Morgunblaðið - 06.02.1997, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna, flytur stefnuræðu sína á þingi
Vill „þjóðarátak“
í menntamálum
Washington. Reuter.
BILL Clinton, forseti Bandaríkj-
anna, kynnti markmið sín á síðara
kjörtímabilinu í stefnuræðu í fyrri-
nótt þar sem hann hvatti demó-
krata og repúblikana til að vinna
saman að því að bæta menntakerf-
ið, tryggja hallalaus fjárlög og
breyta lögum um framlög í kosn-
ingasjóði.
„Við stöndum ekki frammi fyrir
alvarlegum hættum en við eigum
óvin: óvinur okkar tíma er aðgerða-
leysið," sagði forsetinn í stefnuræð-
unni, sem var flutt í þinghúsinu að
viðstöddum þingmönnum beggja
deilda, auk embættismanna úr
Hvíta húsinu og hæstaréttardóm-
ara. „Í kvöld gef ég út áskorun um
aðgerðir... til að búa Bandaríkin
undir 21. öldina."
Clinton dró upp bjarta mynd af
efnahagsástandinu í landinu og
sagði að dregið hefði úr glæpum,
auk þess sem tekist hefði minnka
útgjöldin til velferðarmála. Emb-
ættismenn í Hvíta húsinu höfðu
óttast að sjónvarsstöðvarnar myndu
sniðganga ræðuna vegna þess að
skömmu áður en hún var flutt bár-
ust fréttir af því að niðurstöðu kvið-
dómsins í réttarhöldunum yfir O.J.
Simpson væri að vænta. Sá ótti
reyndist ástæðulaus því stóru sjón-
varpsstöðvarnar sýndu ræðuna í
beinni útsendingu og undir lok ræð-
unnar birtist texti neðst á skjánum
þar sem skýrt var frá því að kvið-
Hvetur repúblik-
ana og demókrata
til að láta af
flokkadráttum
dómurinn hefði úrskurðað að Simp-
son bæri ábyrgð á dauða eiginkonu
sinnar og vini hennar.
Varað við „fölskum
málamiðlunum"
Clinton lagði áherslu á að demó-
kratar og repúblikanar þyrftu að
láta af flokkadráttunum og vinna
saman til að auðvelda honum að
„taka erfiðar ákvarðanir næstu
fjögurra ára“.
Fulltrúadeildarþingmaðurinn
J.C. Watts, eini blökkumaðurinn í
röðum repúblikana á þinginu, svar-
aði stefnuræðunni fyrir hönd repú-
blikana. Hann fagnaði áskorun
forsetans um samvinnu flokkanna,
en bætti við að Bandaríkjamenn
vildu ekki „falskar málamiðlanir"
sem kæmu sér vel fyrir þingmenn-
ina en leiddu til „slæmrar niður-
stöðu“.
Clinton gagnrýndi tilraunir repú-
blikana til að bæta við ákvæði um
hallalaus fjárlög í stjórnarskrána.
Hann lofaði að eyða fjárlagahallan-
um án breytinga á stjórnarskránni.
Stærsti hluti ræðunnar fór í að
hvetja til „þjóðarátaks“ til að bæta
menntakerfið og „tryggja Banda-
ríkjamönnum bestu menntun sem
völ er á í heiminum".
Clinton vonaðist augljóslega til
þess að hans yrði minnst í sögubók-
unum sem forseta menntamálanna.
Hann lagði til að 51 milljarði dala,
sem svarar 3.500 milljörðum króna,
yrði varið til menntamála á fjár-
hagsárinu sem hefst 1. október, sem
er 20% meira en á þessu fjárhags-
ári.
Forsetinn fjallaði einnig nokkuð
ítarlega um stefnu sína í utanríkis-
málum og lofaði að beita sér fyrir
stækkun Atlantshafsbandalagsins í
austur ekki síðar en árið 1999 og
„traustu samstarfi" við Rússa, sem
leggjast gegn áformunum um
stækkun NATO.
Clinton hét því ennfremur að
beita sér fyrir „dýpri viðræðum"
við Kínverja í stað þess að reyna
að einangra kínversku kommún-
istastjórnina eins og nokkrir af
andstæðingum hans vilja. Hann
kvaðst ætia að heimsækja Kínveija
og ræða við Jiang Zemin, forseta
Kína, í Bandaríkjunum til að fýlgja
þessari stefnu eftir.
Forsetinn sagði að Bandaríkja-
menn ættu að halda áfram að beita
sér fyrir friði út um allan heim og
varast einangrunarhyggju, án þess
að líta á sig sem „lögregiu heims-
ins“.
Reuter
BILL Clinton Bandaríkjafor-
seti flytur stefnuræðu
sína á þinginu.
Lögum um kosningaframlög
verði breytt
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sjónvarpsstöðvarinnar CBS og dag-
blaðsins The New York Times nýtur
Clinton meiri vinsælda en nokkru
sinni fyrr frá því hann var kjörinn
forseti. 63% aðspurðra sögðust
ánægð með störf forsetans og að-
eins 29% óánægð þótt hann hafi
sætt gagnrýni fyrir hvemig staðið
var að fjármögnun kosningabaráttu
hans á síðasta ári.
Clinton skoraði á þingið að breyta
lögum um framlög í kosningasjóði
og ljúka því verki fyrir 4. júlí, þjóð-
hátíðardag Bandaríkjanna.
Trent Lott, leiðtogi meirihluta
repúblikana í öldungadeildinni, var
varfærinn þegar hann svaraði þess-
ari áskorun og sagði að þingið þyrfti
fyrst að ganga úr skugga um hvaða
lög hefðu verið brotin eða misnotuð
fyrir kosningarnar í nóvember.
Tyggjó
notað á
steinöld
London. Daily Telegraph.
EVRÓPSKIR táningar hafa
notað tyggjó frá því á stein-
öld, samkvæmt uppgötvun-
um fornleifafræðinga við
Bradford-háskólann í Eng-
landi. Með því er vindur sig-
inn úr þeirri goðsögn að
tyggjónotkun sé innfluttur
bandarískur tuttugustu aldar
ávani.
Forsögulegar svartar
tjöruklessur alsettar tanna-
förum manna hafa fundist
víða um norðanverða Evr-
ópu, s.s. í Svíþjóð, Noregi,
Danmörku og Þýskalandi.
Aldursgreiningar sýna að
þær eru frá mið-steinöld, eða
tímabilinu 7.000 til 2.000
fyrir Kristsburð. Stærð tan-
nafaranna þykir benda til að
mikill meirihluti tyggjenda
hafi verið börn og unglingar,
6-15 ára.
Tyggjó steinaldarmanna
var unnið úr birkibarkartjöru
en ekkert er vitað um fram-
leiðsluaðferðina. Hefur það
reyndar valdið sérfræðingum
talsverðum heilabrotum því
hita verður börkinn í
lofttæmi svo hann kolbrenni
ekki meðar, tjörumyndunin á
sér stað. Engin þéttlokuð
áhöld voru til á þessum tíma
og framleiðslan hefur því
verið erfið.
Milt reykjar- og bruna-
bragð er af steinaldartyggjó-
inu og þykir það hvorki gott
né vont.
Ákærur eftir gjaldþrot Hanbo í S-Kóreu
Tveir handteknir
vegna mútuþægni
Seoul. Reuter.
TVEIR bankaráðsformenn voru
handteknir í Suður-Kóreu í gær
vegna spillingarákæru sem tengist
Hanbo-samsteypunni. Hefur sak-
sóknari sakað þá um að hafa þeg-
ið mútur úr hendi forstjóra Hanbo,
Chung Tae-soo, og veitt samsteyp-
unni í staðinn geysihá lán. Þá
hefur einn þingmanna stjórnar-
andstöðunnar viðurkennt að hafa
þegið fé af Chung.
Tvímenningarnir eru formenn
bankaráða Landsbanka Kóreu og
Cho Hung-bankans. Eru þeir
sagðir hafa þegið sem svarar til
32 milljóna ísl. kr. hvor, fyrir að
greiða fyrir lánum til Hanbo.
Chung var handtekinn á föstudag
en yfirheyrslum yfir honum er
ekki lokið. Búast má við að fleiri
stjórnmálamenn og bankamenn
tengist spillingarákærum á hendur
Hanbo.
Áðurnefndir bankar og hinn
ríkisrekni Þróunarbanki Kóreu
voru stærstu lánardrottnar Hanbo,
sem fékk sem svarar til um 406
milljarða ísl. kr. í lán áður en
Hanbo-samsteypan var lýst gjald-
þrota 23. janúar. Hún var um tíma
14. stærsta fyrirtæki Suður-Kóreu.
Þá hefur þingmaður í stjómar-
andstöðunni játað að hafa þegið
um 12 milljóna ísl. kr. framlag í
kosningasjóð. Þingmaður þessi er
náinn samstarfsmaður eins leið-
toga stjómarandstöðunnar, Kim
Dae-jung sem hefur hins vegar
sakað ríkisstjórnina um að beita
áhrifum sínum í þágu Hanbo.
Jackson vill
kaupa Britanniu
New York. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKI poppsöngvarinn
Michael Jackson hyggst gera tilboð
í bresku drottningarsnekkjuna
Britanniu. Sagt er að söngvarinn
vilji breyta snekkjunni í fljótandi
höfuðstöðvar fyrirtækis sem hann
ætlar að koma á fót til að stjóma
rekstri skemmtigarða. Hefur frétt-
um af áhuga Jacksons verið fálega
tekið í Buckingham-höll og breska
vamarmálaráðuneytinu.
Talsmaður drottningar sagði
ríkisstjómina verða að taka
ákvörðun um málið en heimildar-
menn í vamarmálaráðuneytinu
segja að Jackson fái ekki að kaupa
Britanniu. Hana eigi ekki að selja
einstaklingum eða einkafyrirtækj-
um.
Fullyrt er að Jackson sé reiðu-
búinn að bjóða um 25 miiijónir
punda, hátt í 3 milljarða ísl. kr.
fyrir snekkjuna en saudi-arabískir
fjárfestar eru reiðubúnir að taka
þátt í kaupunum.
Sagt var frá því í New York
Post að Jackson teldi drottning-
arsnekkjuna fyrirtaksheimili utan
heimalandsins. Talsmenn Jacksons
neituðu í gær að tjá sig um málið.
Reuter
PAKISTÖNSK ungmennl í Karachi brenna brúðumynd af H.D. Deve Gowda, forsætisráðherra Ind-
lands. I gær var svokallaður Kasmírdagur í Pakistan en hann er helgaður baráttu Kasmírbúa
gegn yfirráðum Indveija.
I
)
I
i
1
I
I
Bhutto á báðum áttum
Islamabad. Reuter.
BENAZIR Bhutto, sem rekin var
úr embætti sem forsætisráðherra
Pakistans, hefur ekki ákveðið
hvort Þjóðarflokkur hennar tekur
þátt í störfum þjóðþingsins og fylk-
isþinganna en hann beið mikið af-
hroð í kosningunum á mánudag.
Múslimabandalagið var sigur-
vegari kosninganna og hafði í gær
fengið 134 sæti af 217 á þingi.
Flokkur Bhuttos var þá aðeins með
19 sæti, sem er minnsta fylgi hans
frá 1969. Var þá enn beðið talning-
ar í einu kjördæmi en kosningum
var frestað í þremur vegna andláts
frambjóðenda. Þá eru enn óskipuð
10 sæti, sem ætluð eru fulltrúum
trúarlegra minnihlutahópa.
Bhutto átti fund í gær með
framkvæmdastjórn Þjóðarflokks-
ins en ekki vartekin nein ákvörðun
um hvort hann tæki þátt í þing-
störfunum. Sagði talsmaður
flokksins, að það yrði gert daginn
fyrir þingsetningu. ítrekaði hann
þá yfirlýsingu Bhuttos, að brögð
hefðu verið í tafli í kosningunum
en sagði, að ekki yrði aðhafst neitt
frekar í því máli.
Nawaz Sharif, leiðtogi Múslima-
bandalagsins, verður næsti forstæ-
isráðherra Pakistans og er búist |
við, að hann leggi fram ráðherra-
lista 16. febrúar, daginn eftir þing-
setningu. Hann og bandamenn
hans hafa nú tvo þriðju þingsæta,
sem nægir meðal annars til að
breyta stjórnarskránni, en það
verður ekki auðveldara fyrir hann
en aðra að stýra ríkinu. Mikil óvild
ríkir milli þjóðarbrota og trúflokka
I Pakistan, efnahagsmálin eru í
ólestri og síðan bætist við stöðug |
togstreita milli Pakistana og Ind- '
veija.