Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 19

Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 19 Spmngur í Suðurskautinu TALSMENN Grænfriðunga skýrðu frá því í gær að liðsmenn samtakanna hefðu kvikmyndað stórar sprungur í íshellunni við jaðar Suðurskautslandsins, sem bentu til þess að hún væri að liðast í sundur. Þeir sögðu sprungurnar í Larsen B-ishell- unni vera til frekara vitnis um gróðurhúsaáhrifin á jörðinni. Norðurhluti Larsen-íshellunnar, sem kölluð var Larsen A, féll saman og hvarf snögglega í jan- úar 1995. Hún var 4.200 ferkíló- metrar að stærð. Margir vís- indamenn munu telja líklegt, að Larsen B-íshellan muni fylgja Larsen A-íshellunni eftir og hverfa á næstu fáeinum árum. Hér sjást tveir grænfriðungar kanna eina af sprungunum í Larsen B-íshellunni. Harriman látin París. Reuter. PAMELA Harriman, lést í gær af völdum heilablæðingar, 76 ára að aldri. Bill Clinton, forseti Bandaríkj- anna, minntist hennar í gær sem einnar „sérstæðustu og hæfileika- ríkustu manneskju", sem hann hefði kynnst um dagana. Harriman veiktist á mánudags- kvöld þegar hún' var stödd á Ritz- hótelinu í París. Var hún strax flutt á sjúkrahús þar sem hún lést í gær. Pamela Harriman var ötull stuðn- ingsmaður Clintons og fékk hún Harriman hún drægi sig í sendiherraemb- ætti í Frakklandi fyrir að hafa safnað saman nokkrum millj- ónum dollara í kosningabarátt- unni 1992. Hafði hún gegnt sendi- herraembættinu í fjögur ár og búist var við, að hlé á þessu ári. ERLEIMT_________________ Simpson dæmdur fyrir morð í bótamáli Reuter JOHN Kelly, lögfræðingur Brown-fjölskyldunnar, ræðir við fréttamenn ásamt þeim Louis Brown og Juditha Brown, foreldr- um Nicole Brown Simpson. Viðbrögð ráðast af litarhætti •• manna — Onnur réttarhöld hefjast í dag Los Angeles. Reuter. DÓMSTÓLL í Los Angeles úrskurð- aði í fyrrinótt að O.J. Simpson hefði verið valdur að dauða fýrrverandi eiginkonu sinnar, Nicole Simpson, og vinar hennar, Rons Goldmans. Höfðað var einkamál á hendur Simpson eftir að dómstóll sýknaði hann af ákæru um morðin fyrir hálfu öðru ári. Þar sem um einka- mál er að ræða var Simpson ekki dæmdur til fangavistar en honum var gert að greiða íjölskyldu Gold- mans um 8,5 milljónir dala, um 600 milljónir ísl. kr., í bætur. Máli Simp- sons er hins vegar ekki lokið því á næstu dögum verður tekið fyrir annað mál sem fjölskyldumar hafa höfðað á hendur honum um skaða- bætur. Blasir gjaldþrot að öllum lík- indum við þessari fyrrverandi íþróttastjörnu. Tárvotar fjölskyldur hinna látnu fögnuðu dómnum mjög og varð dómarinn í málinu að áminna þær um að hafa hljóð í salnum. Simpson sýndi hins vegar engin svipbrigði og hélt á brott þegar eftir að dómur- inn hafði verið kveðinn upp. Fjöl- skyldurnar tvær sögðu réttlætið hafa náð fram að ganga og leigðu hótelsvítu þar sem skálað var í kampavíni. Réttarhöldin hafa staðið yfir í rúma fjóra mánuði. Niðurstaða kvið- dómsins var einróma en kviðdóm- endur voru sex daga að komast að niðurstöðu. Til að úrskurða um sekt þurftu þeir ekki að komast að ein- róma niðurstöðu um að enginn vafi léki á sekt eins og regla er í sakamál- um, heldur nægði að þeir byggðu ákvörðun sína á því að yfirgnæfandi líkur væru á sekt og níu kviðdóm- endur af tólf væru á einu máli. Flestir kviðdómenda voru að þessu sinni hvítir, níu talsins, einn af asískum uppruna, einn af suður- amerískum og einn var af asísku og afrísku bergi brotinn. Blökkumenn reiðir Geysilegur mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan dómshúsið og sjón- O.J. Simpson yfirgefur réttar- salinn ásamt frænku sinni, Terri Baker. Honum var gert að greiða fjölskyldum hinna látnu 600 milij. kr. í bætur. varpsstöðvar fylgdust grannt með gangi mála. Ekki var sjónvarpað beint frá réttarhöldunum sjálfum. Viðbrögð almennings eru misjöfn og fara að mestu eftir litarhætti. Urskurðurinn hefur vakið hörð við- brögð hjá mörgum blökkumönnum, sem fögnuðu á sínum tíma mjög sýknudómi yfir Simpson en þá var meirihluti kviðdómenda svartur. Hafa margir þeirra sagt dóminn óréttlátan og stórt skref aftur á bak í réttindabaráttu svartra. Dómari í málinu bannaði lög- mönnum Simpsons að draga litar- hátt hans inn í málið. Hvatti Bill Clinton Bandaríkjaforseti almenn- ing til að sýna stillingu og sætta sig við niðurstöðuna, láta hana ekki verða til þess að auka bilið á milli hvítra og svartra. Mál Simpsons fyrir bandarískum dómstólum á sér vart fordæmi og er fátítt að menn, sem hafa verið sýknaðir af ákæru, séu dregnir fyr- ir dóm að nýju í einkamáli. Þrjár milljónir „ósnertanlegar" Fullvíst er að Simpson mun tapa nær öllu fé sínu en áætlað var að hann hefði átt um 11 miHjónir dala, um 770 milljónir ísl. kr., fyrir fjór- um árum. Viðbúið er að hann verði dæmdur til enn frekari skaðabóta- greiðslna en þær kröfur verða tekn- ar fyrir í máli sem hefst í dag. Óvíst er hvort hann verður úrskurð- aður gjaldþrota, þar sem hann á um 3 milljónir dala, um 210.milljón- ir ísl. kr., í lífeyrissjóði, sem aðrir geta ekki gert kröfu til. Lögfræðingar minna hins vegar á að lögmenn fjölskyldna hinna látnu geti hundelt Simpson það sem eftir er og gert kröfu í allar eigur hans, bifreiðar, hús, tennisvelli og annað. jTí'LÍSP^” Íuuiun Hans 100 50.088 ÍLxraia Hcnut 108 Skattar.: Gjöld.: -2.500 | SS|»arn<t«Nir ’ Vt rðbrft * I i *nln«a (iMÍSyajW : Tryqg«itt»f * HEIMILISLINAN mmm Ódýra heimilishjálpin! Hómer er einfaldur og þægilegur „Windows" hugbúnaður, sérstaklega ætlaður fyrir heimilis- bókhaldið. Þú þarft ekki bókhaldsþekkingu til að nota hann, þú færir aðeins inn uþphæð- irnar og Hómer sér um framhaldið. Hómer færðu í Búnaðarbankanum á 900 kr. og ef þú ert í Heimilislínunni kostar hann aðeins 450 kr. Með Hómer veistu hvað þú átt - og hvað þú mátt! BÚNAÐARBANKINN - traustur heimilisbanki

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.