Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 06.02.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 23 Tónlist bar- okktímans ENDURMENNTUNARSTOFNUN Háskóla íslands gengst fyrir al- mennu námskeiði um tónlist bar- okktímans sem fram fer á miðviku- dagskvöldum kl. 20-22 og hefst 12. febrúar. Leiðbeinandi verður Ingólf- ur Guðbrandsson tónlistarmaður og forstjóri og er þetta fimmta árið sem hann fjallar um sögu og form tónlistar. Aðsókn að námskeiðunum hefur farið vaxandi ár frá ári. í fyrra sóttu um 100 manns námskeið um líf og list Johanns Sebastians Bachs, sem fram fór i Hallgríms- kirkju undir leiðsögn Ingólfs. Námskeiðið í vetur er sjálfstætt framhald hinna námskeiðanna og ber nafnið Meistarar barokksins í ítalskri og þýskri tónlist, þar sem fjallað verður um ítölsku tónskáld- in Corelli og Vivaldi og þýsku meistarana Telemann, Hándel og J.S. Bach, rætt um líf þeirra, vinnubrögð, stefnur og áhrif og list þeirra borin saman með völdum tóndæmum. Námskeiðið stendur sjö miðvikudagskvöld í febrúar, mars og apríl. í framhaldi af námskeiðinu verð- ur efnt til pílagrímsferða á slóðir tónskáldanna, Klassíska leiðin til Þýskalands í júní og listaferð um Ítalíu í ágúst undir leiðsögn Ingólfs Guðbrandssonar. -----» ------- Kaffihúsa- bókmenntir í SAMSTARFI austurríska mennta- málaráðuneytisins, Félags þýsku- kennara og þýskudeildar HI mun dr. Gertrud Huemer fjalla um kaffi- húsabókmenntir frá Vínarborg (Wiener Kaffeehausliteratur) í húsakynnum Máls og menningar við Laugaveg klukkan 20 fimmtu- daginn 6. febrúar. Gertrud Huemer er doktor í þýsk- um bókmenntum og sagnfræði, hún hefur starfað sem blaðamaður og unnið að sjónvarpsþáttum um aust- um'ska menningar- og þjóðfélags- sögu. Auk þess hefur hún kennt við Goethe-Institut í París og kennt austurrískar nútímabókmenntir við Peking-háskóla. Gertrud Huemer hefur einnig skrifað bækur um austurríska þjóð- fræði. Fyrirlesturinn fer fram á þýsku. ♦ ♦ » Norræn kvik- mynda- og fjöl- miðlanefnd NORÐURLANDANEFND Norður- landaráðs skipaði á fundi sínum í Helsingfors nýverið vinnuhóp um kvikmyndir og fjölmiðla. Vinnuhópurinn á að freista þess að koma af stað umræðu um það hvernig megi örva og auka enn frekar samnorræna framleiðslu á kvikmyndum og sjónvarpsefni. Ætlunin er að vinnuhópurinn leggi fram tillögur sínar nægilega snemma til að þing Norðurlanda- ráðs í Helsingfors í nóvember nái að ijalla um þær. -----» » » ■ ■ Kveðskapur í Gerðarsafni RITLISTARHÓPUR Kópavogs efn- ir til dagskrár i Gerðarsafni í dag, fimmtudag, kl. 17-18. Að þessu sinni verður vísan og hinn bundni kveðskapur í öndvegi. Þeir sem fara með vísur og lesa úr verkum sínum eru Auðunn Bragi Sveinsson, Böðvar Guðlaugsson, Ragna S. Gunnarsdóttir og Valde- mar Lárusson. Gestum er heimilt að kasta fram fyrripörtum. Iris Murdoch með Alzheimer London. Reuter. SKÁLDKONAN Iris Murdoch, einn þekkt- asti rithöfundur Bret- lands, er með Alzhei- mer-sjúkdóminn. Eiginmaður Murdoch sagði frá þessu í við- tali við breska blaðið The Daily Telegraph á þriðjudag en undan- farna mánuði hafa ýmsar sögusagnir ver- ið á kreiki um skáld- konuna, m.a. þær að hún ætti við skrifteppu að stríða. Hún er 77 ára og hefur sent frá sér 26 skáldsögur. „Iris er með Alzheimer, á því leikur enginn vafi,“ sagði John Bayley í viðtalinu. „Það er eins og að falla niður í stiga, þrep fyrir þrep, þótt þetta virðist hafa gerst fremur hægt.“ Fyrir hálfu ári hafði Murdoch líkt erfiðleikum sínum við skriftir við að vera á „erfiðum, myrkum stað“ og að hún væri að reyna að komast þaðan. „En kannski bíð ég árangurslaust... ef til vill væri best að ég fyndi mér aðra vinnu." Murdoch er annar tveggja rit- höfunda sem hefur hlotið bæði Booker- og Whitbread-bókmennta- verðlaunin. Síðasta bók hennar, „Jackson’s Dilemma" kom út árið 1995 en sú fyrsta árið 1953, og kallaðist „Under the Net“. Hún sló hins vegar í gegn árið 1961 með bókinni „A Severed Head“. Murdoch lagði stund á tungumál og heimspeki í háskóla, og hefur kennt heim- speki við Oxford. Eru bækur hennar hlaðnar táknum, sögufléttan flókin, enda byggir hún á „erótískum dul- arfullum atburðum og myrkum átökum hins góða og hins illa“ eins og hún orðaði það ein- vern tíma í viðtali. Man ekki nöfn bóka sinna Læknir Murdoch segir að henni hafi tekist að fela veikindi sín um allnokkurt skeið, ekki síst vegna gáfna sinna og félagslegra hæfi- leika. Nú er hins vegar svo komið að hún man lítið úr eigin lífi og getur ekki nefnt neina af bókum sínum. Eiginmaður hennar segir að hann hafi farið að gruna hvað var á seyði fyrir tveimur árum er hún fór til London frá heimili sínu í Oxford en sneri aftur skömmu síðar þar sem hún var búin að gleyma hvert hún var að fara. Bayley segir Murdoch ekki niður- dregna, það liggi vel á henni. Von- ast hann til þess að með því að opinbera hvernig ástatt er fyrir Murdoch, muni fólk fást til að ræða sjúkdóminn, sem hafi ekki verið raunin hingað til. Iris Murdoch Námskeið um leikrit Tennessee Williams ENDURMENNTUNAR- STOFNUN Háskólans mun þann 10. febrúar nk. hefja í annað skipti í samstarfi við Þjóðleikhúsið kvöldnámskeið fyrir almenning um leikverk. I þetta skipti er verkið Köttur á heitu blikkþaki. Fluttir verða fyrirlestrar, farið á æf- ingu og síðan á lokaæfingu í Þjóðleikhúsinu, þar sem þátt- takendum gefst kostur á að ræða við leikstjóra, leikendur og fyrirlesara. Námskeiðið stendur í fimm kvöld á tíma- bilinu 10. febrúar til 3. mars. Köttur á heitu blikkþaki verður frumsýnt þann 28. febrúar nk. Leikstjórinn meðal fyrirlesara Á námskeiðinu munu flytja fyrirlestra þau Hávar Sigur- jónsson leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins, Melkorka Tekla Ólafsdóttir leikhús- fræðingur og Hallmar Sig- urðsson leikstjóri verksins. Munu þau fjalla um banda- rískar leikbókmenntir, höf- undaferil Tennessee Williams og stöðu hans í leikbók- menntum en einkum þó leik- ritið Köttur á heitu blikk- þaki, hinn stórbrotna fjöl- skylduharmleik. sw í Kringlunni, á Akureyri, á Stublahálsi og á Scltjarnarncsi VIKING ^ LÉTTÖL I Auglýsingastofa

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.