Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 06.02.1997, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓHANNES EGILSSON + Jóhannes Þor- valdur Egilsson fæddist á Laxamýri í Suður-Þingeyjar- sýslu 1. des. 1906. Hann lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 27. janúar síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Egill Siguijónsson, gullsmiður og úr- smiður, bóndi á Laxamýri og Arn- þrúður Sigurðar- dóttir. Öll systkini Jóhannesar eru lát- in. Þau voru: Sigurður, f.1892, d.1969; Snjólaug, f. 1894, d. 1954; Kristín, f. 1897, d. 1979; Sigur- jón, f. 1902, d. 1994; Stefán Gunn- björn, f. 1904, d. 1995. Jóhannes var skólaráðsmaður í Mennta- skólanum á Akureyri í nokkur ár. Hann var gagnfræðingur frá Menntaskólanum á Akureyri. Hann stundaði nám í hús- gagnasmíði hjá Frið- riki Þorsteinssyni húsasmíðameistara og í Iðnskólanum í Reykjavík, lauk sveinsprófi árið 1935 og meistaraprófi árið 1941. Um árabil var hann prófdómari við Iðnskólann í Reykjavík. Árum saman vann hann á verkstæði Friðriks Þorsteinssonar á horni Skólavörðustígs og Berg- staðastrætis og tók þátt í rekstri þess síðustu árin og nefndist það þá Trésmíðaverkstæði Jakobs og Jóhannesar. Útför Jóhannesar fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Eftir nokkra daga eru fímmtán ár liðin frá því að við urðum fýrir því óhappi að það kviknaði í sumar- bústaðnum okkar. Við stóðum þarna 2 í hálfmyrkri. Grá morgunskíman megnaði ekki að komast í gegnum sótugar gluggarúðumar. En ekki liðu margir dagar þangað til endurreisn- arstarfíð var komið í fullan gang með hjálp góðra vina. Það fór að birta í stofunni. Þúsundþjalasmiður- inn Gunnbjörn Egilsson átti að sjálf- sögðu gamalt rúðugler uppi á háa- lofti og fyrr en varði var hann kom- inn á vettvang, vopnaður spoijámum af öllum stærðum og nokkrum teg- undum af kítti. Það var málað og þvegið, smíðað og skrapað. Ekkert skyggði á vinnugleðina nema hús- gögnin. Gömlu traustu húsgögnin, sem fylgt höfðu bústaðnum, vom kolsvört af sóti, gerónýt. Við fengum jeppakeiru lánaða til að fara með þau á haugana og hlóðum þeim á hana. Svo vöppuðum við nokkra hringi í kringum keiruna og hag- ræddum hlaðanum, tvístigum og bundum fleiri hnúta á snærið, sem hélt honum, en ekkert okkar hnýtti kerruna aftan í bílinn. Mátti ekki reyna? Var ekki gamli bólstrarinn, sem hafði gert við margan dívang- t GUÐMUNDUR EINARSSON frá Syðstu-Grund, Eyjafjöllum, Kirkjuvegi 41, Vestmannaeyjum, lést á Sjúkrahúsí Vestmannaeyja sunnudaginn 2. febrúar. Útförin fer fram frá Landakirkju laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00. Vandamenn. Systir, móður- og ömmusystir okkar, HERDÍS GUÐMUNDSDÓTTIR, Túngötu 3 í Rey kjavík, lést á heimili sínu 29. janúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir, Geirlaug Herdfs Magnúsdóttir, Ragnheiður Birgisdóttir, Herdís Birgisdóttir og aðrir vandamenn. Ástkœr eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, EINAR MATTHÍAS KRISTJÁNSSON, Markholti 13, Mosfellsbæ, lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudag- inn 4. febrúar. Guðbjörg S. Kristjónsdóttir, Kristján Einarsson, Brynhildur Geirsdóttir, Bryndís Einarsdóttir, Guðmundur Ó. Hermannsson, Daði Þór Einarsson, Sigriður Björnsdóttir, Pétur Einarsson, Björg K. Björgvinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Elskulegur eiginmaður minn, KRISTJÁN ÖRN MAGNÚSSON, Hvolsvegi 28, Hvolsvelli, sem lést 27. janúar sl., verður jarðsung- inn frá Stórólfshvolskirkju laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00. Erla Jónsdóttir. arminn fyrir okkur, enn í fullu fjöri? En borðin, kistan og stólgrindumar? Nei, það var ekki hægt að ætlast til þess að nokkur smiður tæki slíkt verk að sér. Allt snúið, rennt og út- skorið. Ekki hægt að koma neinu verkfæri við. En við fórum samt til Jóhannesar. Einhvern veginn hefur maður á tilfinningunni að Jóhannes Egilsson hafi átt yndislega bemsku. Hann ólst upp í stórum hópi systkina og frændsystra á einhverri fegurstu bújörð landsins. Hann var yngstur, fjörugur og blíður, eftirlæti allra. Tveggja ára lét hann ekki smámuni fara fyrir brjóstið á sér frekar en síðar á ævinni. „Komdu, ég þarf að skipta á þér,“ kallaði Kristín systir til hans úti á hlaði þegar hún sá blauta bleiu flaks- ast niður undan stuttbuxunum. „0, það þornar,“ svaraði Jóhannes og hélt áfram að hlaupa áeftir stóru strákunum. Allt iagaðist ævinlega hjá Jóhann- esi og allir slitnir og bilaðir gripir öðluðust nýtt líf þegar hann hafði farið smiðshöndum sínum um þá. Gömlu húsgögnin í sumarbústaðnum urðu fallegri en nokkm sinni. Meira að segja ryðið var horfíð af keðjunni á ljósakrónunni og skrárlauf var komið á kistuna og lykill í lásinn. „Já, ætli það mætti ekki lappa upp á þetta,“ var viðkvæðið þegar leitað var til hans. Hann lagaði völtu borð- stofustólana. Það þurfti sérstaka lagni til að standa upp af þeim. Annars duttu þeir um koll og lágu á bakinu eins og dauðir fuglar. Jó- hannes fór létt með að breyta þyngd- arpunktinum. Að sjálfsögðu var leit- að til hans þegar einum í fjölskyld- unni áskotnaðist gamalt borð af því að það þótti orðið ljótt. Vissulega var borðplatan hrein hörmung, blettótt og slitin og tá dottin af einni ljóns- löppinni. Þegar Jóhannes skilaði borðinu var hægt að spegla sig í póleraðri plötunni. Aftur á móti er það enn óleyst gestaþraut hvaða tá hann felldi í skarðið á löppinni. Af ofangreindum dæmum mætti ætla að Jóhannes hefði fátt gert annað en dútla við viðgerðir fyrir fjölskylduna en því fer víðs fjarri. Langa starfsævi vann hann fyrir sér með húsgagnamíðum ef frá eru talin árin sem hann var ráðsmaður í Akur- eyrarskóla. Fyrsta haustverkið þar var að huga að vetrarforða fyrir heimavistina. Þá fór Jóhannes eitt- hvað austur í sveitir Þingeyjarsýslna, keypti fé á fæti og rak til Akur- eyrar. Hann var ákaflega barngóður og því fór vel á því að á verkstæðinu skyldi hann smíða borð og stóla í þúsundatali fyrir bamaskólana í Reykjavík. Hann smíðaði raunar margt annað en húsgögn, tók þátt í að reisa sæluhús uppi á Fimmvörðu- hálsi, smíðaði hljóðfæri og gerði við þau. Tómstundimar nýtti hann vel. Hann ræktaði salat og hvönn fyrir Stínu systur. Hann var lestrarhestur, hafði verið fyrirtaks námsmaður og átti gott bókasafn. Hann kom sér líka upp leikfangasafni svo að litlu frændsystkinin hefðu eitthvað að dunda við þegar þau komu í heim- sókn í Nökkvavog 6. Og hann lék á skrýtin hljóðfæri, mandólu og man- dólín. Hann lærði að spila hjá Sig- urði Briem í Reykjavík og lék í hljóm- sveit hjá honum, tók meira að segja þátt í tónleikum á „Bohéme-kvöldi“ í Reykjavík árið 1940 með Skúla Halldórssyni tónskáldi og fleira fólki. Ekki fer neinum sögum af því að Jóhannes hafí unnið smíðaafrek á bamsaldri en hann var ekki nema tveggja ára þegar hann kynntist helstu eiginleikum timburs. A þekj- unni fyrir ofan rúmið hans á Laxa- mýri var kvistgat. Hann hafði ógur- lega gaman af að standa uppi í rúm- inu og gægjast inn um gatið. Gallinn var sá að niðamyrkur var fyrir innan svo Jóhannes kveikti á kerti til að sjá betur. Það birti heldur en ekki upp. Hann blés á kertið en þótt iung- un hömuðust eins og fýsibelgur vildi loginn í holunni ekki slokkna. Til allrar hamingju var Siguijón bróðir, sex ára, nærstaddur og hrópaði að eldur væri að læsast um þekjuna, og Sigurður stóri bróðir heyrði til og eftir fáeinar sekúndur stóð fólk í þéttri röð í stiganum og fuilar vatns- fötur gengu upp og tómar niður þar til eldurinn var slökktur. En þá fannst sökudólgurinn ekki hvemig sem leitað var. Loks var það Stebbi bróðir, (Gunnbjörn) fjögurra ára sem kom auga á Jóa þar sem hann lá lafhræddur í hnipri undir borði. Hann var áreiðanlega ekki skammaður. Það var ekki lenska þar á bæ og systkinin vora ævinlega samheldin. Til er stórt safn bréfa sem þau skiptust á. Bræðurnir ferðuðust mikið saman þegar þeir vora orðnir fulltíða. Þeir höfðu yndi af íslenskri náttúra og heima í stofu héldu þeir ferðinni áfram þegar þeir skoðuðu litskyggnumar sínar. Jóhannes og Siguijón bjuggu lengst af saman, fyrst tveir en síðan með systur sinni og móður í Nökkvavogi 6. Þegar þær voru látnar vora þeir aftur tveir á báti. Það gekk ágætlega þangað til heilsan fór að bila hjá Sigurjóni og Jóhannes að verða gleyminn. Sigur- jón gætti í raun bróður síns miklu lengur en hann megnaði en svo fór að hann gafst upp, farinn að kröft- um. Þrautagangan í kerfínu hófst. Öldranarlæknir var kvaddur til og þá brást Jóhannes í fyrsta skipti á ævinni! Læknirinn lét hann gangast undir próf. Samkvæmt öllum lögmál- um hefði Jóhannes átt að kolfalla en hann stóðst prófíð með prýði. Hann var fluggreindur og samvisku- samur og þegar ókunnugur maður lagði fyrir hann spumingar notaði hann þessa einu mínútu sem hann átti eftir af skammtímaminni út i æsar, reiknaði dæmi, þuldi upp núm- HALLDÓR ÁGÚST GUNNARSSON Halldór Ágúst Gunnarsson var fæddur í Stykkis- hólmi 1. mars 1921. Hann lést á Sjúkra- húsi Reylgavíkur hinn 23. janúar síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Fossvogskirkju 30. janúar. Halldór afi er dáinn. Þessi stóri stæðilegi maður sem átti hug okkar allra er nú farinn frá stórum hópi afkom- enda. Síðustu ár afa voru honum erfíð, krabbameinið var hans eini óvinur á hans lífsferli. Afi var alltaf fílhraustur og hress í bragði, en þegar veikindin sóttu á hann, varð hann að lúta í lægra haldi. Honum var ekkert sérlega vel við að gista á sjúkrastofnun og vildi frekar liggja heima. Halldór afí var handlaginn maður, góður teiknari og ljósmyndari. í ára- tugi fékkst hann við húsamálun, bæði vestur í Súgandafirði og í Reykjavík. Alltaf þegar við heimsóttum afa, þá tók hann mynd af okkur og iðulega sendi hann hveijum og einum ein- tak af ljósmyndinni. Afa þótti afar vænt um sína afkomendur, mundi flesta afmælis- daga bamabarna og barnabamabarna, hélt öllu saman í dagbók og hlúði vel að öllum. Hall- dór afi var sérlega skemmtilegur kall, kunni ótal sögur og lék þær af innlifun, svo þeir sem á hlýddu grétu af hlátri. Sama þótt sögurnar voru alltaf þær sömu, þá höfðum við jafngaman af þeim. Þegar afi var á ferðalagi fyrir vest- an með okkur, gekk ferðalagið oft hægt, því afi sá svo margt sem þurfti að ljósmynda. Hann var duglegur með myndavélina og eftir hann liggja tugþúsundir mynda, Afi var með ættfræðina sína á hreinu og var stolt- ur af að vera Vestfírðingur. Af og til sendum við honum harðfísk, fersk- er og þegar hann var spurður að því hvaða árstíð væri, flýtti hann sér að gjóa augunum út að glugganum svo að hann sæi hvort tijágreinamar væra berar eða þaktar grænu laufí. Barlómur var honum víðs fjarri. Auðvitað gat hann eldað og ferðast með strætisvagni. Átti hann að fara að tíunda að hann gleymdi að slökkva á hellunum og villtist á leiðinni heim? Það vora smáatriði rétt eins og blauta bleian forðum. Enda fór öldrunar- læknirinn í þeirri sælu trú að Jóhann- es ætti ekkert erindi inn á elliheim- ili. En sem betur fer era í kerfínu konur sem hafa reynslu af því að hugga gamalmenni, telja í þau kjark og hjálpa þeim við daglegar þarfír í stað þess að spyija þau hvað sjö plús átta séu. Þessar konur kipptu Jó- hannesi inn um bakdyrnar þegar honum var fyrir skilningsleysi mein- aður inngangur um aðaldymar. Fyrst eftir að Jóhannes var kom- inn á Grand hresstist hann. Hann hafði oft verið einn af því að Sigur- jón var langdvölum á sjúkrahúsi. Á Grand var nóg af fólki og Jóhannes varð strax hrókur alls fagnaðar með- al vistmanna og eftirlæti starfsfólks- ins. Hann var einstaklega fríður, sviphreinn og unglegur þótt hann væri hálfníræður. Hann bar sig vel, glerfínn í fötum sem hann hafði sjálf- ur valið hjá Guðsteini, broshýr, hóg- vær og ljúfur. Hann varð kvenna- gull staðarins. Þær vildu láta hann leiða sig í borðsalinn, gömlu dömum- ar. Þá lá við að þær rifust um hann. „Þú einokar hann,“ gall eitt sinn í einni í aðdáendahópnum. Það var sú sama og reiddi stafinn til höggs nokkra síðar þegar ég gerðist svo djörf að taka Jóhannes undir arminn. Jóhannes átti nokkur góð ár á Grand og „strákarnir" Jóhann og Gunnar, synir Sigurðar bróður hans, reyndust honum einstaklega vel. Smám saman varð minnisleysið hon- um óbærilegt og gangráðurinn réð ekki lengur við að stilla hjartað. En það þurfti engan gangráð til að stilla hjartalagið. Það var óbreytt þegar hann lokaði augunum í síðasta sinn. „Sælir eru hjartahreinir því að þeir munu Guð sjá.“ Jóhannes var áreið- anlega ekki látinn bíða eftir áheym þegar hann knúði dyra í himnaríki. Fyrst eftir að Jóhannes kom á Grand þótti honum gaman að fara af bæ og stöku sinnum kom hann með okkur upp í sumarbústað. í síð- ustu heimsókninni bentum við honum á litla rennibraut sem nýbúið var að setja út á grasflöt handa barnabörn- unum. Hann var orðinn fjarska gleyminn en samt fór ekkert framhjá glöggum smiðsaugunum og um- hyggjan fyrir öðrum og þá sérstak- lega ungviðinu var óbreytt. „Er hún ekki of brött fyrir börn- in?“ sagði hann á sinn hógværa hátt. Við löguðum rennibrautina, Jóhann- es. Þakka þér fyrir. Margrét E. Jónsdóttir. an steinbít, hákarl, skötu og rauð- maga. Það þótti honum vænt um, sérstaklega ef afurðimar vora að vestan. Á hveiju sumri heimsótti hann Súgandaflörð og auðvitað með myndavélina og góða skapið. Þar átti hann marga góða vini og á enn. Þegar við systkinin voram böm á Suðureyri tók Halldór afí viðtal við okkur á segulband. Þessa upptöku eigum við og er hún okkur afar dýr- mæt. Hann átti sérlega auðvelt með að ná til barnanna og öll hafa þau setið í kjöltu hans, hjá þessum bros- milda stóra manni sem elskaði allt og alla. Stóri draumurinn hans afa, var að koma á ættarmóti. Afkomendur hans og Bryndísar ömmu eru nú að nálgast sjötta tuginn. Föngulegur hópur, sem nú er saman kominn til að kveðja hann með söknuði. Án efa verður ættarmótið haldið fljótlega á næstu misserum, nú í minningu afa og ömmu. Halldór afi verður ánægð- ur þegar hann hittir ömmu og þarf hann sjálfsagt að segja henni margt. Við vottum öllum afkomendum og tengdafólki afa dýpstu samúð og tökum undir skilaboðin hans, að halda hópinn hvað sem á dynur. Róbert, Halldór, Reynir, Anna María, Ágúst, Andrés og Jóna Þorgerður og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.