Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 06.02.1997, Qupperneq 31
30 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ JttogputiMgifeií STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SJÁLFSÖGÐ ÞÁTT- TAKA í KOSTNAÐI BANDARÍKIN hafa gert íslenzkum stjórnvöldum ljóst að þau hyggist ekki taka á sig neinn nýjan kostnað vegna fyrirhugaðrar stækkunar Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eða væntanlegrar aukningar borgaralegrar flugumferðar um Keflavíkurflugvöll. Þetta er mjög eðlileg og skiljanleg afstaða í ljósi þess, að borgaralegt flug er nú orðið meirihluti flugum- ferðar. íslendingar hafa ekki greitt nema fimmtung til þriðj- ung kostnaðar við rekstur hans, eins og rakið hefur verið í Morgunblaðinu að undanförnu. Bandaríkin eru enn skuldbundin íslandi samkvæmt varnar- samningi ríkjanna frá 1951 til að greiða kostnað við rekstur og viðhald flugvallarins sjálfs, en íslendingar hafa séð um flugumferðarstjórn. Undanfarin ár, einkum í tengslum við endurskoðun á framkvæmd varnarsamningsins árin 1994 og 1996, hafa Bandaríkin mjög knúið á um, að ísland greiddi stærri hluta af rekstrarkostnaði í ljósi þess, að herflug varnar- liðsins hefur farið hraðminnkandi á sama tíma og borgaralega flugið hefur aukizt. íslenzk stjórnvöld hafa hafnað öllum kröf- um um kostnaðarþátttöku, en verið til viðræðu um sparnað í rekstri vallarins. Þegar varnarsamningurinn var gerður var markmið hans aðeins eitt; að tryggja öryggi íslands á hættutímum. ísland veitti Bandaríkjaher afnot af íslenzku landi, en fékk hervernd í staðinn. Varnarliðið átti ekki að verða tekjulind, þótt sú hafi því miður orðið raunin síðar. Á þeim tíma kann að hafa verið eðlilegt að gera ráð fyrir að Bandaríkin greiddu rekstur og viðhald flugvallarins, enda voru aðstæður í íslenzku samfélagi þá allt aðrar en nú og ísland hafði tæplega bolmagn til að standa undir rekstri nú- tímalegs alþjóðaflugvallar. Hins vegar var tæplega gert ráð fyrir að varnarsamningurinn fæli í sér niðurgreiðslu á rekstri alþjóðaflugvallar við núverandi aðstæður. ísland er sjálfstætt ríki, íslenzk fyrirtæki halda uppi öflugum samgöngum við umheiminn og þjóðin hefur án efa efni á rekstri millilandaflug- vallar, rétt eins og annarra samgöngu- og fjarskiptamann- virkja. Á næstu árum má gera ráð fyrir að borgaraleg flugumferð um Keflavíkurflugvöll aukist enn frekar, en herflug varnarliðs- ins standi í stað. Það hlýtur að vera í alla staði eðlilegt, að ísland taki þátt í kostnaði við rekstur í samræmi við þessa þróun. Á móti munu koma nýjar tekjur, meðal annars af lend- ingargjöldum, vegna aukinnar umferðar. Vissulega er einnig eðlilegt að Bandaríkin greiði hluta kostnaðar við rekstur vall- arins í samræmi við notkun sína á honum. Á undanförnum árum hafa verið stigin nokkur skref í þá átt að lækka kostnað varnarliðsins af veru sinni hér, þótt það hafi þýtt að tekjur íslendinga hafi um leið minnkað. Nefna má fjölgun útboða, afnám einkaréttar verktakafyrirtækja á framkvæmdum á Keflavíkurflugvelli og samdrátt í umfangi varnarliðsins. Allt hefur þetta stuðlað að því, að Bandaríkja- menn sjái sér fært, til lengri tíma litið, að veita íslandi þá vernd, sem landið þarf á að halda. Þátttaka í kostnaði við rekstur Keflavíkurflugvallar er eðlilegt skref á þessari braut og mun jafnframt stuðla að því að gera íslendinga loksins fjárhagslega óháða veru varnarliðsins hér á landi. ÁBYRGÐIR Á LÁNUM BOÐAÐAR HAFA verið breytingar á stöðu ábyrgðarmanna vegna fjárskuldbindinga, bæði af hálfu banka og spari- sjóða, svo og af ráðherrum viðskipta og félagsmála. Þessu ber að fagna, því löngu er tímabært að endurskoða með hvaða hætti fjármálastofnanir tryggja útlán sín og þá að huga sér- staklega að ábyrgðum einstaklinga, sem margir hveijir hafa orðið fyrir þungum búsifjum. Miklu varðar fyrir allan almenn- ing, hvernig skipan þessara mála verður í framtíðinni. Það sést m.a. af því, að um 90 þúsund manns eru í ábyrgðum fyrir aðra og 18 þúsund manns hafa sl. fimm ár þurft að greiða lán, sem þeir hafa ábyrgzt. Rætt hefur verið um, að lánastofnanir kanni betur greiðslu- getu lántakandans þegar ákvörðun er tekin um lánveitingar en leggi minni áherzlu á ábyrgðarmenn. Ráðherrarnir telja koma til greir.a að banna með lögum að nota ábyrgðarmenn. Slíkt verður þó að teljast hæpið vegna Iánamöguleika tekju- og eignalítils fólks. Hins vegar er hægt að gera ýmsar ráðstaf- anir til að tryggja hag ábyrgðarmanna betur en nú er. Koma þarf í veg fyrir, að ábyrgðarmanni sé gert að greiða marg- falda þá upphæð, sem hann ábyrgðist í upphafi. Þetta gerist t.d. vegna mikils áfallins kostnaðar og stundum vegna ótrú- lega hás innheimtukostnaðar. Falli lán í vanskil þurfa lána- stofnanir að gera ábyrgðarmanni viðvart, gera honum grein fyrir fyrirsjáanlegum kostnaði vegna vanskila, leita eftir við- bótarábyrgð eða gefa honum tækifæri til að semja um greiðslu. Stefnt að því að umburðarlyndi gagnvart barna- og unglingadrykkju hverfi Meðferð og ráðgjöf fyrir unglinga og foreldra Leitarstarfi í grunnskólum Reykjavíkur- borgar verður líklega hleypt af stokkunum á næstu vikum. Starfíð miðar að því að finna strax þá unglinga, sem neyta áfengis eða annarra vímuefna og haft verður samráð við foreldra um lausn vandans. Ragnhildur Sverrisdóttir kynnti sér hugmyndimar, sem meðal annars gera ráð fyrir að Unglingamiðstöð verði í Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg, með greiningu, ráðgjöf og meðferðarúrræðum. Morgunblaðið/Ámi Sæberg REIKNAÐ er með að Unglingamiðstöð verði í Heilsuverndarstöðinni. FJÖLMARGIR hafa komið að undirbúningi verkefn- isins og vonast er til að samkomulag takist mjög fljótlega um að hrinda því í fram- kvæmd. Gangi það eftir gera tillög- ur ráð fyrir að skólastjórar grunn- skólanna í Reykjavík sendi foreldr- um allra nemenda í unglingadeild- um skólanna bréf með kynningu á samstarfsverkefninu, markmiðum þess og framkvæmd, enda verður lögð áhersla á fullt samráð við for- eldra um framkvæmd verkefnisins. Kostnaður við verkefnið er áætlaður tæpar 16 milljónir króna. Reykja- víkurdeild Rauða krossins styrkir verkefnið, en ríki og borg bera kostnað að öðru leyti. Markmiðið með starfmu er að umburðarlyndi gagnvart barna- og unglingadrykkju hverfi og grunn- skólinn verði hér eftir vímuefnalaus. Gert er ráð fyrir að innan skól- anna verði leitarstarfið í höndum nemendaverndarráða, sem í sitja skólastjórar, skólahjúkrunarfræð- ingar, skólasálfræðingar, umsjón- armenn sérkennslu, full- trúar kennara og náms- ráðgjafar. Þá er gert ráð fyrir að félagsmiðstöðv- ar, lögregla, foreldrar sem sameinast um svo- kallað foreldrarölt, heilsugæsla, kirkja og hugsanlega fleiri taki þátt í leitarstarfinu og láti vita um þá unglinga, sem talin er ástæða til að hafa áhyggjur af vegna áfengisneyslu eða neyslu annarra vímuefna. Skólastjórar verða ábyrgir fyrir skráningu á nöfnum nemenda, sem vitað er að hafi neytt áfengis eða annarra vímuefna. Farið verður með allar persónulegar upplýsingar og skráningu þeirra samkvæmt reglum um meðferð trúnaðargagna, en for- eldrum allra nemenda, sem til um- fjöllunar eru í nemendaverndarráði, verður gert viðvart. Tillögur um leitarstarf gera ráð fyrir, að eftir að bent hafi verið á nemanda komi tvennt til greina. Annars vegar verði tekið sérstak- lega á málum þeirra sem eru að neyta áfengis í fyrsta eða fyrstu skiptin og hins vegar verði leitað lausna á vanda þeirra sem neyta áfengis reglulega, til dæmis einu sinni í mánuði eða oftar og þeirra sem neyta annarra vímuefna. Nemendavarnaráð mun fá það hlutverk að taka nánari ákvörðun um málsmeðferð. Ef um er að ræða nemendur sem eru að byija að neyta áfengis skal skólastjóri eða fulltrúi hans ábyrgjast tilkynningu til for- eldra, með símtali eða viðtali. For- eldrum þeirra unglinga, sem eru komnir í meiri neyslu áfengis og/eða annarra vímuefna verður gerð grein fyrir stöðu málsins í viðtali og þeim síðan vísað ásamt barni sínu á þjónustu Ungl- ingamiðstöðvarinnar. Þar fylgja fulltrúi félags- málastofnunar eða bamaverndar- nefndar málinu eftir. Greining, ráðgjöf og meðferð Gert er ráð fyrir að Unglinga- miðstöðin verði til húsa í Heilsu- verndarstöðinni við Barónsstíg. Þar skiptist starfið í tvennt, greiningu og ráðgjöf annars vegar og meðferð hins vegar. Eftir að unglingi og foreldrum hans hefur verið vísað til Unglinga- miðstöðvar verður mál þeirra tekið fyrir af greiningar- og ráðgjafar- teymi, sem skipað er sérfræðingum frá Bamaverndarstofu, Stuðlum, Barna- og unglingageðdeild og Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkur. Teymið metur hvers konar hjálp og þjónustu viðkomandi unglingur og ijölskylda hans þarfnast í því skyni að koma í veg fyrir neyslu og er lögð áhersla á samstarf við foreldra og unglinginn sjálfan. Valin eru viðeigandi úrræði, sem gætu t.d. falist í fjölskylduviðtölum hjá Sam- vist, ráðgjöf hjá Félagsmálastofnun, skipun tilsjónarmanns eða vistun á Stuðlum og öðrum meðferðarstofn- unum á vegum Barnaverndarstofu. Áhersla lögð á áhættuhópa Auk þessa eru hugmyndir um að meðferðarstarf verði í Unglinga- miðstöðinni sjálfri og miðist það bæði við for- eldra og unglinga. Þannig væri hægt að veita fleiri unglingum og fjölskyldum þeirra stuðning og meðferð en þeim sem beinlínis eru taldir þurfa á vistun á meðferðarstofnunum að halda. Unglingameðferðin mun þannig felast í hópstarfi, fyrirlestrum og einstaklingsviðtölum. Að auki verð- ur skipulagt tómstundastarf, t.d. hestamennska og ferðalög, sem hefur það markmið að virkja ungl- ingana til vímulausrar tilveru. Sér- stök áhersla verður lögð á áhættu- hópa, t.d. stúlkur sem hafa verið í slagtogi með sér eldri drengjum og eru oft kynferðislega misnotaðar, drengi sem eiga eldri bræður í neyslu og unglinga sem koma úr fjölskyldum alkóhólista. Meðferðar- starfið verður á kvöldin og um helg- ar, enda ekki gert ráð fyrir að venju- leg skólasókn unglinganna riðlist þótt þeir taki þátt í því. Foreldrar verði hæfari í uppeldishlutverkið Foreldrum verður einnig boðið upp á meðferð í Unglingamiðstöð- inni, gangi tillögur eftir. Sú með- ferð á að miða að því að gera þá hæfari til að glíma við uppeldishlut- verkið með tilliti til vímuefnaneyslu og felst í samtölum, fræðslu og hópvinnu. Tillögur þessar byggjast á víð- tæku samstarfi aðila á vegum fé- lagsmálaráðuneytisins, heilbrigð- isráðuneytisins og Reykjavíkur- borgar, auk þess sem Reykjavíkurdeild Rauða krossins gegnir veiga- miklu hlutverki. Eins og sést af meðfylgjandi hugmynd að skipuriti koma nánast allir þeir, sem starfa að unglingamálum, að leitarstarfinu. Verði tillögumar samþykktar mun leitarstarfið hefj- ast skömmu síðar og þar með mjög víðtækt forvarnarstarf innan grunnskólanna. Vonast er til að samkomulag náist þar um strax í næstu viku. Skólastjórar skrái nöfn þeirra sem drekka Unglingar og foreldrar fái stuðning og meðferð ÓLYMPÍUNEFND ÍSLAMDS FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 31 UPPGJÖRIÐ LIÐUR í S AMEININ GUNNI * ákff AF INNLENDUM VETTVANGI MIKIÐ hefur gengið á í íþróttahreyfingunni und- anfarin misseri, fyrst og fremst vegna sameining- armálsins. Hins vegar hefur farið óvenju lítið fyrir forráðamönnum hennar frá íþróttaþingi ÍSÍ á Akra- nesi í lok október sem leið. Ellert Schram formaður íþróttasam- bands íslands sagði það eðlilegt. „Mikil spenna ríkti í hreyfingunni fyrir íþróttaþingið en þarvar einróma samþykkt að sameina ÍSÍ og Ólymp- íunefnd íslands og því fylgdi mikill léttir í hreyfingunni, eftir spennu kom spennufall. Sameiningarmálið komst á beinu brautina og vopnin voru sleg- in úr höndum þeirra sem voru á móti.“ Þetta sameiningarmál á sér nokk- urra ára aðdraganda og hafa menn skipst í tvær fylkingar á bak við Ell- ert og Júlíus. Ellert hefur ávallt lagt áherslu á nauðsyn þess að íþrótta- hreyfingin sé undir einum hatti íþróttasambandsins_ en Júlíus hefur bent á mikilvægi Ólympíunefndar í alþjóða samstarfi og að skilyrði sam- einingar sé að fylgja ákvæðum ólymp- íusáttmálans. Eftir samþykktina á Akranesi virtust sverðin hafa verið slíðruð og gengið var út frá því að samsvarandi tillaga um sameiningu yrði samþykkt á aðalfundi Óí. Júlíus sagði þá við Morgunblaðið að tíma- bært hafi verið að stefna að samein- ingu „og nú verður ekki aftur snúið; ég tel að sameining verði á starfi ÍSI og Óí þegar íþróttahreyfingin hefur fengið öll gögn og málið verið vel kynnt. Vonandi tekst það næsta haust og ég á von á því.“ Með þetta í huga komu úrslit kosn- inganna í fyrrakvöld mörgum á óvart og sumir telja að þau skaði ekki að- eins hreyfinguna heldur geti jafnvel komið í veg fyrir sameiningu í haust. Nokkrir viðmælendur líta á úrslitin sem lið í að tryggja Ellert forsæti í nýjum samtökum. Aðrir segja að þau auðveldi sameininguna og menn andsnúnir Ellert árétta að verði ekki af henni í haust stjórni hann ferðinni í ÍSÍ og Óí á næstu árum en mögu- leiki sé að fella hann í forsetakosn- ingu á fyrsta fundi nýrra samtaka. Orð á móti orði Þegar niðurstaðan lá fyrir sagði Júlíus að sumir í fráfarandi stjórn Óí væru drengskaparmenn en aðrir ekki og slæmt væri að nánustu sam- starfsmenn væru ódrengskaparmenn. „Foiystumenn ÍSÍ, Ari Bergmann rit- ari Ólympíunefndar og fleiri, tóku sig saman um að fella mig,“ sagði Júlíus við Morgunblaðið aðspurður um skýr- ingu sína á úrslitum kosninganna. „Illt er til þess að vita að ódrengilega sé að mér vegið frá manni eins og Ara en við höfum unnið ----------- saman að stórverkefni, Smáþjóðaleikunum á ís- landi í júní, og haft sam- skipti daglega auk þess sem hann hafði lofað stuðningi og sagt að hlutirnir væru í lagi.“ Júlíus sagði ennfremur að unnið hefði verið að því að koma sér frá í nokkurn tíma. „Ari sagði mér að í desember hefði hann verið beðinn um að fara fram á móti mér en hann hefði hafnað því. „Þeir töluðu aftur við mig í dag“, sagði hann við mig þegar við gengum inn á aðalfundinn Júlíus Hafstein, sem hefur verið formaður Ólympíunefndar íslands síðan 1994, féll í kosningu um sæti í nefndinni á aðalfundi hennar í fyrrakvöld. Júlíus sakar samstarfs- menn um ódrengskap og segir að markvisst hafi verið unnið á móti sér í kjörinu í skjóli ÍSÍ. Viðkomandi vísa ásökununum á bug. Steinþór Guðbjartsson var á aðalfundinum og kannaði stöðuna á toppnum í íþróttahreyf- ingunni í kjölfar liðinna átaka. Morgunblaðið/Ásdís ELLERT B. Schram tók við af Júlíusi Hafstein og varð það niður- staðan eftir rúmlega klukkutima lokaðan fund undir stjórn Egg- erts Magnússonar sem stendur hér á milli þeirra. Myndin var tek- in við upphaf átakafundarins á Hótel Loftleiðum í fyrrakvöld. Sameiningar- málið á beinu brautinni en áréttaði að hann ætlaði ekki í formannsslag. Raunverulega laug hann að mér fram á síðustu stundu, til síðustu sekúndu, því eftir þetta kaus hann mig ekki. Svona er dreng- urinn og svo stakk Ellert upp á hon- um á fundinum þar sem hann fékk þrjú eða fjögur atkvæði. Framkoma Ara er eitt það ógeðfelldasta sem ég hef kynnst í íþróttahreyfingunni og þó víðar sé farið. Hann var gestur heima hjá mér á laugardaginn, klapp- aði mér og kyssti og gaf mér falleg blóm en hélt á rýtingnum í hinni hendinni." Ari sagði ásakanirnar ekki svara- verðar. „Eg tók sjálfstæða afstöðu í leynilegri kosningu án þrýstings frá öðrum og mér var hvorki stjórnað af formanni Ólympíunefndar né skrif- stofu ÍSÍ. Ég hef hingað til ekki ver- ið þekktur fyrir að vera ódrengskap- armaður en læt aðra í hreyfingunni sem þekkja mig dæma um það. Hins vegar var andrúmsloftið þannig á ________ fundinum að menn hugsuðu fyrst og fremst um fýrir- hugaða sameiningu og úr- slitin sýna að menn hafa ekki treyst Júlíusi fullkom- .... lega í því máli þó starf hans vegna Smáþjóðaleikanna hafi verið metið að verðleikum og menn óskað eftir að hann héldi því áfram.“ Barátta í rúm sex ár Aðalfundur Ólympíunefndar er haldinn árlega og á fyrsta aðalfundi í byrjun hverrar „ólympíöðu" fara fram kosningar og gilda þær til fjög- urra ára. Samkvæmt lögum Ólymp- íunefndar íslands eiga eftirtaldir sæti í nefndinni: Fulltrúi Alþjóða ólympíunefndarinnar (IOC) á ís- landi, hafi hann verið tilnefndur. Forseti íþróttasambands íslands. Einn fulltrúi tilnefndur frá hveiju sérsambandi fyrir íþróttir sem eru á leikskrá Ólympíuleika eða geta verið skv. 32. grein Ólympíusáttmálans. Þrír fulltrúar tilnefndir af ÍSÍ fyrir þær ólympíuíþróttir sem sambandið er sérsamband fyrir. Fjórir fulltrúar íþróttamanna og/eða íþróttaleiðtoga kosnir óbundinni kosningu á aðal- fundi og skulu tveir þeirra koma úr röðum íþróttamanna sem tekið hafa þátt í Ólympíuleikum. ísland á ekki fulltrúa í IOC og því eru 25 manns í nefndinni, þar af fjórir kosnir á aðalfundi. Barátta Ellerts og Júlíusar innan íþróttahreyfingarinnar hófst á Iþróttaþingi ÍSÍ haustið 1990 þegar báðir voru í framboði til embættis varaforseta. Ellert, sem var nýhættur sem formaður Knatt- --------------- spymusambands íslands, var kjörinn með 92 at- kvæðum en Júlíus, sem þá var borgarfulltrúi og for- maður Iþrótta- og tóm- stundaráðs, fékk 88 atkvæði. Haustið 1992 tilkynnti Gísli Hall- dórsson, þáverandi formaður Ólymp- íunefndar, að hann ætlaði að hætta á næsta aðalfundi en hann hafði ver- ið formaður síðan 1972. Innan fram- kvæmdastjórnar Ólympíunefndar var unnið að því að Ari Bergmann Einars- son, þáverandi formaður Siglinga- sambandsins og framkvæmdastjórn- armaður, tæki við af Gísla en Júlíus íhugaði einnig framboð. Óeining var innan sérsambanda ÍSÍ og formenn átta sérsambanda - Sundsambands- ins, Fimleikasambandsins, Skíðasam-- bandsins, Badmintonsambandsins, Borðtennissambandsins, Frjáls- íþróttasambandsins, Glímusambands- ins og Júdósambandsins - kölluðu formannsefnin á sinn fund og í kjöl- farið fékk Júlíus víðtækan stuðning. Þessi hópur var sakaður um að vera að kljúfa Ólympíunefnd frá ÍSÍ og var átalinn fyrir baktjaldamakk. Til að afstýra klofningi beitt Ellert, sem þá var orðinn forseti ÍSÍ, sér fyrir því að GSsli sæti eitt ár til viðbótar, formannsefnin tækju sæti í fram- kvæmdastjórn og Júlíus yrði að öllu óbreyttu formaður Ólympíunefndar 1994. Þetta gekk eftir en síðan hefur andað frekar köldu á milli Ellerts og Júlíusar. Staðhæfing gegn staðhæfingu Júlíus sagði að Ellert hefði átt stór- an þátt í hvemig fór í kjörinu í fyrra- kvöld. „Ellert segir ósatt þegar hann segist ekki hafa komið nálægt kjör- inu. Hann stakk upp á Hrafnhildi Guðmundsdóttur á móti mér. Eftir kosninguna, þegar ég fór inn á skrif- stofu mína hjá Ólympíunefnd beið Hrafnhildur þar eftir símtali frá Ell- ert. Auk þess var hringt í mig skömmu fyrir þingsetningu og sagt eftir Ellert að þetta væri í bígerð. Ein skýring er sú að það hafi verið ákveðið vandamál fyrir Ellert að hafa mig þarna í forystu vegna Smáþjóða- leikanna því allt benti til að ég yrði of áberandi sem gæti styrkt mig í slagnum í haust. Ellert hefur alltaf sóst eftir því að vera í sviðsljósinu og með þessu var verið að ryðja braut- ina fyrir hann og fleiri.“ „Ég kannast ekki við samsæri við undirbúning þingsins og í það minnsta hef ég ekki tekið þátt í slíku,“ sagði Ellert aðspurður um ásakanir Júlíusar. „Menn hafa vitað um ágreining okkar Júlíusar og málið hefur verið persónugert en ég er ekki fær um að segja 25 manns fyrir verkum. Menn tóku afstöðu f leynilegri kosningu með lýðræðisleg- um hætti og ég segi það hreinskilnis- lega að úrslitin komu mér á óvart, þó ég hafi vitað um andstöðu gegn Júlíusi. Hins vegar fannst mér ekki skynsamlegt að gefa kost á mér í formannsembættið því það fannst mér líta út eins og ég væri að koma mér að. Ég hafði ákveðið að gefa kost á mér í forsæti nýrra samtaka í haust og skemmtilegra hefði verið að taka við undir þeim kringumstæð- um. Ég bað fundarmenn um að koma sér saman um annan formann en mig en lausn fannst ekki og ég verð að axla þá ábyrgð. Þegar þetta lá fyrir óskaði ég eftir því að menn. kæmu sér saman um aðra menn í framkvæmdastjóm en að öðru leyti hafði ég ekki afskipti af kjörinu.“ Ellert sagðist ekki hafa tamið sér óheiðarleika í störfum og enginn hefði vænt Júlíus um ódugnað í starfi. „Ég stakk upp á Hrafnhildi vegna tilmæla IOC um að auka hlut kvenna í hreyfingunni og framboði hennar var ekki stefnt gegn neinum því kosið var um tvö sæti. Niðurstaðan á sér aðra skýringu en að Júlíus hafi Urslit kosn- inganna komu á óvart ekki gert sitt besta fyrir Óí. Hanft hefur haft alla fyrirvara á samein- ingarmálinu og öllum í hreyfingunni er ljóst að hann hefur verið á móti sameiningu. Hann hefur leitað tæki- færa til að gagnrýna mig án þess að ég hafi gert það að umtalsefni en nefna má að á tveimur síðustu íþróttaþingum hefur hann haft á orði að gefa kost á sér gegn mér.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.