sem þeim hefur fjölgað og ýmis-
legt fleira er á óskalistanum. Þrátt
fyrir það er óhætt að segja að mál-
efni barna á leikskólaaldri hafi sí-
fellt þróast í betri átt með hverju
ári og áfram stefnt í þá átt. Víst er
að allir foreldrar voru sammála
Maríu Kristjánsdóttur, formanni
leikskólanefndar Barnabóls, í ræðu
hennar í lok afmælisins: „Hér viljum
við aðeins það besta fyrir börnin
okkar.“
Y